Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1991. Fréttir sjá lóuna Nokkrar fuglategundir, sem ekki er vanalegt að sjá hér á landi, hafa sést undanfarið. Þar á meðal eru krákur, vepjur, tjald- ur, krossnefur og lóa. Jóhann Brandsson hjá Nátt- úrufræðistofnun íslands segir að krákur komi hingað með nokk- urra ára millibili og teljist ekki mjög sjaldgæflr flækingar. „Tjaldurinn er hér meira og minna allan veturinn og gjaman síðla vetrar hérna viö Suðvestur- landið. Með lóuna er hins vegar annað máh Ég vil fá að sjá hana áður en ég segi nokkuð. En svo mikið get ég sagt að lóan er ekki komin, allavega ekki okkar lóa. Þetta getur verið einhver lóuteg- und,“ segir Jóhann. Þótt þetta sé ekki alvanalegur timi fyrir þessa fugla segir Jó- hann aö þeir séu flækingar sem geti komið hvenær sem err Veðrið hafi lítil sem engin áhrif á komu þeirra. -ns „Það er ekki hætta á ferðum fyrir gróðurimi enn sem komið er. Ef þetta hlýindaskeið stendur í tvær til þrjár vikur til viðhótar gætu tré, runnar og blóm farið að taka við sér. Ef svo kólnaði skyndílega gæti gróðurinn farið illa,“ segir Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumaður. „Það er frekar fátt sem fólk get- ur gert til að vernda gróðurinn. En ef það á tiltækt lauf eða grein- ar er til bóta að leggja þær yflr beð. Laukar og flölærar jurtir eru yfirleitt farnar að gægjast upp á þessum árstíma en plönturnar láta þar við sitja uns sól fer að hækka á loítí og það fer að hlýna í veðrí. Árið 1963 kom langt hlýinda- skeið en í apríl kólnaði skyndi- lega sunnanlands og þá fóru lauf- tré rojög illa, sérstaklega aspir og grenitré. Þessar aspir voru af suðrænu kvæmi en þær aspir, sem fólk ræktar í görðnm sínum í dag, eru mun harðgerðari og þola því betur kuldaköst og það samagUdirumgrenið.“ -J.Mar Óvenjuleg irmheimta: Hengja upp nafn skuldara íversluninni Verslunin Fellakjör í Iðufelli hefur nokkuð óvenjulegar aö- ferðir við að innheimta skuldir hjá viðskiptavinum sínum. Nöfn þeirra og heimilisföng eru hengd upp við kassann í versluninni, þeim og öðrum til aðvörunar. Núna hangir uppi nafn og heimil- isfang konu einnar þar sem til- tekiö er hversu mikið hún skuld- ar versluninni. Aðstoðarverslunarstjóri Fella- kjörs segir þetta vera gert til koma skilaboðum til skuldar- anna. Aðspurður um hvort ekki væri hægt að gera það á annan hátt sagði hann: „Ég vil ekki svara þér, þetta er ekki þitt mál.“ - Eru þetta venjulegir viðskipta- hættir hjá ykkur? „Já, ég hugsa að konan eigi þetta skilið fyrst hún skuldar þetta.“ - En er ekkí hægt að komast í samband við hana öðruvísi? „Hún vill ekki hafa það svoleið- is.“ - Fyrst þetta tíðkast hjá ykkur, ber þetta góðan árangur? „Þér kemur það bara ekki við. Égvilekkertviöþigtala.“ -ns Skyldutrygging bifreiða á íslandi: Iðgjöld fjórum sinn- um hærri en í Svíþjóð - samt vilja tryggingafélögin aHt að 20 prósent hækkun 1. mars íslenskir ökumenn verða að greiða flórfalt hærra verö fyrir skyldu- tryggingu á bifreiðum sínum heldur en sænskir bifreiðaeigendur. Kjör á kaskótryggingum virðast hins vegar vera sambærileg. Á íslandi er sjálfs- ábyrgðin hærri en í Svíþjóð en á móti koma lægri iðgjöld. í samanburði sem DV hefur gert á iðgjöldum tryggingafélaga í Svíþjóð og á íslandi var gengið út frá þeirri forsendu að greiðandinn sé 35 ára gamall, hafl ekið tjónlaus í 4 til 5 ár í borgarumferð, og eigi þriggja ára gamla Volvó bifreið, GLE 240. Leitað var til tveggja íslenskra tryggingafé- laga, Sjóvá-Almennra og VÍS, og tveggja stórra félaga í Svíþjóð, Vasa- försákringer og Skandia försákrin- ger. Stuðst var við iðgjaldaskrá félag- anna 1. febrúar síðasthðinn. Hjá sænsku tryggingafélögunum er iðgjaldið á skyldutryggingunum um 13 þúsund krónur en hjá þeim íslensku er það ríflega 40 þúsund. í öllum tilfellunum var miðað við að bifreiðeigandinn hafl áunnið sér 50 prósent í bónus. Þess má geta að hjá íslensku félögunum getur afsláttur- inn hæstur orðið um 65 prósent eftir 10 ára öruggan akstur. í Svíþjóð get- ur hann náð allt að 75 prósentum. Miðað við þær forsendur er verð- munurinn því enn meiri, getur orðið allt að fimmfaldur. Hvað varðar kaskótryggingar er verðmunurinn minni á iðgjöldum. Hjá sænsku tryggingafélögunum er iðgjaldið 57 til 59 þúsund krónur, miðað við 50% bónus og sjálfsábyrgð upp á 11 til 14 þúsund krónur. Þar getur bónusinn hins vegar farið upp í 75 prósent og iðgjaldið þar með far- ið niður í 41 þúsund krónur. Hjá ís- lensku tryggingafélögunum er ið- gjaldið rúmar 33 þúsund krónur, miðað við hámarks bónus upp á 40 prósent og sjálfsábyrgð upp á tæp- lega 25 þúsund krónur. Þrátt fyrir þennan mikla mun á iðgjöldum sænskra og íslenskra tryggingafélaga má búast við að munurinn aukist enn frekar um næstu mánaðarmót. íslensku trygg- ingafélögin ætla á næstunni sækja um allt að 20 prósent hækkun á ábyrgðartryggingu ökutækja, sem ásamt slysatryggingu ökumanna, eru skyldutryggingar. Um síðustu mánaðarmót hækkaði slysatrygging- in um 78% og er nú 10.600 krónur. Rök tryggingafélaganna fyrir þess- ari hækkun ábyrgðartryggingarinn- ar eru að félögin hafi tapað allt að 500 milljónum vegna hennar á síð- asta ári. Fyrir mánuði síðan komu félögin með samskonar rök hvað varðar slysatrygginguna. -kaa Frumvarp um nýskipan lyflamála: llla unnið og heimsku* legt kosninga plagg - segirWernerRasmussonapótekari „Þetta frumvarp er í raun lævísleg leið til að svipta apótekara eignum sínum. Við eigum að fá greidda ákveðna þóknun fyrir að sjá um lyfiadreifinguna og standa undir flárfestingum okkar. Stærriapótekin eiga að fá minna í þóknun heldur en þau minni og það fær ekki staðist. Kostnaður apótekara er svo misjafn að allt mat á sanngjarnri þóknun verður ósanngjarnt," segir Wemer Rasmusson apótekari um frum- varpsdrög þau um nýskipan lyfla- mála sem Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra kynnti í síðustu viku. Werner segir frumvarpið vera illa unnið kosningaplagg sem sé gert af vanþekkingu og í því sé að finna ýmsar rangtúlkanir á raunveruleik- anum. Hann segir frumvarpið ge'ra ráð fyrir óheyrilega miklu valdi í jafn sérhæfðum málaflokki eins og lyfia- innkaup séu og að það sé þvert á þá þróun sem hafi átt sér stað í Evrópu að undanförnu. „Ráðherra heldur því fram að til- gangurinn sé að ná fram spamaði. Ég hef hins vegar ekki fengið neinn rökstuðning fyrir því að svo verði né séð tölur sem benda til þess. Þvert á móti er ýmislegt sem bendir til þess að útgjöldin aukist,“ segir Werner. Werner segir mikið óhagræði og aukinn kostnað felast í því ef ríkið tæki að sér öll lyfiainnkaup og greiddi apótekurum einungis ákveðna þóknun fyrir lyflaafgreiðslu eins og fmmvarp heilbrigðisráð- herra geri ráð fyrir. Þannig myndi til dæmis hin nýja lyfiastofnun í raun eiga allar lyflabirgðir í apótekunum. Shkt fyrirkomulag myndi draga úr hagkvæmni lyfiadreifingarinnar og ábyrgðarkennd apótekara. „Lyfladreifingin yrði án eðlilegs á’ðhalds. Ég gæti til dæmis pantað ótakmarkað af lyfium frá stofnun- inni án þess að borga fyrir þau og til lengdar myndi það kalla fram aukin afföll og rýrnun. í dag þarf ég sjálfur að taka á mig slíkan kostnað. Og ef það yrði komið upp lyflakvótum á hvert apótek myndi það óhjákvæmi- lega leiða til þess að við yrðum að visa viðskiptavinum okkar á dyr þeg- ar birgðir þrjóta. Hvað á ég þá að segja við kúnnann? „Farðu annað, því ég er búinn með kvótann!" Þetta er heimskulegt og maður verður bara að vona að alþingismenn beri gæfu til að skoða þetta frumvarp mjög vel.“ -kaa Kaskótrygging á bifreiöum Verðsamanburður á iðgjöldum í Svíþjóð og á (slandi (meðaltal) Þús kr. -i Iðgjald 33.119 41.072 Sjálfsábyrgð 24.500 (sland 12.555 Svíþjóð Við samanburðinn er miðað við iðgjaldaskrár tveggja trygginga- félaga á íslandi og tveggja félaga í Svíþjóð , 1. febr. 1991. Við athugunina er gengið út frá að tryggingataki hefði hámarks- bónus (40% á íslandi og 75% í Svíþjóð.) og að hann ætti Volvo 240 GLE, árgerð 1987. Skyldutrygging á bifreiðir Þús kr. Verðsamanburður á iðgjöldum í Svíþjóð og á íslandi (meðaltal) 40.291 12.863 Svíþjóð Abyrgðartrygging 30.091 Slysatrygging zvvmmmmmm 10.200 ísland Við samanburðinn er miðað við iðgjaldaskrártveggjatrygginga- félaga á íslandi og tveggja félaga í Svíþjóð , 1. febr. 1991. Við athugunina er gengið út frá að tryggingataki hefði 50% bónus og að hann ætti Volvo 240 GLE, árgerð 1987. Islenska skáklandsliðið í skólaskák. DV-mynd BG Norræn skólaskák: Islendingar haf a verið sigursælir Einstakhngskeppni í norrænni skólaskák hófst í Þórshöfn, Færeyj- um, í gær og stendur til 17. febrúar. Keppni þessi er árviss viðburður og hafa íslendingar hingað til staðið sig vel. Þeir sigruðu í tveimur flokkum af fimm á síðasta ári og flórum árið 1989. Fyrir utan það náðu íslensku skákmennirnir bestri heildarút- komu þessi ár. í einstaklingskeppninni er teflt í fimm aldursflokkum og á hvert Norðurlandanna rétt á að senda tvo keppendur í hyern flokk. Að þessu sinni fara fyrir íslands hönd í A-flokk þeir Sigurður Daði Sigfússon og Magnús Pálmason, í B-flokk fara Ragnar Fjalar Sævarsson og.Þórleif- ur Karlsson, í C-flokk Ilelgi Áss Grét- arsson og Magnús Öm Ulfarsson, í D-flokk Arnar E. Gunnarsson ög Matthías Kjeld og í E-flokk Berg- steinn Einarsson og Jón Viktor Gunnarsson. Fararstjórar eru Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.