Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1991, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1991.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON
Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: y
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð í lausasölu virká daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr.
Álver í augsýn
Samkomulag hefur tekist milli íslenskra stjórnvalda
og forsvarsmanna Atlantsál um öll meginatriði við bygg-
ingu nýs álvers á Keilisnesi. Næsta skref álversmanna
er að afla lánsíjár til framkvæmdanna og leggja endan-
lega samninga fyrir stjórnir fyrirtækjanna til samþykkt-
ar. Það mun væntanlega verða gert í byrjun næsta árs
og stefnt er að því að framkvæmdir við sjálft álverið
heljist næsta vor.
Á blaðamannafundi, sem haldinn var í fyrradag, vildi
iðnaðarráðherra ekki upplýsa um einstaka þætti samn-
inganna en hann taldi þá vel ásættanlega og orkuverðið
samkeppnisfært.
Af þessu má sjá að viðræðunum um álverið hefur
miðað áfram, þótt hægt hafi farið að undanförnu, og
niðurstöður eru loks í augsýn. Þó er rétt að hafa allan
fyrirvara á einstökum atriðum samninganna og þá sér-
staklega orkuverðinu. Jóhannes Nordal, formaður ís-
lensku samninganefndarinnar, hefur nefnt tíu mill í
byrjun en orkuverðið á að miðast við heimsmarkaðs-
verð á áli. Álverð er lágt um þessar mundir og þess
vegna ekki rétt að draga afdráttarlausa ályktun af þeirri
tölu sem Jóhannes kastar fram. Samt sem áður vekur
það nokkra furðu og efasemdir hversu lágt íslensku
samningamennirnir hafa teygt sig, með hliðsjón af þeim
fullyrðingum að orkuverð þurfi að lágmarki að vera
átján mill til að standa undir þeim íjárfestingum sem
íslendingar leggja í orkuver og tengdar framkvæmdir.
Það er auðvitað rétt sem bæði Jón Sigurðsson iðnað-
arráðherra og Jóhannes Nordal hafa bent á að tekjur
íslendinga eru meiri og víðtækari en orkuverðið eitt
sér. Hér er um að ræða framkvæmd fyrir sjötíu millj-
arða íslenskra króna og áhrif byggingarframkvæmda
og rekstur álvers í framtíðinni munu verða margvísleg
í atvinnu, þjónustu, sköttum, tæknibúnaði og hliðar-
greinum. Það skal ekki vanmetið.
En hættan er sú að kapp íslendinga hafi lagt spihn í
hendur viðsemjendanna og skapað þeim bétri stöðu til
að ná hagstæðum samningum fyrir sig. Það er til að
mynda mikil áhætta í því fólgin að tengja orkuverðið
við heimsmarkaðsverð og afleiðingin getur hugsanlega
orðið sú að orkuverin standi ekki undir sér og rafmagn-
ið verði selt á lægra verði en sem nemur kostnaðinum
við að framleiða það. Þá er betur heima setið.
Hér skulu þó engar hrakspár hafðar uppi og það er
heldur engin ástæða til að vantreysta íslensku samn-
ingamönnunum. Þeir hafa mikla reynslu og þekkingu
og vita vonandi hvað þeir eru að gera. Ef gengið er út
frá þeirri forsendu að báðir aðilar skrifi undir samn-
inga, sem báðir telja hagstæða fyrir sig og sína hags-
muni, er nýtt álver að sjálfsögðu fagnaðarefni og ryður
brautina fyrir áframhaldandi sölu á orku til stóriðju.
Það langa hlé, sem orðið hefur á frekara samstarfi
við erlenda aðila í orkusölu og stóriðjumálum, er senn
á enda. Forstjóri Atlantsál tók fram á blaðamannafund-
inum að samningarnir byggðust ekki síst á trausti gagn-
vart íslenskum viðsemjendum þeirra og sú einkunn
gefur vonir um að fleiri sambærilegir aðilar sjái sér hag
í slíkum viðskiptum. íslendingar hafa áunnið sér traust
eftir að hafa glutrað því niður með stjórnmálalegu
ábyrgðarleysi í heilan áratug. Því trausti má ekki glata
aftur. Álverið er í sjónmáli og opnar nýja möguleika.
Við erum aftur orðnir samkeppnisfærir. Það er ekki
síðri árangur en álverið sjálft. ' „ , „ „ ,
J Ellert B. Schram
„Á siðustu árum hötum við hvað eftir annað mátt kenna á óblíðum náttúruöflum.“
Viðbúnaður gegn
náttúruhamförum
Á næsta ári verður Verkfræð-
ingafélag íslands 80 ára. í því tilefni
hefur félagið margt á prjónunum.
Þar á meðal er sérstök ástæða til
að vekja athygli á ráðstefnu sem
félagið mun halda 28. og 29. maí
árið 1992. Ráðstefnan verður al-
þjóðleg og heiti hennar er „Viöbún-
aður gegn vá af völdum náttúru- (
Jiamfara".
4Sameinuðu þjóðirnar hafa valið s
þennan áratug „Alþjóðlegan ára-;
tug til að draga úr afleiðingum
náttúruhamfara". Náttúruhamfar-
ir valda gífurlegu tjóni um allan
heim á hverju ári. Er skemmst að
minnast eldgossins á Filippseyjum
og flóðanna í Kína og Bangladesh
o.s.frv. o.s.frv.
Alþjóðasamtök verkfræðinga
hafa leitað til Evrópusamtaka
verkfræðinga um skipulagðar að-
gerðir innan Evrópu vegna þessa
viðfangsefnis.
Verkfræðingafélag íslands taldi
því vel við hæfi að efna á afmælis-
árinu til alþjóðlegrar ráðstefnu um
þetta málefni.
Það er nauðsynlegt að verkfræð-
ingar hafi forgöngu um að draga
saman upplýsingar og þekkingu og
fjalli síðan á fundum og ráðstefnum
um hversu við skuli bregðast.
íslendingar hafa frá byggð lands-
ins orðið fyrir þungum búsiíjum
af völdum náttúruhamfara. Á síð-
ustu árum höfum við hvað eftir
annað mátt kenna á óblíðum nátt-
úruöflum.
Fjölmargir aðilar styðja ráð-
stefnu VFI með ráðum og dáö.
Viðfangsefnið hérlendis
Seint og um síðir stofnuðu íslend-
ingar viölagatryggingar til að
bregðast við gríöarlegum tjónum
af völdum náttúruhamfara. Marg-
ar greinar slíkra tjóna eru þó
tryggöar af almennum tryggingafé-
lögum. Viðlagatryggingar greiða
verulegan hluta tekna sinna vegna
endurtrygginga erlendis og mun
hafa verið farið fram á verulega
hækkun endurtryggingaiðgjalda
nýverið.
Ástæðan mun vera sú að ísland
er í hópi fárra ríkja sem ekki hafa
látið gera sérstakt áhættumat.
Reyndar væri ástæða til að ræða
málefni viðlagatryggingar sérstak-
lega og virðist mér mikil þörf end-
urskoðunar laganna um viðlaga-
tryggingu.
í stuttu máli gætum við flokkað
náttúruhamfarir, sem hérlendis
geta valdið verulegu tjóni, á eftir-
farandi hátt:
1. Eldgos.
Kjallaxinn
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræðingur
2. Jarðskjálftar.
3. Snjóflóð.
4. Skriðuföll.
5. Flóðbylgja af hafi.
6. Jökulhlaup.
7. Fárviðri
8. ísing (háspennulínur og skip).
9. Flóðbylgja af völdum jarð-
skjálfta á hafsbotni (Tsunami).
Viðbúnaður
VFÍ hefur stofnaö ráðstefnunefnd
sem hefur þegar haldiö marga
fundi og er undirbúningur ráð-
stefnunnar langt kominn. Nefnd-
ina skipa Valdimar Kr. Jónsson
prófessor, sem er formaður, Páll
Ólafsson, yfirverkfræðingur hjá
Landsvirkjun, og Ragnar S. Hall-
dórsson, stjómarformaöur ÍSAL.
Nefndin hefur m.a. náiö samstarf
við Almannavarnir ríkisins og Há-
skólann en ýmsar stofnanir, til að
mynda tryggingafélög, búa yfir
mikilli þekkingu á þessu viðfangs-
efni.
Gert er ráð fyrir að m.a. verði á
ráðstefnunni fjallaö um hversu búa
skuli mannvirki úr garði þannig
að þau séu fær um að mæta nátt-
úruhamförum og hættumat.
Fyrra viðfangsefnið er fyrst og
fremst verkfræðilegt en það síðara
á sviði tryggingamála og fjármála.
Staðlar og álagsstuðlar, áhættu-
stuðlar við hönnun mannvirkja á
náttúruhamfarasvæðum þurfa
stöðugt að endurskoðast í ljósi
fenginnar reynslu.
Önnur atriði, sem nefndin glímir
við, eru m.a.:
a) Hvernig er unnt að draga úr
hættu?
b) Hvenær á að flytja íbúa burtu
af áhættusvæði?.
c) Á að endurbyggja svæði, sem
hefur orðið fyrir náttúruham-
förum?
Allt viðfangsefni, sem Almanna-
varnir verða að velta fyrir sér.
Jafnframt eru áleitnar spurningar
eins og:
a) Hversu mikið og útbreitt getur
tjón orðið?
b) Hvernig á að bæta tjón og hvaða
tjón á að bæta?
Þegar hefur verið sendur út
bæklingur til kynningar þessari
ráðstefnu og viðbrögð erlendis"frá
eru þegar góð. íslendingar eiga
margt óleyst er kemur að viðbún-
aöi gegn vá af völdum náttúru-
hamfara. Hér er ekki verið að gera
lítið úr þeim ágætu aöilum, sem
um þessi mál fjalla og fást við þau.
Heldur hitt, að málið er umfangsm-
ikið og fjárfrekt.
Vonandi verður þetta starf Verk-
fræðingafélags íslands til að efla
og styrkja tökin á viðfangsefninu.
Verkfræðingafélaginu ber að
þakka fyrir að taka á málefninu
náttúruhamfarir á svo vandaðan
hátt. Stór hluti viöfangsefnisins
snýr reyndar að þeim og þeirra
menntun. Því ætti félagsskapur
verkfræðinga einmitt að vera vel
til þess fallinn að bera uppi umræð-
una.
Margir binda vonir við að einmitt
þessi ráðstefna verði til þess að
færa umræðuna inn á þau svið sem
helst þurfa úrlausnar við.
Jafnframt er hér um að ræða
hluta að þætti íslands í starfi Sam-
einuðu þjóðanna að þessu málefni
þennan áratug.
Guðmundur G. Þórarinsson
„Viðlagatryggingar greiða verulegan
hluta tekna sinna vegna endurtrygg-
inga erlendis og mun hafa verið farið
fram á verulega hækkun endurtrygg-
ingaiðgjalda nýverið.“