Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1991, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991. Fréttir Uppsveif la í útlondum - samt versna viðskiptakjör okkar Þróun verðbólgu ínokkrum löndum 1989-1992 Grafið sýnir verðbólguna samkvæmt síðustu spám. Þar sést, hvernjg verð- bólgan á islandi hefur minnkað mikið. Hún er áfram talin verða lítil sam- kvæmt spá Seðlabankans en verður þó meiri en í hinum löndunum. Saman- burðurinn er gerður við nokkur riki, meðal annars ríkin i Evrópubandalag- inu að meöaltali og i Efnahags- og framfarastofnuninni OECD að meðaltali. Nú sér fyrir endann á efnahagsleg- um íifturkipp síöustu missera í lönd- um í Efnhags- og framfarastofnun- inni OECD, nema helzt hér heima. í OECD eru flest hin ríkari af löndum heims. Búizt er viö, að heimsverzlun aukist um leið og hagvöxtur OECD- ríkjanna. En samt megum við íslend- ingar gera ráð fyrir versnandi við- skiptakjörum við útlönd. Skilyrði hafa skapazt til þess, að framleiðslan aukist að nýju í þessum ríkjum, sem sé: það verði hagvöxtur. Hagvöxtur var 3 prósent á ársgrund- velli á fyrri hluta ársins 1990 en að- eins 1,5 prósent á hinum síðari. Hag- vöxtur varð síðan nánast enginn á fyrsta fjórðungi yfirstandandi árs. Nú segja hagfræðingar, að hagvöxtur í ríkjunum geti orðið 2,5 prósent á síðari hluta ársins og tæplega 3 pró- sent á næsta ári. Bara 4 prósent verðbólga Við erum nú stödd neðarlega í öldudal hagsveiflu. Hagvöxtur á OECD-svæðinu hefur ekki verið minni frá 1982. Það stafar einkum af litlum fjárfestingum. Samdráttur varð í Bandaríkjunum, Bretlandi. Finnlandi, Svíþjóð og víðar, þar sem aðhaldi í peningamálum var beitt árin 1988 og 1989, þegar hætta var á oíþenslu. Snögg verðhækkun á olíu síðla sumars 1990 eftir innrás íraka í Kúvæt dró úr hagvexti. Útgjöld heimila og atvinnulífs minnkuðu svo enn frekar, þegar Persaflóastríðið hófst í janúar síðastliðnum. Eftir inn- rásina í Kúvæt í ágúst í fyrra hækk- aði verð á olíu úr 16 dollurum fatið í tæplega 40 dollara en fór síðan lækkandi. Verðið hrapaði niöur í 10 dollara, eftir að Persaflóastríðiö brauzt út. Búizt er við, að olíuverðið verði um 18 dollarar það sem eftir er af þessu ári og á því næsta. Við þessar aðstæður fer efnahagurinn að taka við sér viða um lönd. I urnsögn frá Seðlabankanum um þessi mál segir, aö verðbólgan í þess- um ríkjum gæti dvínað á þessu ári og því næsta vegna lækkandi verðs á olíu og veigalítilla verðhækkana á öðrum vörum, svo og lítilla launa- hækkana á síðari hluta þessa árs vegna atvinnuleysis. Á næsta ári er búizt við, að verðbólgan í OECÐ- löndunum í heild verði komin niður fyrir íjögur prósent. Bjartsýni Seðlabankans Verðbólgan hér á landi er á sama tíma, árin 1991 og 1992, talin verða 7 prósent og 6 prósent. Þar er miðað við síðustu spá Seðlabankans, sem telja verður sýna talsverða bjartsýni. Ekki er ólíklegt, að komandi kjara- samningar setji verðbólguna af stað. Hraði verðbólgu er nú 12 prósent miðað viö heilt ár. Til þess að hrað- inn verði aðeins 7 prósent í ár, þarf verðlag að haldast nærri óbreytt með haustinu. En meðfylgjandi graf sýn- ir, hvernig verðbólgan verður meiri hér á landi en í hinum ríkjunum, þó að bjartsýn spá Seðlabankans stæð- ist. Þessi munur kynni að valda gengisbreytingum á krónunni. Þrátt fyrir það aö uppsveifla taki nú við af samdrætti í þessum ríkjum, er útlitið ekki gott fyrir okkur á næstunni. í spá Þjóðhagsstofnunar er talið líklegt, að viðskiptakjör þjóð- arbúsins gagnvart útlöndum vefsni vegna lækkunar fiskverös. Þó er tal- ið, að viðskiptakjörin batni um 3,5 prósent á þessu ári, en óvarlegt sé að reikna með, að framhald verði á þessari hagstæðu þróun. Ýmislegt Sjónarhom Haukur Helgason bendi til þess, að fiskverð erlendis hafi náð hámarki í bili. Horfur séu því á, að saman fari eins og oft áður lækkun verðs og minnkun afla. Því gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir, að viðskiptakjör okkar við útlönd versni um 3,5 prósent milli áranna 1991 og 1992. Þá ér enn reiknað með, að hallinn á viðskiptum okkar við útlönd verði 17,5 milljarðar króna á næsta ári og 13 milljarðar í ár. Þetta samsvarar því, að viðskiptahallinn fari úr 3,6 prósentum af framleiðslu í landinu í 4,6 prósent. -HH Talsvert hefur borið á því í sumar að fólk noti frekar reiðhjól en bil til að komast leiðar sinnar og er skýringuna kannski að finna í veðrinu. Þessi reiðhjólaeigandi hjólar þó að öllum líkindum ekki mikið á næstunni, a.m.k. ekki fyrr en búið er að lappa upp á reiðskjótann. DV-mynd JAK Mikil aösókn í Kattholt: 70 kettir gistu um verslunarmannahelgina „Það er mikið af óskilaköttum hjá okkur og núna eru þeir 12. Bæði hef- urfólk komið meö kisur og svo hefur lögreglan komið með þær. Ég veit hins vegar að lögreglan hefur tekið kisurnar af götunni sem er náttúr- lega ekki góð stefna vegna þess að það á ekki að taka ketti ef þeir eru ekki hraktir og illa til reika,“ segir Sigríður Heiðberg, formaður Katta- vinafélags íslands. Kattholt var opnað 27. júlí síðastlið- inn og hefur verið mjög mikið notað síðan, bæði til aö geyma óskilaketti og einnig til að geyma ketti meðan fólk er í sumarfríi. Sigríður segir að um 70 kettir hafi verið i Kattholti um verslunarmannahelgina en núna séu í geymslu um 30 kettir. „Það var alveg óskapfcga mikil þörf á stað sem þessum og hann hefði i rauninni þurft að koma fyrir mörg- um árum. Dýraspitalinn er hættur að taka við óskilaköttum og er bara spítali núna þannig að við tökum viö öllum slíkum köttum. Og ég vil endi- lega hvetja fólk, sem tapar kisunum sínum, að hringja hingað og athuga hvort þær eru á skrá. Einnig getur fólk hringt eða komið og fengið kisur. Til dæmis komu hingað 5 kettlingar sem fundust á víöavangi og þeir hafa allir fengið góö heimili," segir Sigríð- ur. -ns í dag mælir Dagfari__________________________ Enn skrif ar Jón undir Jón Sigurðsson iönaöarráðherra hélt enn einn blaðamannafund sinn um álverið í fyrradag. Þar til- kynnti hann þjóðinni að hann væri búinn að skrifa undir samninga um nýtt álver. Ekki vildi Jón segja nánar af því hvað hann hefði skrif- að undir eða hvers eðlis samning- amir væru, heldur varð honum meira tíðrætt um það hvað þessir samningar væru góðir. Hann gat liins vegar ekki um það fyrir hvem þeir væru góðir en eftir því var tekið að fulltrúar Atlantsálfyrir- tækjanna mótmæltu ekki þessari staðhæfingu ráðherrans. Enginn getur auðvitað vefengt ráðherrann meðan hann segir ekki frá því hvað í samningunum segir og enginn getur raunar tjáð sig um þessa samninga nema samninga- mennirnir sem sátu við hliö Jóns ráðherra þegar undirskriftirnar fóru fram. Enda tók Jóhannes Nor- dal það fram að erfitt væri að segja um árangur af þessum samningum fyrr en búið væri að reikna út verð- ið sem útlendingamir eiga að borga fyrir orkuna. Það verð er ennþá algjört leyndarmál, nema hvað Jó- hannes glopraöi því út úr sér að orkuverðið miðaðist við heims- markaðsverð «g heimsmarkaðs- verð væri lágt um þessar mundir og þess vegna væri ekkert að marka það orkuverð sem samið hefur verið um. Jóhannes segir líka að þetta álver sé tilraunastarfsemi, ef ekki auka- atriði, því aðalatriðið sé að brjóta ísinn fyrir aöra til að semja viö. Þaö bendir sem sagt flest til þess að íslendingar ætli að gefa Atlant- sál eitt stykki álver og selja þeim orku fyrir svo lágt verð að ekki taki að nefna þaö, til þess eins aö plata fleiri aðila til að kaupa orku af íslendingum! Það má svo sem reikna með því að fleiri íjármála- spekúlantar í útlöndum séu til- kippilegir ef íslendinagar hafa tek- iö upp þá stefnu að selja orkuna á spottprísum. En það verður ekki mikill gróði eftir í-landinu og Jón iðnaöarráöherra má halda marga blaðamannafundi ef hann ætlar að sannfæra þjóðina um að reyfara- kaup útlenskra fyrirtækja séu ás- ættanleg fyrir þjóðarbúið. Þaö kom fram á þessum blaða- mannafundi að útlendingarnir bera mikið traust til íslendinga. Þetta voru slæmar fréttir vegna þess að menn tala ekki svona vin- samlega um viðsemjendur sína nema þeir telji sig örugga um að hafa platað þá. Dagfari leyfir sér aö varpa fram þeirri spurningu hvort skynsam- legt sé að taka mark á þessum blaöamannafundi. Síðast þegar Jón Sigurðsson hélt blaöamannafund út af álmálinu voru mennirnir aö skrifa undir eitthvert tímamótap- lagg og ekki var annað að heyra en allt væri klappað og klárt. En þá kom Davíö Oddsson sem fulltrúi stjórnarandstöðunnar og lýsti frati á allar undirskriftir og fór í samn- inganefndina sjálfur og sagði aftur og aftur að álsamningar væru langt undan og ekkert að marka þaö sem Jón iðnaðarráöherra sagði. Davíð var að vísu ekki mættur á blaða- mannfundinum hjá Jóni en Dagfari vill fyrst fá að heyra frá Davíð áður en hann tekur mark á undirskrift- um þeirra sömu manna og skrifuðu undir í fyrra og hittifyrra og voru alltaf að segja okkur að álverið væri í höfn. Svo er annað. Atlantsálfurstarnir segjast eiga eftir að slá lán fyrir álverinu. Þeir eiga sem sagt alls ekki fyrir því og hver segir að ein- hver vilji lána þeim? Það boðar að minnsta kosti ekki gott aö þeir ætla sér hálft ár í að sníkja lánin og ekki er það nú mikið lánstraustiö sem þeir hafa! Dagfari þarf ekki annað en hringja í bankastjórann sinn og þá er lánið komið en þessir menn þurfa aö bíða í hálft ár á bið- stofu bankastjóranna áður en þeir vita hvort þeir fá lán. Það er auðvitað gaman að halda blaöamannafundi og kynna samn- inga sem ekki má segja frá. Það er sjálfsagt ákaflega gaman að hitta þessa náunga frá Atlantsál og ekki er að efa að það er auðvelt aö ná samningum um orkuverð ef orku- verðið er svo lágt aö það er ekki mark á þvi takandi. En gamanið fer hins vegar að kárna ef aldrei verð- ur byggt neitt álver og aldrei verð- ur staðið við samningana sem blessaöir mennirnir eru alltaf að undirskrifa. Þá verður álverið aldrei til nema á blaðamannafundum hjá Jóni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.