Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Blaðsíða 10
10
LAyjPA^^UR 31,^QÚ§jT
Myndbönd
Morð í bleytu
THE RAIN KILLER
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Ken Stein.
Aöalhlutverk: Ray Sharkey, David Bee-
croft, Michael Chiklis og Tania Co-
lerldge.
Bandarisk, 1990-sýningartimi 87 min.
Bönnuö börnum Innan 16 ára.
Ray Sharkey leikur í The Rain Kill-
er lögreglumann sem fær það verk-
efni að hafa uppi á morðingja sem
ávallt myrðir konur þegar helh-
rigning er. Þegar ekkert gengur hjá
honum fær hann til liðs við sig
unga lögreglu frá FBI sem hefur
aðrar hugmyndir uin hvemig á að
leysa hlutina. Þeir standa þó uppi
ráðalausir enda skolast öll vegsum-
merki burt.
The Rain Killer er ósköp hroð-
virknislega gerð kvikmynd sem
byrjar vel en þegar fer að þrengjast
um morðingjann verður söguþráð-
urinn ótrúlegri með hverri mínútu
og greinilegt er að það hefur veriö
erfitt fyir handritshöfundinn að ná
endum saman. Ray Sharkey sýnir
qÖ góða takta þótt hann hafi oft
verið betri.
D V-myndbandalistinn
The Rookie fer beint á topp vinsældalistans þessa vikuna. Annaö
aðalhlutverkíð leikur Clint Eastwood og er hann leikstjórl einnig.
1 <-) The Rookie
2 (1) Aimost an Angel
3 (3) Memphis Belie
4 (2) Navy Seais
5 (8) Reversai ot Fortune
6 (4) Funny about Love
7 (-) Never Ending Story II
8 (7) Narrow Margin
9 (-) Fire Bird
10 (-) Child Play 2
11 (6) Havana
12 (-) Magnús
13 (-) Bird on a Wire
14 (5) Death Warrant
15 (-) The Big Man
★★V2
Sérsveit í
★★
★ V2
Christian Slater og Samantha Mathis leika aðalhlutverkin í Pum Up the
Volume.
snúð sem hefur ótrúleg áhrif á jafn-
aldra sína.
Skólayfirvöld, sem ýmislegt hafa
gert sem ekki má líta dagsins ljós,
segja Hard Harry stríð á hendur
en hann er snjall og lumar á góðum
ráðum og sleppur lengi þótt leitar-
flokkur sé settur honum til höf-
uðs...
Pump Up The Volume er sterk
kvikmynd og gerð með annarskon-
ar hugarfari en flestar unglinga-
myndir, enginn sykursætur sögu-
þráður heldur blákaldur veruleik-
inn í hnotskurn, að vísu ýktur en
um leið áhrifamikill. Christian
Slater fer vel með tvískipt hlut-
verkið, er annars vegar feiminn og
þvingaður og hins vegar uppreisn-
argjarn og miskunnarlaus. -HK
★★
stórræðum
THE DEATH MERCHANT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjórar: Peter Werner og David
Jackson.
Aöaihlutverk: Jenny Gago, Tom Mason
og Chris Stanley.
Bandarísk 1990 - sýningartimi 119 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
The Death Merchant er að mörgu
leyti góð sakamálamynd, spenn-
andi en um leið nokkuð hrottafeng-
in. Við fylgjumst með sérsveit lög-
reglunnar veiða lögreglumorðingja
í gildru. Til þess að það sé hægt
þarf einnig að koma höndum yfir
geysimikið af eiturlyfjum sem
smyglað er frá Kólumbíu til Banda-
ríkjanna. Lögreglukonu er komið
fyrir innandyra hjá eiturlyfja-
smyglurunum og á hún að sjá til
þess aö lögreglumorðinginn verði
með í flugvélinni sem flytur eiturf-
arminn.
The Death Merchant er ekki að-
eins um leit lögrelu að morðingja
heldur einnig kvikmynd um bar-
áttu lögreglu og tollvarða gegn hin-
um yfirgripsmiklu flutningmn á
eiturlyfjum frá Kólunbíu til Banda-
ríkjanna. Myndin er hröð og vel
gerð og í heild ágæt afþreying.
TheNEVER
ENDING I
Storyii
THE NEXT CHAPTER
W':..
Sagan heldur
áfram
THE NEVER ENDING STORY II
Útgefandi: Steinar ht.
Leikstjóri: George Miller.
Aðalhlutverk: Jonathan Brands, Kenny
Morrison og Clarissa Burt.
Bandarísk/þýsk 1990 - sýningartími 86
min.
Leyfö öllum aldusrshópum.
Það má hafa nokkra ánægju af
næsta hluta í Sögunni endalausu
en þegar grannt er skoðaö er þetta
nánast endurtekning á fyrri mynd-
inni og eiginlega óþörf viðbót. Enn
er það drengurinn Bastian sem
„les“ sig inn í ævintýralandið þar
sem galdranornin Xayido er að
reyna að ná völdum með því að
eyðileggja ímyndurnarafl fólksins
og ef henni tekst það verða engin
ævintýri til. Bastian hittir gamla
kunningja, meðai annars hesta-
sveininn Atreya sem hjálpar hon-
um í baráttunni við galdranornina.
Tækniatriðin eru sem fyrr ágæt-
lega gerð þótt þau hafi sést betri
og leikarar virðast njóta sín í hlut-
verkum en þegar upp er staðið skil-
ur myndin ósköp lítið eftir. Þó má
ekki gleyma að það eru bömin sem
sjálfsagt hafa mest gaman af Sög-
unni endalausu.
PUMP UP THE VOLUME
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Allan Moyle.
Aðalhlutverk: Christopher Slater, Scott
Paulin, Ellen Greene og Samantha Mat-
his.
Bandarísk, 1990-sýningartimi 101 min.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Lífið í litlum bæ í Arizona tekur
miklum breytingum á kvöldin þeg-
ar plötusnúðurinn Hard Harry hef-
ur upp raust sína og hvetur ungl-
ingana til að standa á eigin fótum,
gefa skít í spilltan skóla sem þeir
sækja og láta ekki foreldra sína
ráðskast með sig. Þá fær velferðar-
þjóðfélagið í Bandaríkjunum einn-
ig sinn skammt af mælsku hans.
Tónlistin, sem Harry leikur, er eng-
in venjuleg tónlist, heldur lætur
hann neðanjarðarhljómsveitir á
borð við The Pixies, Sonic Youth,
Ice T og svo Leonard Cohen þylja
áreitinn boðskap sem ungviðið
kann vel að meta.
í fyrstu eru það aðeins ungling-
arnir sem hlusta og hrífast og fljótt
vaknar spumingin hjá þeim: Hver
er Hard Harry. Hann hlýtur að
vera skólafélagi þeirra. Hann veit
um allt sem í skólanum gerist.
Það vill svo til að Hard Harry er
ósköp venjulegur skóladrengur
sem er að vísu þvingaður af fööur
og móður og þorir varla að tjá sig
við aðra nemendur. Fyrir framan
mígrafóninn í eigin ólöglegri út-
varpsstöð breytist hann aftur á
móti í uppreisnargjaman plötu-
Hörkutólið og nýliöinn
THE ROOKIE
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Aöalhlutverk: Clint Eastwood, Charlie
Sheen, Raul Julia og Sonia Braga.
Bandarisk, 1990,-sýningartimi 116 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Chnt Eastwood hefur á löngum
ferh sannað að hann er góður leik-
stjóri þegar hann vinnur að kvik-
mynd sem hann hefur áhuga á.
Nýjustu dæmin um góða hæfileika
bak við myndavéhna em djass-
myndin Bird sem fiahaði um líf
saxófónleikarans Charlie Parker
sem kallaður var Bird og White
Hunter, Black Heart þar sem hann
brá sér í gervi leikstjóra sem
minnti meira en htið á John Hus-
ton. Báðar þessar kvikmyndir em
eftirminnilegar meðal annars
vegna góðrar leikstjómar Chnt
Eastwood.
En th að fá að gera það sem hann
vih hefur Eastwood þurft að lofa
einni og einni hasarmynd að fljóta
með og þá bregður hann sér yfir-
leitt í gervi Dirty Harrys þótt per-
sónumar heiti eitthvað annað eins
og til að mynda í Rookie þar sem
hann er í gamalkunnu hlutverki
lögreglumanns, hlutverki sem
hann kann utanbókar.
Eastwood leikur David Acker-
man sem nýbúinn er aö missa fé-
laga sinn. Ackerman er ekki alltof
hrifinn af að fá annan félaga, sér-
staklega ekki nýhða sem klæðir sig
í skyrtu og bindi. Þeim kemur hla
saman framan af í myndinni en
sameiginlegt áhugamál, sem felst í
því að ná glæpakóngnum Strom,
tengir þá og áður en yfir lýkur em
þeir famir að kunna vel hvor við
annan.
Chnt Eastwood bæði leikur og
leikstýrir með hangandi hendi
enda er söguþráðurinn staðlaöur í
meira lagi. Charhe Sheen í hlut-
verki nýliðans er lítið skárri.
Nokkur atriði em vel gerð og
spennandi en í hehd er hér aðeins
um miðlungs endurtekningu að
ræða.
-HK
Reiður ungur maðnr