Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991. 13
DV Fréttir
Uthlutanir í félagslega íbúðakerfinu:
Aðeins átta íbúðir í hlut
Norðurlands vestra
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Aðeins átta íbúðir komu í hlut
Norðurlands vestra þegar lánslof-
orðum vegna félagslegra íbúðabygg-
inga var úthlutað hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins í síðustu viku. Hér-
aðsnefnd Austur-Húnvetninga fékk
úthlutað fyrir byggingu fjögurra
þjónustuíbúða aldraðra. í aímenna
íbúðakerfmu fékk Blönduósbær
tvær íbúðir og Skagaströnd og
Hvammstangi eina hvor. Sauðár-
krókur sótti um 20 íbúðir en fékk
ekki eina einustu. Siglflrðingar
sendu ekki umsókn.
Samkvæmt upplýsingum úr Hús-
næðisstofnun er aðalástæðan fyrir
því að Sauðárkrókur fékk ekki út-
hlutað sú að lánsheimildir frá því í
fyrra voru ekki nýttar fyrr en í ár
og eins hitt að Sauðárkrókur hefur
fengið nokkuð rausnarlegar úthlut-
anir á síðustu árum. Tekið er tillit
til þessa við úthlutanir og einnig
ástands húsnæðis- og atvinnumála á
viðkomandi stöðum.
Elsa Jónsdóttir, bæjarritari og
formaður húsnæðisnefndar, segist
mjög óhress með úthlutanirnar og
þær skýringar sem gefnar hafi verið.
„Eins og fyrri daginn koma úthlutan-
irnar alltof seint og það var m.a. ein
ástæða fyrir því að við frestuðum
framkvæmdum fram á þetta ár. Það
þýðir ekkert hér fyrir noröan að
bjóða út verk þegar komið er fram á
haust og byggja yfir veturinn. Þeir
hjá Húsnæðisstofnun samþykktu
frestunina og lofuðu að hún yrði ekki
til að skerða úthlutun til okkar á
þessu ári. Við sjáum nú hvernig þeir
hafa staðið við það. Það er ansi furðu-
legt að staöurinn þar sem fólksfjölg-
un er mest fái engu úthlutað, eins
að helmingi færri íbúðir koma til
úthlutunar hér í kjördæminu á þessu
ári en því síðasta. Það er slegist um
hverja íbúð sem er auglýst hér í
bænum. Húsnæðisþörfin er greini-
lega mikil enda atvinnuástand nokk-
uð gott,“ sagði Elsa.
Héraðsnefnd A.-Hún. sótti um 8
íbúðir og Blönduósbær 4. Ekki tókst
að afla upplýsinga um fjölda um-
sókna Hvammstangabúa og Skag-
strendinga en hann er líklega álíka
mikill eða heldur minni en Blöndu-
ósbæjar.
„Málaragengi“ á fleygiferð:
Stelpan gefur
körlunum alls
ekki neitt eftir
Sigurlaug Skaptadóttir gefur körlun-
um ekkert eftir. DV-myndir DV
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Málarnir Héðinn Jónasson og
Skapti Hannesson frá Akureyri voru
á ferðinni austur á Þórshöfn á Langa-
nesi þegar DV bar þar að á dögunum.
Ekki voru þeir einir á ferðinni því
með þeim voru Friðrik Bjarnason
málari og tvö börn Skapta, þau
Hannes og Sigurlaug, en hún er ein-
mitt að ljúka málaranámi um þessar
mundir.
Erindið á Þórshöfn var að mála hús
Pósts og síma þar og virtist það „smá-
ræði“ ekki vefjast fyrir þessu hressa
„málaragengi". Héðni fannst eðlileg-
ast að Sigurlaug yrði fyrir svörum
enda væri hún að verða fullgildur
málari og gæfi þeim körlunum ekki
eftir í einu eða neinu.
„Þetta er ágætt starf og það má al-
veg venjast bröndurunum," sagði
Sigurlaug. Hún sagði vinnuna ekki
vera erfiða, helst að það væri svolítið
þungt að flytja stigana en þetta hefð-
Vegklæðning á gotur
á Skagaströnd
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Það fer ekki framhjá þeim sem aka
inn til Skagastrandar þessa dagana
að framkvæmdir við gatnagerð
standa yfir. Stórvirk vinnutæki eru
nú að störfum á Fellsbraut, aðalgöt-
unni inn í þorpið, en á þann hluta
hennar er verið að leggja varanlegt
shtlag. Verður einnig lögð vegklæðn-
ing á nokkrar aðrar götur í þorpinu.
Aðrar götur á Skagaströnd eru mal-
bikaðar svo hér er um tiiraun að
ræða.
Samkvæmt upplýsingum Magnús-
ar Jónssonar sveitarstjóra er heild-
arlengd gatna, sem vegklæðningin
verður lögð á, um kílómetri. Þegar
þessari framkvæmd er lokið verða
velflestar götur á Skagaströnd lagðar
varanlegu shtlagi. Einnig er unnið
að gangstéttagerð og haldið verður
áfram í sumar frágangi opinna
svæða í þorpinu. Umhverfismálum
hefur verið gefinn talsverður gaum-
ur á Skagaströnd á undanförnum
árum, ekki aðeins inni í þorpinu
heldur einnig í nágrenni þess. Skóg-
ræktarfélagið hefur þar lagt sitt af
mörkum og í fyrra var t.d. hafin
plöntun trjáa í Spákonufelhð og
verður því umfangsmikla verki hald-
ið áfram í sumar.
Málaragengið" að störfum.
ist allt með góöri samvinnu. Það er
ekki mjög algengt enn sem komið er
a.m.k. að konur sjáist hátt uppi í stig-
um utan á húsum við að mála en
Sigurlaug, sem er búin með sinn
námstíma, lætur slíkt ekkert á sig fá
og er fullgild í þessu „karlasamfé-
lagi“ sem málarastéttin hefur verið
talin til þessa.
RAUTT LjÓSk^RAUTT LJÓS!
» mIumferðar V
Urað
E12
3 hausar
rA MITSUBISHI
HQ myndbandstæki
30 daga 8 stöðva upptökuminni • Þráðlaus
fjarstýring • Euro skart samtengi • Sjálf-
virkur stöðvaleitari • PAL/NTSC afspilun
• Klukka + teljari • Skipanir á skjá •
Fullkomin kyrrmvnd.
Sértilboð
39.950,'
stgr.
BB Afborgiinarskilmálar
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
THERNDS
HITABRUSAR
HEILDSÖLUDR.
JOHN LINDSAY HF.