Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Page 15
MÁNUDAGUR 15..JÚLÍ 1991. 15 Alþjóð krefst vandaðs áhættumats „Varðandi samgöngur á sjó, landi og i lofti munu samkeppnisregiur Rómarsáttmálans gilda með einhverjum undanþágum," segir m.a. í greininni. Þeir sem kynna sér efni yfirlýs- ingar ráöherrafundar EB og EFTA frá 13. maí sl. sjá strax aö í kjölfar- iö verða miklar og róttækar breyt- ingar á lögum landsins. Sjálfsagt er því að gera kröfu um aö fram fari vandað áhættumat, þ.e. ítarleg úttekt á kostum og göllum samn- ingsins um evrópskt efnahags- svæði með rökstuddri niðurstöðu. í umræðu á Alþingi, er fram fór þann 16. maí sl„ lýsti utanríkisráö- herra yfir eindregnum stuðningi. Á Alþingi hvílir því ábyrgð að vanda valið. Matsmenn verða að hafa góða þekkingu á atvinnulíf- inu, félags- og verkalýðsmálum, fjármálum þjóðarinnar, markaðs- málum og síðast og ekki síst á stjórnskipan landsins. Hér má ekki henda það slys að áhættumatið verði unnið eftir fyrirfram gerðri pöntun. Fjármagns- og þjónustuvið- skipti í 10. lið nefndrar yfirlýsingar ráð- herranna segir að náðst hafi sam- komulag um hindrunarlaus fjár- magns- og þjónustuviðskipti. EFTA-löndin munu taka upp við- eigandi samþykktir EB frá 1. jan. 1993 með vissum undanþágum á aðlögunartímabihnu og á sama tíma skulu þau túlka löggjöf sína frjálslega. í um þúsund bls. riti, Samanburð- ur á íslenskri löggjöf og samþykkt- um Evrópubandalagsins, er kafli röskar 200 bls. um þetta efni og kemur þar margt merkilegt fram. Afnema ber allar takmarkanir fyr- ir því að mega stofna sjálfstæða banka- og aðra lánastarfsemi, kauphallir og verðbréfasölur og hvers konar vátryggingar. Byggjast þessi fyrirmæli á sam- þykktum EB sem kveða á um al- menna áætlun um afnám nær allra takmarkana á þjónustusviðinu. Þörf er á gagngerðum breytingum KjaHarinn Sigurður Helgason viðskipta- og lögfræðingur á mörgum ákvæðum gildandi laga og einnig þarf að setja ný lög. Mjög ströng ákvæði eru t.d. um gjaldþol í fjármálaþjónustu. Fjöl- mörg innlend fyrirtæki verða að hætta starfsemi af þessum sökum. Endurskoða verður og ákvæði margra sérlaga og afnema sum, t.d. um brunatryggingar í Reykjavík og utan, um Viðlagatryggingu ís- lands, um báta-ábyrgöarfélög og um Samábyrgð íslands, svo að nokkuð sé nefnt. Varðandi samgöngur á sjó, landi og lofti munu samkeppnisreglur Rómarsáttmálans gilda með ein- hverjum undanþágum. Hætta er á því að vissir þættir skipalöggjafar- innar hér á landi teldust ekki sam- ræmast þessum ströngu reglum t.d. um einokun og samráð um verðlagningu. Þess má vænta að það markmið þjóðarinnar í gegn- um aldimar að verða sjálfri sér nóg í sjóflutningum geti tilheyrt liðinni tíð. Einnig þarf að setja ný lög um flugsamgöngur með miklum breyt- ingum. Opnaðar verða t.d. allar flugleiðir. Ég vil hvetja alla sem áhuga hafa á atvinnu- og fjármálum að kynna sér væntanlegar breytingar. Hindrunarlaus viðskipti á íjöl- mörgum sviðum eiga að taka gildi hér eftir tæpt eitt og hálft ár, þó með einhverjum undanþágum verði EES-samningurinn sam- þykktur. Fasteigna- og jarðakaup Við íslendingar gerðum í upphafi varanlegan fyrirvara um að ekki yrðu samþykktar beinar fjárfest- ingar erlendra í fiskveiðum, á sviði orkumála og í fasteignum almennt. Aðrar EFTA-þjóðir gerðu einnig ýmsa fyrirvara. Fallið hefur verið frá þeim en í staðinn skulu sett varnaglaákvæði í lög. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir hvort útlend- ingar geti öðlast eignarétt t.d. að jörðum og ýmsum perlum lands- ins. Sú almenna grundvallarregla gildir samkvæmt samningssviði um búsetu- og atvinnurétt og um flæði fjármagns að útlendingar í EES-ríkjum hafi sömu réttindi, hvorki meiri né minni, og við ís- lendingar. Ekkert er því til fyrir- stöðu að hægt verði að kaupa upp jarðir eða hlunnindi nema breyta löggjöf sem gildir jafnt fyrir inn- lenda menn og alla þegna þessa svæðis. Settar hafa verið fram ýms- ar hugmyndir, stórfelld þjóðnýting á landi og hlunnindum, setja í jarðalög ákvæði er takmarki mögu- leika borgara þessa svæðis með búsetahöfnun, styrkja ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga með því að ríkið sjálft ætti sama rétt, svo að nokkuð sé nefnt. Allar þessar hugmyndir eru óljósar og mótsagnakenndar. Setn- ing löggjafar rétt áður en komi til hugsanlegrar þátttöku íslendinga í EES mun ýta undir vangaveltur að verið sé að mismuna borgurunum. Einnig ber að líta á 92. gr. Rs„ þar sem stuðningur ríkis er talinn í hvaða formi sem er ósamrýman- legur sameiginlegum markaði. Vanræksla ráðherra í umræðum á Alþingi þann 16. maí sl. voru heitar umræður um væntanlega samninga. Utanríkis- ráðherra sakaði t.d. fyrrv. land- búnaðarráðherra, Steingrím Sig- fússon, um vanrækslu í starfi. Er hér átt við að hann hafl ekki lagt fram breytingar á lögum í þeim anda og rakið hefur verið. Ég met Steingrím að meiru að hafa ekki tekið þátt í slíkum hráskinnsleik með lögin. Hver á t.d. að dæma um það hvort náttúruauðlindir okkar, svo sem hitasvæði, vatnslindir og laxveiði- ár, verði áfram í eigu íslendinga? Þaö er ótvírætt EES-dómstóllinn og þeim úrskurði verður ekki áfrýj- að. Við getum því aldrei samið um evrópskt efnahagssvæði nema að settur verði varanlegur fyrirvari. Aldrei verður látið af stjórn nátt- úruauðlinda íslands. Sigurður Helgason „Hver á t.d. að dæma um það hvort náttúruauðlindir okkar, svo sem hita- svæði, vatnslindir og laxveiðiár, verði áfram í eigu íslendinga? það er ótvír- ætt EES-dómstóllinn og þeim úrskurði verður ekki áfrýjað.“ Að tala rélt: „pé sé“ í bandarískum háskólum „Rasismi i háskólum „blómstrar“ ... og flestar árásir á fólk af minni- hlutahópum og gagnvart konum eru aldrei kærðar." Bandarískir hægrisinnar, svo sem George Will sem skrifar í Newsweek, eru uppfullir af þeim þvættingi að sósíalistar og aðrir vinstrisinnar ráði nú lögum og lof- um í bandarískum háskólum og komi í veg fyrir aö meðaljóninn fái að hugsa sjálfstætt. Því er haldið fram að námsefnið sé að verða gegnsýrt ruslbókmenntum og að meðalmennska sé í hávegum höfð. Poppmúsík og listir annarra en hvitra karlkyns Evrópubúa eða Ameríkana af evrópskum ættum eiga ekki upp á þetta pallborð. Hugmyndakúgun Sérstakar áhyggjur þykjast hægrisinnar hafa af „skoðanakúg- un“. Því er haldið fram að vinstri- sinnar séu svo öflugir í háskólum aö engum leyfist lengur að láta í ljós hægrisinnaðar skoðanir eða segja eitthvað sem gæti lyktað líkt og kynþáttafordómar af ótta við að vera kallaður fasisti eða rasisti. Þessu er svo líkt við hugsanalög- reglu, til dæmis á forsíðu News- week ekki alls fyrir löngu. Vitnað er í, þessu til stuðnings, að nokkrir háskólar hafa sett agareglur til að sporna við ofsóknum af ýmsu tæi gegn minnihlutahópum. Setjum hlutina í samhengi. Kvennahreyfingin hefur fengið því áorkað að nú er miklu meira talað um árásir á konur og nauðganir en áður var gert og fleiri atvik kærð. Hreyfing homma og lesbía hefur reynt að vekja fólk til vitund- ar um rétt sinn til að lifa í sátt og samlyndi og krafist þess að fólk, sem fremur hatursglæpi, sé lögsótt á þeim forsendum (það þyngir hugsanlegan dóm ef dómstóll KjaUarinn Ingólfur Á. Jóhannesson uppeldisfræðingur kemst að þeirri niðurstöðu að sak- borningurinn hafi myrt fórnar- lambið af því að það var hommi eða blökkukona). Sum háskólayfirvöld virðast skilja að bandarískir stúdentar af afrískum uppruna og aðrir minni- hlutastúdentar eigi ekki alltaf sjö dagana sæla í stofnun þar sem yfir- gnæfandi meirihluti stúdenta er hvítur og reyna að gera eitthvað í máhnu, til dæmis með stuttum námskeiðum fyrir alla stúdenta. Jafnframt hafa samtök minni- hlutahópa látið meira og meira í sér heyra og krafist breytinga á námsefni og kennsluháttum. Hér í Wisconsin hefur Samfylking minnihlutastúdenta veriö í farar- broddi í baráttunni fyrir betri há- skóla. Sumir háskólar hafa sett sérstak- ar agareglur sem gera yfirvöldum kleift að setja ofan í við stúdenta sem gera sér leik að því að skrifa hatursfull slagorð á veggi (gagn- vart til dæmis hommum eða svört- um stúdentum) eða kalla stúdent særandi nöfnum. Þessar reglur eiga lítt skylt við hugmyndakúgun. Raunar eru þær lítið annað en góð- ir siðir. Veruleikinn er sá að ef stúdent hvorki segir né gerir neitt gegn hommum getur hann eða hún haldið áfram að hata homma, lesb- íur, blökkufólk, gyðinga eða hvern sem er án þess aö háskólayfirvöld skipti sér hið minnsta af því. Og þessar reglur eru settar af frjáls- lyndum (liberals), sem eru með vonda samvisku yfir því að Banda- ríkin eru ekki jafn frjálslynd og þeir/þær vilja, en ekki sósíalistum eða vinstrisinnum. Gegn mannréttindum Veruleikinn er allt annar en sá sem er lýst af hægrisinnum. í raur.- inni er gagnrýni hægrisinna beint gegn mannréttindabaráttu minni- hlutahópa og kvenna. Til dæmis berjast hægrisinnar nú með oddi og egg, með stuðningi Bush-stjórn- arinnar, gegn óskoruðum rétti kvenna til fóstureyðingar. Því mið- ur hefur þeim orðið verulega ágengt. Rasismi í háskólum „blómstrar“ (ef nota má það orö í þessu sam- hengi) og flestar árásir á fólk af minnihlutahópum og gagnvart konum eru aldrei kærðar. Margir stúdentar lifa í stöðugum ótta við ofsóknir einstakhnga og kerfisins sem stafar ekki af því að „póhtískt rétt“ (það sem kallað er P.C. sem stytting fyrir „politically correcf j sé svo áhrifamikil hreyfing. Til dæmis stöðvar löggæsla North- western-háskólans í Evanstonborg, rétt hjá Chicago, svarta stúdenta mörgum sinnum oftar en hvíta til að „tala við“ þá. Hætt er við að það sé gert víðar og víst er að slík með- ferð hefur áhrif á námsárangur. Hægrisinnar standa í miklu meiri ritskoðun en vinstrisinnar og reyna til dæmis að banna hstaverk og koma í veg fyrir opinberan fjár- stuðning til listaverka ef þau eru ekki að skapi þeirra, ekki síst ef listamaðurinn, sem í hlut á, er hommi. Ofsafengin „Bandarikja- dýrkun" varð til þess að stúdent í nágrenni Chicago var felldur í fagi á borð við vélritun fyrir að láta í ljós skoðanir andsnúnar eyðilegg- ingu og manndrápum Bandaríkja- hers í írak. Ekki er það skoðana- kúgun vinstrimanna. Skólar hafa líka sérstakar skyld- ur gagnvart þeim nemendum og kennurum sem vill svo til að eru sam- eða tvíkynhneigt fólk, nú eða nemendum sem eru börn homma og lesbía. Barátta vinstrisinna, minnihlutastúdenta, femínista, homma og lesbía hefur áorkað minna heldur en hún þarf að áorka og fyrir höndum er mikil barátta ef breyta á bandarískum háskólum í umhverfi sem er jafnvingjarnlegt og það er gagnkynhneigöum karl- stúdentum af evrópskum uppruna. (Dæmi eru fengin að láni úr ný- legri grein eftir David FutreUe í blaðinu In These Times.) Ingólfur Á. Jóhannesson „Sumir háskólar hafa sett sérstakar agareglur sem gera yfirvöldum kleift að setja ofan í við stúdenta sem gera sér leik að því að skrifa hatursfull slag- orð á veggi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.