Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Síða 11
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ1991. 11 Utlönd öðru nafni Ciccio- Símamynd Reuter Cicckriina í I hvltum brúðarkjól gekk ung- verska fatafellan Hona Staller, betur þekkt undir nafninu Ciccio- lina, í það heilaga á laugardaginn. Hinn heppni er handarískur myndhöggvari, Jeff Koons að nafni „Ég var mjög taugaóstyrk, ég hreinlega skall. Mér leið aldrei svona á sýningum mínum,“ sagði Cicciohna eftir athöfhina sem fór fram i Búdapest. Presturinn, sem gaf skötuhjúin saman, vissi ekki hver Cicciolina var fyrr en eftir að hann hafði lofað að framkvæma athöfnina. Eftir nokkurt hik lét hann hana lofa því að vera siðsamari i fram- tíðinni. Cicciohna fluttí á sínum tíma frá Ungverjalandi til ítahu þar sem hún gerðist fatafella. Á italiu tókst henni að ná sæti á þingi. Reuter ísrael: Jórdaníukonungi boðið til viðræðna David Levy, utanríkisráðherra ísraels, býður Jórdaníukonungi að koma til friðarviðræðna til Jerúsalem. Teikning Lurie David Levy, utanríkisráðherra ísraels, bauð Hussein Jórdaníukon- ungi á sunnudag að koma til Jerúsal- em til að hefja opinberar friðarvið- ræður milh ríkjanna tveggja. Boð Levys kom í kjölfar viðtals við Huss- ein konung sem birtist í franska vikuritinu Le Point þar sem konung- urinn segir að beinar viðræður við ísraelska leiðtoga eigi að hefjast fljót- lega þó svo að það væri enn of snemmt. „Við fógnum þessu og ég býð hon- um að koma til Jerúsalem. Ríkis- stjóm ísraels er reiðubúin að ræða við hann til að greiða fyrir friöi," sagði Levy við fréttamenn eftir ríkis- ■stjómarfund í gær. Levy sagði að leiðtogar ísraels væra einnig reiðubúnir að hitta Hus- sein konung í Amman. Heimildir í Amman ítrekuðu fyrri afstöðu konungs að hann væri reiðu- búinn í friðarviðræður við ísrael gegn því skilyrði að ísraelsmenn færa á brott frá herteknu svæðun- um. ísrael og Jórdanía eru enn opinber- lega í stríði en þegjandi samkomulag er miUi ríkjanna um eftirht með landamærum þeirra. Þá hafa heyrst fréttir um leynifundi miUi Husseins konungs og ísraelskra ráðamanna, þeirra á meðal Yitzakhs Shamirs for- sætisráðherra. Dagblöð í ísrael hvöttu lesendur sína til að lesa ekki of mikið úr viðtal- inu í franska tímaritinu en beindu því til stjómvalda að grípa hvert tækifæritilviðræðna. Reuter Ástralía: Hawk áfram formaður Verkamanna- flokksins Forsætisráðherra Ástraliu, Bob Hawke, sigraði í morgun Paul Keating fjármálaráðherra í bar- áttunni um formannsembættið í ástralska verkamannaflokknum. Gert er ráö fyrir að Keating segi af sér í kjölfarið. í atkvæðagreiðslu meðal þing- manna Verkamannaflokksins hlaut Hawke 66 atkvæði en 44. Keaton naut helst stuðnings hægrí sinnaðra flokksmanna og miðjumanna. manns í Kína, svipti sig lífi semt i síðasta mánuði, að því er segir i nýjasta hefti bandariska viku- ritsins Time. HeimUdir blaðsins herma að hún hafi hengt sig i húsi i úfjaðri Beijing þar semhún var í haldi. Jiang var forsprakki fjórmenn- ingaklíkunnar í menningarbylt- ingunni í Kina á árunum 1966- 1976 og fyrir tíu árum var hún dæmd til dauða fyrir þátt sinn í henni. Aftöku hennar var síðan frestað í tvö ár til að gefa henni færi á að iðrast sem hún gerði aldrei. Dómnum yfir henni var breytt i lífstíðarfangelsi 1983. Jiang þjáðist af krabbameini í hálsi og Time skýrir frá því aö hún kunni að hafa viljað binda enda á þjáningar sínar. Reuter Nú stígum við stórt skref í þá átt að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar og opnum verslanir í HÓLAGARÐI í BREIÐHOLTI og að LAUGAVEGI 1 78. Rar færðu filmurnar framkallaðar, allar nauðsynlegar Ijósmyndavörur og góð ráð hjá reyndu starfsfólki. Tilboðsverð í tilefni af opnuninni: KODAK S-100 Á HUIMDRAÐ KRÓNUR! Tíunda hverjum viðskiptavini í nýju verslununum býðst á næstu dögum að kaupa KODAK S-100 myndavélar á 100 krónur. Aðrir heppnir viðskiptavinir fá sundbolta eða dúnmjúkt litakríli í kaupbæti. Verslanir Hans Petersen eru nú orðnar sjö talsins. HANS PETERSEN HF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.