Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 26
34 Afmæli W)'sfÚdÁGUá Í5. í'ÉfeiRÚÁR 1991. Þorsteinn Geirsson Þorsteinn Guölaugur Geirsson ráðuneytisstjóri, Asbúð 88, Garðabæ, er fimmtugur í dag. Starfsferill Þorsteinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MA1961 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ1966. Þorsteinn var fulltrúi hjá Árna Guðjónssyni hrl. 1966, fulltrúi í í]ár- málaráðuneytinu frá desember 1971, deildarstjófi þar frá ársbyijun 1973 og skrifstofustjóri frá 1974-84. Hann var ráðuneytisstjóri í sjávar- útvegsráðuneytinu frá 1.5. og til árs- loka 1984 og hefur verið ráðuneytis- stjóri í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu frá ársbyrjun 1985. Þorsteinn var m.a. formaður samninganefndar ríkisins í launa- málum 1977-84, formaður tollskrár- nefndar frá 1977, í stjórn Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins frá árs- byrjun 1981 og formaður 1984-90 og í Félagsdómi, tilnefndur af fjármála- ráðherra, 1981-83. Hann var formaður FUF í Reykja- vík og sat í miðstjórn Framsóknar- flokksins 1970-72 og sat í stjórn Lög- mannafélags íslands 1968-71. Fjölskylda Þorsteinnkvæntist 28.12.1962 fyrri konu sinni, Guðrúnu Kol- brúnu Siguröardóttur, f. 15.6.1943, d. 8.3.1983, kennaraogleirkera- smið, en hún var dóttir Sigurðar M. Helgasonar, fyrrv. borgarfógeta í Reykjavík, og konu hans, Þor- bjargar Gíslasonar húsmóður. Börn Þorsteins og Guðrúnar Kol- brúnar eru Sigurður, f. 19.4.1963, starfsmaður hjá ÁTVR í Reykjavík, en sambýliskona hans er Rose Marie Andrésdóttir; Þóra Björg, f. 12.5.1965, starfsmaðurLáunaskrif- stofu ríkisins; Vala Rebekka, L20.ll. 1973, nemi við MR. Þorsteinn kvæntist 22.11.1986 seinni konu sinni, Maríu Friðriku Haraldsdóttur, f. 13.9.1949,húsmóð- ur og fyrrv. gjaldkera en hún er dóttir Haralds Þorvarðssonar, skrif- stofumanns hjá SÍS í Reykjavík, og konu hans, Marselíu Adólfsdóttur húsmóður. Sonur Þorsteins og Maríu er Har- aldur Geir, f. 12.12.1986. Sonur Mar- íu og fóstursonur Þorsteins er Sig- urþór Smári Einarsson, f. 24.3.1975, nemi. Systkini Þorsteins eru Steinunn Guðrún, f. 31.1.1930, húsmóðir í Reykjavík, gift Ingvari Þorsteins- syni húsgagnasmíðameistara og eiga þau fimm börn; Magnús, f. 18.9. 1931, formaður Rafiðnaðarsam- bands íslands, kvæntur Unni Bryndisi Magnúsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú böm; Ágúst, f. 18.3. 1933, símstjóri í Reykjavík, kvæntur Kristínu Zoega og eiga þau þrjú böm; Valgeir, f. 29.11.1936, d. 15.10. 1962, stýrimaður, en sambýliskona hans var Ásthildur Jóhannesdóttir og eignuðust þau eina dóttur; Geir, f. 4.5.1939, löggiltur endurskoðandi, kvæntur Hugrúnu Einarsdóttur og eiga þau fjögur börn; Sigurður, f. 10.4.1943, skólastjóriRafiðnaðar- skólans, kvæntur Guðlaugu Jónu Aðalsteinsdóttur og eiga þau tvo syni. Foreldrar Þorsteins vom Geir Magnússon, f. 30.10.1897, d. 2.8.1955, sjómaður í Reykjavík, og kona hans, Rebekka Þorsteinsdóttir, f. 15.9. 1899, d. 3.4.1945, húsmóðir í Reykja- vík. Ætt og frændgarður Geir var sonur Magnúsar, b. á Ytri-Þurá í Ölfusi, Jónssonar, b. í Saurbæ, Guðnasonar. Móðir Jóns var Sigríður, vinnukona í Saurbæ, dóttir Snorra Magnússonar, tómt- húsmanns í Þorlákshöfn, og konu hans, Þuríðar Jónsdóttur. Móðir Geirs var Katrín, systir Valgerðar, móður Vals Gíslasonar leikara, föður Vals bankastjóra. Val- gerður var einnig amma Guðmund- ar H. Garðarssonar alþingismanns. Katrín var dóttir Freysteins, b. á Hjalla í Ölfúsi, Einarssonar, b. á Þurá, bróður Jóns, langafa Halldórs Laxness. Systir Einars var Sólveig, langamma Arinbjamar Kolbeins- sonar læknis. Einar var sonur Þórð- ar „sterka", b. á Vötnum, Jónsson- ar, b. á Sogni, Þórðarsonar. Móðir Einars var Ingveldur, systir Gísla, langafa Vilborgar, ömmu Vig- dísar forseta. Ingveldur var einnig systir Guðmundar, langafa Ólafs, afa Ólafs Ólafssonar landlæknis. Guðmundur var einnig langafi Lilju, ömmu Karls Kvaran. Þá var Ingveldur systir Jóns, langafa Kon- ráðs, langafa Júlíusar Hafstein borgarfulltrúa. Ingveldur var dóttir Guðna, b. í Reykjakoti, ættföður Reykjaköts- ættarinnar, Jónssonar og konú hans, SigríðarHelgadóttur. Móðir Freysteins var Sigríður Jónsdóttir, b. á Þurá, Freysteinsson- ar. Móðir Katrínar var Vcdgerður Þorbjörnsdóttir, b. á Yxnalæk, Jóns- sonar, silfursmiðs á Bíldsfelli, lang- afa Einars, langafa Jóhönnu Sigurð- ardóttur ráðherra. Móðir Valgerðar var Katrín, systir Odds, langafa Sal- varar, ömmu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Oddur var einnig langafi Steindórs, afa Geirs Haarde alþingismanns. Katrín var dóttir Björns, b. á Þúfu, Oddssonar og konu hans, Guðrúnar Eyjólfsdóttur, b. á Kröggólfsstöðum, Jónssonar, ættföður Kröggólfsstaðaættarinnar. Rebekka var dóttir Þorsteins, skipstjóra í Þormóðsey og síðan Ell- iðaey á Breiðafirði, Lárussonar, b. á Saurum í Helgafellssveit, bróður Gísla, afa Þórðar Kárasonar fræði- manns. Gísli var einnig afi Svavars Gests, hljómlistarmanns og dag- skrárgerðarmanns, og langafi Vil- borgar Harðardóttur, fyrrv. rit- stjóraÞjóðviljans. Þorsteinn Geirsson. Láms var sonur Sigurðar, b. á Saurum, Gíslasonar og Elínar, syst- ur Guðmundar, langafa þeirra bræðra, Kristjáns, fyrrv. hrepp- * stjóra í Hólahreppi, og Gunnars, for- manns Framleiðsluráös landbúnað- arins, Guðbjartssona, en bróðir Guðbjarts var Stefán, faðir Alex- anders, fyrrv. ráðherra. Þá var Guð- mundur faðir Halldórs, langafa Ing- ólfs Margeirssonar ritstjóra. Annar bróðir Elínar var Jóhannes, langafi Guðmundar. J. Guðmundssonar. Elín var dóttir Þórðar Jónssonar, b. á Hjarðarfelli og ættföður Hjarð- arfellsættarinnar. Móðir Þorsteins var Guðrún Andrésdóttir, b. á Sellátri við Stykk- ishólm, Hannessonar, b. á Knarrar- höfn í Hvammssveit, Andréssonar. Móðir Rebekku var Steinunn Pét- ursdóttir frá Helhssandi. Þorsteinn er að heiman á afmælis- daginn. Ömólfur Ámason Örnólfur Árnason rithöfúndur, Bræðraborgarstíg 8, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Örnólfur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR1960, stundaði nám í lögfræði viö HÍ í tvö ár án þess aö ljúka prófi, var síðar við nám við HÍ í ensku og enskum bókmennt- um og stundaði nám í spænskum bókmenntum við háskólann í Barcelona og nám við leiklistar- háskólann í Barcelona. Örnólfur var blaðamaður við Morgunblaðið 1963-66, leiklistar- gagnrýnandi þar 1966-69, kennari í íslensku og ensku við gagnfræða- stigið 1966-70, fararstjóri og síðast aðalfararstjóri Útsýnar á Spáni 1968- 78, umsjónarmaður fastra þátta um leiklist í sjónvarpi 1969- 70, og í útvarpi 1973-74, fram- k væmdastj óri Kvikmyndafélagsins Óðins hf. 1980-87 og framleiðandi kvikmyndanna Punktur, punktur, komma strik og Atómstöðin. Örnólfur var formaður Leik- skáldafélags íslands 1975-86, for- maður Leikskáldafélags Norður- landa 1980-82, varaformaður Fastanefndar leikskálda (PPC) við Alþjóðaleikhússtofnunina hjá UNESCO1981-85, ritari Leiklist- arráðs íslands 1978-85, fram- kvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík 1979-83 og fram- kvæmdastjóri Kvikmyndahátíðar 1980-83. Frumsamin verk Örnólfs eru Svartfugl, leikrit eftir skáldsögu Gunnars Gunnarssonar, sýnt í Þjóðleikhúsinu 1971; Samson, leik- rit sýnt í íslenska og norska sjón- varpinu 1971; Viðtal, leikrit flutt í ríkisútvarpinu 1975 og einnig út- varpað í Noregi, Finnlandi, Holl- andi, Þýskalandi og Portúgal; Aö selja sólina, handrit að heimildar- kvikmynd um Andalúsíu, sjón- varpi 1976; Costa del Sol - Andalús- ía, ferðahandbók 1977; Costa Brava - Mallorca - Costa Blanca, ferða- handbók 1978; Upp úr efstu skúffu (Blessuð minning), leikrit í ríkisút- varpi 1977, einnig útvarpað í Nor- egi, Belgíu og á írlandi, flutt á sviði í London og á Edinborgarhátíðinni samaár; Silkitromman, óperulí- brettó, sýnt í Þjóðleikhúsinu 1982 og í þjóðleikhúsi Venesúela 1983; Atómstöðin (ásamt öðrum), kvik- myndahandrit 1983; The Secret of the Icecave (ásamt öðrum), kvik- myndahandrit fyrir Cannon Film 1989. Þá hefur Örnólfur þýtt fjölda leik- rita eftir ýmis þekkt skáld og rit- höfunda. Fjölskylda Kona Órnólfs er Helga E. Jóns- dóttir, f. 28.12.1945, leikari er starf- ar við Þjóðleikhúsið, en hún er dóttir Jóns Kristinssonar, fyrrv. forstöðumanns elliheimilanna á Akureyri, og Arnþrúðar Ingimars- dótturhúsmóður. Börn Örnólfs og Helgu eru Mar- grét Örnólfsdóttir, f. 21.11.1967, hljómlistarmaður; Jón Ragnar, f. 22.9.1970, tónlistarnemi; Álfrún Helga, f. 23.3.1981, og Árni Egill, f. 24.7.1983. Systur Ömólfs eru Margrét Árnadóttir, f. 11.6.1951, leikari, og Olga Guðrún Árnadóttir, f. 31.8. 1953. Foreldrar Ömólfs eru Árni Þor- steinn Egilsson, f. 22.3.1918, loft- skeytamaður og fyrrv. fulltrúi hjá Pósti og síma, og Finnborg Örnólfs- dóttir, f. 22.11.1918, fyrrv. útvarps- þulur ogleikkona. Ætt og frændgarður Árni er sonur Egils, veitinga- manns í Tjarnar-Café, Benedikts- sonar, b. á Þorbergsstöðum í Döl- um, Kristjánssonar, hreppstjóra þar, Tómassonar, b. á Ketilsstöð- um, Eiríkssonar. Móðir Kristjáns var Hólmfríður Hallgrímsdóttir, b. í Blönduhlíð í Hörðudal, Magnús- sonar. Móðir Hallgríms var Stein- unn Jónsdóttir, systir Jóns, afa Sveins, föður læknanna Kristjáns og Jónasar og afa Sveins Jónsson- ar, formanns KR. Móðir Benedikts var Ása Egilsdóttir frá Hornstöðum Jónssonar. Móðir Ásu var Margrét Markúsdóttir, b. á Svarfhóli, bróð- ur Magnúsar, langafa Stefáns frá Hvítadal. Móðir Egils var Margrét Steinunn Guðmundsdóttir, b. í Snóksdal, Guömundssonar. Móðir Árna var Margrét Árna- dóttir, prests í Kálfatjörn, bróður Steinunnar Guðrúnar, móður Þór- is Bergssonar og Magnúsar Jóns- sonar, prófessors og ráðherra. Árni var einnig bróöir Þorsteins, langafa Karítasar, móöur Jóhönnu Sigurð- ardóttur ráðherra. Árni var sonur Þorsteins, b. í Úthlíð, Þorsteinsson- ar, b. á Hvoh í Mýrdal, hálíbróður Bjarna Thorsteinssonar amt- manns, fóður Steingríms skálds. Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. í Kerlingadal, Steingrímssonar, bróður Jóns eldprests. Móðir Áma Ástrós Þorsteinsdóttir Ástrós Þorsteinsdóttir, Höföa- götu 16, Stykkishólmi, er íimmtug ídag. Eiginmaður hennar er Ólafur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvarinnar Skipavík- urhf. Þau hjónin taka á móti gestum í dag í félagsheimili Tannlæknafé- lags íslands, Síðumúla35, Reykja- vík, millikl.l8og21. Örnólfur Árnason. var Sesselja Árnadóttir, b. á Naust- um í Eyjafirði, Sigurðssonar. Móðir Margrétar var Ingibjörg Valgerður Sigurðardóttir, b. í Þerney í Kolla- firði, Arasonar. Finnborg er hálfsystir Valdimars íþróttakennara en hún er dóttir Örnólfs, kaupmanns ogútgerðar- manns á Suðureyri við Súganda- fiörð, Valdimarssonar, bókhaldara þar, Örnólfssonar, skipstjóra á Isafirði, Þorleifssonar, hreppstjóra á Suðureyri, Þorkelssonar. Móðir Valdimars var Margrét Jónsdóttir Sumarliðasonar og Þorbjargar Þor- varðardóttur, b. í Eyrardal við Álftafjörð, Sigurðssonar, b. í Eyr- ardal og ættföður Eyrardalsættar- innar, Þovarðarsonar. Móðir Örn- ólfs var Guðrún Sigfúsdóttir, tré- smiðs á ísafirði, Pálssonar í Þó- runnarseli Þórarinssonar á Vík- ingsvatni. Móöir Finnborgar var Finnborg Kristjánsdóttir, útvegsb. á Suður- eyri, Albertssonar, b. á Gilsbrekku, Jónssonar. Örnólfur verður að heiman á af- mælisdaginn. Tilham- ingju með 15.febrúar 85 ára Guðmundur Halldórsson, Lagarfelli 21, Fellahreppi. Ásgeir Pétursson, Kópavogsbraut 1A, Kópavogi. Jón Sigurðsson, Ægissíðu 50, Reykjavík. 80 ára Björg Bóasdóttir, Túngötu 7, Reyðarfirði. Halldóra Sigurðardóttir, Grænumörk 3, Selfossi. 70 ára Kristín Jónsdóttir, Njálsgötu 31A, Reykjavík. 60 ára Álfheiður Björnsdóttir, HÖrgatúni 11, Garðabæ. Unnur Björnsdóttir, Grænahjalla 29, Kópavogi. Þær systur taka á móti gestum að Fannborg 1, Kópavogi, kl. 15-18 Iaugardagínn 16. febrúar. Ástríður Karlsdóttir, Faxatúni 19, Garðabæ. 50 ára Fanney Ágústa Jónsdóttir, Grenigrund 36, Akranesi. 40 ára Kristjana G. Guðmundsdóttir, Safamýri 87, Reykjavik. Andrés Andrésson, Efstalandi 10, Reykjavik. Ema Lúðvíksdóttir, Stjörnusteinum 1, Stokkseyri. Svandis Erla Ingólfsdóttir, Ásgarði 143,Reykjavík. Engilbert Gislason, Skógarási 13, Reykjavík. Hrafnhildur Steingrímsdóttir, Hryggjarseli 1, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.