Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 4
4
MÁNÚDAGUR 3. JtJNl 1991.
Fréttir
Karlmaður fannst steinsofandi á þakbrún húss við Bankastræti:
Mikil ölvun um helgina:
Mikil ölvun var í miðborgmni
aöfaranótt laugardags og sunnu-
dags enda veður ákjósanlegt til
útiveru. Lögreglumenn höfðu í
nógu að snúast, jafnt að fylgjast
með gangandi vegferendum sem
þeim akandi. Sextán ökumenn
voru teknir fyrir of hraðan akst-
ur og mældust þeir frá 90 km
hraöa upp í 105. Þá voru níu öku-
menn teknir grunaðir um ölv-
unarakstur i Reykjavík.
Að sögn lögreglu má segja aö
botnlaust fyllirí haíi veriö um
helgina og því allt brjálaö að gera
hjá henni. Víöa um landið höfðu
lögreglumenn sömu sögu að
segja, raikO ölvun og því anna-
söm helgi. Ekki var þó mikið um
slys eða ólæti á landsbyggðinni.
-ELA
Akureyri:
Mikilölvunum
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Mikil ölvun var á Akureyri aöf-
aranótt laugardags og sunnu-
dags, aö sögn lögreglunnar, og
stóð gleðin yflr í miðbænum fram
á morgun báðar næturnar enda
veður gott.
Þrátt fyrir mikla ölvun kom
ekki til stórvandræða. Þó var eitt-
hvað um rúðubrot og „fleira sem
fylgir“, eins og varöstjóri oröaði
það, og nokkuð margir fengu aö
gista hjá lögreglu á meðan þeir
voru að sofa úr sér.
Umferðarslys við Lón:
Ölvaðuröku-
maðurókútaf
Einn slasaðist talsvert og þrír
minna er jeppaböl fór út af vegin-
um viö Lón nálægt Höfn aöfara-
nótt laugardagsins.
Ökumaðurinn, sem var ölvað-
ur, missti stjórn á bflnum í beygju
með þeim afleiðingum aö hann
flaug marga metra út fyrir veg-
inn. Bíllinn er gjörónýtur og
mesta mildi aö ekki skyldu allir
stórslasast.
-ELA
Komiö meö ensku konuna aö Borgarspítalanum á laugardag.
DV-mynd S
Slys við útsýnisskífima á Þingvöllum:
Kona f éll sex metra of an í gjá
Ensk kona féll sex metra ofan í gjá
viö Almannagjá á Þingvöllum á laug-
ardag. Var konan með hópi feröa-
manna viö útsýnisskífuna við barm
Aimannagjár og mun hafa hætt sér
of nærri gjárbarminum. Fallið var
hátt og mikið af hraungijóti þar sem
konan féll.
í fyrstu var haldið aö konan væri
alvarlega slösuö og þegar kallaður
til sjúkrabífl. Svo vel vildi til að þyrla
Landhelgisgæslunnar, sem átti
annasaman dag á laugardag, var að
koma úr leitarflugi þegar hjálpar-
beiðni barst og fór hún samstundis 1
loftið aftur til að ná í konuna. Lenti
þyrlan við Borgarspítalann um
klukkan hálffimm.
Meiðsli konunnar reyndust hins
vegar ekki eins alvarleg og menn
héldu á slysstað og var hún útskrifuð
af Borgarspítalanum í gærmorgun.
-hlh
Varðfyrirárás
átta imgmenna
Þxjór likamsárásir voru til-
kynntar tfl lögreglunnar aðfara-
nótt sunnudagsins. í eitt skiptið
náðust árásarmenn og voru þeir
handteknir fyrir utan lögreglu-
stöðina á Hverfisgötunni.
Þaö var rétt fyrir klukkan níu i
gærmorgun að maöur kom inn á
lögreglustöðina og tflkynnti um
líkamsárás. Maðurinn hafði verið
kýldur í andlit. Hann og félagi
hans, sem báðir eru utan af landi,
voru á gangi í góða veðrinu í mið-
bænum þegar átta ölvaðir menn,
18-20 ára, réðust að þeim. Tveir
börðu utanbæjarmanninn í andlit
og lagði hann á flótta upp Hverfís-
götuna i átt að lögreglustððinni.
Mennimir veittu þeim eftirför
og voru að ólátast fyrir utan lög-
reglustöðina þegar þeir voru
haridteknir og fáerðir í fanga-
geymslur. -ELA
Festi bíiinn á rallvegi
Ameríkani nokkur, sem var í
helgarbíltúr með flölskylduna,
komst í hann krappan er hann
festi bfl sinn á Kaldadalsveg á
laugardag.
Vegurinn haföi veriö opnaöur
fyrir rallkeppni en gleymdist að
loka honum aftur. Maðurinn áttaði
sig því ekki á að vegurinn væri
ófær og festi bflinn fllilega. Hann
gekk af stað tfl að leita sér þjálpar
og tókst að ná bílnum upp aftur.
Og veginum var lokað. -ELA
Færður niður í körf u án
þess að hann rumskaði
Lögreglumenn, sem vom á gangi í
Bankastræti rétt fyrir klukkan sjö í
gærmorgun, sáu hvar maður lá sof-
andi á þakbrún húss númer tíu. Lög-
reglumönnunum varð ekki um sel
þar sem maðurinn þurfti ekki að
hreyfa sig mikið tfl aö falla niður af
þakinu sem er um átta metra fall
niður á gangstétt.
Körfubíll slökkviliðsins kom á
staðinn og fóm menn varlega aö hin-
um sofandi manni til að vekja hann
ekki. Hann var settur í bönd og færð-
ur í sjúkrakörfu og látinn síga til
jarðar. Maðurinn rumskaði ekki
meðan á þessu stóð en hann var ut-
angátta þegar hann loks vaknaði
enda haföi hann veriö mjög ölvaður.
Maðurinn gat eölflega enga skýr-
ingu geiið á því hvers vegna hann
klifraði upp á þakiö til aö leggjast til
svefns enda var minnið ekki upp á
það besta. Hann fékk að hvíla sig
betur í fangageymslu lögreglunnar.
-ELA
í dag mælir Dagfari_______________
Fundur á Fornebu
Þegar mikiö liggur við í alþjóða-
samskiptum íslendinga er jafnan
sendur ráðherra utan ásamt föru-
neyti til aö bjarga málum. Frægar
eru ferðir Steingríms til araba-
landa til að stilla tfl friðar milli
Arafats og íslendinga, enda var rík-
isstjóm Steingríms Hermannsson-
ar kappsmál að vingast við þann
alræmda þjóðarleiðtoga. Frægar
eru líka ferðir Halldórs Ásgríms-
sonar út af hvalnum, Ólafur Ragn-
ar fór iðulega úr landi til að bjarga
heimsfriðnum og Jón Baldvin hef-
ur verið á stöðugum faraldsfæti til
að koma okkur íslendingum inn í
Evrópu.
Ekki má heldur gleyma frægöar-
för Óla Þ. Guðbjartssonar til Hels-
inki þar sem hann bjó á hóteli í
tvær nætur fyrir á annað hundrað
þúsund krónur og hlýtur sú för að
hafa verið mikilvægust allra ann-
arra ferðalaga, enda þótt aldrei
hafi veriö upplýst hvaö Óli var að
gera í Finnlandi. Að minnsta kosti
fréttist aldrei af neinum Borgara-
flokksmanni sem haföi verið náð-
aður í þvi landi.
En nú er komin ný ríkissjjóm og
nýir ráöherrar og nú dugar ekki
lengur að senda einn ráðherra í
einu þegar sómi lands og þjóðar er
í húfi. Þeir fóru þrír utan ráðherr-
arnir um helgina, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og sjávar-
útvegsráðheira, tfl Noregs og héldu
fund á Fomebu flugvelli með Gróu.
Gerðu stutt stans og héldu blaða-
mannafund að loknum viðræðum
sínum við norska ráðamenn svo
að eitthvað lá þarna að baki.
Verst er að það komst eiginlega
aldrei til skila hvað þeir vom að
gera eða hvers vegna þurfti þrjá
ráðherra tfl að tljúga til Fomebu
en kannske er tungumálakunnáttu
um að kenna að erindið og mála-
lokin skildust ekki til fullnustu
þrátt fyrir blaðamannafundinn.
Frá því hafði verið skýrt í upp-
hafi að íslendingar vildu ná sam-
komulagi við Norðmenn um að
þeir gerðu ekki sömu kröfur til
Evrópubandalagsins og íslending-
ar, þar sem okkar hagsmunir í
sjávarútveginum væru mun miklu
meiri heldur en hagsmunir Norö-
manna. Ef þetta var upphaflegt er-
indi var vel skiljanlegt að þrír ráö-
herrar væm gerðir út af örkinni.
Davíð þurfti aðstoð frá Jóni Baid-
vin, Jón Baldvin aðstoð hjá Þor-
steini og Þorsteinn þurfti að sjálf-
sögðu aðstoð frá Davíð. Auk þess
er Jóni Baldvin ekki treystandi í
Evrópumálum, Þorsteini ekki
treystandi í sjávarútvegsmálum og
Davíð ekki treystandi í heiðurs-
mannasamkomulögum. Þannig
þurfti Jón tfl að passa upp á Davíð,
Davíð tfl að passa upp á Þorstein
og Þorstein til að passa upp á Jón.
Þá má ekki heldur gleyma því að
enginn þeirra er sérlega sleipur í
norskunni en sameiginlega tækist
þeim hugsanlega að skilja Gróu og
Gróu að skflja þá og þannig mundi
íslenska ráðherragengiö knésetja
norska og koma þeim í skilning um
að hagsmunir Norðmanna væru
miklu minni en hagsmunir íslend-
inga.
Nú má það vera aö tungumála-
kunnátta íslendinga hafi leitt til
þess að blaöamannafundurinn
skildist ekki en alténd er víst að
niðurstaðan af þessari Bjarma-
landsför til Fomebu varð sú að
bæði íslendingar og Norðmenn
urðu sammála að gefa ekkert eftir
gagnvart Evrópubandalaginu og
gefa ekkert eftir af hagsmunum
sínum.
Einhver kann að halda að þau
málalok heföu verið útlátaminni
og fyrirhafnarlaus á telefaxi úr
einu ráðuneytinu til annars. Lík-
legt verður því að telja aö ráðherr-
arnir treysti ekki lengur telefóxum
hjá óviökomandi ráðuneytum og
þótt þess vegna ömggara að hafa
vitni að því að Gróa segöi það sama
við þá sem þeir sögðu Gróu. Fund-
urinn á flugvellinum haföi því ekki
amian árangur en þann aö þrír
ráðherrar fengu frítt flugfar fram
og til baka.
Dagfari