Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 35
47
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ1991.
i>v Veidivon
- Norðurá komin með rúmlega 600 laxa og 360 úr Laxá í Kjós
Flekkudalsá á Fellsströnd hefur
svo sannarlega verið í sviðljósinu
síðustu daga eftir að bóndi einn við
ána gerði sér lítið fyrir og drc fyrir
í ánni. Veiðifélag Flekkudalsár og
Stangaveiðifélag Akraness hafa kært
bóndann.
Okkur þótti rétt að koma við á
bökkum Flekkudalsár í gærmorgun.
Við vorum mættir á bakkann þegar
veiðimennirnir voru að vakna og
koma sér niður að ánni.
En í gærmorgun þegar fyrstu veiði-
mennirnir renndu færum sínum
hafði áin gefið 35 laxa og hann var 9
pund sá stærsti. Maðkurinn hafði
gefið langflesta þessa laxa.
Flekkudalsáin er feiknalega fallega
veiðiá eins og fleiri þarna um slóðir,
veiðiár eins og Búðardalsá og Krossá.
Neðst í Sjávarfljótinu renndu þeir
Pétur Pétursson og Ólafur Ö. Valdi-
marsson. Ofar í ánni veiddu félagar
þeirra en höfðu ekki árangur sem
erfiði.
Ólafur hafði varla rennt fyrsta
kastinu í Sjávarfljótið þegar lax
renndi sér á maðkinn og tók. Þarna
fengu þeir félagar þrjá laxa, 4-5
punda fiska. í Efra-Fjóti fengu þeir
skömmu seinna fjórða laxinn, þrátt
fyrir að ekki væru margir laxar
þarna.
„Það er gaman að lenda í þessu,
það var stærsti straumur í gærdag.
Þessir laxa hafa komið í þeim
straumi," sagði Pétur Pétursson og
losaði úr laxi.
„Áin er falleg og margir skemmti-
legir veiðistaðir í henni en það mætti
vera meira af laxi. Við sáum laxa í
Jónsbakka en þeir tóku ekki,“ sagði
Pétur ennfremur.
Flekkudalsá hefur gefið 40 laxa í
gær og hann er 9 pund sá stærsti.
Nokkrir silungar hafa líka veiðst.
„Aidrei sést eins mikill
fiskur í Stekknum“
„Menn hafa aldrei séð annað eins
magn af fiski og er í Stekknum þessa
dagana. Laxinn er að ganga á fullu
og veiðimenn hafa séð grálúsuga
fiska fyrir ofan Króksbrú," sagði Ól-
afur Haukur Ólafsson í gærkvöldi í
Pétur Pétursson og Ólafur Ö. Valdimarsson með þrjá laxa úr Sjávarfljótinu í Flekkudalsá í gærmorgun. Laxarnir
tóku maökinn á innan við hálftíma. DV-mynd G.Bender
samtali við DV en hann var þá stadd-
ur í bökkum Norðurár í Borgarfiröi.
Veiðin i Norðurá hefur verið frekar
dræm síðustu daga, laxinn tekur illa
og vatn er með allra minnsta móti
miðað við árstíma. Frakkar, ítalir,
Þjóðveijar og íslendingar eru við við
veiðar núna í Norðurá sem í gær-
kvöldi hafði gefið rúmlega 600 laxa.
Víða vatnslaust
Margar veiðiárnar eru vatnslitlar
þessa dagana og ein þeirra er Laxá í
Dölum. Við heyrðum í gær að veiði-
menn sem voru við veiðar þar í
nokkra daga hefðu ekki farið úr
strigaskónum allan tímann en sölu-
verð þessarar sögu er ekki hærra en
kaupverðið.
360 laxar úr Kjósinni
í gærkvöldi voru komnir um 360 lax-
ar á land úr Laxá í Kjós. 22 laxar
komu á land í gær og allir á flugu.
Að sögn Ólafs Olafssonar veiðivarð-
ar tekur laxinn vel um leið og bregð-
ur birtu en mikil birta hefur einkum
staðið í vegi fyrir góðri veiði síðustu
dagana. G.Bender
DV á bökkum Flekkudalsár í gærdag:
Fertugasti laxinn
tók í Flekku í
Fjölmiðlar
Hvenær lýkur vaktinni?
Sú var tíöin aö undirrituð kveikti
á útvarpinu þegar hún vaknaði og
slökkti ekki á því fyrr en hún fór
að sofa. Ef hún fann ekkert á einni
stöðinni sem gaman var að var allt-
af hægt að finna eitthvað á þeirri
næstu.
Dagskrá dægurlagaútvarpanna
hefur hins vegar þynnst með tíman-
um og í dag er varla hægt aö heyra
neinn mun á stöðvunum, þó margar
séu.
Oft á tíðum hefur maður það á til-
fmningunni að víðkomandi út-
varpsmaður sé einungis að bíða eft-
ir því aö vaktinni lj úki svo næsti
takivið.
Hver kannast t.d. ekki við frasa
eins og... klukkan er alveg að verða
tíu en þó lýkur vaktinni og Nonni
tekur við... eða... égætla vera
með ykkur til klukkan firnm, í 47
minúturiviðbót.
Það er enginn sem fylgist svona
grannt með hvenær vaktaskipting-
unni lýkur hjá þessum vesalings
mönnum, nema þeir sjálfir.
Það hlýtur að vera hægt að nota
tímann og tala um eitthvað sem er
meira uppbyggjandi og skilur eitt-
hvaö eftir sig hjá lilustandanum.
Einn maður hefur alla tíð skorið
sig úr hvað þetta varðar og það er
Snorri Sturluson á Bylgj unni. Hann
virðist alltaf gefa sér tíma til þess
að undirbúa sig fyrir útsendingu.
Ég mæli með aö hinir fari að hans
dæmi s vo maður hafi það ekki alltaf
á tilfmningunni að maður sé að
halda þeim frá einhverju öðru, eða
að maður sé hreinlega i pössun hjá
þeim.
Ingibjörg Óðinsdóttir
BINGÖ!
Hefst kl. 19.30 í kvöld
Aðalvinninqur að verðmæti
_________100 bús. kr.________
Heildarverðmæti vinninqa um
300 bús. kr.
TEMPLARAHÖLLIN
Eiríksgötu 5 — 5. 20010
Veður
Breytileg átt, gola eða hægviðri um land allt. Víða
þokusúld eða rigning á Vestfjörðum og um norðan-
og austanvert landið. Á Suðausturlandi verður súld
á stöku stað en skýjað að mestu og þurrt að kalla á
suðvestan- og vestanverðu landinu. Hiti verður6-14
stig, kaldast norðan- og austanlands.
Akureyri rigning 10
Egilsstaðir úrkoma 11
Keflavíkurflugvöllur skýjað 10
Kirkjubæjarklaustur alskýjað 10
Raufarhöfn alskýjað 9
Reykjavík skýjað 9
Bergen skýjað 14
Helsinki léttskýjað 18
Kaupmannahöfn skýjað 15
Ósló léttskýjað 16
Stokkhólmur skýjað 14
Þórshöfn rigning 11
Amsterdam skýjað 16
Barcelona þokumóða 21
Berlin léttskýjað 15
Feneyjar þokumóða 21
Frankfurt þokumóða 16
Glasgow rign/súld 12
Hamborg skýjað 14
London rign/súld 15
Lúxemborg skýjað 13
Madrid heiðskírt 20
Malaga heiðskírt 22
Mallorca léttskýjað 21
Nuuk þoka 3
París skýjað 15
Róm skýjað 22
Valencia þokumóða 22
Vín rigning 18
Gengið
Gengisskráning nr. 131. -15. júlí 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 62,420 62,580 63,050
Pund 102,709 102,972 102,516
Kan. dollar 54,456 54,595 55,198
Dönsk kr. 9,0072 9,0303 9,0265
Norsk kr. 8,9286 8,9515 8,9388
Sænskkr. 9,6238 9,6485 9,6517
Fi. mark 14,5078 14,5450 14,7158
Fra. franki 10,2635 10,2898 10,2914
Belg. franki 1,6916 1,6959 1,6936
Sviss. franki 40,2100 40,3131 40,4750
Holl. gyllini 30,9263 31,0055 30,9562
Þýskt mark 34,8287 34,9180 34,8680
ít. líra 0,04680 0,04692 0,04635
Aust. sch. 4,9479 4.9606 4,9558
Port. escudo 0,4040 0,4051 0,3998
Spá. peseti 0,5560 0,5574 0,5562
Jap. yen 0,45554 0,45671 0,45654
írskt pund 93,162 93,401 93,330
SDR 82,5180 82,7295 82,9353
ECU 71,5957 71,7793 71,6563
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
•Q afftit Mta
lamut ftatnl
ffeewmz
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900
SEKTIR
fyrir nokkur
umferöarlagabrot:
Umferöarráö
vekur athygll á nokkrum
neöangreindum sektarfjárhæöum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum
ríkissaksóknara til lögreglustjóra
frá 22. febrúar 1991.
Akstur gegn rauöu Ijósi
Biöskylda ekki virt
Ekiö gegn einstefnu
Ekiö hraöar en leyfilegt er
Framúrakstur viö gangbraut
Framúrakstur þar sem bannaö er
„Hægri regfan" ekki virt
Lögboöin ökuljós ekki kveikt
alltaö 7000 kr.
7000 kr.
Stóövunarskyldubrot
Vanrækt aö fara meö ökutæki
til skoöunar
Öryggisbelti ekki notuö
-alltaö 7000 kr.
4500 kr.
3000 kr.
MJOG ALVARLEG OG ITREKUÐ BROT
S/ETA DÓMSMEÐFERÐ.
FYLGJUM REGLUM -
FORÐUMST SLYS!
IUMFERÐAR
RÁÐ