Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Side 18
18 MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991. Merming Nýtt listagallerí í Hulduhólum: Reynslan verður að segja til um áframhaldandi rekstur - segir Steinunn Marteinsdóttir, listamaður og ábúandi 1 Hulduhólum Frá djasstónleikunum í Valaskjáli. A myndinni má sjá Stefán S. Stefánsson saxófónleikara og Árna ísleifsson á píanóið. DV-mynd SB Djasshátíð á EgHsstöðum: Góð stemning á öllum tónleikum - segir Ami ísleifsson Sigrún Björgvinsdóttir DV, Egilsstöðum: Djasshátíðin á Egilsstöðum, sem haldin var 26.-30. júní, var vel sótt og þar komu fram ekki færri en fimmtíu tónlistarmenn. Það er Árni ísleifsson, tónlistarkennari og djass- ari, sem hefur haft veg og vanda af djasshátíð frá upphafi. Hvemig þótti honum til takast? „Ég er mjög ánægður," sagði Árni. „Þetta var vel heppnuð hátíð og aö- sókn hefur aldrei verið meiri. Há- punkturinn var eflaust leikur Stór- sveitar Húsavíkur að öðrum ólöstuð- um, þá er kvartett Guðmundar Ing- ólfssonar í sérflokki en annars er erfitt að gera upp á milli þessara ágætu listamanna og það var góð stemning á öllum tónieikunum. Efn- isskráin var fjölbreytt og er Kuran Swing fiðluieikari gott dæmi um það.“ Er Árni var spurður hvort hann ætlaði að standa fyrir djasshátíð að ári sagðist hann myndi taka þá fimmtu og hún yrði eflaust glæsileg- ust enda afmælishátíð. „Og,“ sagði Ámi, „ef hagnaður verður af hátíð- inni nú er eins víst að viö fáum gesti utanlands frá.“ Árni sagðist vilja koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu sem styrktu djasshátíðina og nefndi þar sérstaklega Hótel Valaskjálf, Flug- leiöir, Kaupfélag Héraösbúa og menningarsamtök Héraðsbúa, auk margra fyrirtækja á Austurlandi og í Reykjavík. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Tónlist fyrir fiðlu og píanó „Hér var áður hlaða, síðan var þetta vinnustofa eiginmanns míns, Sverris Haraldssonar myndlistar- manns, og nú er þetta orðið gallerí þar sem ég hef boðið þremur lista- konum að sýna verk sín í sumar," segir Steinunn Marteinsdóttir mynd- listarkona sem á laugardaginn opn- aði nýtt gallerí á hinum vistlega reit sínum að Hulduhólum í Mosfells- sveit. Sem fyrr sýnir Steinunn eigin verk í galleríi á neðri hæð hússins, þar eru keramik- og leirlistarverk, en uppi í myndarlegum sal, þar sem áður var og er að sumu leyti enn vinnustofa, hefur hún boðið Björgu Þorsteins- dóttur, Jóhönnu Boga og Hansínu Jensdóttur að sýna verk sín. Björg sýnir nær eingöngu ný málverk og Jóhanna einnig en Hansína, sem er gullsmiður, sýnir nýja og eldri skúlp- túra. Verður sýning þessara ijögurra listakvenna opin fram til 1. septemb- er. „Það er ekki ætlunin að nýja gall- eríið verði opið allt árið um kring," segir Steinunn, „heldur aðeins hluta úr ári. Reynsla sumarsins veröur að segja til um áframhald. Þetta er það stór salur að þótt ég hafi unniö þar einstaka stór verk þá fannst mér til- valið að nýta hann meira og þar með bjóða öðrum listamönnum sýningar- aðstöðu." Listakonumar fjórar, sem sýna í Gallerí Hulduhólum, em allt þekktar myndlistarkonur sem áður hafa sýnt margsinnis heima og erlendis, einar sér og með öðrum. Steinunn kvað það aðeins hafa æxlast svo til að allt væru þetta konur sem nú sýndu en það væri ekki nein stefna hjá henni íframtíðinni. -HK Tónleikaröðin í Listasafni Sigur- jóns heldur áfram annað kvöld. Þá munu þær Hildigunnur Halldórs- dóttir og Anna Guðný Guðmunds- dóttir leika tónlist fyrir fiðlu og píanó. Á efnisskrá er sónata í A-dúr KV 526 eftir W. A. Mozart, Duo Conc- ertanteftir Igor Stravinsky og tvö lög eftir Henri Wieniawsky. Hildigunnur Halldórsdóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík 1987 og hefur síðan stundað nám við Eastman School of Music í Rochester, Bandaríkjunum, þar sem hún lauk BM prófi vorið 1990. Hún stundar nú framhaldsnám í fiðluleik við sama skóla með söng sem aukagrein. Hildigunnur hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit æsk- unnar hér á landi og með unglinga- hljómsveitum á Norðurlöndum. Hún var um tíma í íslensku hljómsveit- inni, hefur leikið með Sinfóníuhljóm- sveit íslands og Kammersveit Reykjavíkur. Frá því Hildigunnur hóf nám í Bandaríkjunum hefur hún leikið i Eastman Philharmonia og farið með hljómsveitinni um Banda- ríkin og til Þýskalands. Anna Guðný Guðmundsdóttir lauk burtfararprófi frá Tónhstarskólan- um í Reykjavík 1979 og stundaði framhaldsnám við Guildhall School of Music í London. Hún er löngu landsþekkt sem einleikari og í sam- leik, bæöi á tónleikum víða um lánd og í útvarpi og sjónvarpi. Hún hefur starfað með íslensku híjómsveitinni Steinunn Marteinsdóttir í hinu nýja gallerii að Hulduhólum. Til hliðar við hana eru nýir skúlptúrar eftir Hansinu Jensdóttur og í bakgrunni málverk eftir Björgu Þorsteinsdóttur. DV-mynd JAK frá stofnun hennar, leikið með Sinfó- níuhljómsveit íslands, haldið tón- leika erlendis og leikið inn á hljóm- plötur. Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleik- ari og Guðný Guðmundsdóttir pianóleikari. Böm náttúrunnar syndi Stjörnubíói íslenska kvikmyndin Börn náttúrunnar, sem leikstýrð er af Friðrik Þór Friðrikssyni, verður frumsýnd í Stjörnubíói miðviku- daginn 31. júlí. Framleiðandi myndarinnar er íslenska kvik- myndasamsteypan ásamt Max film Berhn og Metro film Osló. Myndin segir frá gömlum bónda norður í Skagafirði sem bregður búi og leitar á náðir ættingja sinna í höfuðborginni. En þar eru ýmsir þröskuldar i veginum. Langvarandi sambandsleysi og óbrúanlegt kynslóðabil veldur því að honum er komið fyrir á elliheimili. Þar hittir hann æsku- ást sína, sem einnig hafði flosnað upp, og ákveða þau aö vitja æsku- stöðvanna og strjúka af elliheim- ilinu. Til þess að svo megi verða taka þau jeppa ófrjálsri hendi. Aðalhlutverkin leika Gísli Hall- dórsson og Sigríður Hagalín. í aukahlutverkum eru margir þekktir leikarar og má þar nefna Egil Ólafsson, Baldvin Halldórs- son, Rúrik Haraldsson, Tinnu Gunnlaugsdóttur og þýska stór- leikarann Bruno Ganz. Þess má geta að á sjö sýningum verður Börn náttúrunnar sýnd með enskum texta. Samkeppni um listskreytingu iráðhúsið viðTiornma Ákveðið hefur verið að efna th lokaörar samkeppni um list- skreytingu i hið nýja ráðhús Reykvíkinga við Tjömina. Um er að ræða tvö verk, annað er mynd- verk á vegg fyrir ffaman borgar- stjórnarsaliim. Hitt listaverkið er klæðistjöld úr verksmiðjuofnum uhardúk tU að setja upp miUi svokallaðs Tjamarsals og al- mennra gönguleiða. Dómnefnd, sem skipuð er af Reykjavíkur- borg og SÍM, mun velja þrjá til fimm listamenn úr hópi umsækj- enda til að gera tillögur að hvoru verkefni. Verða þeim greiddar fyrir tUlögugerðina kr. 300.000. Auk þess verður þeim greidd sama upphæð sem á tihöguna sem valin verður. Fyrir hvort verk, sem valið verður, verða því greiddar 600.000 krónur. SKÝkomiðút: Sneisafullt afíslenskum ogerlendum skáldskap Út er komið fjórða hefti tíma- ritsins SKÝ og að venju er um frumortan og þýddan skáldskap að ræða í þessu menningarriti. Meðal þeirra sem eiga frumort ljóð er Bubbi Morthens en tvö Ijóð eftir hann era í heftinu, Blokkin og Þvottadagar. Af ööru efni má nefna þýðingu Sígfúsar Daðason- ar á ljóði eftir þýska skáldið Gottfried Benn, tvö prósalj óð eftir franska skáldið Stéphane Mall- armé í þýðingu Gunnars Harðar- sonar og Helgi Haraldsson þýðir úr rússnesku frægt ljóð eftir Andrej Voznesenskfj. Fleiri er- lendir höftmdar eíga ljóð í ritinu. íslensku skáldin, sem eiga ljóð eftir sig, eru Margrét Lóa Jóns- dóttir, Jón Stefánsson, Hrafn Lárasson, Gyrðir Elíasson, Bárð- ur R. Jónsson, Jónas Þorbjarnar- son, Kristján Kristjánsson og Óskar Árni Óskarsson. í heftinu eru einnig grafikmyndir eftir El- ínu P. Kolka og Sigurlaug Elías- son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.