Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1991, Blaðsíða 21
MÁNUDAGURÍ3. JÚNÍ 1991.
37
Menning
Pönkari spilar
Brahms
Nigel Kennedy heitir ungur, breskur fiðluleikari sem
vakið hefur talsverða athygli í heimalandi sínu, en
síður fyrir tónlistarhæfileika sína en óhefðbundna
framgöngu og klæðaburð. Kennedy er nefnilega til
fara eins og pönkari, með eyrnalokk, skúlptúrgreiðsiu
og allt tilbehör, og hefur að átrúnaðargoðum ekki að-
eins þá heiðursmenn Bach, Mozart og Beethoven, held-
ur einnig Miles Davis, Jimi Hendrix og Led Zeppehn.
í frístundum leikur Kennedy síðan laufléttan djass
með nokkrum vinum.
Með þessu hefur Kennedy auðvitað skapraunað þeim
sem vilja hafa sína fiðluleikara vatnsgreidda og vel til
hafða, en unnið sér hylli yngri tónlistagesta, svo mikla
Hljómplötur
Aðalsteinn Ingólfsson
að upptökur hans á klassískum verkum, til dæmis
Árstíðum Vivaldis, hafa komist hátt á breska vin-
sældalista. Um daginn gafst islenskum sjónvarpsá-
horfendum kostur á að sjá Kennedy leika þetta verk
með fullskipaðri hljómsveit og bravúr.
Enn heyrast þær raddir, sérstakiega meðal ráðsettra
tónlistarmanna, að Kennedy sé einungis léttvægur
fiðlari með góða auglýsingamaskínu á bak við sig.
Mesti fiðlukonsertinn
Eins og til að reka af sér það slyðruorð hefur
Kennedy nú tekið upp á disk einhvern mikilfengleg-
asta og erfiðasta fiðlukonsert allra tíma, D-dúr kon-
sertinn eftir Brahms, ásamt Klaus Tennstedt og Ffi-
harmóníunni í London (EMI CDC 7541872). Þetta er
sá fiölukonsert sem margir, þar á meðal undirritaður,
taka fram yfir flestar aðrar tónsmíðar fyrir fiðlu, því
þar fara saman rismikil formgerð og ljóðrænn inni-
leiki. í seinni tíð hafa þau Anne-Sophie Mutter og Itz-
ak Perlmann leikið þennan konsert flestum fiðlulei-
kurum betur.
Túlkun Tennstedts er að mörgu leyti aðlaöandi,
hægari (sérstaklega í fyrsta kafla) en flestar aðrar
upptökur sem ég hef heyrt, sem dregur úr innbyrðis
andstæðum verksins, en itrekar í staðinn þann varma
syngjandi sem þarf að vera í hljómsveitarverkum
Brahms. Sjálf upptakan er kristaltær og gott jafnvægi
ríkir milli hljómsveitar og einleikara. í upptökum á
þessum konsert kemur stundum fyrir (til dæmis á
upptöku með Perlmann undir stjórn Giulinis) að ein-
leikari er hafður of framarlega í upptökunni, en
Tennstedt og hans fólk falla ekki í þá gryfju.
Enginn veifiskati
Hvernig stendur Kennedy karlinn sig? Hann er sann-
arlega enginn veifiskati, en er þó ekki í sama klassa
og þeir fiðluleikarar sem hér hafa verið nefndir, setur
ekki mark sitt á konsertinn með sama hætti og þeir.
Tónmyndun Kennedys er fremur varkár, stundum
hikandi, og kandensa hans sjálfs við fyrsta kaflann
er ekki aðlaðandi viðauki. En hann hefur ást á þessu
Nigel Kennedy.
verki og hún kemur vissulega fram í túlkun hans.
Þetta framlag Kennedys til tónbókmenntanna er því
alls ekki með hversdagslegu sniði, en verður þó ekki
flokkað með bestu túlkunum á fiðlukonsert Brahms,
enda margir snilhngar um hituna. Vonandi tekst
Kennedy að koma boðskap verksins áleiðis til yngri
kynslóðar tónlistarunnenda, þeirra sem að jafnaði
hlusta ekki á sígilda tónhst.
BÚTÆKNIDEILD
RALA
HVANNEYRI
Tilboð óskast í byggingu bútæknideildarhúss Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins á Hvanneyri ásamt frágangi á bílastæðum.
Húsið er 574 m2 að grunnfleti og alls 2817 m3.
Verktími er til 1. september 1992 en uppsteypu skal lokið fyrir
1. nóvember 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, frá og með þriðjudeginum 4. júní til og með föstudeginum
14. júní gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 20. júní kl. 11.00.
IIMNKAUPASTOFIMUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. .105 REYKJAVIK
Honda Civic sedan, árg. 1989, ek.
25 þus. km, 5 gira, útv./segul-
band, litur rauður. V. 850 þús.,
staðgreitt 750 þús.
Nissan Pathfinder 3.0 SE Terrano
'90, 5 d., ek. 12 þ. km, 5 g., vökva-
stýri, 31" dekk og álfelgur ásamt
ýmsum aukahl., skipti á ód. gæti
komið til greina. V. 2380 þús.
Toyota Corolla 1600 GTi liftback
'88, ek. 52 þ. km, 5 g., vökvast.,
topplúga, raf. í rúð. og toppl.,
álf., aukad., litur svartur. V. 1080
þús.
Mercedes Benz 300 disil '83, ek.
212 þ. km, ss., vökvast., útv./seg.
Talst. og gjaldm. geta fylgt.
Drappl., sk. á ód. mögul. V. 850
þús.
Suzuki Swift GTi '87, ek. 65 þús.
km, 5 gira, litur steingrár, skipti
möguleg. V. 600 þús.
Nissan Bluebird 2,0, dísil, '89, ek.
142 þ. km, 5 g., vökvast., álf. og
aukad. á felg., útv./seg., gull-
sans., sk. á ód. mögul. V. 980 þús.
VW Golf CL 1600, árg. '87, ek.
aðeins 35 þús. km, sjálfsk., 3
dyra, litur blár. V. 650 þús.
Nissan Sunny SGX coupé '87, ek.
62 þ. km, 5 g., útv./seg., ath. sk.
á ód., góð kjör. V. 680 þús.
Vegna mikilla fyrirspurna um nýlega bila vantar okkur
árgerðir 1989-90 á skrá.
Mikið úrval bíla án útborgunar. Kjör við flestra hæfi.
BOHCABBILASAr.AW
GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 83085 OG 83150
ADEGISVEISLAN
Þríréttaður hádegisveróur með forrétti og eftirrétti
Hár íslensk kjötsúpa
að hætti Steinunnar
Histaður skötuselur „Hawai"
með hrísgrjónum og karrýsósu kr. 1070,-
GJakkað buff með steiktu eggi
rauðkáli og paprikusósu
Ejúpristuð ýsuflök
með tómat-hvítvínssósu
kr. 890,-
kr. 1070,-
kr. 1190,-
kr. 990,-
frá krónum 890/
Forréttur að eigin vali (innifalið)
Súpa dagsins
Fylltir tómatar. Provenscale"
Graflaxatoppur á grænum bala
Jurtakrydduð svartfuglsbringa
Eftirréttur að eigin vali (innifalið)
Blandaður ostadiskur
Vanilluís með ferskju
Laugavegur 178, við hliðina á Ríkissjónvarpinu, s. 34780