Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Side 10
10 MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1991. Utlönd Borgarstjórinn i Hamborg, Henning Voscherau, fagnar sigri flokks sins, Jafnaðarmannaflokksins, í gær ásamt eiginkonu sinni, Anne-Rose. Simamynd Reuter Kosningar í Hamborg: Sigurganga jafnaðarmanna heldur áfram Jafnaðarmenn í Þýskalandi, sem eru í stjórnarandstöðu, fengu algjör- an meirihluta í kosningum í Ham- borg í gær. Er þetta þriðji kosninga- sigur þeirra í röð á þessu ári en í desember síðastbðnum töpuöu þeir fyrir kristilegum demókrötum, flokki Kohls kanslara, í sambands- rikjakosningunum. „Ef við höldum svona áfram verð- um við ósigrandi," sagði Björn Eng- holm, hinn nýkjömi formaður Jafn- aðarmannaflokksins, í gær. Samkvæmt fyrstu tölum fengu jafnaðarmenn, sem verið hafa við stjóm í Hamborg síðan 1987 ásamt frjálsum demókrötum, 61 þingsæti af 121. Jafnaðarmenn eru nú einir við stjórn í flmm af sextán sam- bandsríkjum Þýskalands. í fjórum sambandsríkjum stjóma þeir ásamt frjálsum demókrötum eða græningj- um. Kosningasigrar í Hesse og Rhine- land-Pfalz fyrr á þessu ári leiddu til þess að jafnaðarmenn fengu meiri- hluta í efri deild sambandsráðsþings- ins í Bonn. Engholm sagöi aö flokkur sinn ráðgerði að notfæra sér það meir en gert hefur verið. Vinsældir Kohls hafa dvínað frá því að þýsku ríkin voru sameinuð í október síðastliðnum vegna efna- hagsvandans í austurhluta landsins og ákvörðunar hans um að brjóta kosningaloforð og hækka skatta. Talið er að kosningaúrshtin muni auka spennuna í samstarfi stjórnar kristilegra demókrata og fxjálsra demókrata í Bonn. Forystumenn frjálsra demókrata segjast nú vera sömu skoðunar og jafnaðarmenn í ýmsum málefnum. Geta þeir jafnvel hugsað sér að mynda stjórn með jafn- aðarmönnum ef vel gengur í sam- bandsríkjakosningunum 1994. Reuter Irakar senda skriðdreka í kúrdískan bæ íraski herinn hefur sent skriðdreka inn í kúrdíska bæinn Sulaimaniya eftir skotbardaga milli íraskra ör- yggissveita og byssumanna sem taldir eru vera kúrdísk- ir skæruliðar, að því er haft var eftir ferðamönnum í morgun. Að minnsta kosti einn Kúrdi lét lífiö á fimmtu- daginn og hópur Kúrda fór með lík hans í stöðvar Sam- einuðu þjóðanna í bænum. Er talið aö með því hafi þeir verið að reyna fá starfsmenn samtakanna til aö skerast í leikinn. Þar til fyrir fáum dögum höfðu írakar aðeins sent létt- vopnaða hermenn tilSulaimaniya, aðallega til að vernda skrifstofubyggingar og starfsfólk. íraskir hermenn eru staðsettir í úthverfum borgarinnar sem féll í hendur kúrdískra skæruliða fyrir mánuði. Skotbardagar hafa einnig verið í bænum Irbil sem er höfuðborg sjálfsstjórnarsvæðis Kúrda. í gær efndu hundruð Kúrda til mótmæla í bænum Zakho til að leggja áherslu á kröfur sínar um að bandamenn fari ekki frá svæðinu. „ , , Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna segja að ástandið Hundruð Kurda komu saman i gær til að leggja áherslu veki óróa sérstaklega þar sem viðræðum leiötoga Kúrda á krofur sinar um aö bandamenn fari ekki frá öryggis- 0„ stjórnarinnar í Bagdad virðist ekki miða áfram. svæðinu í noröurhluta Iraks. Símamynd Reuter Reuter Eþíópía: Bardagar stof na hjálp- arstarf inu í hættu Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna lýstu yfir þeim ótta sínum í gær að bardagar í austurhluta Eþíópíu mundu koma í veg fyrir aö hægt yrði að hefja hjálparstarf að nýju til um einnar milljónar manna og koma þannig í veg fyrir að þúsundir yrðu hungurmorða. „Ég óttast að við getum ekki byrjað aftur í tæka tíð til að koma í veg fyr- ir stórlys," sagði Michael Ellis, starfsmaður matvælastofnunar SÞ, við Reutersfréttastofuna. Starfsmenn hjálparstofnana sem voru i fjarskiptasambandi við liðs- menn sína í Harar, höfuðborg Har- arghehéraðs í Austur-Eþíópíu, skýrðu frá áköfum bardögum nærri borginni í gær, að því er virðist milh uppreisnarmanna úr Lýðræöis- og byltingarhreyfingu eþíópísku þjóð- arinnar, EPRDF, og leifa stjórnar- hersins. Hjálparstarfsmenn segjast hafa mestar áhyggjur af austurhéruðun- um þar sem hungursneyð blasir við meira en sjö miUjónum manna vegna þurrka og styrjaldarátaka. Matarflutningalestir voru stöðvað- ar í síðustu viku þegar löggæsla var í molum eftir að uppreisnarmenn náðu Addis Ababa, höfuðborg lands- ins, á sitt vald. Hjálparstofnunin Care er byrjuð að flytja vatn til flóttamannabúða þar sem allt að 300 þúsund Sómalir og Eþíópíumenn hafast við. Vatns- flutningarnir lágu niðri í þijá daga í síðustu viku vegna ótryggs ástands á svæðinu. Sunnar í Ogadeneyði- mörkinni er ástandið orðið mjög al- varlegt hjá um 80 þúsund Eþíópíu- mönnum sem hafa flúið undan stríösátökum í Sómahu á undanförn- um mánuðum. Þá segja vitni frá því að súdanski flugherinn hafi varpað sprengjum á súdanska flóttamenn sem flúðu til síns heima úr búðum í Eþíópíu. Reuter Eþíópiskur uppreisnarmaður gætir stjórnarhermanna sem haldið er föngn- um i búðum skammt frá Addis Ababa. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.