Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 9
MÁNUDAGUR 15. ÁPRÍL 1991.
39
Iþróttir
„Stefni að því
aðverðabetri
körfuboltamaður“
Hann er af
mörgum tal-
inníhópi
bestu körfu-
knattleiksmanna
landsins, ef ekki sá
besti. Hann hefur leik-
ið sem engill með hði
sínu í vetur og þá sérs-
taklega í hinni dramat-
ísku úrslitakeppni sem
nú er nýafstaðin.
Augnsvipur hans
minnir á eitthvað svo
ógnvekjandi að mót-
herjarnir vita varla sitt
rjúkandi ráð, svipur-
inn setur þá út af lag-
inu, segja kunnugir.
Maðurinn sem þannig
er lýst er enginn annar
en Teitur Örlygsson,
körfuknattleiksmaður
úr Njarðvíkum, en fé-
lag hans tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn 1
síðustu viku eftir fimm
leikja bardaga gegn
nágrönnum sínum í
Keflavík. Teitur er
kominn af mikilli
körfuknattleiksfj öl-
skyldu en tveir bræður
hans eru einnig mikil-
vægir hlekkir í hðum
sínum, Gunnar leikur
með Njarðvík eins og
Teitur en Sturla hefur
þjálfað og leikið með
Þór frá Akureyri í vet-
ur.
Teitur Örlygsson, sem fæddur er
9. janúar 1967, vinnur sem íþrótta-
kennari (leiðbeinandi) við barna-
skólann í Njarðvík og má telja víst
að ungu nemendurnir hans líti upp
til átrúnaðargoðs síns en hann er
eins og gefur aö skilja í miklu uppá-
haldi hjá ungviðinu í Njarövík og
þó víðar væri leitað. Þegar kennsl-
an hefur legið niðri á sumrin hefur
hann unnið hjá Flugleiðum á Kefla-
víkurflugvelli.
Byrjaði eins og
flestir í minni bolta
DV lék forvitni á að vita hvað hefði
att Teiti út í körfuknattleikinn í
upphafi: „Sturla, bróðir minn, á
allan heiðurinn af því aö ég fór aö
æfa körfuknattieik. Ég byrjaði eins
og flestir í minni bolta og upp frá
því varð ekki eftir snúið. Meistara-
flokkurinn átti á þessum tíma frá-
bæru liði á að skipa og það eitt var
ekki til að minnka áhugann. Við
pollarnir fórum á hvern einasta
leik, alltaf var troöfullt hús, stemn-
ingin og öll umgjörðin var svo
framandi að ég hellti mér út í þetta
af fullri alvöru.
Bandaríkjamaöurinn Ted Bee,.
sem þá lék með Njarðvík, þjálfaði
okkur og hafði hann mikil áhrif á
mig, góður þjálfari og félagi. Ég lék
síðan upp alla flokka félagsins og
meðal þjálfara voru ísak Tómasson
og Ástþór Ingason sem í dag eru
öldungar í meistaraflokknum."
Fyrstu sporin í
meistaraflokki 1984
„1984 átti sér stað talsverð end-
urnýjun á meistaraflokknum.
Nokkrir leikmenn ákváðu þá að
leggja skóna á hilluna og um leið
opnaðist leið fyrir ungu leikmenn-
ina að fá að spreyta sig. Ég var þar
á meðal og þrátt fyrir nokkuö
óreynt hð uröum við Islandsmeist-
arar um vorið. Síðan þá hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og körfu-
boltanum hefur fleygt mikið fram.
Körfuboltinn í dag er mun hrað-
ari, breiddin meiri í öllum liðum
þannig að enginn einn leikmaður
ber hðin uppi eins og hér á árum
áður. Þetta gerir körfuboltann mun
skemmtilegri og ér þess fullviss að
við nálgmnst óðfluga þann mæli-
kvarða sem er hjá betri þjóðum í
Evrópu. Það sem háir okkur alltaf
er hæðin en það vandamál stendur
til bóta. Pétur Guðmundsson hefur
lagaö þetta mikið hvað landshðið
varðar,“ sagði Teitur.
Þótt íslandsmótinu sé lokið er
langt í frá aö körfuboltamenn hafi
lagt árar í bát. Framundan er Evr-
ópukeppni landshða sem haldin
verður hér á landi í byijun maí.
Hvernig skyldi þaö verkefni leggj-
ast í Teit Örlygsson?
„Við erum staðráðnir 1 því að
standa okkur vel og koma jafnvel
íslenska hðinu upp í hóp B-þjóða í
körfubolta. Við leikum á heima-
velh sem er ekki htið atriði í keppni
sem þessari. Það hefur mikið að
segja að Pétur Guðmundsson leiki
með okkur en hæðin sem hann býr
yfir á eftir að vega þungt.
Margir góðir körfu-
boltamenn á íslandi
- Hver er besti körfuboltamaður-
inn á íslandi í dag?
„Þessari spumingu er erfitt að
svara að því leytinu til að nefna
einn leikmann sérstaklega. Magn-
ús Matthíasson úr Val er geysilega
sterkur leikmaöur. Hann hefur
verið að skora 20-30 stig aö meðal-
tah í leik vetur þrátt fyrir að hafa
sterka erlenda leikmenn á sér. Það
væri virkilega gaman að hafa
Magnús í Njarðvíkurhðinu. Jón
Arnar Ingvarsson lék mjög vel
fyrri hluta mótsins og eins hefur
Falur Harðarson leikið vel í vetur.
Ekki má heldur gleyma Val Ingi-
mundarsyni sem byrjaöi með lát-
um í upphafi móts en dalaði nokk-
uð þegar á leið.“
Jón Sigurðsson erfiðasti
andstæðingurinn
„Erfiðasti andstæðingur sem ég hef
lent á móti er Jón Sigurðsson. Ég
lenti á móti honum þegar ég var
að byrja að leika með meistara-
flokki og lærði ég ýmislegt af hon-
um. Ég þekki Þorsteinn Hallgríms-
son aðeins af afspum en það segja
mér kunnugir aö hann sé sá besti
sem við höfum átt. Ég hef að vísu
séð hann leika í lávarðadeildinni
og þar er hann enn að gera góða
hluti,“ sagði Teitur.
Teitur sagðist hafa fylgst með
NBA-körfuboltanum frá því á unga
aldri. Michael Jordan væri sinn
uppáhaldsleikmaður, hann væri
frábær íþróttamaður. „Við reynum
alltaf þegar við getum að fara upp
á Keflavíkurvöll til fylgjast með
beinum útsendingum í NBA. Það
er mitt álit að Bandaríkjamenn séu
10-20 árum á undan hvaö getu
snertir.“
Hefur áhuga á
aö breyta til
„Þaö hefur óneitanlega komið upp
í hugann að hreyta til, að leika
annars staðar. Það yrði mjög
þroskandi að fá tækifæri að leika í
háskólakörfuboltanum og ef ég
fengi tækifæri til þess tæki ég þaö
til rækilegrar athugunar. Ég á í
viöræðum viö félag hér innanlands
og útkoma úr þeim mun koma í
ljós á næstum dögum. Árin í Njarð-
vík hafa í einu orði verið fráhær,
strákarnir alveg einstakir og áhorf-
endur stutt vel við bakið á okkur.
Ronday Robinson á stóran þátt í
gengi okkar í vetur og í þeim efnum
gátum við ekki verið heppnari með
leikmann. Hann er að auki frábær
félagi og það veröur allt reynt til
að halda honum áfram hjá félag-
inu.“
Var sagður liðtækur
í knattspyrnu
Teitur segir aö þó körfubolti hafi
orðið fyrir vahnu sem sín aðal-
íþróttagrein þá hafi hann mikinn
áhuga á knattspyrnu. Hann var
sagður liðtækur knattspyrnumað-
ur, æíöi og keppti upp í 2. flokk.
„Núna hef ég mjög gaman af að
fara á völhnn, þó er slæmt að Kefl-
víkingar eigi ekki núna sæti í 1.
deild. Þá er ekkert annað að gera
en að fara í Garðinn og fylgjast með
Víðismönnum og hvetja þá en þeir
hafa staðið með okkur í vetur."
Mjög bjartsýnn
á framhaldið
„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í
skauti sér en er samt mjög bjart-
sýnn á framhaldið og stefni að því
að verða enn betri körfuboltamað-
ur en ég er í dag. Ég á mikið inni
ennþá og ætla að nota sumarið í
að styrkja mig og þyngjast um 5-6
kg. Það er hlúö vel að körfuboltan-
um í Njarðvík og þar er gott að
vera,“ sagði Teitur Örlygsson að
lokum í viðtalinu við DV.
-JKS
• Teitur Örlygsson og kærasta hans, Helga Lisa Einarsdóttir, meö íslandsmeistarabikarinn á milli sín. Teit-
ur lék stórt hlutverk með Njarðvíkingum i úrvalsdeildinni i vetur og á stóran þátt í þvi aö bikarinn hafnaði
i Njarðvik i vetur. DV-mynd GS