Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1991, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991. Fréttir_____________________________________________________________________________________pv Sólarlandaferðir 1 sumar: Seldust upp þegar vaxta- bæturnar voru greiddar út „Við höfum ekki við, það er allt meira og minna yfirbókað og búið að vera þvílíkt og annað eins að gera að ég man ekki eftir öðrum-eins ág- ústmánuði," sagði Guðbjörg Sand- holt hjá Ferðaskrifstofunni Veröld sem hefur unniö í þessum bransa í fjórtán ár. Eftir að fólk fékk vaxtabæturnar greiddar út rétt fyrir verslunar- mannahelgina varð starfsfólk ferða- skrifstofanna vart við áberandi sölu- aukningu á sólarlandaferðum og einnig hefur mikið verið hringt og spurt um ferðir. „Það hefur oft verið erfitt að bóka ágústmánuð, þar sem það er dýrasti tíminn, en nú eru ekki til sæti til að selja þó við gjarnan vildum. Það er allt selt sem hægt er að selja og meira til og jafnvel kominn biðhsti," sagði Guðbjörg. Soffía Helgadóttir hjá Úrvali-Útsýn tekur undir þetta og segir að síminn hafi verið rauðglóandi fyrstu dagana á eftir. „Við hefðum getað selt í heila vél í viðbót, síminn hefur ekki stoppað. Við getum bara ekki bætt við ferðum með góðu móti því öll hótel úti eru yfirfull," sagði Soffía. Svana Davíðsdóttir hjá Samvinnu- ferðum/Landsýn sagðist álíta að fólk, sem búið væri að njóta góða veðurs- ins hér heima í sumar, hefði hugsað sér til hreyfings með haustinu um leið og það sá sér það fært. „Það er því örugglega eitthvað samhengi þarna á milli, því um svip- að leyti og fólk fékk vaxtabætumar jókst eftirspurnin til muna,“ sagði Svana. -ingo Drengina í myndinni „Allt gott“ leika þeir Gunnlaugur Ólafsson sem Daníel, til vinstri, og Ragnar Nikulásson, (Jóhannes). DV-mynd Kristján Selfossi: Kvikmyndað eftir hand- riti f orsætisráðherra Kristján Einarsson, DV, Selfossi: Hrafn Gunnlaugsson og hans fylgi- fiskar hafa síðustu viku verið hér á Selfossi að festa á filmu atriði 1 kvik- mynd Hrafns og Sagafilm, „Allt gott“, eftir handriti Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra. Sagan mun vera um tvo drengi, athafnir þeirra og framtíðardrauma. Sögusviðið er að hluta til Selfoss árið 1950. Kvikmyndatökufólkið hefur verið við tökur við Ölfusá og Tryggvaskála og fengið ýmsa hluti lánaða sem algengir voru á þessum tíma. Margt fólk á Selfossi bíður spennt eftir þessari mynd, minnugt þess að höfundurinn og góðvinur hans, Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra, áttu heima á Selfossi á sínum uppvaxtaráram. Ef til vill verður hægt að sjá eitthvaö í myndinni sem kemur heim og saman við veru þess- ara drengja í bænum upp úr 1950. Nattúruvemdarráð og Landsvirkjun deila um Fljótsdalslínu: Gífurlegur kostnaður við jarðstreng - segir Halldór Jónatansson, framkvæmdastjóri Landsvirkjunar „Það kemur okkur í opna skjöldu að Náttúruverndarráð skuli venda sínu kvæði í kross með þeim hætti sem nú er orðin raunin á. Ráðið var búið að gefa okkur sitt samþykki fyr- ir þessu línustæði í janúar 1990. Nátt- úruverndarþing ályktaði hins vegar í október 1990 og óskaði að Náttúra- vemdarráö endurskoðaði afstöðu sína. Nú túlkar Náttúruverndarráð þessa ályktim á þá leið að þingið hafi hnekkt samþykktum ráösins og það sé ekki lengur bundið þessu sam- þykki sínu gagnvart okkur,“ segir Halldór Jónatansson, framkvæmda- stjóri Landsvirkjunar. Landsvirkjun hefur lagt til aö fyrir- huguð rafmagnslína frá Fljótsdals- virkjun til Akureyrar veröi lögð um Ódáðahraun, milli Herðubreiöar og Öskju. Náttúravemdarráö sendi Lándsvirkjun bréf í gær þar sem mælst er til þess að hún fresti frek- ari athugun á þeirri staðsetningu lín- unnar. Ráðið leggur til að gerðar verði auknar rannsóknir á leiðinni meðfram núverandi byggðalínu norðan Mývatns og athugaðir verði möguleikar á jarðstreng um viðkæm svæði svo sem um Mývatnssveit. Að sögn Halldórs telur Landsvirkj- un jarðstreng ekki raunhæfan mögu- leika þar sem kostnaður yrði mikill. Samkvæmt útreikningum Lands- virkjunar kostar hver lagður kíló- metri í loftlínu um 15 milljónir króna á móti 65 milljónum í jarðstreng. Línuleiðin meðfram byggðalínunni er 40 kílómetrum lengri en leiðin um Ódáðahraun og yrði 20% dýrari eða sem samsvarar 600 milljónum króna og þá er ekki gert ráö fyrir jarð- streng. „Við munum kappkosta að ná sam- komulagi við Náttúruverndarráð um sameiginlega niöurstöðu sem allir geta vel viö unað,“ sagði Halldór. Skipulagsstjórn fer norður í dag ásamt fulítrúum Náttúruverndar- ráðs og ætlunin er að ferðast um all- ar línuleiðirnar. Það verður síöan Skipulagsstjórn ríksisins sem á end- anum tekur ákvörðun um hvaða leið verður fyrir valinu. -BÓl Rannsókn á orsökum gijótregnsins í Grafarvogi lokið: Sprengief nið ekki nógu vel blandað - fyrirstaða beindi aflbylgjunni upp í loft en ekki til hiiðar „Það sem gerðist í Grafarvoginum var að kjaminn í tveimur holum af sjö var að öllum líkindum illa lagað- ur þannig að hann náði ekki að brenna og springa. Við það varð svo þröngt um þær holur sem sprakk í á eftir að gasbylgjan, sem myndaðist, leitaði upp en ekki til hliðar eins og til var ætlast,“ sagði Jens Andrésson, tæknifulltrúi hjá Vinnueftirliti ríkis- ins, í samtali við DV. Rannsókn Vinnueftirlitsins á sprengingunni á lóð Húsaskóla í Srafarvogi .æ fimmtudagskvöld er Ipkið. Þá gerþist það að reiðinnar býsnum af gijóti rigndi yfir næsta umhverfi með þeim afleiðingum að gat kom á þak eins húss, auk þess sem smærri skemmdir urðu á böum og fleiri þökum. Mikið af börnum er jafnan að leik við svæöið þar sem sprengt var og þykir mildi að enginn skyldi slasast í grjótregninu. Jens sagði að þegar berg væri sprengt, eins og í Grafarvogi, væri um að ræða tiltekinn fjölda af holum sem í væri settur kjarni, blanda af ammorúaksnítrati og olíu sem löguð er á staðnum, dínamít og loks forhlað eða hvellhetta. Kjarninn er ekki hættulegur í sjálfu sér en virkni hans fer eftir hversu vel lagaður hann er. Verða þessi þrjú efni aö vera i réttum hlutföllum til að sprengingin lukkist sem skyldi. Holurnar eru síðan sprengdar með örstuttu millibili, 30 sekúndna, í ákveðinni röð þannig að ákveðin keðjuverkun verður. Fyrsta sprengingin ryður jarðvegi undan fyrir þeirri næstu á eftir og svo koll af kolli. Reyndar væru til alls kyns útfærslur á röðun holanna en með góðum yfirbreiðslum leitaði sprengi- aflið til hliðar þegar slíkar spreng- ingar lukkuðust. I Grafarvogi voru 7 holur. Engin sprenging varð í holu 2 og 5 þannig að ansi þröngt vgc lyn gas- eða afl- bylgjuna sem varð af sprengingunni í holu sex. í stað þess að leita til hið- ar, þqr sem fyrri sprengingar áttu að vera búnar að ryðja frá, leitaði aflbylgjan upp með tilheyrandi grjót- regni. Jens sagði orsakir þess að ekki kviknaði í holu 2 og 5 að öllum líkind- um vera lélega blandaðan kjarna þannig að dínamítið náði ekki að kveikja í honum. Verktakinn, sem stóð aö sprenging- unni var með sprengileyfi útgefið af bæjarfógetanum í Hafnarfirði 1989. Endumýja þarf leyfið á fimm ára fresti en viö tilfelli sem þessi mun fógeti ákvarða um framhald sprengi- leyfisins að fenginni umsögn for- stjóra Vinnueftirlitsins. -hlh Nýrnaþeginn ferútídag Kristján H. Hlynsson, niu ára fíölfatlaöur drengur með ónýt nýru, fer út í dag og fær væntanlega líffæra- flutning eftir helgina. Eins og DV hefur greint frá voru honum ekki gefnar lífslíkur nema fram. á vorið og var sagt að hann hefði enga von um líffæraflutning vegna fótlunar sinnar. Fyrir tilviljun sá yfir- læknir frá Boston skýrslur um hann og bauðst til að framkvæma aðgerðina og móðir drengsins lætur hon- um í té annað nýrað sitt. Eftir greinina í DV hafa fjölmargir lagt fé inn á bók sem stofnuð var handa hon- um og vilja þau koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra sem studdu viö bak- ið á þeim. -PÍ Kristján verður væntanlega komið með annaö nýraö úr móður sinni eftir helgina. DV-mynd JAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.