Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 20, J,tj,LÍ 1991:, „Ég tel að þetta sé besti árangur minn á alþjóðlegu móti og ég er sæmilega ánægður með útkom- una,“ sagði Helgi Áss Grétarsson í samtali við DV. Helgi er nýkominn frá Póllandi þar sem hann keppti á heimsmeistaramóti bama og ungl- inga undir 14 ára og hreppti annað sætið. „Ég gat ekki vitað fyrir mót- ið hversu sterkt það væri.“ Ástríðufullur skákmaður Helgi er 14 ára gamall og ástríðu- fullur skákmaður eins og afreka- skrá hans sýnir glögglega en hann hefur teflt á fjölda móta innanlands og erlendis undanfarin ár og verð- launabikarar hans skipta orðið mörgum tugum og sigrar á mótum eru fleiri en upp verði talið. Helgi hefur 2260 ELO-stig, sem er alþjóð- legur mæhkvarði á getu skák- manna, og því með mjög háa stiga- tölu miöað við aldur. Maturinn vondur Umrætt heimsmeistaramót fór fram í Póllandi og Helgi er ómyrk- ur í máli þegar hann segir að að- búnaður hafi verið sæmilegur en maturinn beinlínis vondur og hann hafi þurft að sitja svangur við skák- borðið á stundum. Nánari athugun leiðir í ljós að móðir Helga nestaði hann með ávaxtasafa og vestfirsk- um harðfiski en faðir hans gefur í skyn að Helgi sé einfaldlega mat- vandur. Helgi segir að allir kepp- endur, utan þeir frá austantjald- slöndum, hafi verið mjög óánægðir. Annað sem Helgi gagnrýnir er að margar þjóðir hafi sent fleiri full- trúa en reglur FIDE, alþjóðaskák- sambandsins, segi til um. Fótbolti og skák Helgi er ekki við eina fjölina felld- ur í íþróttum því hann hefur leikið knattspyrnu af miklum móð um langt skeið með Fram,og nú síðast með 4. flokki. Lengst af hefur hann veriö í marki og staðið sig vel þar eins og á skákborðinu og tvisvar var hann kjörinn besti markmaður á Tommamótinu í Vestmannaeyj- um. En er eitthvað líkt með skák og fótbolta? „Ég veit það varla,“ segir Helgi. „Þar sem ég stend í markinu og gef Helgi Ass Grétarsson við tafiborðið sem hann fékk í verðlaun í Póllandi. Yngsti medlimur skákfjölskyldunnar: Að „svíða“ er skákslangur yfir að þjarma hægt en örugglega að ein- hverjum, sigra hann mjög örugg- lega. AUt á skákborðinu, að sjálf- sögðu. Má ekki óttast að tapa „Maður má samt ekki óttast að tapa. Mér finnst alltof margir sætta sig við stutt jafntefli. Þeir gera sér ekki grein fyrir því að með því að tefla flókna skák til enda, hvort sem maður tapar eða ekki, þrosk- ast maður miklu meira sem skák- maður en hitt,“ segir Helgi af mikl- um sannfæringarkrafti. Tal og Bronstein bestir - Áttu þér einhverjar eftirlætis- fyrirmyndir meðal frægra skák- manna? „Mér finnst Bronstein listamaður meðal skákmanna og bók hans um skák hefur kennt mér margt. Hann leggur mikla áherslu á hið listræna við skákina. Ég er nokkuð sam- mála honum en vil þó líta á skák sem sambland af íþrótt og list. Annar minna uppáhaldsskák- manna er Tal, fyrrum heimsmeist- ari. Hann var og er snillingur, sér- staklega í fléttum." - Nú eru báðir þessir skákmenn, sérstaklega Tal, þekktir fyrir djarfa og glæsilega taflmennsku sem stundum jaðrar við flfldirfsku. Ber að skilja þetta svo að þú sem skák- maður kjósir glæsileikann frekar en öryggið? „Það er gaman að vinna en það má ekki fórna öllu. Ég er á móti jafnteflum. Ég vildi gjaman ráöa yfir skákstíl Tals,“ segir Helgi. Amma kenndi barnabörnunum Helgi Dagbjartur Áss Grétarsson er sonur hjónanna Sigrúnar Andrewsdóttur og Grétars Áss Sig- urðssonar. Öll börnin lærðu ung að tefla og það var móðir Grétars, Guðfríður Lilja Benediktsdóttir, sem studdi þau fyrstu sporin á skákborðinu. „Móðir mín var nokkuð slyng skákkona. Þegar hún kom í helgar- heimsóknir á efri árum hafði hún Sambland af list og íþrótt mikið yndi af og gaf sér nægan tíma til að tefla við barnabörnin," segir Grétar, faðir Helga. Það kemur í ljós að gamla konan lærði að tefla í byrjun aldarinnar vestur í Dala- sýslu og hafði alla tíð mikið dálæti á kóngsbragði. Öll fjölskyldan með skákdellu Af börnum Sigrúnar og Grétars er Sigurður elstur, þá Andri, síðan Guðfríður Lilja og loks Helgi. Öll hafa þau keppt meira og minna í skák. Guðfríður er margfaldur ís- landsmeistari kvenna og alþjóðleg- ur meistari. Andri hefur nú lagt skákina á húluna en Helgi segir hann löngum hafa verið sterkasta skákmann fjölskyldunnar. Grétar faðir þeirra keppti í meistaraflokki á sínum yngri árum og þó Sigrún segist varla kunna mannganginn kemur í ijós að hún keppti í skák fyrir Samvinnuskólann á meðan hún var þar við nám. Þannig tekur öll fjölskyldan virkan þátt í skák- inni og þetta hefur verið helsta heimilisíþróttin í fjölda ára. „Þetta virðist liggja í ættinni," segir Grétar og brosir. „Æth það séu ekki einhver skákgen sem flytj- ast frá manni til manns.“ -Pá skipanir til leikmanna er þetta kannski ekki ósvipað. í báðum til- vikum snýst þetta um að stýra sín- um mönnum gegn liði andstæðing- anna.“ Fótboltinn hjálpar Helga í skák- inni því hann leggur mikla áherslu á að þjálfa líkamann ekki síður en hugann fyrir skákmót. - DV heimsækir Helga Áss Grétarsson Verður að vera vel á sig kominn „Það er ótrúlega erfitt að sitja og tefla kannski fjóra tíma á dag á mótum. Þetta krefst mikillar ein- beitingar og því er mjög mikilvægt að vera vel á sig kominn." - Því er þá ekki þannig fariö að skákmenn búi sig undir mót með því að liggja uppi í sófa og lesa um byijanir og tefla skákir í huganum: „Nei, undirbúningur skákmanna er mjög fjölþættur og líkamlega hliðin er ekki síst mikilvæg,“ segir Helgi. Hann segist undirbúa sig fyrst og fremst með því að fara yfir eigin skákir. Sigurður bróðir hans var með honum í Póllandi en Eim- skip, Sláturfélag Suðurlands og Ágúst Ármann h/f styrktu Helga til fararinnar en Skáksambandið tók ekki þátt í kostnaði við fórina. Mikilvægustu árin fram undan Næst á dagskrá hjá Helga er ein- Fjölskyldan skákglaða samankomin við skákborðið. Helgi glímir við Guðfríði Lilju systur sina. Fyrir aftan frá vinstri: Andri Áss Grétarsson, Grétar Áss Sigurðsson, Sigrún Andrewsdóttir og Sigurður Áss Grétarsson. DV-myndir JAK vígi við Áskel Örn Kárason um sæti í landsliðsflokki. Hann segir framtíðina að öðru leyti óráðna en segist ætla að einbeita sér að skák- inni fram til tvítugs með öðru námi. „Á þessum tíma verða mestu framfarirnar hjá skákmönnum. Það er því mjög mikilvægt á þessu mótunarskeiði að þjálfa sig vel. Ég vona að ég nái sem lengst í skák- inni en hef ekki sett markið á neinn sérstakan áfanga,“ segir hann og er nú alvörugefnari en flestir imgl- ingar á fermingaraldri eru jafnan. Hann fullyrðir að sá sem ekki er orðinn stórmeistari fljótlega eftir tvítugt verði það trúlega ekki úr því. Lærði að tefla sex ára Helgi lærði að tefla 6 ára gamall og fór fljótlega að mæta á regluleg- ar æfingar hjá Taflfélagi Reykja- víkur þrisvar í viku. „Þetta var mjög mikilvægt fyrir mig. Að tefla er besta þjálfunin á þessum fyrstu árum.“ Helgi er mikill keppnismaður, bæði í skák og fótbolta, og leggur mikla áherslu á aö vinna. Hann segist eiga erfitt með að tapa og fari iðulega í fýlu sem stendur samt sjaldan lengi. Hann segist helst vilja hefna sín á þeim sem hann tapar fyrir með því að „svíða" þá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.