Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 4
4J MÁNébÁGúiriá júlí íé'if Fréttir DV Hótellsland: Lokuðust inni í lyftu í tvo tíma Tveir menn lokuðust inni í lyftu á Hótel íslandi á fóstudag. Komust þeir ekki út úr henni fyrr en viðgerðar- menn náðu loks að losa lyftuna eftir tvær klukkustundir. Illa gekk að ná henni niður. „Það fór ágætlega um okkur og við fengum súpu inn um smárifu," sagði annar mannanna. Mennirnir, sem unnu við uppsetn- ingu innréttinga í húsinu, voru í starfsmannalyftunni þegar hún stöðvaðist á milli hæða. Þeir ýttu á neyðarhnapp og var þeim strax kom- ið til aðstoðar. Náð var í viðgerðar- mann og tók það hann um það bil tvær klukkustundir að ná lyftunni niður. Ekki varð mönnunum meint af og spjölluðu þeir saman á meðan þeir biðu eftir aö losna úr prísundinni. Þessi atburður varð til þess að menn- imir unnu ekki meira þennan dag- inn og fóru heim - þeir vom búnir að fá nóg af inniverunni. Ástæður fyrir stöðvuninni em ekki kunnar en talið er að nýr vélbúnaöur lyftunnar hafi eitthvað staðið á sér. -tlt Eldur á Hótel Esju Slökkviiiðið í Reykjavík var kallað út að Hótel Esju um ellefu- leytið í gærmorgun. Tilkynnt var um eld í Ijósastæði í anddyri. Þegar slökkvUiðiö kom á staðinn hafði starfsfólk tekið rafmagnið af og slökkt eldinn. Svokölluð ballest í Ijósastæöi hafði bmnnið yfir og eldurinn kviknaö út frá því. Ekki urðtt telj- andi skemmdir aðrar en í ljósa- stæöinu en mikill reykur mynd- aðist sem hægt var að lofta út. -JJ Perlan hlaut blessun kirkjunnar 1 gær: Dásamlegt að enda ferilinn með þessum hætti - sagði Davíð Oddsson sem las ritningarorð Perlan hlaut blessun kirkjunnar við hátíðlega athöfn í gær, sunnudag. Séra Þórir Stephensen las hugleið- ingu og blessaöi húsið en Davíð Oddsson, fráfarandi borgarstjóri, og Bjarni Ingvar Árnason veitingamað- ur lásu ritningarorð. Athöfnin var haldin innandyra og var margt manna saman komið til að fylgjast með. „Byggingin stendur undir nafni og vekur hughrif gleðinnar," sagði séra Þórir í ræðu sinni. „Hún opnar augu okkar enn frekar fyrir fegurð borgar- innar, sem er til að efla ættjarðarást og átthagatryggð." Þórir sagði húsið vera tákn um háleitar hugsanir og óskaði þess að það yrði til að þjóna hamingjunni og stuðla að jákvæðum hliöum lífsins. Eftir hugleiðingu blessaði hann hús- ið með bæn um að vernd drottins yrði til þess að starfsemin nyti friðar og gæfuríkrar framtíðar. Athöfnin var eitt af síðustu emb- ættisverkum Davíðs Oddssonar, frá- farandi borgarstjóra: „Það er dásamlegt að enda ferilinn með þessum hætti. Hér eru mörg hundruð manns viðstödd og segja má að nú sé húsið fullkomnað," sagði Davíð Oddsson við DV á staðnum. Bjarni Ingvar Árnason veitingamað- ur sagði rekstur hússins ganga af- burðarvel: „Hér í dag eru 400-500 manns. Síð- an opnað var hefur verið fullt á 5. hæðinni, þar sem veitingastaðurinn er, og allir dagar hafa verið jafnir í því sambandi. í veitingabúðinni hef- ur einnig veriö jöfn aðsókn og mikið er um að heilu hóparnir komi hingað til að skoöa húsið,“ sagði Bjarni. -tlt - ■ ■ - - 'S', Séra Þórir Stephensen blessaði hús Perlunnar í gær, sunnudag. Davið Oddsson, fráfarandi borgarstjóri, og Bjarni Ingvar Árnason, veitingamaður í Perlunni, lásu við það tilefni ritningarorð. Mörg hundruð manns voru viðstödd athöfnina. ÐV-mynd GVA í dag mælir Dagfari í stað skatta Sjálfstæðisflokkurinn lofaði okkur kjósendum fyrir kosningar að lækka skatta fyrri ríkisstjómar. Þegar hyllti í stjórnarmyndun á vegum Sjálfstæðisflokksins lofaði Sjálfstæðisflokkurinn okkur að skattar mundu ekki hækka. Og það mega þeir eiga, sjálfstæðismenn, að þrátt fyrir gífurlegan halla á rík- issjóði og mikla fjárvöntun til næsta árs, hafa þeir enn haldið því til streitu að skattar munu ekki hækka. Vandinn er hins vegar sá, að ef skattar hækka ekki, vantar tuttugu og fimm milljarða króna til að end- ar nái saman og til þess að þurfa ekki að hækka skattana, hafa ráð- herrarnir gefið í skyn, aö nú verði þjónustugjöld lögð á þjóðina til að mæta tekjuþörf rikissjóös. Þeir úti- loka ekki þá möguleika að gjald verði tekið af nemendum þegar þeir setjast á skólabekk og jafn- framt að gjald verði tekið af sjúkl- ingum þegar þeir leggjast inn á spítala. Davíð Oddsson hefur orðað þetta svo að gjöld af þessu tagi séu allt annað en skattar, vegna þess að sá sem fer í sundlaugarnar ræður því hvort hann fer í sundlaugamar og ákveður þess vegna hvort hann Gjöld stofnar til þeirra útgjalda að kaupa sig inn í laugarnar. Þetta er auðvit- að hárrétt hjá forsætisráðherra og sýnir enn einu sinni glöggskyggni hans. Það sama á við um skólana. Það ræður hver og einn nemandi hvort hann vilji setjast á skólabekk og þeir sem tíma ekki að borga fyr- ir sig í skólann geta þá einfaldlega ákveðið að hverfa frá námi. Sama gildir um spítalana. Sá sem verður veikur ræður því sjálfur hvort hann lætur leggja sig inn eða liggur heima. Hann ræður því hvort hann læknast eða ekki, hvort hann drepst eða ekki. Það ríkir sjálfsákvörðunarréttur í landinu og Sjálfstæöisflokkurinn er flokkur einstaklingsfrelsis, lætur einstakl- ingunum það eftir að ráða því hvort þeir em lífs eða liðnir. Ef þeir tíma ekki að leggjast inn á spítala, eða hafa ekki efni á því, liggja þeir heima eða þá liggja þar sem þeir veikjast og ekki meir um það. í þessu liggur munurinn á skött- um og þjónustugjöldum. Og af því skattar eru ekki sama og þjónustu- gjöld og þjónustugjöld allt annað en skattar munu skattar ekki hækka og þjóðin mun bjarga fjár- lagahallanum án þess að greiða hærri skatta. Hitt er annað að þeim efnam- innstu verður hlíft við þjónustu- gjöldum. Það eina sem fólk verður að muna er að taka skattaframtölin með sér í skólann eða á sjúkrahús- ið til að sanna hvað það er fátækt. Þá sleppur það við að borga fyrir sjúkravistina og skólanámið og svo geta fátæku sjúklingarnir hlegið upp í opið geðið á ríku sjúklingun- um sem em svo vitlausir að telja fram tekjur sínar og sitja uppi með þjónustugjöld sem hinir fátæku þurfa ekki að borga. Þessa aðferö þarf í rauninni aö útfæra víðar svo sem í sundlaugunum hans Davíðs og strætó og námslánunum. Fá- tækir eiga að fá frítt inn og þeir sem em svo óheppnir að eiga efnaöa foreldra geta bara borgað fyrir sig í náminu og sundlaugunum og loksins kemst á jöfnuður í landinu. Það er munur að hafa fengið Jafn- aðarmannaflokk íslands í ríkis- stjórn sem beitir sér fyrir þessu réttlætismáli. Nú getur það vel verið að þjóöin sé svo efnuð að þorri hennar þurfi að borga skólagjöld og sjúklinga- gjöld en það er þá ekki við rikis- stjórnina að sakast og þetta er ekki skattahækkun heldur hækkun á þjónustugjöldum og á því er auövit- að reginmunur fyrir heimilin. Það er auðvitað allt annað að greiöa þjónustugjald heldur en skatt, þótt greiðslan sé sú sama og útgjöld heimilisins hækki sem því nemur. Fólki er nefnilega í sjálfsvald sett hvort það stundar nám eða leggst * inn á spitala. Fólk ræður hvort það borgar þjónustugjaldið. Af þessu öllu má sjá, að það er mikill misskilningur að skattar muni hækka. Sjálfstæðisflokkur- inn og ríkisstjómin ætla að standa við það loforð sitt aö skattar hækki ekki. Þeir leggja þjónustugjöldin á í staöinn og gjöld eru alls ekki skattar þótt skattar séu gjöld. Von- andi er öllum ljós þessi munur þeg- ar reikningarnir koma. Við megum ekki rugla saman gjöldum og skött- um, þótt upphæðin verði kannske sú sama. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.