Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 7
.1 > i M - 1 I . MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ1991. 7' Sandkom Mexíkóskur bófa- A iniöviku- dagskvöldiö hélt Bandalag jafnaðamanna f«nd,„A nýju ljósi", í Naust- inu.Þarvoru mættirjafnað- annennog ftjálslyndir mennúrýms- umáttum, meðal annarra Jón Baidvín Hanni- balsson, Jón Sigurðsson, Eliert B. Schram, Össur Skarphéðinsson, Guðmundur Ólafsson, Margrét S, Björnsdóttir, Guðmundur Einarsson, Ólína Þorvarðardóttir, Óskar Guð- mundsson, Imrvaldur Gylfason og fleiri mætir menn. Á fundinum áttu sér stað opinskáar umræður um stjómmálaástandið og þær hræring- ar sem fyrirsjáanlegar eru í íslenska flokkakerfmu. Einna hreinskilnastur var án efa Jón Baldvin en í stuttri ræðu, sem hann flutti,-hkti hann Sjálfstæðisflokknum við mexíkóskan bófaflokk. Föðurbetrungur í laxveiðum Veiðinhclur uTiðmcð verstamórii sumarog margirþurftað sjááeftirstór- umflárflilgum án jiessaösjrt svomíkiðsem bröndu. Svo \ai ogmcö þekktanveiði- mann og heilsugæslulækni úr Ár- bænum. Hann fór við fjórtánda mann í Víðidaisá en hollið fékk ekki einn einasta lax. Þetta ævintýri þeirra kostaðifleirihundruðþúsundkrón- • ur. Sonur hans fór á sama tíma ókeypis vestur í sveitir i Laxá í Reyk- hólasveit og fékk 10 punda lax, Austurstræti, ys og læti Austui-stræti hefurverið talsvertámilh tannannaa fólkittppá síðkastið. Astæöancr krafa kaup- mannaumað göngugatan verði oprtuð fyrir bflaum- ferð. Meirihluti er fyrir tillöguimi bæði í borgarráði og borgarstjóm. Allt benti tii þess að framkvæmdir hæfust fljótlega og bílar tækju að renna niður Austurstrætið í næsta mánuði. Á borgarráðsfundi á þriðju- dag bar Davið Oddsson hiiis vegar fram tillögu um að fresta málinu fram á næsta borgarsijórnarfund sem er í september. Ástæðan er sögð vera að andstaða meðal almennings sé vaxandi í kj ölfar aukinnar um- ræðu um málið en fáir vissu að þetta stóð til. Mtm minni andstaða veröur við þessar framkvæmdir í haust þeg- ar veðurblíðunni limnr og færra fólk er á ferðinni. í tillögunni segir að reyna eigi opnun götunnar í ö mán- uði en eins og einn borgarfulltrúi meirihlutans sagði: „Auðvitaö er þetta ekkert annað en dulbúin opnun götunnar til frambúðar, það vita allir semvfljavitaþað." Jarðarför eigin- mannsins Vikuiitið Bildí Þýskalandi veitii'áOmörkí verðlaunþeim lesandasem sendir ínn bestahrandar- anníviku hverri.ísiö- ustuvikufékk þessi verðlaun- in:Konanokk- ur var viðjarðariör eiginmanns síns. Það var umtalað við útfórina að hún væri óvenju glaðleg -meira en góðu hófl gegndi. Vinkona hennar gekk til hennar og spurði hvers vegna hún væri svonar hýr á brá. Jú, sagðí sú „sorgmædda", þetta er í fyrsta skipti sem ég get gengið að því visu hvar tnaðurínn minn er á nóttunni. Umsjón Pálml Jónasson ____________________________Viðskipti Byggjum þetta upp á nýjungum og gæðum - segir Garðar Eggertsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs hf. á Kópaskeri Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri: „Það er skýrt í stofnskrá fyrirtæk- isins að reynt sé að höfða til sérstöðu okkar hér á svæðinu í sauðfjárrækt. Hér er land mjög hreint og ómengað, heiðar víðlendar, ekki ofbeittar og við erum lausir við alla náttúru- mengun. Við komumst næst því af öllum hvað það snertir að geta aug- lýst okkar vöru sem fjallalamb," seg- ir Garðar Eggertsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins Fjallalambs hf. á Kópaskeri, en það er nýtt fyrirtæki í framleiðslu kindakjöts hér á landi. Fjallalamb hf. var stofnað í ágúst á síðasta ári og á stofnun þess nokkra forsögu, en fyrirtækið er í eigu bænda í N-Þingeyjarsýslu austan Jökulsár og sveitarfélaga allt austur á Langanes. Sláturhúsmál í N-Þingeyjarsýslu hafa verið í nokkrum ólestri undan- farin ár. Þannig var sláturhúsið á Kópaskeri lagt niður fyrir þremur árum. Síðan var sláturhúsið leigt Kaupfélagi Eyfirðinga í eitt ár, Kaup- félagi Þingeyinga í annaö ár og þann- ig stóðu málin í ágúst í fyrra. Slátur- húsið tilheyrði þrotabúi Kaupfélags N-Þingeyinga sem var orðið gjald- þrota. Þegar það ástand skapaðist að sláturhús Kaupfélags Langnesinga á Þórshöfn var lagt niður tóku bændur á svæðinu og sveitarfélög sig saman og stofnuðu Fjallalamb hf. Slátur- húsið á Kópaskeri var keypt og var slátrað þar um 25 þúsund íjár í haust. Sauðfjárrækt á gömlum merg „Sauðfjárrækt hér stendur á göml- um merg sem skilar sér í mjög fall- egu og góðu kjöti og það var ekki einungis verið að stofna félag um sláturhús, heldur alhliöa kjötvinnslu sem legði sig eftir því að sinna þörf- um markaðarins. Auk þess er stór verkþáttur hjá okkur að framleiða kjötvörur fyrir mötuneyti og veit- ingahús," segir Garðar Eggertsson. „Við vinnum kindakjötið ekki á þennan hefðbundna hátt, heldur hlutum við allan skrokkinn niður og ákveðnir hlutar hans fara í ákveðna rétti. Svo ég nefni dæmi þá eru lærin ekki seld heil eða í lærissneiðum, heldur er lærunum skipt í þrennt og hver hluti er fyrir ákveðna markaðs- hópa.“ Mjög góð viðbrögð „Viðbrögðin hafa verið mjög góð en þetta er auðvitað það mikil nýjung að það er eðlilegt að menn gleypi ekki við þessu alveg á einu bretti alveg strax. En eftirspurnin er vax- andi og þetta er komið til að vera. Ég er þess fullviss að okkar fram- leiðsluaðferð stóreykur lambakjöts- neyslu, það sé ég bara á mikilli aukn- ingu í sölu okkar til mötuneyta þar sem kjöt frá okkur er matreitt." Gunnar Páll Ingólfsson kjötiðnað- armaður er „hugmyndafræðingur- inn“ á bak við framleiðsluvörur Fjallalambs hf. og hann sinnir jafn- framt gæðaeftirliti í húsinu og mark- aðsmálum. Þá fjóra mánuði sem fyr- irtækið starfaði á síðasta ári skilaði það 2,3 milljóna króna hagnaði eftir afskriftir og fjármagnskostnað og segir Garðar að þótt þetta séu ekki stórar tölur þá gefi þær vísbendingu um að rekstrargrundvöllur sé góður. í sláturtíðinni störfuðu um 90 manns í húsinu en að jafnaði vinna þar um 30 manns. „Það er alveg ljóst að ef þetta fyrirtæki hefði ekki komið til hefði fólk hér haft litla atvinnu og sumt af því væri farið héðan,“ sagði Garðar. Unnið við frágang hinna ýmsu rétta hjá Fjallalambi hf. DV-myndir gk Garðar við hluta framleiðsluvara Fjallalambs hf. á lager fyrirtækisins. I Þeir stilltu saman strengi sína, Jimmy Dawkins, Chicago Beau og Vinir Dóra (Friends of Dóri). Þú fellur í stafi þegar þú heyrir tónlistina. Diskur sem unnendur blústónlistar verða að eignast STRAX! rnmtu NNI • LAUGAVEGI 33 TONLIST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.