Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1991, Síða 29
MÁNUDAGUR 18. MARS 1991. 41 Lífsstm Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Viking-Brugg hafa sett á markað páska- bjór sem er til sölu í ÁTVR. DV-mynd Hanna Páskabjór á markaðinn -frá Agli Skallagrímssyni ogViking-Brugg Verð á nauðsynjavörum í Danmörku og á Islandi: Hærra verð hér Tvær gerðir páskabjórs hafa ver- ið settar í sölu hjá ÁTVR. Viking- Brugg er nú að setja páskabjór annað árið í röð á markað. Hann seldist mjög vel í fyrra og er hann bruggaður á sama hátt og þá. Yfir- umsjón með bruggun bjórsins hef- ur þýski bruggmeistarimi Alfred Taufel. Bjórinn frá Viking-Brugg er í einnota flöskum. Nú þegar eru Lövenbráu, Viking bjór og Viking pilsner í einnota flöskum frá Vik- ing-Brugg. Ölgerðin Egill Skallagrímsson setur nú í fyrsta sinn páskabjór á markaðinn sem sennilega kemur til með að keppa við páskabjórinn frá Viking-Brugg. Yfirumsjón með bruggun páskabjórsins frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar hefur þýski bruggmeistarinn Klaus Schmieder. Hann er tappaður á dökkar marg- nota glerflöskur og geta notendur fengið 10 króna skilagjald af hverri flösku. Kippan af páskabjór frá Viking- Brugg kostar 830 og kassinn þaraf- leiðandi 3.320 krónur. Hann er 5,6% að styrkleika. Kippan af páskabjór frá Agli Skallagrímssyni er seld á 740 krónur og kassinn á 2.960 krón- ur. Hann er 5,1% að styrkleika. I nýjasta hefti Neytendablaðsins gefur að líta athyglisverða verðkönn- un á nauðsynjavörum þar sem sam- anburður er fenginn á verði í Kaup- mannahöfn og Reykjavík. Meginnið- urstöður könnunarinnar eru á þann veg að almennt sé ódýrara að kaupa nauðsynjavörur í Kaupmannahöfn heldur en í Reykjavík. Verðkönnunin var gerð í hverfa- verslun í miðborg Kaupmannahafn- ar af algengri stærð og síðan á sömu vörum í hverfaverslun og stórmark- aði í Reykjavík. Munurinn er tals- verður, neytendum í Kaupmanna- höfn í hag. Áthygh vekur að verðlag- Neytendur ið í hverfaverslun í Kaupmannahöfn er töluvert lægra en stórmarkaðs- verð í Reykjavík. Verðkönnunin var gerð á 60 vöru- tegundum og var verð ýmist lægra eða hærra í Kaupmannahöfn. Miklu oftar bar þó á því að verð væri hærra í Reykjavík. Blaðamaður Neytenda- síðu valdi úr 12 algengar nauðsynja- vörur úr könnuninni og reiknaði út verð á innkaupakörfu. Verðmunur- inn á innkaupakörfunni úr hverfa- verslun í Kaupmannahöfn og hverfa- verslun í Reykjavík er 42%. Munur- inn á verði í stórmarkaði í Reykjavík og hverfaverslun í Kaupmannahöfn er 33%. Niðurstöðuna má sjá hér til hliðar. í innkaupakörfurnar voru valdar eftirtaldar vörur til samanburðar: mjólk 11, smjör 250 g, nautainnan- lærisvöðvi 1 kg, svínakótilettur 1 kg, egg 1 kg, rækjur 1 kg, Coca-Cola 25 cl, bjór 33 cl, Rynkeby eplasafi 1 1, Gevalia mehemristet 'A kg, Mokka- molasykur 'A kg og Ajax skúringa- duft 'A kg. Verð innkaupakörfunnar í Kaup- mannahöfn er 3.872,62 íslenskar krónur. Samsvarandi verð fyrir hverfaverslun í Reykjavík er 5.515,40 og innkaupakarfan kostar 5.161,07 krónur í stórmarkaði í Reykjavík. Mestu munar í verði á kjötvörum. Nautainnanlærisvöðvi hvert kg í Khöfn kostar 860 krónur kílóið en 1695 og 1850 í Rvk. Svínakótilettur eru á 745 í Kaupmannahöfn en 1129 og 1250 í Rvk. íslenskt lambalæri kostaði 655 og 752 krónur kílóið í Rvk en lambalæri frá Nýja-Sjálandi kost-. aði 593 krónur í Kaupmannahöfn. Ennfremur vekur athygli að innflutt- ar vörur í könnuninni frá Danmörku voru yfirieitt ódýrari hér en í Kaup- mannahöfn. Meginniðurstöður verðkönnunar Neytendasamtakanna voru eftirfar- andi: Landbúnaðarvörur voru ódýr- ari í 16 tilvikum af 17 í Kaupmanna- höfn. Innlendar framleiðsluvörur voru í 10 tilvikum af 11 dýrari í Reykjavík. Innfluttar matvörur voru í 15 tilvikum dýrari í Rvk en sjö til- vikum dýrari í Kaupmannahöfn. Innfluttar hreinlætisvörur voru oft- ar ódýrari hér, eða í fimm tilvikum afsjö. ÍS „Bankakostnaður í Landsbanka“ Nýlega geröi Verðlagsstofnun könnun þar sem bornar voru saman veröskrár banka og sparisjóöa frá 1. janúar síöastliðnum. Samkvæmt könnuninni reyndust heildarútgjöld einstaklinga vegna bankaviðskipta vera lægst í Landsbankanum. Niöurstaöan kom okkur ekki á óvart. Aö þessari hagkvæmu þjónustu geta viöskiptavinir okkar gengiö á afgreiöslustöðum Landsbankans og Samvinnubankans um land allt. Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.