Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1991, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1991.
33
Lífestm
Paprika
Jútf Afl. Sapl. OkL Nóv. Oii. Jan. F.b.
Tómatar
Verð í krónum
245
Júfc’ ÁgúBtS.pl. OkL Nóv. D«i. Jkn Féb.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Mikil verðhækk-
un á blómkáli
- verðlækkun á tómötum og grænum vínberjum
Neytendasíöa DV kannaöi að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum: Bónusi Hafnarfirði,
Fjarðarkaupi Hafnaríirði, Hagkaupi
Kringlunni, Kjötstöðinni Glæsibæ og
Miklagarði, Kaupstað í Mjódd. Bón-
usbúðirnar selja sitt grænmeti í
stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
TU að fá samanburð þar á milli er
grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
verð.
Lækkun sem nam 11% varð á með-
alverði á tómötum frá í síðustu viku
og er meðalverðið nú 245 krónur.
Tómatar voru á hagstæðasta verðinu
í Bónusi á 97 krónur. Næst á eftir
kom verðið í Fjarðarkaupi, 232, Kjöt-
stöðin og Hagkaup voru með sama
verðið, 298, og Mikhgarður 299 krón-
ur. Munur á hæsta og lægsta verði
var 208%. Það virðist nánast regla
að munur á hæsta og lægsta verði á
tómötum sé meira en 200%.
Meðalverð á gúrkum hækkaði um
10 af hundraði milli vikna og er það
nú 322 krónur. Gúrkur voru ódýrast-
ar í Bónusi á 185 krónur kílóið. Næst
kom verðið í Fjarðarkaupi, 326,
Miklagarði, 348, Hagkaupi, 369 og
Kjötstöðinni, 380. Munur á hæsta og
lægsta verði á gúrkum var 105%.
Lækkun varð á meðalverði á
sveppum sem nam 6 af hundraði og
er það nú 466 krónur. Sveppir voru
ódýrastir í Bónusi en þar var kíló-
verðið 330 krónur. Næstódýrast var
jrerðið í Fjarðarkaupi, 444, Kjötstöðin
seldi sveppi á 448, Mikligarður 545
og Hagkaup á 564 krónur. Munur á
hæsta og lægsta verði var 71 af
hundraði.
Meðalverð á grænum vínberjum
lækkaði um 12% og er það nú 313
krónur. Græn vínber voru á hag-
stæðasta verðinu í Bónusi á 145 kr.
en næst komu Fjarðarkaup, 246,
Mikligarður, 345, Hagkaup, 355 og
Kjötstöðin, 475 krónur. Töluverður
munur var á hæsta og lægsta verði
á grænum vínberjum eða heil 228%.
Hækkun um 9% varð á meðalverði
á grænni papriku frá í síðustu viku.
Græn paprika var á hagstæðasta
verðinu í Bónusi en þar kostaði kíló-
ið 226 krónur. Síðan kom verðið í
Fjarðarkaupi, 316, Kjötstöðinni, 322,
Miklagarði, 398, og Hagkaupi, 495.
Munur á hæsta og lægsta verði á
grænni papriku var 119%.
Meðalverð á kartöflum lækkaði lít-
ið eitt frá í síðustu viku en lækkunin
nam 4 af hundraði. Meðalverðið er
nú 74 krónur. Bónus var með lægsta
verðið, 55 kr„ síðan kom Fjarðar-
kaup með 75,50, Kjötstöðin 79, Mikli-
garður 79,50 og Hagkaup 82 krónur.
Munur á hæsta og lægsta veröi á
kartöflum var 45%.
Blómkál fékkst ekki í Bónusi en
meðalverðið á hinum fjórum saman-
burðarstöðunum var 252 krónur
kílóið. Það er mikil hækkun, nemur
34% frá í síðustu viku. Blómkál
fékkst á hagstæðasta verðinu í Fjarð-
arkaupi, 195, síðan kom Kjötstöðin,
243, Hagkaup, 249, og Mikligarður,
319 krónur. Það munaði 64% á hæsta
og lægsta verði á blómkáli að þessu
sinni.
Meðalverðið á hvítkáli er nú 110
krónur en það er hækkun um 7% frá
meðalverðinu í síðustu viku. Hvítkál
var ódýrast í Bónusi en þar kostaði
kílóið 93 krónur. Mikligarður seldi
hvítkál á 98, Fjarðarkaup 99, Hag-
kaup 109 og Kjötstöðin 152 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði á
hvítkáli var 63%.
Meðalverðið á gulrótum er nú 143
krönur og hækkaði um 6% frá í síð-
ustu könnun. Gulrætur kostuðu
minnst 96 krónur kílóið í Bónusi,
næstminnst 130 í Fjarðarkaupi, 155 í
Hagkaupi, 157 í Miklagarði og 176 í
Kjötstöðinni. Það munaði 83 af
hundraði á hæsta og lægsta verði á
gulrótum að þessu sinni.
ÍS
Verð á grænmeti í Bónusi er yfirleitt lægsta verðið í grænmetiskönnun DV.
DV-mynd Hanna
Sértilboð og afsláttur:
Nautainnlæri og þurr-
kryddað lambalæri
í verslunum Bónuss gat að líta á
sértilboði Gillette Sensor blöð, rakvél
og sápu saman í pakka, á 499 krón-
'ur, myndbandsspólur frá Casin, 3
klst., á 499, Ariel Ultra þvottaefni, 2
kg, á 798 krónur og kókómjólk, 18 x
% 1, á 663 krónur.
Meðal tilboðsvara hjá versluninni
Fjaröarkaupi voru fjórir ístoppar frá
MS saman í pakka á 223 krónur, ör-
bylgjupopp, allar tegundir frá.Orvil-
les, 3 pokar saman í pakka, á 159
krónur. Hunts tómatsósa, 907 g, kost-
aði 139 krónur og Granini ávaxtasafi
í 700 ml glerflöskum var á 129 krónur
stykkið.
Verslunin Hagkaup í Kringlunni
var með þurrkryddað lambalæri á
689 krónur kílóið og nautainnlæri á
1599 krónur kílóið en með í þannig
kaupum fylgdi kryddsósa. Kinda-
bjúgu, 2 stk. í pakka, kostuðu 149
krónur og konfekts- og portvínssíld,
580 ml, var á tilboðsverðinu 344 krón-
ur.
Kjötstöðin Glæsibæ bauð gul epli á
kílóverðinu 59 krónur, Hellas lakk-
rískonfekt, 454 g, á 189 krónur og
C-U þvottaefni, 3 kg, á 399 krónur
pakkinn. Einnig mátti fá kókómalt
frá Lucerne, 907 g, á 459 krónur dós-
ina.
í kaupstað í Mjódd, sem er Mikla-
garðsverslun, var Kínakál á afslátt-
arverði, 99 krónur kílóið. ítölsk smá-
bráuð voru á tilboði, 250 g á 155 krón-
ur, kílóiö af kjúklingum á 389 kr. og
franskar kartöflur frá Fransman, 700
g, kostuðu 99 krónur og 1 'h kg 199
krónur. ÍS
Pl
KARTÖFLUR
(íslenskar)
-4%
§
1 X
79,5 55 P
SVEPPIR
-6%
I
s
I
564 330