Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Qupperneq 13
13
MÁNUDAGUR 3. JÚNÍ 1991.
Sviðsljós
Fjórar af átta þokkadísum sem taka þátt í keppninni um titilinn „Þokkadís
íslands 1991 DV-mynd B.G.
Þokkadísir
keppa
Nú stendur yfir kynning á þokka-
disum sem munu taka þátt í sér-
stakri fegurðarsamkeppni þokka-
dísa. Keppnin fer fram 8. júni nk. að
Moulin Rouge á Laugaveginum. Þeg-
ar hafa verið kynntar fjórar af þeim
átta þokkadísum er taka þátt í keppn-
inni og verða hinar fjórar kynntar á
fóstudaginn 31. maí.
Þetta er ekki eingöngu fegurðar-
samkeppni heldur verða dísirnar að
kunna eitthvað fyrir sér og hafa ein-
hveija hæfiieika til að geta hlotið tit-
ilinn „Þokkadís íslands 1991“. Hver
og einn keppandi kemur með sitt eig-
ið atriði t.d. frumflytja þær ljóð,
syngja, dansa eða eitthvað þess hátt-
ar.
Dómarar í keppninni eru allt lands-
þekkt fólk bæði úr tísku- og við-
skiptaheiminum. Kynnir, bæði á
kynningunum og í lokakeppninni, er
snyrti- og glæsimennið Rúnar Guð-
brandsson. Hann hefur einnig þjálf-
að keppendur í að koma fram og
kennt þeim almenna siði.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir
sigurvegarana. Sú sem hlýtur titilinn
„Þokkadís íslands 1991“ fær t.d. ut-
anlandsferð í verðlaun. Einnig verð-
ur vahn af ljósmyndurum þokkaleg-
asta fyrirsætan og keppendur kjósa
síðan vinsælustu dísina.
IRÐISAUKASKATTUR
Gjalddagi
virðisaukaskatts er
5. þessa mánaðar
Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur,
og núllskýrslum má skila til banka,
sparisjóða eða pósthúsa. Einnig
má gera skil hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn
í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslu-
menn úti á landi og lögreglustjór-
inn á Keflavíkurflugvelli.
Bent skal á að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrsl-
um sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar
skýrsluna sjálfur eða breytir áritun
verður að gera skil hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs.
Inneignarskýrslum, þ.e. þegar
innskattur er hærri en útskattur,
skal skilað til viðkomandi skatt-
stjóra.
Til að komast hjá álagi þarf
greiðsla að hafa borist á gjald-
daga. Athygli skal vakin á því að
ekki er nægilegt að póstleggja
greiðslu á gjalddaga.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
STÓRKOSTLEG
RYMINGARSALA
I TEPPALANDI
DUKALANDI
Vegna breytinga á verslunum okkar að utan sem innan höldum
við frábæra rýmingarsölu á hvers konar gólfefnum.
Mikill rýmingarafsláttur. 25 - 40% afsláttur.
Raðgreiðslur Euro og VISA
Missið ekki af einstöku tækifæri.
Athugið að í suinar, frá og með 8. júní til 31. ágúst,
verða verslanir okkar lokaðar á laugardögum.
ŒFNUM fyrir
RYMINGARSALAN
STENDUR AÐEINS PESSA VIKU
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 8 35 77
HVÍTA HÚSID / SÍA