Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 11
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991. 11 ÚÚönd Frumsýning á nýrri kvikmynd, sem ætlaö var aö bera boðskap fiíöar til ungra aíbrotamanna, kom af staö öldu óláta og skotbardaga um Banda- ríkin þver og endilöng þar sem einn maöur lést og um 20 særðust. Ólætin brutust út í að minnsta kosti 12 borgum eftír aö kvikmyndin „Boyz N the Hood“ var frumsýnd í um 800 kvikmyndahúsum í Bandaríkj- unum á fóstudag. Myndin, sem segir frá lífi svartra unglinga sem alast upp viö fátækt og eiturlyf í glæpahverfi í Los Angeles, er fyrsta kvik- mynd hins 23 ára gamla leikstjóra, John Singleton. Hann sagöí á frétta- mannafundi aö myndinni hefði verið ætlað að stemma stigu við oíbeldi glæpaflokka. Columbia-kvikrayndaverið lýsti því yfir að það ætlaði ekki aö taka myndina úr umferð en sagðist Mns vegar mundu borga fyrir aukna örygg- isgæslu. Nokkur kvikmyndahús hafa þó tilkynnt að þeir æth að fresta áframhaldandi sýningum á myndinni um óákveöinn tíma. Hús Hverfur ofan í jörðína Hús þetta bókstaflega hvarf niður í iður jarðar þegar jörðin iét skyndi- lega undan þunga þess. Simamynd Reuter Skyndilegt jarðsig í Flórída í Bandaríkjunum varð til þess að hús eitt bókstaflega hvarf ofan í jörðina. Húsiö var eign og heimili eldri konu sem hafði nýlega flutt í það til aö eiga rólegt ævikvöld. Greinilegt er að ekki hefur verið grafið niður á fast áður en húsið var byggt því að jarðfall myndaðist undir húsinu og það féll niður undan þunga sínum. Holan sem myndaðist var um 45 metra breið og 18 metra djúp og hvarf húsið að mestu leyti ofan í hana. Eigandi hússins, hin 71 árs gamla Pauline Bennett, slapp naumlega frá þessum hildarleik. Hún vaknaði við undarlega dynki sem henni virtust koma af háaloftinu og rétt náði að koma sér út um bakdyr hússins áður en það hvarf ofan í holuna. Þingmenn í hungurverkf alli 23 búlgarskir þingmenn eru í hungurverkfalli til að mótmæla nýrri stjórnarskrá landsins. „Við viljum að kosið verði um stjórnarskrána í þjóðaratkvæðagreiðslu og að hún taki ekki gildi nema 75% þjóðarinnar samþykki hana," sagði einn þingmaöurinn sem tekur þátt í hungurverk- fallinu, Aleksandar Yordanov, en hann er fulltrúi fyrir Samtök Iýðræðis- afla á búlgarska þinginu. „Annaö hvort verður komið til móts við allar okkar kröfur eða við.deyjum,“ sagði annar þingmaður í samtali við búlg- arska sjönvarpiö. Þingmennirnir hafa verið í hungurverkfallinu í íjóra daga eða síðan nýja stjórnarskráin var samþykkt í þinginu á föstudag með 309 atkvæðum af 399. Þingmennirnir 23 neituðu að skrifa undir stjórnarskrársaraninginn og sögðu að hann hefði verið samþykktur af þingi þar sem kommúnistar réðu lögum og lofum. Þingið var kosið fyrir ári í fyrstu frjálsu kosningum í Búlgaríu eftir 45 ára stjóm kommúnista. Kommúnistar, sem breyttu nafni sínu í sósíalista, eiga 208 sæti á þinginu og eru í meiriMuta. Haldlagt á 100 fonn af hassi Bandarísk yfirvöld lögðu hald á um 100 tonn af hassi í lest flutn- ingaskips nálægt Midway eyju í Kyrrahaíinu á föstudag. Yfirvöld segja að þetta sé stærsti farmur af ólöglegum eiturlyfjum sem gerður hefur verið upptækur Mngað til en hassiö var and virði um 12 milljarða isl. króna. Bandaríska strandgæslan, sjó- herinn og tollverðir tóku sameigin- lega þátt i þessari aðgerð en sjóher- inn varö fyrst var við óeðlilega sigl- ingalcið sldpsins sem ber naímð Happastjarna. Tvö síáp frá sjóhernum fylgdu Happastjörnunni síðan til hafnar í Honolulu en skipið var skráð i St Vincent eyju á Karíbahafinu. 15 manns voru mn borð i skipinu, einn Bandaríkjamaður, einn maö- ur frá Bangladesh og 13 Pakistanar. Skipið Happastjarnan reyndlst vera með farm upp á andvlrði um 12 milljarða tsl. kr. Sfmamynd Reuter Stjörnukort f yrir New Vork Fasteignasalinn Larry Horwitz hefur fundið skjóta leið til gróða. Hann bjó til stjömukort fyrir New York sem er að því leytinu öðmvísi en önn- ur stjömukort að þetta sýnir forvitnum nákvæmlega hvar er líklegast að rekast á helstu kvikmyndastjömur Bandaríkjanna. „Stjörnurnar búa flestar héma nálægt Central Park á Manhattan. Svo ég setti bara saman kort sem sýnir nákvæmlega hvar þær búa, hvar þær borða og hvert þær fara i klippingu," segir Horwitz sem ætlar að selja kortiö á öllum blaðsölustöðum og ferðamannabúðum. „Þaö tók mig eitt og hálft ár að komast að öllum þessu upplýsmgum. Ég talaði við dyraverði, leigubílsstjóra, snyrtifræðínga, þjóna og lyftu- drengi út um alla New York og tókst að lokum að koma þessu saman. Reuter Mitterrand ver talsmáta Cresson Forseti Frakklands, Francois Mit- terrand, varði í sjónvarpsviðtali í gær talsmáta forsætisráðherra síns, Edith Cresson. Cresson hefur sætt mikifli gagn- rým fyrir talsmáta sinn sem er bein- skeyttur, blátt áfram og skreyttur slangurorðum. Mitterrand sagði Cresson vera hugrakka, hagsýna konu með nægan kraft til að hrista upp í Frökkum. „Hvað áttu við með að hún tali dónalega? Hún talar mjög vel. Talar þú aldrei svona? Ef þú talaðir aldrei svona þá ættirðu á hættu að vera talinn leiðmlegur," sagði Mitterrand við sjónvarpsfréttamanmnn. Reuter Þar sem útgáfa 7 af Macintosh-kerfishugbúnaði er væntanleg í byrjun næsta mánaðar bjóðum við eigendum Macintosh Plus-tölva sérstakt tilboð, sem gerir þeim kleift að nýta sér allar þær frábæru nýjung- ar sem Kerfi 7 býður. Tilboðið felst í minnisstækkun, harðdiski og Kerfi 7 á mun sérlega hagstæðu verði og góðum kjörum. Minnisstækkun eykur innra minni Plus-tölvanna úr 1 Mb í 2.5 Mb, sem er nægjanlegt fyrir Kerfi 7. ' arðdiskurinn er hraðvirkur 40 Mb diskur frá hinu . viðurkennda fyrirtæki Microtech. Einnig eru til Microtech-harðdiskar allt að 1.350 Mb. H; I V" erðið á Kerfi 7, minnisstækkun og 40 Mb harð- diski er 59.100,- kr. en við bjóðum þetta allt á 49.600,- kr. en staðgreiðsluverðið er aðeins 47.280,- kr. ÆW —— Samkort MUNALAN greiöslukjör til allt aö 1 2 mán. Hafðu samband við okkur sem allra fyrst til að færa Macintosh-tölvuna þína fram um eina kyn- slóð og gera hana enn skemmtilegri og fjölhæfari en áður. Tilboðið gildir aðeins á meðan birgðir endast. Apple-umboðið Skipholti 21, Rvk. Sími: 91-624800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.