Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1991, Side 17
LAUGARDAGUR 20. JÚLt ‘1991: 17- Bridge Evrópumótyngri spilara í bridge: Góður árangur hjá íslensku pari Evrópumóti yngri spilara er ný- lokið í Feriendorf Fiesch sem er í suðurhluta Sviss við ítölsku landa- mærin. Evrópumótið er spilað ann- að hvert ár og nú í ár var eitt ís- lenskt par meðal þátttakenda. Sveinn Rúnar Eiríksson og Stein- grímur Gautur Pétursson kepptu á mótinu og náðu ágætis árangri. Þeir enduðu í 26. sæti af 104 pörum. Mótið var spilað dagana 11.-14. júlí. Þátttakendur komu frá flestöll- um þjóðum Evrópu en þó voru spil- arar frá írlandi, Tékkóslóvakíu, Albaníu, Færeyjum og Lúxemborg ekki meðal þátttakenda. En pör frá öllum öðrum austantjaldsþjóðum (ef enn er hægt að kalla þær því- nafni) voru meðal þátttakenda og eru það gleðileg tíðindi. Sigurvegarar á mótinu var Aust- urrískt par en í öðru sæti var par frá Hollandi. Það vakti athygli að hollenska parið var skipaö spilur- um af báðum kynjum en það telst ávallt til tíðinda þegar spilarar af kvenþjóðinni láta að sér kveða þeg- ar bæði kynin taka þátt. í þriðja sæti var par frá Danmörku. Það par var sektað um nokkur stig í fyrstu lotu mótsins fyrir að raða spilum vitlaust. Þegar upp var staðið kostuðu refsistigin danska parið annaö sætið í mótinu. í fjórða sæti kom svo þýskt par sem leitt hafði keppnina lengst af. í síðustu lotunni af fjórum hefði því pari nægt að fá 48% skor til að verða Evrópumeistarar, en parið náði aðeins 45% og datt alla leið niöur í fjórða sætið. Annar spilar- anna í því pari heitir Roland Ro- Bridge ísak Sigurðsson hovsky úr A-liði Þjóðveija sem urðu heimsmeistarar á síðastliönu hausti. Þeir Sveinn Rúnar og Steingrím- ur Gautur eru fastamenn í íslenska unglingalandshðinu en fóru á eigin vegum til keppni á EM í Sviss. Gengi þeirra var upp og niður í fyrstu þremur lotunum. Rúmlega 50% skor náðist í fyrstu tveimur en síðan tæplega 50% í þriðju lot- unni. í síðustu lotunni gekk þó heldur betur og þeir félagar náðu rúmlega 60% skori. Það nægði til þess að lyfta parinu upp í 26. sæti í lokin. Þetta spil er í síðustu lotunni hjálp- aði vel til, en þar fengu Sveinn og Steingrímur hreinan topp fyrir að standa 6 spaða doblaða. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og allir á hættu: * ÁD109754 V KG65 ♦ K + 6 ♦ 32 V 74 ♦ D85 + ÁKD754 * G86 V D108 ♦ 107643 + 109 * K V Á932 ♦ ÁG92 + G832 Austur Suður Vestur Norður Pass Pass Pass 1* Pass 1 G 2+ 4A Pass 5♦ Pass 5f Pass 5A Pass 64 Pass Pass Dobl p/h Dobl vesturs var heldur vanhugsað því spihð er alltaf niður ef útspilið er lauf. Doblið hlýtur hins vegar að vara austur við því að spila út laufi. Austur valdi að spila út tígli í byrjun, Steingrímur sem var sagnhafi setti níuna sem kostaði drottningu og þar með voru óll vandamál sagnhafa leyst. Hann gat hent einspili sínu í laufi í tígulfrí- slag og gefið einn slag á hjartaht- inn. Segja má að útspihð hafi einn- ig verið vanhugsað því vestur hefði getað doblað tígulsögn suðurs ef hann vildi þann lit út. -ÍS Brjdgesamband íslands: Fær 2 milljónir í styrk á HM í Japan Ríkisstjómin ákvað á fundi í vik- unni að styrkja Bridgesamband ís- lands um 2 milljónir króna til þátt- töku á heimsmeistaramót í bridge sem fram fer í Japan í haust. íslenska landsliðið ávann sér rétt á Evrópu- móti í júní ásamt þremur öðrum þjóðum til þess að keppa á heims- meistaramótinu í Japan en ahs keppa 16 þjóðir á mótinu. Aætlaður kostnaður vegna mótsins er um fjórar milljónir króna og hefur með þessari upphæð tekist að brúa helming kostnaðarins. BSÍ hefur opnað reikning fyrir frjáls framlög í íslandsbanka í Garðabæ. Bridgespil- arar ættu að eiga auövelt með að muna eftir honum því að númerið er 5252. ÍS Rikisstjórn íslands hefur ákveðið að styrkja íslenska landsliðið i bridge um 2 milljónir króna á heimsmeistaramótið sem fram fer í Japan í haust. Þessi mynd var tekin við komu landsliðsins í Leifsstöð eftir fræki- lega frammistöðu á EM í írlandi. Á myndina vantar tvo liðsmenn lands- liðsins, Guðlaug R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson. DV-mynd Ægir Már Vel merkt einkastæði Nú býður Bifreiðaskoðun íslands upp á merkingar fyrir einkabílastæði úr sama efni og bíl- númerin. Einstaklingar og fyrirtæki geta pantað áletrun, bílnúmer eða stutt nafn á spjöldin. Verð númeraplatnanna er kr. 1500 og afgreiðslufrestur er 3 dagar. Hægt er að panta þær hjá öllum skoðunarstöðvum Bifreiðaskoðunar, í eftirtöldum símanúmerum: Reykjavík - 673700 Keflavík - 15303 Akranes - 12480 Borgarnes - 71335 ísafjörður - 3374 Blönduós - 24343 Sauðárkrókur - 36720 Akureyri - 23570 Húsavík - 41370 Fellabær - 11661 Eskifjörður - 61240 Hvolsvöllur - 78106 Selfoss-21315 BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.