Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 18. MARS'1991 11 Sviðsljós Ignis -flokkurinn Hér dansa þau Hildur Yr Arnars- dóttir og Þröstur Jóhannsson „jive“ af innlifun. Jóhann Örn Ólafsson og Petrea Guðmundsdóttir eru hér í léttri sveiflu. Góugleði í Öræfum Einar agurðsson, DV, Öræfum; Árlegt góuhóf kven- og ungmenna- féíags Óræfasveitar var haldið í Hof- garði, samkomuhúsi Öræfmga, fyrir nokkru. Gestir streymdu þangað hvaðanæva af landinu og var hvert sæti hússins skipað. Boðið var upp á kræsingar frá veitingastaðnum Osn- um á Höfn í Hornafirði, sungið og farið í leiki og Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar lék fyrir dansi fram undir morgun. Skemmtunin tókst með eindæmum vel en veislustjórar kvöldsins voru þeir Ari Magnússon, Hofi, og Gísh Jónsson, Hnappavöllum. Það var þéttsetið á góugleðinni i Hofgarði, samkomuhúsi Öræfinga. Madonna öskuill Madonna er öskuill út í aðstand- endur bandaríska tímaritsins Glamour sem birtu nýlega forsíðu- mynd af frökeninni. Þeir tóku sig nefnilega til og fylltu upp í frekju- skarðið á henni svo það liti út fyrir að hún væri ekki með neitt og létu hana ekki vita af því fyrr en það var of seint að breyta því. Þegar Madonna komst að þessu trylltist hún gjörsamlega. Hún mætti til að mynda ekki í hádegisverö á vegum blaðsins þar sem það ætlaði að heiöra helstu konur ársins og m.a. veita henni sjálfri sérstök verð- laun. Hópur ungs fólks var fenginn til að dansa og skemmta á árshátíð DV sem haldin var á Vetrarbrautinni fyrir stuttu. Unga fólkið kallar sig Ignis-ílokkinn og sýndi þarna , jive“ og aðra dansa við mikinn fögnuð áhorfenda. Hópurinn byrjaði að koma fram fyrir um ári og hefur hingað til aðal- lega dansað í einkasamkvæmum og á árshátíðum en einnig á skemmti- stöðum höfuðborgarinnar. Þau eru öll á aldrinum 17 til 20 ára og koma frá Dansskóla Sigurðar Hákonarson- ar þar sem þau hafa dansað frá unga- aldri. Ignis-hópurinn er þó á þeirra eigin vegum þar sem þau semja atrið- in með það fyrir augum að þau séu hress og skemmtileg enda er dansinn hraður og líflegur. En af hverju Ignis? Jú, einhver skemmtanastjórinn ætlaði að bóka þau en vissi ekki hvað hópurinn kall- aði sig. Hann átti leið fram hjá ís- skápnum sínum á því augnabhki og hripaði niður Ignis frekar en ekki neitt! Ignis-flokkurinn sýnir hér dansatriði þar sem tekist er á um það hvort kvenmenn eða karlmenn hafi yfirhöndina. Frá vinstri: Petrea Guðmundsdóttir, Jóhann örn Ólafsson, Þröstur Jóhannsson og Hildur Ýr Arnarsdóttir. DV-myndir S TÖKUM HOXDUM SAMAHí Tökum höndum saman, leggjum grunn að framtíð fermingarbarnsins. Gefum þvi íslensku alfræðiorðabókina — háskóla heimilanna, bók sem byggjandi er á. * £ Hugmynd að fe rmingar gj öf ÖRN OG ^ ÖRLYGUR Síöumúla 11 - Sími 84866 Ttr VNNV1IWI3H HQNsyK - NIXQ8VQUOIOVN41V VMSN31S| VNNV1IWI3H I1QMSVH - NIMQHVQH01 Q3IH31V VMSN31SI it -jtf ÍSLENSKA ALFRÆOIORDABÓKIN - HÁSKQLI HEIMILANNA tSLENSKA ALFRÆOIORÐA8ÓKIN - HÁSKOLI HEIMILANNA ytr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.