Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991.
23
TekstKRaðleggja
Stólana á Króknum?
Handknattleiks- og körfubolta-
menn ríða á vaöið í kvöld á sviði
íþróttanna sem fram undan eru um
helgina. Snæfellingar taka á móti
Þórsurum í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik og á sama tíma verður
stórleikur í sömu deild á milli
Njarðvíkinga og Keflvíkinga. Báðir
þessir leikir hefjast klukkan 20. í
1. deild á íslandsmótinu í hand-
knattleik leika KR og Valur í Laug-
ardalshöllinni klukkan 20.
í kvöld verða einnig nokkrir leik-
ir í neðri deildum. í 1. deild í körfu-
bolta leika ÍA og Skallagrímur á
Akranesi klukkan 20.30. í 2. deild
karla í handknattleik leika Breiða-
blik og Ármann í Digranesi klukk-
an 20 og strax á eftir leika tvö efstu
lið deildarinnar, HK og Þór frá
Akureyri. í 2. deild kvenna leika
Ármann og UMFG í Laugardals-
hölhnni klukkan 18.30.
Fjórir leikir í
1. deild handboltans
Á laugardag verða fjórir leikir í
handboltanum og hefjast þeir allir
klukkan 16.30. Víkingur og Stjarn-
an leika í Laugardalshölhnni, ÍR
og Fram í Seljaskóla, Grótta og
Selfoss á Seltjarnarnesi og að síð-
ustu leika Haukar og Selfoss í
Hafnarfirði.
Tveir leikir verða í 1. deild
kvenna, Víkingur og Valur leika
klukkan 13 í Laugardalshölhnni og
klukkan 16.30 FH og Fram í Kapla-
krika. í 2. deild karla leika ÍH og
Þór í íþróttahúsinu við Strandgötu
klukkan 15.
Stórleikur
á Króknum
Stórleikur verður í úrvalsdéild-
inni í körfuknattleik norður á
Sauðárkróki. Þar taka heimamenn
í Tindastóh á móti KR og hefst við-
ureignin klukkan 14. í 1. deild leika
á Egilsstöðum UÍA og Reynir úr
Sandgerði.
í Keflavík verður hið svokallaða
skrúfumót í fimleikum og mun það
standa fram eftir deginum.
Sundmót Ármanns verður í
Sundhöll Reykjavíkur og verður
þar samankomið margt af okkar
besta sundfólki. Mótiríu verður síð-
an fram haldið á sunnudeginum.
Pressuleikur í körfu-
bolta í Keflavík
Stærsti íþróttaviðburður sunnu-
dagsins er án efa pressuleikur í
körfuknattleik sem verður háður í
íþróttahúsinu í Keflavík. Hátíðin
sjálf hefst klukkan 16.30. Þar verða
samankomnir bestu kórfuknatt-
leiksmenn landsins en auk pressu-
leiksins verða ýmis skemmtiatriði
í boði og verður engin svikinn að
leggja leið sína í íþróttahúsið í
Keflavík á sunnudaginn kemur.
Einn leikur er á dagskrá í 2. deild
karla í handknattleik og eigast þar
viðAftureldingogKeflavík. -JKS
Guðmundur Guómundsson og lærisveinar hans í Víkingi leika gegn Stjörnunni í Laugardalshöllinni á laugar-
dag klukkan 16.30. Guðmundur sést hér í gólfinu eftir að hafa verið tekinn fóstum tökum af þeim Gunnari
Beinteinssyni og Guðjóni Árnasyni sem virðast hafa gaman af öllu saman en Guðmundur frekar hissa af
myndinni að dæma.
Sýiungar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýntr skúlptúrverk,
graflk og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum aö Stangarhyl
7. Opiö mánudaga til föstudaga kl. 12-18
og laugardaga kl. 12-14.
Árbæjarsafn
sími 84412
Safhið er opiö eftir samkoniulagi fyrir
hópa frá því í október og fram í maí.
Safnkennari tekur á móti skólabörnum.
Upplýsingar í síma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safhi Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í oliu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi.
FÍM-salurinn
Garðastræti 6
Krlstín Andrésdóttir sýnir í FÍM-salnum.
Stef um mannlega þjáningu er viðfangs-
efni Kristínar á þessari fyrstu sýningu
hennar. Sýningin er opin kl. 14-18 og
stendur til 26. febrúar.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Elinrós Eyjólfsdóttir sýnir nýjar vatns-
lita- og olíumyndir af blómum. Þetta er
önnur einkasýning hennar og er opin
virka daga kl. 10-18 og um helgar kl.
14-18. Sýningin stendur til 19. febrúar.
Gallerí List
Skipholti
í Gallerí List er komið nýtt, skemmtilegt
og nýstárlegt úrval af listaverkum: hand-
unnið keramik, rakúkeramik, postulín
og gler í glugga, skartgripir, graflk, ein-
þrykk og vatnslitamyndir eftir íslenska
listamenn. Opið kl. 10.30-18.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Rut Rebekka opnar sýningu á morgun
kl. 14 á olíumálverkum, vatnslitamynd-
um og grafík. Þema sýningarinnar er
tengsl mannsins og tónlistarinnar. Við
opnunina verður flutt tónlist. Sýningin
er áttunda einkasýning Rutar. Einnig
hefur hún tekið þátt í samsýningum hér
heima og erlendis.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiöjumunasafhið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, föstudaga og laugar-
daga.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún .
Nú standa yfir á Kjarvalsstöðum tvær
sýningar. f vestursal stendur yfir sýning-
in Mannlíf og saga sem kemur frá Hels-
inki. í austursal er sýning á verkiun eftir
J.S. Kjarval sem eru í eigu Reykjavíkur-
borgar. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Háskóla
Islands í Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safhinu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Um þessar mundir stendur yfir sýning á
verkum í eigu safhsins. í söliun 1, 2 og 4
eru sýnd verk eftir íslenska listamenn
og í sal 3 eru sýnd grafíkverk. Listasafn-
ið er opið alla daga nema mánudaga kl.
12-18 og er aðgangur ókeypis. Veitinga-
stofa safnsins er opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi er nú
til sýnis úrval af andhtsmyndum Sigur-
jóns frá timabilinu 1927-1980. Safhið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
og þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofa safns-
ins er opin á sama tíma.
Listhús
Vesturgötu 17
Pétur Már Pétursson opnar sýningu þar
á morgun kl. 14. Sýningin verður opin
alla daga nema mánudaga kl. 14-19. Þetta
er sýning á ljóðrænni abstraktlist og
nefnist hún Glæður.^
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Krisfján Jón Guðnason sýnir mynd-
skreytingar við ljóð Gyrðis Elíassonar og
nokkrar litkrítarmyndir frá Grikklandi.
Nýhöfn
Hafnarstræti 9
Daöi Guðbjörnsson opnar málverkasýn-
ingu á morgun kl. 14-16. Á sýningunni
eru oliumálverk og myndastyttur unnar
með blandaðri tækni á sl. tveimur árum.
Þetta er 19. einkasýning Daða en hann
hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis. Sýningin,
sem er sölusýning, er opin virka daga kl.
10-18 og kl. 14-18 um helgar. Lokað á
mánudögum. Henni lýkur 27. febrúar.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, simi 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Álfahakka 14
Þar stendur yfir sýning á verkum Daða
Guðbjörnssonar. Listamaðurinn sýnir 16
myndir, þar af 10 olíumálverk sem flest
eru máluð á sl. tveimur árum. Daði hefur
haldið fjölda einkasýninga innanlands og
erlendis. Auk þess hefur hann tekið þátt
í samsýningum víða um lönd og hér á
landi. Sýningin verður opin til 22. febrúar
á afgreiðslutima útibúsins, kl. 9.15-16, frá
mánudegi til föstudags. Sýningin er sölu-
sýning.
Póst- og símaminjasaf nið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Rikeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir Utlir hlutir.
Opið er á verslunartíma, þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga
og á laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið sunnudaga kl. 14-16.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu
Nýlega var opnuð myndlistarsýning í
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4. Þar sýna þrjár myndlistarkonur verk
sín sem flest eru unnin á síðasta ári.
BergUnd Sigurðardóttir sýnir 26 oliumál-
verk og pastelmyndir. Hrafnhildur Sig-
urðardóttir og Ingiríður Óðinsdóttir sýna
10 textílverk hvor. Sýningin verður opin
alla virka daga kl. 9-17 fram til 23. febrú-
ar.
Tifl<yimingar
Ferðastyrkir Letter-
stedtska sjóðsins
íslandsnefnd Letterstedtska sjóðsins hef-
ur ákveðið að veita ferðastyrki á árinu
1991 til íslenskra fræði- og vísindamanna,
sem ferðast vílja til Norðurlanda á árinu
í rannsóknarskyni. Tekið skal fram að
ekki er um eiginlega námsferðastyrki að
ræða heldur koma þeir einir til greina
sem lokið hafa námi en hyggja á frekari
rannsóknir eða þekkingarleit á sínu
sviði. Umsóknir skal senda til íslands-
nefndar Letterstedtska sjóðsins, c/o Þór
Magnússon, Pósthólf 1489,121 Reykjavík,
fyrir febrúarlok 1991. Veitir hann einnig
nánari upplýsingar.
Helgarflugur á Hótel Örk
Hótel Örk hefur tekið upp þá nýbreytni
að bjóða upp á vegleg helgarboð undir
heitinu „Helgarflugur á Hótel Örk". í
þessu tilboði felst gisting í tvær nætur
með morgunverði ásamt veislukvöld-.
verði á laugardagskvöldi og dansleik að
auki. Verðið er kr. 5.950 fyrir manninn í
tveggja manna herbergi. Helgarflugur
Hótel Arkar eru sérstaklega ætlaðar
þeim sem vQja komast burt frá erli dags-
ins og njóta frískandi afslöppunar eða
hressilegs helgarfjörs. Ævintýraheimur
Hótel Arkar hefur allt sem til þarf, gestir
hafa frían aðgang að gufubaði, útisund-
laug, heitum pottum og likamsræktarsal
svo fátt eitt sé nefht.
Þjóðminjasafn Islands
eignast útskorinn skáp
Þjóðminjasafn íslands hefur eignast ís-
lenskan útskorinn skáp frá 1653 sem ver-
ið hefur í Danmörku í nær hundrað ár.
Daníel Bruun höfuðsmaður eignaðist
skápinn er hann var hér við rannsóknir
á menningarminjum og lifnaðarháttum
íslendinga á árunum 1896-1909 og hefur
skápurinn verið í eigu ættingja hans síð-
an. Daniel Bruun skrifaði bók um rann-
sóknir sínar á íslandi, „Fortidsminder
og Nutidshjem paa Island" og kom það
verk út í íslenskri þýðingu.árið 1987 á
vegum Bókaútgáfu Arnar og Öriygs, mik-
ið rit í tveimur bindum, er hlaut nafnið
íslenskt þjóðlíf í þúsund ár. Af því tilefni
var efnt til sýningar í Bogasal Þjóðminja-
safns á myndum og handritum Daniels
Bruun. Tengdadóttir Daniels Bruun, frú
Inge Bruun í Óðinsvéum, gaf skápinn til
íslands í viðurkenningarskyni við hina
íslensku útgáfu á riti hans og kom skáp-
urinn til landsins í byrjun þessa árs.