Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Blaðsíða 4
4 .XSGi SHAM .81 HUOAÖUMÁM MÁNUDAGUR 18. MARS 1991. 5 Fréttir íbúar við Faxa- og Sörlaskjól mótmæla byggingu skolpdælustöðvar Hægt er að byggja stöðina neðanjarðar - segir Ólafur J. Briem, talsmaður íbúanna Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Flensufaraldur hefur stungiö sér niður á Akureyri aö undan- förnu og svo virðist sem þessi faraldur herji aðallega á börn og unglinga. ■ Ólafur Oddsson héraöslæknir „Það er þyrnir í augum okkar hversu há þessi mannvirki verða. Við höfum fengið það staðfest hjá gatnamálastjóra að tæknilega sé ekk- ert til fyrirstöðu að lækka mann- virkin. Eigi að síður eru borgaryfir- völd ekki tilbúin að lækka mann- virkin eins mikið og við hefðum vilj- að. í upprunalegum áætlunum voru mannvirkin jafnhá og húsin hérna. Það gengur kannski við Skúlagötu og við Sætún. Hér er dælustöðin hins vegar ofan í íbúðabyggð og allt önnur sjónarmið sem þarf að hafa í huga,“ sagði Ólafur J. Briem skipaverk- fræðingur í samtali við DV. Ólafur er talsmaður hóps íbúa við Faxa- og Sörlaskjól sem hittust um helgina og samþykktu tillögur um ítrekaöar kröfur vegna byggingar skolpdælustöðvar við Faxaskjól. Krefjast íbúarnir að skolpdælustööin verði byggð neðanjarðar, verði ekki hærri en sem nemur götuhæð. Þá er þess krafist að stöðin verði í 140 metra fiarlægð frá íbúðarhúsunum en ekki 110 metra fjarlægð eins og útlit er fyrir nú, að þrýstirörum verði fundinn staður fjær ströndinni og að endanlegar teikningar verði kynntar íbúunum sem áskilja sér rétt til frek- ari athugasemda þegar þær hggja fyrir. „Það er vel mögulegt aö hafa dælu- stöðina alfarið neðanjarðar þó það verði eitthvað dýrara. Þetta er aðal- lega spurning um að tileinka sér ann- an hugsunarhátt og skoða valkosti. Hingað til hafa borgaryfirvöld komið til móts við okkur með því að lækka fyrirhuguð mannvirki um tvo metra, úr 5,50 metrum yfir götuhæð í 3,50 yfir götuhæð." Varðandi þrýstirör, sem eru hálfur metri í þvermál hvert, sagði Ólafur að þau gætu verið staðsett hvar sem væri á leiðslunni. „Nú er sagt að ekki verði hjá því komist að hafa rörin við dælustöð- ina. Viö mótmælum því og höfum fengið stafest að það sé ahs ekki nauðsynlegt." Ólafur benti einnig á kröfur um varaaflstöð en í rafmagnsleysi renni allt skólp frá aðrennslusvæði þessar- ar stöðvar í sjóinn beint fyrir framan húsin. „Rafmagnsleysi verður í óveðri. Þá fáum við öldugang og sjórok yfir okkur og aht skólpið sé engin varafl- stöð til staðar til að dæla skolpinu yfir eiðið og út í Akurey." -hlh segir að ekki hafi enn verið greint að hér sé um inflúensufaraldur að ræða þótt allt bendi til þess að svo sé. Ejarvistir vegna veik- inda hafa að sögn Ölafs verið tals- verðar í skólum vegna þessa en ekki hefur þó orðið að fella niöur kennslu af þeim sökum. Hann sagði að í haust hefði fullorðið fólk í bænum veriö bólusett gegn faraldri af þessari tegund í mikl- um mæh. Flensan lýsir sér aðal- lega með liita, særindum i hálsi og beinverkjum og standa þessi einkenrú yfir í 3-4 daga. Búið að stoppa upp Djúpavogslaxinn - annar stærsti lax sem veiðst hefur á Islandi „Þetta er meiri háttar tignarlegur lax og ekkert smáflikki, það hefði verið gaman að fá laxinn á stöng,“ sagði Þórarinn Sigþórsson tann- læknir en hann leit á laxinn sem veiddist við Djúpavog 4. apríl fyrir ári og var að koma úr uppstoppun fyrir skömmu. En laxinn er í safni Náttúrufræðistofunar, veiðimönn- um og öðrum til yndisauka. Það var Reynir Arnórsson sem veiddi laxinn og vó fiskurinn blóðg- aður 18,42 kíló og var 117 sm. Fisk- inn veiddi Reynir í net. Líklega hefur fiskurinn verið kringum 40 pundin óblóðgaöur. Þaö þýðir aö þetta er annar stærsti laxinn sem veiðist hér við land. Stærsti laxinn, sem veiðst hefur hérlendis, er Grímseyjarlaxinn og var hann 49 pund, 24,5 kíló. Næstur kemur því Djúpavogslaxinn. Tveir stærstu laxar á stöng voru 38,5 pund og Þórarinn Sigþórsson tannlæknir heldur á laxinum stóra sem Reynir Arnþórsson veiddi í net og var um 40 pund óblóðgaður. Laxinn var að koma úr uppstoppun en þetta er annar stærsti lax sem veiðst hefur við ísland. DV-mynd G.Bender 37,5 pund. Einhverjar sagnir eru til höfða í Hvítá í Borgarfirði. um 70 punda lax, veiddan í Svart- -G. Bender Slippstööin á Akureyri: Nýr búnaður settur í Björgúlf Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þessa dagana er að hefjast vinna við að setja niður nýja vinnsluhnu í togarann Björgúlf frá Dalvík en sú vinna fer fram hjá Slippstöðinni á Akureyri. Þessi nýi búnaður var smíðaður hjá stöðinni og mUn ekki taka mjög langan tíma að setja hann í skipið. Mikil vinna hefur verið hjá Slipp- stöðinni í vetur og þar er t.d. aö ljúka mikilli vinnu við aflaskipið Akur- eyrina sem hefur verið unnin á skömmum tíma. En það sem mest munar um og gerir ástandið betra í Shppstöðinni en oft áður á þessum árstíma er að þar er unnið af fullum krafti við nýtt skip fyrir fyrirtækið ÓS í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið kaupir nýja skipið í stað aflaskipsins Þórunnar Sveinsdóttur sem Slipp- stöðin tekur reyndar upp í nýja skip- ið. Vinnu við nýja skipið hefur miðað mjög vel, ahar áætlanir staðist og stefnt er að því^að afhenda nýjum eigendum skipio í maímánuði. Tillögunni frestað Tillögu, sem borin var upp á aðal- fundi Lögreglufélags Reykjavíkur í fyrradag, um úrsögn Lögreglufélags- ins úr BSRB var frestað til fram- haldsaðalfundar sem haldinn verður í haust. Að sögn Jóns Péturssonar, for- manns félagsins var ekki tekist á um tillöguna að þessu sinni. „Menn ræddu hana kurteislega en ekki af neinni alvöru. Hún verður ræddíhaust,“segir Jón. -ns í dag mælir Dagfari Flugmenn í verkfall Hann var góður þessi flugmaður. Geir Garðarson hét hann og var kynntur sem talsmaður flug- manna. Dagfari sá til hans í sjón- varpinu, þar sem hann lýsti frati á Flugleiðir og þó sérstaklega á fram- kvæmdastjóra vinnuveitenda sem var að skipta sér af kjarasamning- um. Talsmaður flugmanna sagðist ekki láta hafa sig á fundi með ein- hveijum ókunnum mönnum. Hann ætti ekkert vantalað við fram- kvæmdastjóra Vinnuveitenda- sambandsins. Hann sagðist hafa gert kröfur á hendur Flugleiðum og ef Flugleiðir geta ekki talað við starfsmenn sína án aðstoðar Vinnuveitendasambandsins mæta flugmenn ekki á fundi. Þeir hafa þess í stað ákveðið að leggja niður störf í einn dag í mótmælaskyni og hafa vahð til þess fóstudaginn langa, lengsta dag ársins, enda er um að gera að hafa verkfóhin eins lengi og hægt er þegar þau standa bara í einn dag í einu. Blaðafulltrúi Flugleiða hafði sagt við sjónvarpið að flugmenn gerðu kröfu um áttatíu prósent kaup- hækkun. Þessu vísar' talsmaður flugmanna á bug. Segir að blaða- fuhtrúinn kunni ekki að reikna. Þegar sjónvarpsmaðurinn spurði talsmann flugmanna hversu kröf- urnar væru háar, svaraði hann því til að hann hefði ekki hugmynd um það. Hefði alls ekki reiknað þær út. Svona eiga skipstjórar að vera. Ekkert múður og engar reiknings- kúnstir. Það góða við þessa afstööu er auðvitað í því fólgið að þótt flug- menn hafi ekki haft fyrir því að reikna út kröfur sínar um kaup- hækkanir, vita þeir upp á hár að útreikningar flugleiða eru ekki réttir. Þeir hafa sem sagt reiknað það út að Flugleiðir reikna vitlaust út en hafa sjálfir ekki reiknað neitt! Og ef viðsemj endur eru með múður og segja að kröfurnar séu hærri en þær eru og flýja á náðir Vinnuveit- endasambandsins, þá er rétt mátu- legt á þá að fá yfir sig verkfah. Verkfoll voru hér áður fyrr nokk- urs konar neyðarréttur alþýðunn- ar þegar lágtekjufólkið hafði ekki lengur th hnífs og skeiðar og var að berjast fyrir mannréttindum sínum. Nú er lágtekjufólk að mestu hætt að leggja niður vinnu. Verk- fóll thheyra fortíðinni hjá verka- lýðnum. Hins vegar hafa flugmenn, læknar og aðrir stéttvísir hópar í þjóðfélaginu haldið merkinu á lofti og heyja nú verkfóh í gríð og erg þegar á þá hallar. Sérstaklega þeg- ar vinnuveitendur eru með þann dónaskap að mæta á samninga- fundi og gera thraunir til að reikna út þær kröfur sem fram eru lagðar. Þá æsast flugmenn upp, enda vand- ir að virðingu sinni, og beita verk- fahsvopninu eins og lágtekjufólkið gerði í gamla daga. Enda má líka segja það með nokkrum rétti að ef einhveijir hópar í þjóðfélaginu eru undir í lífsbaráttunni eru það flug- menn hjá Flugleiðum. Flugmenn eru ekki gefnir fyrir að reikna út kröfur sínar. Enda skiptir það ekki máli. Kröfur eru settar fram til að þær séu sam- þykktar og það er ekki útreikning- urinn sem skiptir máh heldur inni-, haldið og réttlætið. Það er ekki hægt að kúga bágstadda flugmenn til hlýðni með einhveiju kjaftæöi um að kröfurnar séu of háar. Þar að auki eru öll reikningsdæmi af- stæð. Ef flugmenn hafa mikil laun verða þeir að fá miklar hækkanir. Þeir sem hafa lág laun þurfa ekki nema htlar hækkanir. Þess vegna eiga menn ekki að reikna út kröfur flugmanna þegar menn kunna ekki að reikna og skhja ekki að flug- menn hafa háan levestandard og þurfa há laun til að standa undir þeim kostnaði. Hann var góður þessi flugmaður, þessi Geir Garðarsson. Nú er bara að fara í verkfall og gefa skít í samninga og fara svo aftur í verk- fall ef mennirnir skhja ekki að það verður að ganga að kröfunum. Flugleiðir hafa lýst því yfir að þeir hafi grætt á síðasta ári og flugið hefur gengið vel. Það getur ekki gengiö th lengdar. Það verður að drepa þennan gróða í fæðingu og ekkert er betra og árangursríkara en að flugmennirnir stöðvi flugið sjálfir, úr því farþegarnir gera það ekki. Flugleiðir sýna líka þá ósvífni að ætiast til að flugmenn mæti í vinnuna og vinni fyrir kaupinu. Þetta gengur auðvitað ekki miklu lengur. Það verður áð sýna þeim hvar Davíð keypti öhð. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.