Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1991, Qupperneq 36
F R ETT AS KOTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
-
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 15. JÚU 1991.
Kveikt í trillu
- hráolíu hellt yfir aöra
Kveikt var í trillu sem stóð í slipp
í Húsavík í fyrrinótt. Hafði verið bor-
inn eldur að netahrúgu sem lá undir
henni. Netin loguðu glatt og læsti
eldurinn sig í trilluna. Hún skemmd-
ist allmikið og verður að skipta um
bakborðshliðina.
Sömu nótt var gerö tilraun til að
kveikja í annarri trillu sem lá í höfn-
inni. Hafði verið hellt yfir hana hrá-
olíu og eldur borinn að. Ekki tókst
brennuvargnum ætlunarverk sitt og
urðu engar skemmdir á bátnum.
Grunur leikur á að hinn sami eða
hinir sömu hafi verið að verki í báð-
um tilvikum. Sökudólgarnir hafa
ekki náðst enn og er málið í rann-
sókn.
-JSS
Banaslys
í Þórsmörk
Banaslys varð í Þórsmörk um helg-
ina. 19 ára piltur frá Eyrarbakka féll
niður í gilsprungu í Húsadal aðfara-
nótt laugardagsins og er talið að
hann hafi látist samstundis. Hann
fannst um hádegi á laugardag eftir
að hafa verið saknað í talsverðan
tíma. Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
-PÍ
Ekki rétt skip
Starfsmenn Siglingamálastofnun-
ar segja að myndin, sem skipverjar
á Sæbjörginni tóku af grunsamlegu
skipi á Húnaflóa, hafi ekki reynst
vera af réttu skipi.
Myndin hefur nú verið stækkuð og
að sögn Mikaels Ólafssonar, fulltrúa
í mengunardeild, er taliö að myndin
sé af hollensku skipi, Stella Lyra,
sem ekki hafl verið með neitt lýsi um
borð. -ingo
Brutustinníá
annantugbíla
Tveir unglingsstrákar, 17 og 19 ára,
brutust aðfaranótt sunnudags inn í á
annan tug bíla í Reykjavík og stálu
öllu lauslegu sem þeir fundu. Lögregl-
an greip þá þegar þeir voru búnír að
safna dágóðum ránsfeng. -pj
Hótuðuogrændu
Tveir ungir menn fóru inn í mynd-
bandaleigu Steinars í Kringlunni um
helgina og tóku þaðan 12.000 krónur
í peningum. Höfðu þeir í hótunum
við unglingspilt sem var við af-
greiðslu. Mennirnir voru ekki fundn-
ir þegar DV fór í prentun. -pj
Gjaldtaka af
sjúklingum spít-
alanna könnuð
- ekki mitt að hafa skoðun á þessu, segir forstjóri Ríkisspítalanna
„Það er ekki mitt að hafa skoöun
á því hvort rukka beri sjúklinga
Rikisspítalanna fyrir þá þjónustu
sem við veitum þeim. Við höfum
lítið sem ekkert velt þessu fyrir
okkur. Fram til þessa hafa einung-
is þeir sem nýta sér göngudeildar-
þjónustuna þurft að greíða hluta
kostnaðarins en sjálfsagt er hægt
að innleiða slfkt víðar. Þetta er
fyrst og fremst póhtískt mál en er
ekki stjórnunarlegt vandamál,"
segir Davíð A. Gunnarsson, for-
stjórí Ríkisspítalanna.
Heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra hefur verið falið það verkefni
af ríkisstjórninni að skera niður
útgjöld ráðuneyta sinna um hátt í
fjóra milljarða. Sighvatur Björg-
vinsson segist ætla að ná þessum
sparnaði að stórum hluta með þvi
að krefja fólk um greiðslu fyrir þá
þjónustu sem það fær, meðal ann-
ars vegna sjúkrahúslegu.
Nú þegar hefur ráðherrann hrint
þessari stefnu í framkvæmd varð-
andi lyfjakaup almennings og er
búist við að sú aðgerð feli í sér allt
að tjögur hundruð milljóna króna
sparnað fyrir ríkissjóð. Ráðherra
segir að á næstunni verði fleiri
möguleikar til sparnaðar kannaðir,
til dæmis að láta sjúklinga greiða
að hluta fyrir þá þjónustu sem þeir
fá hjá Ríkisspítulunum.
-ka.i
■
—
I hitanum hérlendis undanfarnar vikur hefur ýmiss konar gróður tekið við sér í ám og vötnum meðan laxveiði-
mennirnir kvarta undan aflaleysi. Mæðginin, Anna og Ágúst, láta sér líða vel i lauginni í Landmannalaugum þar
sem slýið hefur náð sér vel á strik fyrir áhrif sólar, hita og vatns. Ferðamenn i Landmannalaugum flykkjast í laugina
til að skola af sér ferðarykið sem nóg er af vegna þurrksins í sumar. Ljósmyndari DV, Gunnar V. Andrésson, var
þarna á ferð á dögunum og birtast fleiri myndir frá þessari einstöku náttúruparadís á bls. 20.
Helgi Ass Grétarsson stóð sig mjög
vel á heimsmeistaramóti barna í
skák, sem fram fór í Póllandi, og
hreppti annað sætið í keppninni.
DV-mynd Ægir Már
Heimsmeistaramót barna:
íslenskurskák-
maðurí2.sæti
Helgi Áss Grétarsson lenti í öðru
sæti á heimsmeistaramóti barna í
skák, í aldursflokki 14 ára og yngri.
Hlaut hann 8 vinninga af 11 möguleg-
um. Pólverjinn, M. Kaminski, hlaut
fyrsta sætið með 9 'A vinning og landi
hans hreppti það þriðja. Mótið var
haldið í Varsjá í Póllandi.
„Fyrir mótið gerði ég mér engar
sérstakar vonir um verðlaunasæti
en þegar ég kom á staðinn breyttist
það. Eg sá að topparnir voru ekki
jafnsterkir núna og á mótinu i
Bandaríkjunum í fyrra og gat því
stefnt hátt. Ég er því þokkalega
ánægður með árangurinn," sagði
hinn ungi skáksnillingur.
Tæplega 50 keppendur voru í flokki
Helga og hlýtur árangur hans því að
teljast mjög góður. Hann hefur staðið
sig vel í skákinni, er margfaldur
skólameistari og Norðurlandameist-
ari í sínum aldursflokki. Keppt var í
þremur ílokkum, 14 ára og yngri, 12
ára og yngri og 10 ára og yngri. Um
40-50 keppendur voru í hverjum
flokki. Tveir aðrir ungir íslendingar
voru með í fór, Jón Viktor Gunnars-
son og Bergsteinn Einarsson. Lentu
þeir báðir í sætum ofan við miðju.
-tlt
Kylfingartil-
kynntu um Lúllu
Kylfingar á golfvellinum á Seltjam-
arnesi tilkynntu í gærkvöldi um vél-
arvana plastbát um 500 metra undan
svokallaðri Suðumesvörðu. Slöngu-
bátur frá björgunarsveitinni Albert
fór út en reyndist ekki nógu kröftug-
ur. Jón E. Bergsveinsson frá björgun-
arsveitinni Ingólfl var þá fenginn í
verkið. Báturinn, sem heitir Lúlla var
dreginn inn á Kópavog laust fyrir 11
í gærkvöldi. 5 menn vom um borð
og sakaði þá ekki. -pj
LOKI
Þarf þá ekki líka að borga
fyrir að koma í heimsókn?
Breytileg átt
og hægviðri
Á morgun verður breytileg átt,
gola eða hægviðri, um land allt.
Víða verður þokusúld eða rigning
á Vestfjörðum og um norðan- og
austanvert landið. Á Suðaustur-
landi verður súld á stöku stað en
skýjað að mestu og þurrt að kalla
á suðvestan- og vestanverðu
landinu. Hiti verður 6-14 stig,
kaldast noröan- og austanlands.
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HUSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822