Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Blaðsíða 20
20
Kvikmyndir
Alan Parker ásamt þeim sem leika í The Commitments. Enginn þeirra hafði leikið í kvikmynd áður.
Skuldbinding Alans Parker:
Kraftmikil mynd um
rokk og unglinga
- enginn leikari í aðalhlutverki hefur komið nálægt kvikmyndaleik áður
Eftir aö hafa gert kvikmyndir um
skeið í Hollywood, nú síðast Miss-
issippi Buming og Come to the
Paradise, sneri Alan Parker aftur á
heimslóðir á Bretlandseyjum og er
The Commitments, nýjasta kvik-
mynd hans, alls ólík síðustu mynd-
um sem hann gerði vestanhafs.
Fjallar myndin um tólf írska
unghnga sem stofna hljómsveitina
The Commitments sem hefur það
markmið að kynna soultónhst á
írlandi og hljómsveitin slær í gegn
hjá ungum Dubhnbuum. Aðalper-
sóna myndarinnar er Jimmy sem
er stofnandi hljómsveitarinnar og
sá sem kemur henni á framfæri.
Hann tekur tónhstina mjög alvar-
lega og er sífeht að gera öðrum
hljómsveitarmönnum grein fyrir
alvörunni á bak við hljómsveitina,
aö þeir séu ekki eingöngu ungt fólk
sem vonast eftir frægð heldur hoð-
herar tónhstarstefnu sem aðrir
hafa látið líf sitt fyrir.
Eins og gefur að skilja er mikið
um tónhst í myndinni, tónhst sem
heyrst hefur áður með soulkóngum
á borð við Wiison Pickett og Otis
Redding. Bakgrunnurinn er aftur á
móti óvenjulegur, stræti og barir í
miður góðum bæjarhlutum í Dubl-
in. Handritið er uppfullt af slangur-
máli götunnar þar sem allflestir
hljómsveitarmennimir eiga upp-
runa sinn.
AUir leikarar í myndinni eru
ungir og óþekktir tónUstarmenn
sem ekki hafa áður leikið í kvik-
myndum en hafa verið að byltast í
tónlistinni. Sá sem leikur Jimmy
er Robert Arkins, 21 árs. Hann
byijaði að vinna fyrir sér sem tón-
Ustarmaður aðeins flmmtán ára og
stjómar sinni eigin hljómsveit,
Housebroken á írlandi, sem þessa
dagana er aö taka upp plötu.
Tónlistin réð
leikaravalinu
Parker gerði The Commitments
upp úr skáldsögu eftir Roddy Doyle
sem er írskur rithöfundur sem
einnig kennir ensku og landafræði
í gagnfræðaskóla. Doyle, sem um-
gengst unglinga daglega, notfærði
sér þekkingu sína á unglingum og
hvað það er sem þá langar mest að
gera og tónUstin er ofarlega á blaði
þegar um tjáskipti er að ræða á
mUli þeirra. Parker fékk á endan-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
um Doyle til að gera handritið
ásamt Dick Clement og Ian la
Frenais.
Alan Parker er þekktastur fyrir
dramatískar kvikmyndir á borð við
Shoot the Moon, Birdy, Angel
Heart og Mississippi Buming, en
hann hefur einnig mikla reynslu í
gerð tónlistarmynda. Þrjár kvik-
myndir hans sem að mestu byggj-
Andrew Strong
heitir pilturinn
sem leikur
söngvara hljóm-
sveitarinnar og
áðuren myndin
var frumsýnd var
eitt af stóru
plötuútgáfufyrir-
tækjunum búið
að ná honum á
samning.
Robert Arkins
leikur Jimmy,
þann sem stofnar
hljómsveitina.
ast á tónUst em Bugsy Malone,
Fame og The Wall. Ólíkar tónUstar-
myndir og líkast til er The WaU sú
eina sem á samleið með The
Commitments.
„The Commitments er mjög óhk
Fame,“ segir Alan Parker aðspurð-
ur. „í Fame var það ameríski
draumurinn sem sigraði raunveru-
leikann en The Commitments er
mun raunsærri. Það er nefnUega
mikill munur á uppeldi krakka í
Bandaríkjunum og á írlandi.
Draumurinn um frægð og frama
er fjarlægari hjá þeim en banda-
rískum jafnöldrum."
Eins og fyrr segir hefur Parker
vaUö aUs óreynda leikara í öU hlut-
verkin í myndinni. „Ég vildi ekki
svíkjast undan tónUstinni með því
að velja vana leikara í hlutverkin
heldur leitaði ég uppi tónUstar-
menn sem voru á kafi í tónUst og
valdi síðan þá sem mest líktust
persónunum í bókinni þannig að
þau þurftu ekki að hafa mikið fyrir
því að leika heldur aðeins vera þau
sjálf. En það kostaði samt mikla
vinnu að fá þau til að segja setning-
arnar á þann hátt sem ég vfldi.“
Dæmið hefur gengið upp hjá Alan
Parker í þetta skiptið, The Commit-
ments hefur verið hrósað mikið af
gagnrýnendum. Mun myndin
verða sýnd í Háskólabíói í næsta
mánuði.
-HK
LA'UGARDAGUr' 31. ÁGÚST 1991.
Nicholson
leikurHoffa
Jimmy Hoífa var á sjötta og sjöunda
áratugnum ehtn valdamesti verka-
lýðsleiðtoginn í Bandaríkjunum og sá
ósvifnasti. Hann stjómaði; félagi sinu
eins og mafluforingi og lét fjarlægja
alla sem fyrir honura voru. Meðan
Robert Kennedy var dómsraálaráð-
herra sagði hann Hoffa stríð á hendur
og tókst að koma honum frá völdum.
Hoffa var síðan myrtur og haiá líkams-
leifar hans aldrei fundist. Leikarinn
og leikstjórinn Danny DeVito er nú að
undirbúa kvikmynd um ævi Jimmy
Hoffa og hefur fengið Jack Nicholson
til að leika Hoffa. Hann mun einnig
sjálfur leika stórt hlutverk í mynd-
inni. Handritið hefur David Mamet
skrifað og heitir myndin einfaldlega
Hoffa.
John McNaughton
leikstýrir
RobertDeNiro
Fáar kvikmyndir hafa vakið jafn-
mikið umtal að undanfömu og Henry:
Portrait of a Serial Kiiler sem leikstýrt
er af John McNaughton og hefur sitt
sýnst hverjum um gæði myndarinnar.
Nú er verið að frumsýna aðra kvik-
mynd McNaughtons, Sex, Drugs, Rock
& Roll sem gerð er eftir skemmtidag-
skrá Eric Bogosian og hefur sú mynd
ekki síður vakið umtal. McNaughton
heldur samt ótrauður áfram og nú er
Hollywood búin að fá hann til sín og
mun hann leikstýra Mad Dog and
Glory sem fjallar um löggu i Chicago
sem bjargar lífi veðmangara. Sá þakk-
ar fyrir sig meö því að gefa iögreglu-
manninum fallega stúlku. Aðalhlut-
verkin leika Robert De Niro, Bill
Murray og Una Thurman. Handritið
er eftir rithöfundinn Richard Price og
framleiðandi er Martin Scorsese.
Atlantis Bessons
eröðruvísi
kvikmynd
í síðustu viku var frumsýnd i Frakk-
landi nýjasta kvikmynd Luc Bessons,
Atlantis. Atlantís varðtil í hugarheimi
Bessons þegar hann var að gera The
Big Blue. Þá fannst honum synd
hvernig hann og kvikmyndatökiunað-
ur hans þurftu ávallt að vísa íbúum
hafsins á braut þegar verið var að
mynda neðansjávar. Það varð því úr
að liann ákvað að gera kvikmynd sem
eingöngu væri tekin neðansjávar og í
hlutverkum væri enginn mennskur
maður. Það hefur tekið Besson og að-
stoðarmenn hans tvö ár að fullgera
Atlantis en kvikmyndað var allt frá
norðurpólnum til Ástralíu. Besson seg-
ir að kvikmyndaö hafl verið á 225 kíló-
metra af fllmu en endanleg útgáfa
myndarinnar er aðeins 79 mínútur.
Ekkert tal er í myndinni, aðeíns tónlist
sem samin er af Eric Serra og þegar
höfð er í huga tónlist Serra við fyrri
myndir Luc Bessons, Subway, The Big
Blue og La femme Nikita, verður ör-
ugglega um mikla tónlistarveislu að
ræða. Óhætt er að segja að sjaldan
hafi verið beðið með jafnmikilh eftir-
væntingu eftir frumsýningu á nýrri
kvikmynd í Frakklandi.
Annarra manna
peningar
Nýjasta kvikmynd Norman Jewisons
heitir Othér People’s Money og lýsir
hann myndinni sem gamanmynd um
mjög alvarlegt málefni. Aöalhlutverk-
ið leikur Danny DeVito sem elskar
þrennt í lífinu, kieinuhringi, peninga
(sérstaklega peninga sem aðrir eiga)
og tölvu sem heitir Carmen. Með að-
stoö tölvu sinnar fmnur hann út fyrir-
tæki sem standa tæpt fjárhagslega og
gleypir þau síðan sér til ánægju og
gróða. Hann hittir þó fyrir ofjarl sinn
þegar hann reynir að komast yfir gam-
algróið fyrirtæki. Auk Danny DcVito
leika Gregory Peck, Penelope Ann
Miller, Piper Laurie og Dean Jones
stór hlutverk í myndinni. Handritið
sem skrifað er af Alvin Sargent er
byggt á vinsælu leikriti.