Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Page 8
8
MÁNUDAGUR 3; JÚNÍ 1991.
Útlönd
Albanía:
Búist við afsögn
stjórnarinnar í dag
Búist er við að albanska stjórnin
segi af sér í dag. Þingið í Tirana,
höfuðborg Albaníu, ákvaö á laugar-
dagskvöld að bráðabirgðastjóm allra
flokka tæki við þar til nýjar kosning-
ar hefðu fariö fram innan árs. Þetta
Nokkrir námuverkamannanna hundrað, sem eru í hungurverkfalli niðri í
námu skammt frá höfuðborginni Tirana, eru sagðir í lífshættu. Þeir hafa
nu verið i hungurverkfalli i tíu daga. Simamynd Reuter
er haft eftir leiötogum stjómarand-
stöðunnar í Albaníu. Ein af orsökum
ákvörðunar þingsins eru hin víð-
tæku verkfóll í Albaníu sem lamað
hafa landið að undanfornu.
Núverandi stjórn Albaníu var
mynduð í apríl síðastliðnum eftir að
kommúnistar höfðu unnið í fyrstu
fjölflokkakosningunum í landinu í
nær fimm áratugi.
Heimildarmenn verkalýösfélaga
sögðu í gær að hungurverkfóll til
stuðnings hundrað námuverka-
mönnum við Tirana, sem verið hafa
í hungurverkfalli í tíu daga, væra
hafin í fleiri námum og nokkrum
verksmiðjum. Heilsu námumann-
anna við Tirana hrakar stööugt og
em sumir í lífshættu að sögn læknis
sem heimsótti þá um helgina.
Verkfallsmenn krefjast betri
vinnuskilyrða og bættrar lífsafkomu.
Einnig krefjast verkfallsmenn rann-
sóknar á dauða fjögurra stjórnarand-
stæðinga sem voru skotnir í mót-
mælum í bænum Shkoder í apríl síð-
astliðnum.
Stjórnvöld hafa neitað að semja við
verkfallsmenn og hvatt þá til að snúa
aftur til vinnu. Ramiz Alia forseti,
sem varfærnislega hefur innleitt
vissar umbætur í Albaníu, hefur sagt
kröfur verkfallsmanna réttlátar.
Hins vegar væri ekki hægt að ganga
við þeim öllum strax.
Reuter
Ofsaveður
grandar tvtt
hundruð manns
Að minnsta kosti tvö hundruð
manns eru taldir af eftir að 30 fiski-
bátar sukku á Meghnaánni í
Bangladesh i miklu óveðri sem
gekk yfir landið í gær. Leit að bát-
unum hefur engan árangur borið.
Vitað er að flórir létust í óshólma-
bænum Bhola þegar heimili þeirra
hrundu í óveðrinu en yfirvöld
sögðu að fjöldi látinna gæti hækkað
þegar fregnir bærast frá afskekkt-
um svæðum.
Vindhraðinn i óveðrinu í gær var
130 km á klukkustund og fjögurra
metra háar öldur úr Bengalfóa
skullu á land við Bhola, Patuakhali
og Cox’s Bazar. Ofsi stormsins sem
geisaði í þrjár klukkustundir skaut
þeim skelk í bringu sem iifðu af
óveðrið hinn 29. apríl síðastliðinn
þegar vindhraðinn náði 230 km
hraða á klukkustund og ílóðbylgj-
urnar voru sex metra háar. I því
óveðri létu meira en 138 þúsund
manns lífið.
Embættismenn sögðu að fiöldi
látinna í gær hefði ekki verið meiri
en raun bar vitni vegna viðtækra
varúðarráðstafana og stórfellds
flutnings fólks burt af svæöinu þar
sem óveðriö geisaöi.
„Allir voru viðbúnir og hröðuðu
sér á örugga staöi áður en óveðrið
skall á,“ sagöi embættismaður í
i 1 i < j ~'X
" Vv: S? , L ,5? :
iaíS'S-í'T /1 /I
indi.andI
Ofsaveöur gekk yfir strandhéruð
Bangladesh i gær og fallð er að
tvö hundruð manns að minnsta
kosti hafi farist.
Barisal í gær.
Bandarískir og breskir land-
gönguliðar og japanskir slökkvi-
liðsmenn hættu hjálparstarfi sínu
á laugardag þegar óveðrið nálgað-
ist en þeir eru nú sem óðast að taka
upp þráðirm þar sem frá var horfið.
Oveörið í gær jók enn á hörmung-
ar fólksins sem lifði af stóra storm-
inn og skemmdir uröu á uppskeru
sem sáð var til í apríl.
Reuter
RYMINGARSALA
mstrong LOFTAPLÖTUR
HLJOÐEINANGRANDIOG ELDTRAUSTAR
VERÐ FRÁ
KR. 800,- M/VSK
M2 MEÐ KERFI.
. \
Lampar, 60x60, með
grilli. Verð frá kr.
3.882 með vsk.
BYGGINGAVÖRUR
Ármúla 29 - símar 38640 & 686100