Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 15. JULÍ 1991. 39 dv Smáauglýsingar - Sími 27022 Hilux '83 til söiu. Ný vél, fjaðrir, demp- arar, legur o.fl. Allur nýyfirfarinn, góður staðgrafsl. Skipti á ódýrari. Ath. Vsk-bíll. Uppl. í síma 91-29665. Ford Econoline ’87 til sölu, ekinn að- eins 25 þús. km, 36" dekk og margt fleira. Uppl. hjá Litlu bílasölunni, sími 91-679610. Mazda 626 GLX '87, ekinn 20 þús. km, er til sölu, sjálfskiptur, með aflstýri, álfelgur, samlæsingar, einn eigandi. Uppl. í símum 91-656695 og 91-657590. Mazda E-2000 pallbill ’88 til sölu, gott útlit. Verð 580.000 + vsk. Uppl. í sím- um 92-14815 eða 92-11603. Ymislegt V /NrtniW *lub Kvartmiluklúbburinn heldur sandspyrnu við Óseyrarbrú í Ölfusi þann 28.7. Uppl. og skráning á fimmtudagskvöld- um í síma 674530. Kvartmíluklúbburinn, Bíldshöfða 14. 'Smágrafa. Tökum að okkurýmiss kon- ar jarðvinnu, hentar vel í garða o.fl. Sími 985-30915 og 91-641323. Geymið auglýsinguna. Þjónusta Viltu megrast? Nýja ilmolíu-, appel- sínuhúðar- (celló) og sogæðanuddið vinnur á appelsínuhúð, bólgum og þreytu í fótum um leið og það auðv. þér að megrast fljótt, frábær árangur. 15% afsl. á 10 tímum. Tímap. í s. 686814 kl. 10-19. Karen sf., Borgarkringlan. Vinnulyfta til leigu, 2-3-5-6-8 m löng. Uppl. í símum 985-25390 og 98-34636. Pajero ’90 dísil, turbo, intercooler, langur, sjálfskiptur, álfelgur, bretta- útvíkkanir, stærri dekk, spoiler, kast- arar, dráttarkúla, mjög vel með far- inn. Uppl. í síma 91-656695. Volvo F 1225, árg. ’84, til sölu. Nyinn- fluttur, góður bíll, ekinn 370 þús. km. Lítur vel út, pallur 6,10 m, hliðarsturt- ur. Uppl. á vörubílasölunni Hlekk. Sími 91-672080. Mazda 626 GTi, árg. ’87, til sölu, rauð- ur, sóllúga, álfelgur, rafmagn í öllu, skipti ath. Upplýsingar í síma 91- 622646 eftir kl. 18. ^ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ^ FYRIR LANDSBYGGÐINA: í 99-6272 í. isaislMÍNN Eca -talandi dæmi um þjónustu! Fréttir Fjöldi fólks þeysti af stað í Haukadal á laugardaginn ti! þess að sjá Geysi gjósa eftir að hafa séð gosið auglýst. Hverinn náði sér þó aldrei á strik. Þegar hæst lét (sjá mynd) náði hann einungis um einum þriðja af þeirri hæð sem sést hefur til hans. Lítill hver, Fata, stal þó senunni, og varð til þess að fólk fór ekki fýluferð í þetta sinn. Prestsfrú í heimsókn Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Rósa Blöndals prestsfrú var hér í hreppi í júnímánuði síðastliðnum. Við komu hennar í byrjun mánaðar var þurrviðri en kalt og snjóaði í fjöllum. Rósa fór í Ámeskirkju að hlusta á séra Jón ísleifsson, sem var að ferma þrjú börn í áðurgreindri kirkju. Var Rósa mjög heilluð af prestsverkum hans og ágætis ræðu. Einnig þótti henni mikið til gömlu Árneskirkjunnar koma, hvað henni væri vel við haldið og hreppnum til mikils sóma. Rósa fór til altaris, bað guð um gott og gjöfult sumar og að fólki íjölg- aði hér í þessu fallega byggðarlagi. Rósu varð að ósk sinni því allir sum- arbústaðir yfirfylltust og hótelið sömuleiðis. Já, svona á fólk að vera bænheyrt eins og í tilfelli hinnar mikilhæfu prestsfrúar. Hér er alltaf sama dásamlega veðr- áttan og hefur verið síðan 16. júní. Er hiti 10-17 stig á daginn og flnnst mér það nú alveg nóg. Ingólfur Bárðarson, kylfingur hjá GOS, skálinn í baksýn. GOS við SeKoss Kristján Einarsson, DV, Selfossi: GOS er skammstöfun fyrir Golf- klúbb Selfoss sem hefur aðsetur sitt í landi Laugardæla rétt við Sel- fossbæ. Félagið hefur verið í stöðug- um vexti frá því það var stofnað 1971. í dag eru félagar á annað hundrað talsins og á klúbburinn glæsilegan skála þar sem nýverið var opnaður veitingastaður. Stefán Einarsson veitingamaður kappkostar þar að láta kylfmgum og öðrum sem til hans koma líða sem best. Boðið er upp á alla þá rétti sem algengir eru, í þægi- legu umhverfi þar sem gestir hafa gott útsýni yfir völlinn. DV hitti einn stofnfélagann, Ingólf Bárðarson, rétt áður en hann lagði af stað frá upphafspunkti golfvallar- ins: „Aðstaðan hefur lagast stórkost- lega á fáum árum hjá okkur. Við byrjuðum rétt við íbúðarhúsin á Sel- fossi á litlum velli og höfðum ekkert hús í upphafi. Hér höfum við glæsi- legan skála með veitingasal og setu- stofu þar sem við getum fylgst með beinum útsendingum af golfvöllum víðs vegar úr heiminum gegnum gervihnattadisk. Völlurinn er 9 holur en draumurinn er að fá 18 hola völl, það ætti að vera auðvelt ef semst um land. Með slíkum velli gætum við tekið stórmót til okkar og þar með aukið ferðamannastrauminn í bæn- um,“ sagði Ingólfur og sló upphafs- höggið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.