Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1991, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1991, Síða 1
4 fl'JUACnJSíAV 23 Veist að dómara og þjálfara Keflvíkinga eftir sögulegan leik UMFN og ÍBK1 körfunni: Njarðvíkingar kærðir - Njarðvíkingar gætu misst heimaleikinn ef til fimmta úrslitaleiks liðanna kemur Njarövíkingar tóku illa ósigrinum gegn Keflvíkingum á heimavelli sínum á laugardag og kann framkoma þeirra að draga dilk á eftir sér. Annar dómari leiksins varö fyrir því aö áhorfandi veittist aö honum er hann var á leið til búnings- herbergis að leik loknum og danglaði í hann. Þá varö Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaöur ÍBK, fyrir aökasti í beinni útsendingu eftir leikinn. Stjórnarmenn og forráðamenn Njarövíkurliösins létu ekki sitt eftir liggja í árásunum á dómarann, Leif S. Garðarsson. Einn þeirra, sem reyndar var þekktur dómari hér á árum áður, hótaöi að kýla dómarann, en heimamönnum tókst aö koma í veg fyrir það. Gæslumenn voru á leiknum' en að sögn heimildarmanns DV voru þeir ekki barnanna bestir. Dómarar leiksins sendu inn kæru til aganefndar vegna atvikanna eftir leikinn og svo getur farið að framferði Njarð- víkinga reynist þeim dýrkeypt. Svo gæti nefnilega farið að Njarðvíkingar misstu heimaleikinn ef til fimmta úrslitaleiks liðanna kemur. Jón Kr. Gíslason varð einnig fyrir aðkasti eftir leikinn. Hann var þá í viðtali í beinni útsendingu Sjónvarpsins. í miðju viðtalinu kastaði einn áhorfenda litlum hlut í höfuð Jóni Kr. Hann sagði í samtali við DV í gær: „Ég var búinn að heyra alls kyns svíviröingar en átti alls ekki von á þessu þegar ég var í viðtali í beinni útsendingu. Þetta er auðvitað algert hneyksli. Og það er líka hneyksli aö á blaði. þar sem tekin er saman statistik úr leiknum af Njarðvíkingum og send til okkar og KKÍ eftir leikinn, er einn leikmaður okkar sagður aumingiA A bls. 34 er nánar greint frá þessum sögulega leik. -SK EMíhandbolta: Tekameð góða stöðu Alfreð Gíslason skoraði 4 mörk þegar lið hans, Bid- asoa, sigraði Teka í fyrri leik liðanria í undanúrslit- um Evrópukeppni bikarhafa í hand- knattleik í gær, 22-20. Kristján skor- aði 2 mörk fyrir Teka. Staða Teka er því góð fyrir síðari leikinn sem fram fer eftir viku á heimavelli Teka. • Barcelona lék í undanúrslitum gegn tyrkneska liðinu sem sló FH út úr Evrópukeppni meistaraliða fyrr í vetur og sigraði Barcelona, 19-31. • í spönsku deildakeppninni vann Granollers liö Avidesa, 23-22, og skoraði Geir Sveinsson 2 mörk og saknar greinilega Atla Hilmarssonar sem er meiddur. Héðinn fékk rautt spjald Dusseldorf og Huttenberg léku fyrri úrslitaleik sinn um laust sæti í 1. deild þýska handboltans um helgina. Dusseldorf sigraði, 17-20, og þarf Huttenberg því að sigra með fjögurra marka mun í síðari leiknum á heima- velli Dusseldorf. Héðinn, sem er meiddur, lék siðustu 10 mínúturnar í vörninni og fékk rauða spjaldið þegar skammt var til leiksloka eftir brot á einum andstæðinga sinna í hraðaupphlaupi. -SK • Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði vann þrenn gullverðlaun á Skíðalandsmótinu á ísafirði um helgina. Hér sést Ásta með verðlaun sin en nánar er greint frá mótinu i máli og myndum á bls. 27-30. DV-mynd Brynjar Gauti Knattspyma: ÍR vann Fram ÍR-ingar komu á óvart er þeir sigruðu íslandsmeist- ara Fram, 3-1, á Reykja- víkurmótinu í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Pétur Jónsson gerði tvö mörk fyrir ÍR og Njáll Eiðs- son þjálfari eitt mark. Baldur Bjarnason gerði eina mark Fram. • Á laugardag unnu KR-ingar stórsigur á Ármanni, 7-1, og gerði Bjarki Pétursson þrennu fyrir KR. • Lttla bikarkeppnin í knatt- spyrnu hófst á laugardag og voru þá þrír leikir á dagskrá. Víðismenn unnu óvæntan stórsigur á FH, 5-1, í Garði. Breiðablik sigraði Selfoss, 3-1, og gerði Steindór Elísson tvö mörk fyrir Blikana. Þá unnu Skagamenn 1-0 sigur á Stjömunni. -RR Sigurður lék kjálkabrotinn Sigurður Ingimundarson, fyrirliði Keflvíkinga, lék með liði sínu gegn Njarð- víkingum í úrslitakeppn- inni í körfuknattleik á laugardag þrátt fyrir að vera kjálkabrotinn. Sigurður lenti í samstuði við einn Njarðvíkinga í leik liðanna á dögun- um en lék engu að síður með um helginaogskoraðilOstig. -SK Dieter Höstess vill fá Eyjótf í 2-3 ár Dieter Höness, framkvæmdastjóri Stuttgart, hefur lýst þvi yflr við Eyjólf Sverrisson að hann vilji hafa hann áfram hjá Stuttgart og semja við hann til 2-3 ára. Eyjólfur sagði i gær að það yæri öruggt að hann skrifaði undir eins árs samning hjá félaginu. Á myndinni eru Christoph Daum þjálfari og Dieter Höness framkvæmdastjóri. Sjá bls. 25. Sigurður sigraði Sigurð Gylfi Þórisson, DV, Bandaríkjunum: Sigurður Matthíasson vann sigur á háskólamóti í spjótkasti í Bandaríkj- unum um helgina og kastaði hann 74,94 metra. Siguröur Einarsson varð í öðru sæti og kastaði 74,36 metra. Vésteinn Hafsteinsson keppti ekki í kringlukasti en þar bar Helgi Þór Helgason sigur úr býtum og kastaði 51 metra. í spjótkasti kvenna varö Unnur Sigurðardóttir í þrjðja sæti og kastaöi 39,40 metra. Þröstur og Særún best í blakinu Árshátíð blakmanna var haldln á laugardag. Bestu leikmennirnir voru útnefndir Þröstur Friðfinnson, KA, og Særún Jóhannsdóttir, Víkingi. Elnilegustu leikmennirnir: Þorbjörg Jónsdóttir, Þrótti, Nes., og Stefán Þór Sigurðsson. Á myndina vantar Martein Guðgeirsson, besta dómarann. Sjá nártar um blak á btaðsíðu 26. DV-mynd gje

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.