Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 10
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991. Staða bæjarstjóra í Stykkishólmi Staöa bæjarstjóra í Stykkishólmi er auglýst laus til umsóknar. Allar upplýsingar veita Ellert Kristinsson, forseti bæjarstjórnar, í síma 93-81353 - 81300 og Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í síma 93-81136 og 81274. Umsóknir skal senda undirrituðum á bæjarskrifstof- urnar við Skólastíg fyrir 15. ágúst nk. F.h. bæjarstjórnar Stykkishólms Sturla Böðvarsson SUMARHUS Sumarhús, 45 m2, með svefnlofti til sölu. Upplýsingar í síma 651288 virka daga 9-15. SPORTF'ATMAÐUR Gott úrval af frábærum fatnaði á verði sem allir ráða við. Ath. Margar fleiri tegundir. POMY 520 I.INDA 592 AMMA 507 Opiðfrákl 10-16 KR. 4.233 KR. 2.980 KR. 3.984 laugardaga H IFl Cft i VERKSMIÐJUVERSLUn Irl m JjtJ i SKIPHOLTI 37 -SÍMAR 31515 OG 31516 LAUSAMOL é VW WESTFALIA ’87 Sérstakt tækifæri Fullinnréttaður ferðabíll, 2 I vatnskæld vél, snúningsstólar, vökvast., útv./segulb., verð aðeins kr. 1.450.000, skipti möguleg á bíl. Til sýnis á Nýju bílasölunni, Bíldshöfða 8, sími 673766, hs. 671288. GSvarahlutir HAMARSHÖFÐA 1-112 REYKJAVÍK - SÍMI 676744 Útlönd__________________py Dregur úr rign- ingum í Kína - um 1300 látnir af völdum flóðanna Heldur dró úr rigningunum í Kína í gær sem valdið hafa gífurlegu tjóni víða um landið síðan um miðjan maímánuð. Yfirvöld vöruðu þó við bjartsýni og sögðu að betra veður í gær væri ekki endilega fyrirboði um að hættan væri yfirstaðin, því væri of snemmt að tilkynna um afnám hættuástands. Flóðin hafa valdið miklum vatna- vöxtum í hinu volduga fljóti Yangtze og talið var að það gæti flætt yfir bakka sína í fyrsta skipti í áratug. Milljónir bænda í Austur-Kína fylltu poka af sandi og hlóðu á bakka fljóts- ins til að koma í veg fyrir flóð. Yfirvöld sögðu í gær að svo virtist sem borgirnar Shanghai, Wnxi og Wuhan væri að mestu úr hættu en hins vegar er mikil hætta á því að síki í borginni Nanjing láti undan. „Ef síkin láta undan þunga Yangtze- ár þá mun hálf Nanjing fara undir vatn á örskammri stundu,“ sagði kínverskur embættismaður. Tjón af völdum flóöanna hefur ver- ið mest í Anhui-héraöi og Jiangsu- héraði á austurströnd Kína. Þegar hefur verið tilkynnt um 1300 dauðs- fóll og fer sú tala hækkandi. Sjúk- dómar, svo sem blóðkreppusótt og kólera, breiöast nú hratt út um flóða- svæðin. Ljóst er að tugir milljóna bænda hafa misst heimili sín og akra og það mun taka mörg ár að bæta tjónið sem orðið hefur. Kína hefur beðið önnur lönd um aðstoð við að koma lífinu á þessum svæðum aftur ífyrrahorf. Reuter Rannsóknarnef nd SÞ fær nýjan kjarnorkulista - írakar mótmæla hótunum Bandaríkjanna Yfirvöld í Irak letu í gær rannsókn- arnefnd Sameinuðu þjóðanna hafa nýjan lista yfir þá staði þar sem framleiðsla tengd kjarnorku fer fram. Bandaríkjamenn hafa ásakaö íraka um aö halda leyndum einhverjum stöðum til að reyna aö komast upp með leynilega kjarnorkuvopnaáætl- un. Dimitri Perricos, sem fer fyrir rannsóknarnefndinni í írak, sagði ómögulegt að segja til um hvort írak- ar væru nú loksins með þessum nýja lista búnir að láta fullnaðarupplýs- ingar af hendi. Fastafulltrúar í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna hafa gefið Irökum frest til að leggja öll kjarnorkuleynd- armál sín á borðið fyrir 25. júlí ann- ars muni það hafa alvarlegar afleið- ingar. Bandarískir embættismenn segja að búið sé að gera áætlun um hernaðarskotmörk í írak og aö á þau verði ráðist ef Saddam Hussein verð- ur ekki samvinnuþýður. Utanríkisráðherra íraks, Ahmed Hussein Khudayer, hefur hvatt Ör- yggisráð SÞ til að koma í veg fyrir hugsanlega árás frá Bandaríkja- mönnum. Hann segir að írakar sýni rannsóknarnefndinni fulla sam- vinnu og því sé ekki þörf á svona hótunum. Khudayer hvatti einnig til þess að utanríkisráöherrar Araba- bandalagsins héldu með sér neyðar- fund til að ræða málið. Francois Mitterrand Frakklands- forseti sagði fyrir fund sinn með George Bush, forseta Bandaríkjanna, í gær að Frakkar myndu slást í for með Bandaríkjunum ef kæmi til nýrrar árásar á írak. Mubarak Egyptalandsforseti sagði hins vegar að sitt land myndi ekki verða þátt- takandi í nýjum hernaðaraðgerðum gegn írökum. Reuter Hershöfðingi hughreystir Kúrda Hersveitir bandamanna streymdu út úr Norður-írak á sunnudag og bandarískur hershöfðingi reyndi að sefa ótta Kúrdanna við að vera ber- skjaldaðir fyrir reiði Saddams Hus- seins. Jay Garner hershöfðingi sagði að árásarsveit bandamanna, sem á að hafa aðsetur í suðausturhluta Tyrk- lands, mundi geta brugöist skjótt við ef Saddam ógnaði Kúrdum á nýjan leik. Hann sagði að fundir milli bandarískra og íraskra hershöfð- ingja yrðu haldnir vikulega í írösku borginni Zakho, sem er á landamær- unum við Tyrkland, eftir að banda- menn hefðu kallað burtu allan her- afla sinn á mánudag. Embættismenn hafa staðfest að árásarsveitin verði staðsett í Silopi, rétt norðan landamæranna, og her- sveitir verða einnig í Batman sem er 140 kílómetrum norðvestar og í Incir- lik í suðurhluta Tyrklands. Alls verða um þrjú þúsund hermenn í sveitinni og njóta þeir stuðnings þyrlna og orrustuflugvéla. Garner sagði að íraska leynilög- reglan mundi ekki fara inn á fyrrum öryggissvæðið af því að hún gæti ekki starfað án stuðnings íraskra hersveita sem bandamenn hafa bannað á svæðinu. Hann sagði að írakar fengju að hafa nokkra toll- verði við landamærin. Um fimm hundruð Kúrdar söfnuð- ust saman við Zakho á sunnudag til að kveðja hersveitir bandamanna sem hafa verndað þá gegn Saddam Hussein. Garner tók ofan húfuna sína og setti upp köflótt kúrdískt höfuðfat og ók með kúrdískum skæruliðaforingjum í herjeppa fram- hjá Kúrdum sem sungu: „Já, já, Bush, nei, nei, Saddam." Ekki var jafnlétt yfir Kúrdunum á laugardag þegar um þrjú þúsund manns stöðvuðu alla umferð um brú við landamærin til að mótmæla brottflutningi hermanna banda- manna. Talsmaður bandaríska hers- ins í Incirlik sagði að Kúrdarnir hefðu ekki verið búnir að fá upplýs- ingar um skilyrðin sem írökum höfðu verið sett. „Þegar þeir komust að þvi að við vorum ekki aö yfirgefa þá létu þeir af aðgerðum sínum,“ sagði talsmað- urinn. Reuter Kúrdískar konur og börn þeirra mótmæltu brottflutningu hermanna banda- manna frá norðurhluta íraks á laugardag. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.