Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Síða 16
16 MÁNÚllÁfcUR Fréttir Hörð keppni í ökuleikni Umferðardagur á Isafirði: og hjólreiðum Fiatinn fór fjórar ferðir í brautinni þegar systkinin og mágkonan kepptu i ökuleikni á ísafiröi. Brynjar M. Valdimarsson, DV-ökuleikrú ’91: í tengslum við ökuleikni er ávallt haldinn sérstakur umferðardagur sem jafnan er vel sóttur af ungum sem öldnum. Umferðardagurinn er ávallt haldinn í góðu veðri og til marks um það má segja frá því að gömul kona kom til eins af starfs- mönnum dagsins og sagði aö þegar hún frétti að halda ætti umferðar- daginn þennan dag vissi hún að veðr- iö yrði gott, þrátt fyrir að spáð hefði verið skýjuðu. Dagurinn var að sjálf- sögðu haldinn í glaðasólskini og hlý- indum. Dagurinn hófst með því að þau yngstu hjóluðu á þríhjólum og fengu öll viðurkenningu að því loknu. Þá var keppni barna 5 til 8 ára á hjólum. Þar keppti hver árgangur fyrir sig og sigurvegari í 5 ára flokki var Jón Haukur Ólafsson með 33 sek. í 6 ára flokki sigraði Sigurður Pétursson með 23 sek. og í 7 ára flokki sigraði Steingrímur Steingrímsson með 29 sek. í 8 ára flokki sigraði Árni Björn Ólafsson með 23 sek. Næst kepptu eldri börnin í hjól- reiðaralli sem var fólgið í því að fara yfir stökkpall, í keilusvig yfir pallett- ur, dekk og langa planka. Til marks um hörkuna í keppninni tók einn keppandinn svo krappa bremsu- beygju að það hvellsprakk á hjólinu. Jóhannes Þorsteinsson sigraði síðan naumlega með 87 refsistig, þá kom Árni Þór Einarsson með 96 refsistig og fast á hæla hans kom Stefán Þ. Ólafsson með 97 refsistig. Hjólreiðakeppni ökuleikninnar var næst á dagskrá. Þar var keppt að venju í eldri og yngri riðh. Sigurveg- ari í yngri riðli barna, sem eru fædd ’80, ’81 og ’82, var Stefán Þ. Ólafsson með 56 refsistig, þá kom Birgir Örn Sigurjónsson með 64 refsistig og Hjörtur Rúnar Magnússon fékk 72 refsistig í þriöja sæti. í eldri riðli sigr- aði Árni Þór Einarsson með 64 refsi- stig, þá kom Bjarni Halldórsson með 68 refsistig og Rakel Guðmundsdóttir fékk 91 refsistig. í kvennariðli ökuleikninnar sigraði Ásdís B. Pálsdóttir með 172 refsistig- um en mágkona hennar, Guðrún S. Matthíasdóttir, varð önnur ásamt Margréti B. Gunnarsdóttur roeð 195 refsistig. Þá kom systir Guðrúnar, Ingibjörg Mattþíasdóttir, með 216 refsistig. Karlariðil vann Ragnar Ing- ólfsson örugglega með 97 refsistig sem er einn besti árangur sumars- ins, Össur P. Valdimarsson varð í öðru sæti með 196 refsistig og aðeins tveim stigum á eftir varð Vilhjálmur Matthíasson með 198 refsistig. í riðli byrjenda sigraði Róbert Halldórsson með 162 refsistig, annar varð Björg- vin Björgvinsson með 182 refsistig og þriðji Gunnar Ingi Hafsteinsson með 204 refsistig. Gefandi verðlauna í ökuleikni var ísfang en Fálkinn hf. í Reykjavík gaf verðlaun í hjólreiðakeppni, einnig styrkti bæjarsjóður daginn með fjár- framlagi. Ökuleikni á Blönduósi: Tvö ref sistig skiptu sköpum Brynjar M. Valdimarss., DV-ökuleikni '91: Hjólreiðakeppni yngri riðils var mjög jöfn og endaði með naumum sigri Jóns Bjarnasonar með 60 refsistig, einu refsistigi á eftir kom Guðjón Sveinsson með 61 og Pétur- ína Laufey Jakobsdóttir varð síðan í þriðja sæti með 62 refsistig. Ey- steinn Pétur Lárusson sigraði í eldri riðh með því að fara brautina á 45 sek. án þess að gera villu, þá kom Davíð Brár Unnarsson með aðeins betri tíma en eina villu, sam- tals 54 refsistig, þriðji varð síðan Ingimar Einarsson með 57 refsistig. Kristín S. Þórðardóttir hafði rás- númer 6 og hafði samanlagt 220 refsistig og hlaut þriðja sæti, þá kom Ragnheiður Björnsdóttir með rásnúmer 7 og náði aðeins betri tíma, eða 217 refsistigum, á eftir þeim kom síöan Jakobína Hall- dórsdóttir með rásnúmar 9 og nú var aö standa sig til aö komast upp fyrir hinar sem og tókst þannig að hún lauk keppni með 206 refsistig og fyrsta sæti í kvennariðli. Sigur Jóns K. Vignissonar í karlariöli var ótvíræöur og aldrei í hættu en hann náði einum af besta árangri sumarsins þegar hann fékk 99 refsistig í fyrsta sæti, Jakob Bjömsson varð í öðru sæti með 150 refsistig og fast á hæla hans kom Einar ðli Fossdal með 157 refsistig í þriðja sæti. í riðli byrjenda var Vilhjálmur Jónsson með 196 refsi- stig. Gefandi verðlauna var Vélsmiöja Húnvetninga. Jakobina Halldórsdóttir, sigurvegari í kvennariðli á Blönduósi Arnar Páll Agústsson sigraði í yngri riðli hjólreiðakeppni á Hvammstanga. Ökuleikni á Hvammstanga: Ökuleikni í blíðskaparveðri Brynjar M. Valdimarsson, DV-ökuleikni '91: Veðrið er búið leika viö okkur und- anfarið og brást það ekki á Hvamms- tanga þegar keppni í ökuleikni fór þar fram. Sigurvegari í karlariðli varð Erhngur Sverrisson með 159 refsistig, þá kom Hallmundur Guö- mundsson í öðm sæti með 172 refsi- stig og fast á eftir í þriðja sæti varð Guðmundur Vilhelmsson með 174 refsistig. Kvennariðil vann Jóhanna S. Ágústsdóttir með 187 refsistig, önnur varð Matthildur Benedikts- dóttir með 208 refsistig og Birna María Þorbjörnsdóttir varð þriðja með 227 refsistig. í eldri riðli hjólreiðakeppninnar sigraði Sigurður Þór Ágústsson með 51 refsistig, í öðm sæti varö Einar Valur Gunnarsson með 75 refsistig og þriðji varð Sveinn Ingi Bragason með 103 refsistig. í yngri riðli sigraði Arnar Páll Ágústsson með 66 refsi- stig, þar næst kom Gunnar Þorvald- ur Þorsteinsson með 76 refsistig og María Guðmundsdóttir var með 90 refsistig í þriðja sæti. Gefandi verðlauna í ökuleikni var Sparisjóður V-Húnvetninga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.