Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1991. 41 Afmæli Jón Rúnar Sveinsson Jón Rúnar Sveinsson, deildarfé- lagsfræöingur hjá rannsóknar- og áætlunardeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, Kjarrhólma 10, Kópavogi, erfertugurídag. Starfsferill Jón Rúnar fæddist á Seyðisfirði ogólstþarupptilníuáraaldursen . síðan að Dratthalastöðum í Hjalta- staðarhreppi á Fljótsdalshéraði til sextán ára aldurs er hann flutti til Reykjavíkur. Jón Rúnar lauk stúdentsprófi frá MH1971, BA-prófi frá Námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum við HÍ1975 og stundaði framhaldsnám við félagsfræðideild háskólans í Lundi í Svíþjóð 1975-81. Hann starf- aði j afnframt að ýmsum rannsókn- um á sviði húsnæðismála bæði í Sviþjóðogáíslandi. Jón Rúnar hóf störf hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins 1982, fyrst í hluta- starfi en síðan í fullu starfi frá 1984. Jón Rúnar er meðal stofnenda Húsnæðissamvinnufélagsins Bú- seta í Reykjavík 1983 og var formað- ur félagsins frá stofnun þess til 1986. Hann var einnig meðal stofnenda Rótar hf. er rak útvarpsstöðina Rót 1988-90 og var hann stjórnarfor- maðurfélagsins 1988-89. Fjölskylda Jón Rúnar kvæntist 4.8.1972 Val- gerði Árnadóttur, f. 29.8.1951, íþróttakennara en hún er dóttir Arna Sigurðssonar og Sigriðar Guð- mundsdóttur. Börn Jóns Rúnars og Valgerðar eru Árni Freyr Jónsson, f. 6.5.1972, nemi við MR; Hallveig Jónsdóttir, f. 18.2.1978; Arnór Jónsson, f. 22.2. 1987. Hálfsystkini Jóns Rúnars, sam- mæðra, eru Sigmundur Kristján, f. 13.7.1960, b. á Dratthalastöðum í Hjaltastaðarhreppi í Norður-Múla- sýslu; Guðrún Svanhildur, f. 2.11. 1962, búsett á Vopnafirði, gift Guð- jóni Emil Ólafssyni og eiga þau tvö börn; Guðmundur Hjalti, f. 26.9. 1964, búsettur í Borgarnesi, kvænt- ur Vigdísi Guðrúnu Sigvaldadóttur og eiga þau eitt barn; Sólveig Heið- rún, f. 23.6.1966, búsett í Kópavogi, gift Sveini Ómari Ólafssyni og eiga þau eitt barn. Hálfsystir Jóns Rún- ars, samfeðra, er Ingigerður, f. 30.11. 1948, húsett í Færeyjum og á hún fjögur börn og tvö barnabörn. Foreldrar Jóns Rúnars; Sveinn Ólafsson, f. 4.8.1924, fyrrv. vélstjóri í Áburðarverksmiðju ríkisins, bú- settur í Reykjavík, og Hallveig F. Guðjónsdóttir, f. 11.5.1923, hús- freyja að Dratthalastöðum í Hjalta- staðarhreppi. Ætt Sveinn er sonur Ólafs, stöðvar- stjóra á Þingeyri, Jónssonar, b. í Dalkoti á Vatnsnesi, Jósefssonar. Móðir Ólafs var Sigríður Ólafsdótt- ir. Móðir Sveins var Elinborg Katr- ín, stöðvarstóri á Þingeyri, systir læknanna Kristjáns og Jónasar. El- inborg var dóttir Sveins, prests að Ríp, Guðmundssonar, b. í Hömlu- holtum í Eyjahreppi, Jónssonar. Móðir Sveins að Ríp var Ingveldur Jónasdóttir frá Hausthúsum. Móðir Elinborgar Katrínar var Ingibjörg Jónasdóttir, latínukennara og síðar prests á Staðarhrauni, Guðmunds- sonar. Móðir Ingibjargar var Elin- borgKristjánsdóttir, Skúlasonar Magnúsens kammerráðs. Hallveig er dóttir Guðjóns, b. á Heiðarseli, Gíslasonar, b. á Hafursá, Jónssonar, b. í Brekku í Fljótsdal, Jónssonar. Móðir Gísla var Margrét Hjálmarsdóttir, prests á Hallorms- stað, Guðmundssonar, prests í Mið- dal, Guðmundssonar. Móðir Hjálm- ars var Hólmfríður Hjálmarsdóttir, lrm. í Gufunesi, Erlendssonar. Móð- ir Guðjóns var Sigríður Árnadóttir, Þórðarsonar. Móðir Hallveigar var Guðrún Benediktsdóttir, gestgjafa á Vopnafirði, bróður Baldurs, hómó- pata í Garði, og Odds í Hrafnsstaða- seli, fóður Guðrúnar, konu Guð- mundar á Sandi. Benedikt var sonur Sigurðar, b. á Hálsi í Kinn, Oddsson- ar, b. á Granastöðum, Benedikts- sonar. Móðir Sigurðar var Guörún Þorvaldsdóttir. Móðir Benedikts var Guðrún Vigfúsdóttir frá Þverá í Reykjahverfi. Móðir Guðrúnar Benediktsdóttur var Sólveig Þórð- ardóttir, b. á Sævarenda í Loðmund- arfirði, Jónssonar, Eyjólfssonar, Jónssonar pamfíls. Magnús Guðlaugsson Magnús Guðlaugsson úrsmiður, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Magnús fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann lauk prófi í vél- virkjun frá iðnskólanum á Patreks- firöi 1944 og lauk námi í úrsmíði 1953. Á yngri árum stundaði Magnús sjómennsku og vann síðan í Rafha í nokkur ár. Eftir að hann lauk námi í úrsmíði setti hann á stofn úra- og skartgripaverslun í Hafnarflrði sem hann starfrækti í þijátíu ogfjögur ár. Magnús var varaformaður Úr- smiðafélags íslands um árabil og hefur veriö virkur félagi í Rotary- klúbbi Hafnarfjarðar frá 1956. Magnús er mikill áhugamaður um skgórækt og hefur unnið mikið ræktunarstarf á Krossi á Barða- strönd. Fjölskylda Magnús kvæntist árið 1946 Láru Jónsdóttur Ólafsson, f. 13.11.1921. Faðir hennar var Jón Ágúst Ólafs- son, konsúll á Patreksfirði, Jónsson- ar, veitingamanns á Hótel Oddeyri á Akureyri. Móðir hennar var Anna Erlendsdóttir Ólafsson. Börn Magnúsar og Láru eru: Jón Guðlaugur, f. 20.4.1947, fram- kvæmndastj., kvæntur Bergljótu Böðvarsdóttur og eiga þau þrjú börn, Iðunni Eir, Magnús Frey og Böðvar; Kjartan, f. 7.9.1949, krabba- meinslæknir, var kvæntur Guð- rúnu Dóru Petersen og eiga þau tvær dætur, Silju og Telmu; Gunn- ar, f. 5.11.1958, úrsmiður, kvæntur Anette Mönster og eiga þau tvö börn, Jens og Loise Sif; Ólafur Haukur, f. 22.11.1960, viðskipta- fræðingur, í sambúð með Sigrúnu Magnúsdóttur og eiga þau einn son, HeiðarMá. Bróðir Magnúsar var Friðjón Guðlaugsson, f. 1912, d. 1985, vél- stjóri, hann var kvæntur Huldu Hansdóttur og áttu þau átta börn. Foreldrar Magnúsar voru Guð- laugur Helgason, sjómaður í Hafn- arfirði, ogkona hans, Guðrún Ólafs- dóttir. Ætt Guðlaugur var sonur Helga bónda á Litla-Bæ á Vatnsleysuströnd, Sig- valdasonar frá Halldórsstöðum, Helgasonar. Móðir Guðlaugs var Ragnhildur Magnúsdóttir, gull- smiðs á Vanangri, Eyjólfssonar í Magnús Guðlaugsson. Vestmannaeyjum, föðurs Túbals, föður Ólafs Túbals listmálara. Guðrún var dóttir Ólafs Jónssonar frá Þykkvabæ, síðar verkamanns í Hafnarfirði, og konu hans, Guð- finnu Guðmundsdóttur. Guðrún var systir Arnlaugs, fóður Guðmundar Arnlaugssonar, fyrrverandi rekt- ors. Magnús verður að heiman á af- mælisdaginn. Sviðsljós Áttræð en tek- ur enn þátt í golfmótum Konur í Golfklúbbi Leynis af- hentu Guðrúnu Geirdal, áttræð- um golfleikara, áletraðan bakka. DV-mynd SS Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Þrátt fyrir að standa á áttræðu lætur Guðrún Geirdal á Akranesi sig ekki muna um að taka þátt í golfmótum hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Staðfest hefur verið hjá Golf- sambandi íslands að Guðrún sé elsta konan á landinu sem leikur á mótum hérlendis. Eftir Sumar- gleði kvenna í síðustu viku færöu Leyniskonur Guðrúnu fagran, áletraðan bakka. Meðfylgjandi mynd var tekin af henni og Margréti Vilhjálmsdóttur við það tækifæri. EIN GOfi ITVEIMUR HLUTVERKUM ídýfa meö fersku grænmeti og nasli. Sósa meö fiski og kjöti. w Jón Rúnar Sveinsson. BÍLASPRAUTUN ÉTTINGAR 1 ^ Varmi Auðbrekku 14, sími 64-21 -41 t^NITECI-f Litsj ónvarpstæki # 20" m/Qarst. kr. 29.950,- stgr. 5 ára ábyrgð á myndlampa VÖNDUÐ VERSLUN HiJÖMCO I VARA- ri ÍHLUTIR ■ oq flestar gerðir !ÞUNGA- 'VINNUVÉLA ■ með stuttum fyrirvara i i i i i i ■ Leitið tilboða | MARKAÐSNÓNUSTAN sími 26984, fax 26904 hi kJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.