Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 17
16
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991.
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991.
25
íþróttir
Sport-
stúfar
Borðtennismót Vík-
ings og Pizzahússins
verður haldið í TBR-
húsinu (stóra salnum)
sunnudaginn 20. október. Keppt
veröur í punktakeppni, notaðar
verða þriggja stjörnu borðtenn-
iskúlur og veitt verðlaun fyrir
flögur efstu sætin í hverjum
flokki. Síðasti skráningardagur
er 18. október.
Marseille sækir um til
UEFA að nota leikmann
Franska félagið Mar-
seille hefur sent fyrir-
spurn til UEFA þess
efnis hvort það fái að
nota Júgóslavann Allen Boksic í
Evrópuleiknum gegn Sparta Prag
í næstu viku. Boksic, sem er 21
árs, kom til Marseille eftir að
tímabilið hófst og má því ekki
leika í 1. deild í vetur. Marseille
telur sig ekki sjá neina fyrirstöðu
að Boksic leiki í Evrópukeppn-
inni. UEFA tekur á þessu máli í
lok vikunnar.
Tarpley í ævilangt
keppnisbann
Bandaríski körfu-
knattleiksmaðurinn
Roy Tarpley var í gær
dæmdur í ævilangt
keppnisbann fyrir að neita að
gangast undir lyíjapróf. Tarpley,
sem leikur með Dallas Ma-
vericks, getur þó sótt um að
banninu verði aflétt eftir tvö ár.
Tarpley, sem hefur þurft að fara
í meðferð vegna eiturlyíjaneyslu,
hefur tvívegis áður farið í keppn-
isbann. Hann fékk 49 leikja bann
í ársbyrjun 1989 þegar hann hóf
lyfjaneyslu á ný eftir meðferð og
tók síðan út 33 leikja bann eftir
að hafa ekið bifreiö undir áhrif-
um lyfja.
Helgi til ÍBK
Æglr Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Helgi Arnarson hefur gengið til
liðs við 2. deildar lið Keflvíkinga
í knattspyrnu. Helgi lék lengi með
Njarðvík en hefur tvö undanfarin
ár þjálfað og leikið með 4. deildar
liöi KSH.
Jóhann og Ólafur bestir
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Knattspyrnulið ÍBK og Víðis
héldu á dögunum uppskeruhátíö-
ir sínar eftir tímabilið. Keflvík-
ingar völdu Jóhann B. Magnús-
son leikmann ársins en hjá Víði
varð Ólafur Róbertsson fyrir val-
inu.
Þrjátíu þjálfarar á
námskeið í Köln
Þijátíu íslenskir knattspyrnu-
þjálfarar fóru í morgun til Þýska-
lands á námskeið sem KSÍ heldur
í samvinnu viö íþróttaháskólann
í Köln. Þeir sem fóru voru eftir-
taldir: Guðni Kjartansson, Guð-
mundur Ólafsson, Aðalsteinn
Örnólfsson, Sigurður Þorsteins-
son, Kjartan Másson, Pálmi Ing-
ólfsson, Bjarni Jóhannsson, Þórir
Bergsson, Ingvar Jónsson, Gunn-
ar Örn Gunnarsson, Ólafur Jó-
hannesson, Janus Guðlaugsson,
Guðjón Þórðarson, Úlfar Daníels-
son, Vanda Sigurgeirsdóttir,
Hörður Hilmarsson, Jóhann
Torfason, Margrét Sigurðardótt-
ir, Eiríkur Sigfússon, Þórður Lár-
usson, Ásgeir Elíasson, Gylfi
Gíslason, Hinrik Þórhallsson,
Sigurbjöm Hjaltason, Vignir
Daðason, Njáll Eiðsson, Eiríkur
Björgvinsson, Lýður Skarphéð-
insson, Ragna Lóa Stefánsdóttir
og Vignir Baldursson. Þór Símon
Ragnarsson fór með á vegum KSÍ
og Páll Guölaugsson, landsliðs-
þjálfari Færeyja, bætist í hópinn.
Þeir Bjami Jóhannsson og Guð-
jón Þórðarson fara síöan áfram á
ráðstefnu þjálfarasambands Evr-
ópu í Bratislava.
Hrikalegt
kæruleysi
- ísland sigraði slakt lið Tékkóslóvakíu öðru sinni, 25-23
Taki íslensku landsUðsmennirnir
í handknattleik sig ekki alvarlega
saman í andlitinu á þeim tíma sem
eftir er fram að b-keppninni í hand-
knattleik snemma á næsta ári er
ekki hægt að búast við merkilegum
árangri á því mikilvæga móti fyrir
íslenskan handknattleik. Leikur
íslenska landsliðsins í gærkvöldi
gegn Tékkum einkenndist af hrika-
legu kæruleysi og var engu líkara
en hlutirnir ættu aö gerast af sjálfu
sér. Slíka framkomu er ekki hægt
að líða hjá landsliðsmönnum og er
þeim til skammar þegar allir vita
að þeir geta gert aíbragðsgóða
hluti. Það á að vera metnaðarmál
allra handknattleiksmanna að fá
að leika í landsliði en þegar slíkt
tækifæri gefst á ekki aö nota það
með þeim hætti sem þorrinn af
landsliðsmönnum gerði í gær-
kvöldi.
Og ef leikmenn landsliðsins gera
ekki bragarbót á leik sínum á
áhorfendum á komandi landsleikj-
um hér heima enn eftir að fækka.
Að vísu vannst sigur, 25-23, í leikn-
um í gærkvöldi en hann átti að
vera mun stærri og öruggari en
tölurnar gefa til kynna. „Viö vor-
um kærulausir og hættum þegar
staðan var 24-20. Tékkarnir eru
ekki með sterkt lið og við eigum
að vinna þá með mun meiri mun
en í þessum tveimur leikjum,"
sagði Sigurður Valur Sveinsson,
fyrirhði íslenska liðsins, eftir leik-
inn.
Það eru orð að sönnu hjá Sigurði
að Tékkarnir eru ekki með sterkt
hð í dag og raunar er þetta eitt slak-
asta lið sem Tékkar hafa sent til
íslands. Það sem fyrst og fremst fór
úrskeiðis í gærkvöldi hjá íslenska
liðinu var varnarleikurinn og þar
stóðu menn staðir í tíma og ótíma.
Slakar tékkneskar skyttur fengu
að skjóta óáreittar á íslenska mark-
ið gegn Guðmundi Hrafnkelssyni
varnarlausum. Örlítill neisti var í
sóknarleiknum og hann eilítið
betri en í fyrri leiknum en betur
má ef duga skal. Vissulega er
landsliðið nú í upphafssporum
undirbúningsins fyrir b-keppnina
og landsliðsþjálfarinn eðlhega að
prófa alla skapaða hluti og ekki
hægt að búast við toppleik hjá
landsliðinu ef litiö er á dagatal-
ið.
En það er sjálfsögð krafa að
landsliðsmenn leggi sig fram og
beijist til síðustu mínútu þegar
þeir leika fyrir íslands hönd í stað
þess að spranga um sahnn eins og
þeir eigi heiminn með kæruleysið
að leiðarljósi. Slíkt er alveg óþo-
landi þegar landsliðið á í hlut og
gildir þá einu um hvaða íþrótta-
grein er að ræða. Og sérstaklega
er erfltt að horfa á shka framkomu
leikmanna sem eru að vinna sér
sess í landsliðinu.
Skástir í íslenska liðinu í gær
voru þeir Konráð Olavsson og Birg-
ir Sigurðsson og voru þeir raunar
bestu menn vallarins.
-SK
ísland - Tékkóslóvakía 25-23 (12-11)
0-2, 1-2, 2-2, 3-5, 5-5, 7-5, 8-6, 9-7, 10-9, 10-11, (12-11), 13-11, 16-13, 16-14,
17-14,18-15,18-16,19-16, 20-16,20-17, 21-17,22-18, 23-19, 23-21,23-22, 24-22,
24-23, 25-23.
Mörk íslands: Konráð Oiavsson 10/2, Birgir Sigurðsson 5, Siguröur V.
Sveinsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Sigurður Bjarnason 2, Óskar Armanns-
son 1.
Mörk Tékkóslóvakíu: Sediacek 5, Lipták 4/2, Hudak 3, Holesá 2, Zdenek
2, Házl 2, Tonar 2, Folta 1, Frantiscek l og Suma 1.
Varín skot: Guðmundur Hrafnkeisson 7, Mesiarik 6/1, Svajien 4/1.
Brottrekstrar: ísland 10 mínútur, Tékkóslóvakia 6 mínútur.
Sóknamýting: ísland 45/25 = 55%, Tékkóslóvakía 46/23 = 50%.
Dómarar: Broman og Biademo frá Svíþjóð. Skrautiegir og skemmthegir.
Áhorfendur: 600.
Birgir Sigurösson lék vel í gærkvöldi, eins og í fyrrakvöld, og skoraði fimm mörk, flest eftir línusendingar Sigurðar Vals Sveinssonar.
Einar var
óstöðvandi
- þegar Tindastóll vann Snæfell, 69-83
Þannig skoruðu liðin mörhin:
ISLAND 25
Mörk úr víta-
köstum eru
talin með þar sem
þau unnust
TEKKOSLOVAKIA 23
%
3 3
1
■ Langskot
0 Gegnumbrot
■ Horn
□ Lína
□ Hraðaupphlaup
Uppgjafaleikmenn
- voru gulls ígildi í leik Víkinga og ÍS
Kristján Sigurðsson, DV, Stykkishólmi:
Tindastóll vann sannfærandi sigur
á Snæfehi, 69-83, í Stykkishólmi í
gærkvöldi. Eftir jafnar upphafsmín-
útur náði Tindastóll forystunni og
haföi leikinn í hendi sér það sem eft-
ir var - fjölbrautaskólanemum frá
Sauðárkróki til mikillar ánægju en
þeir mættu með tól og tæki með sér
og lýstu leiknum beint til heima-
byggðarinnar!
Tindastóll lék þennan leik mjög
skynsamlega og spilaði vörnina eins
og þarf gegn Snæfelli. Bakveröirnir
voru teknir gríðarlega stíft og fram-
arlega þannig að þeir komu boltan-
um ekki inn á stóru mennina. Eftir
að Tindastóll komst yfir spilaði liðið
langar sóknir og þá náði Snæfell ekki
að ógna því, sama hvort beitt var
svæðisvöm eða pressuvörn.
Einar Einarsson var yfirburða-
maður hjá Tindastóh og skoraði níu
þriggja stiga körfur. Honum mistókst
varla skot og skoraöi ,oft úr erfiðri
aðstöðu. Ivan Jonas fór í gang i róleg-
heitum, hann leikur ekki áferðarfall-
egan körfubolta en skhar því sem
hann á að gera. Valur Ingimundar-
son hafði hægt um sig en var þokka-
legur í vörninni.
Rúnar Guðjónsson hélt Snæfelli á
floti í fyrri hálfleik, skoraði grimmt
og hélt Val niðri. í síðari hálfleik tóku
Tim Harvey og Bárður Eyþórsson
við aðalhlutverkunum. Tim var sér-
staklega sterkur í sóknarfráköstun-
um og Bárður fór að renna sér í gegn-
um vörn Tindastóls hvað eftir annað.
Hins vegar var Karl Guðlaugsson,
leikmaður 2. umferðar hjá DV, heill-
um horfinn og skoraði ekki stig.
Snæfeh (27) 69
Tindastóll(40) 83
8-6, 12-18, 16-22, 26-38, (27-40),
33-42, 48-61, 55-69, 63-81, 69-83.
Stig Snæfells: Tim Harvey 23,
Bárður Eyþórsson 20, Rúnar Guð-
jónsson 16, Hjörleifur Sigurþórs-
son 8, Hreinn Þorkelsson 2.
Stig Tindastóls: Einar Einarsson
33, Ivan Jonas 25, Valur Ingimund-
arson 15, Kristinn Baldvinsson 7,
Hinrik Gunnarsson 2, Karl Jóns-
son 1.
Vhlur: SnæfeU 19, Tindastóh 11.
Vítanýting: Snaefell 40%, Tinda-
stóll 77%.
3ja stíga körfUr: Snæfell 1, Tinda-
stóll 11.
Dómarar: Ámí Sigurlaugsson og
Brynjar Þorsteinsson, þokkalegir.
Ahorfendur: 350.
Þrír leikir voru í gærkvöldi á ís-
landsmótinu í blaki. Karlalið ÍS vann
Skeiðamenn i bragðdaufum þriggja
hrinu leik.
Tveir kvennaleikir fóru fram,
Stúdínur mættu Víkingum og
Breiðabhk lék gegn HK.
Það var greinilega svolítill tauga-
strekkingur í leikmönnum ÍS og Vík-
ings. Leikurinn var sveiflukenndur
og það lið, sem átti betri uppgjafir
hverju sinni, réð ferðinni.
Víkingar réðu lögum og lofum í
byrjun en gerðust of kærulausir og
hleyptu Stúdínum upp að hlið sér,
13-13. Endaspretturinn var þó Vík-
inga og unnu Víkingsstúlkur, 15-13.
IS-ingar sneru blaðinu við í næstu
hrinu og hreinlega rúlluðu yflr sof-
andalega andstæðingana, 15-8. Hér
voru það einkum góðar uppgjafir
Jónu Hörpu Viggósdóttur, sem geröu
útslagið.
Mikill barningur var í næstu hrinu
en Víkingum tókst þó að knýja fram
sigur í henni en engu mátti muna,
17-16. Fjórða hrinan varð sú síðasta
og hún reyndist Víkingum nokkuð
auðveld, 15-11.
Að öðrum ólöstuðum í liði Víkings
átti Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir
bestan leik.
„Sálrænn baklás"
„Eftir sigur í fyrstu hrinunni kom
upp eitthvert óskiljanlegt stress í
stelpunum, það var eins og þær færu
í sálrænan baklás. Þær náðu sér svo
ekki niður fyrr en í fjórðu hrinu en
þá var þaö um seinan," sagði Skjöld-
ur Vatnar Björnsson, þjálfari HK, en
stúlkurnar hans urðu að láta í minni
pokann fyrir UBK í gærkvöldi, 1-3:
15-12, 4-15, 13-15 Og 14-16.
Mirka Marikova var best HK-inga
en Oddný Erlendsdóttir stóð upp úr
í Uði Breiðabliks.
........................-gje
Þeir ensku heppnir
að sigra Tyrkina
- Þýskaland, Holland og Júgóslavía með góða stöðu 1 riðlunum
Englendingar standa best að vígi í 7.
riðh Evrópukeppni landsliða í knatt-
spymu eftir heppnissigur á Tyrkjum,
1-0, á Wembley í gærkvöldi. Alan Smith
skoraði sigurmarkið með skalla á 21.
mínútu eftir fyrirgjöf frá Stuart Pearce.
Pólverjar og írar skildu jafnir í Pozn-
an, 3-3, og þar með dugir Englendingum
jafntefli í Póhandi í lokaleiknum til aö
komast í úrshtin í Svíþjóð. írar komust
í 1-3 í síðari hálfleiknum. Piotr Czac-
howski, Jan Furtok og Jan Urban skor-
uðu fyrir Pólveija en Paul McGrath,
Andy Townsend og Tony Cascarino fyr-
ir íra. Staðan í 7. riðli:
England............5 3 2 0 6-2 8
írland.............5 1 4 0 10-5 6
Póhand.............5 2 2 1 7-5 6
Tyrkland...........5 0 0 5 0-11 0
Naumur sigur Tékka
Tékkar sigruðu Albani, 2-1, í 1. riðli í
Olomouc, frammi fyrir aðeins 2.366
áhorfendum. Karel Kula og Ludovit
Lancz komu Tékkum í 2-0 en Hysen
Zmijani minnkaði muninn fyrir Albani.
Staðan í 1. riðli:
Frakkland...........7 7 0 0 17-5 14
Tékkósl.............7 5 0 2 11-7 10
Spánn...............6 2 0 4 15-11 4
ísland..............7 2 0 5 6-7 4
Albanía.............7 1 0 6 2-21 2
Skotar töpuðu
Rúmenar sigruðu Skota, 1-0, í Búkarest
í 2. riðli, og þar með eiga þrjú lið sigur-
möguleika í riölinum, Rúmenar, Skotar
og Svisslendingar. Sviss stendur þest að
vígi og dugar líklega jafntefh í lokaleik
sínum, í Rúmeníu. Þaö var Gheorghe
Hagi sem skoraöi sigumark Rúmena á
73. mínútu úr vítaspyrnu.
Búlgaría vann San Marínó, 4-0, með
mörkum frá Hristo Stoichkov, Zlatko
Yankov og Nikolai IUev. Staðan í 2. riðli:
Sviss............ 7 4 2 1 19-6 10
Skotland...........7 3 3 1 10-7 9
Búlgaría...........7 3 2 2 13-7 8
Rúmenía............6 3 12 11-6 7
San Marínó.........7 0 0 7 1-28 0
Júgóslavar í vand-
ræðum með Færeyinga
Júgóslavar lentu í óvæntum vandræð-
um meö Færeyinga þegar þjóðirnar
mættust á heimavelli Færeyinga í
Landskrona í Svíþjóð. Þeim tókst þó að
sigra, 0-2, og skoraði Vladimír Jugovic
á 18. mínútu og Dejan Savicevic á 79.
mínútu.
Norður-írar unnu Austurríki, 2-1, í
Belfast. Iain Dowie og Kingsley Black
komu írum í 2-0 en Leo Lainer minnk-
aði muninn. Júgóslavar standa best að
vígi og þeim dugar væntanlega jafntefli
í Austurríki í lokaleiknujh th að komast
í úrslitakeppnina. Staðan í 4. riðli:
Júgóslavía..........7 6 0 1 22-4 12
Danmörk.............7 5 1 1 16-6 11
N-Írland............7 2 3 2 10-9 7
Austurríki.........7 1 1 5 0-12 3
Færeyjar...........8 1 1 6 3-26 3
Stórsigur Þjóðverja
Þjóðverjar náðu undirtökunum í 5. riðli
meö því að sigra Walesbúa, 4-1, í
Nurnberg. Andy Möller, Rudi Völler og
Karl-Heinz Riedle skoruðu fyrir Þjóð-
verja á síðustu 11 mínútum fyrri hálf-
leiks og Thomas Doh kom þeim í 4-0.
Paul Bodin lagaöi stöðuna fyrir Wales
undir lokin með marki úr vítaspyrnu.
Dean Saunders hjá Wales var rekinn af
velh í byrjun siðari hálfleiks fyrir að
brjóta á Doll.
Þó Þjóöverjar standi nú best að vígi
þurfa þeir að sigra í Belgíu til að hrista
Walesbúana af sér. Staðan í 5. riðli:
Wales.............5 3 117-6 7
Þýskaland.........4 3 0 1 8-4 6
Belgía............5 2 1 2 7-5 5
Lúxemborg.........4 0 0 4 2-9 0
Holland stendur vel
Hohendingar eru með góða stöðu í 6.
riðh eftir 1-0 sigur á Portúgölum í Rott-
erdam. Richard Witschge skoraði sigur-
markið á 20. mínútu og möguleikar
Portúgala og Grikkja að ná Hollending-
um eru nú takmarkaðir. Staðan í 6. riðli:
Hohand..............7 5 1 1 15-2 11
Portúgal............7 4 12 10-4 9
Finnland............7 1 4 2 5-6 6
Grikkland...........4 2 118-55
Malta...............7 0 1 6 2-23 1
-VS
íþróttir
Einar í bann
- fyrir útistöður við dómara
Einar Guðmundsson, leikstjórn-
andi Selfossliðsins í 1. deild karla í
handknattleik, verður fjarri góðu
gamni á föstudagskvöldið er Selfoss
mætir Víkingum í 1. deildinni á Sel-
fossi.
Aganefnd HSÍ dæmdi Einar í eins
leiks bann en hann fékk að sjá rauða
spjaldið eftir leik Selfoss og Fram á
Selfossi í 1. umferð íslandsmótsins.
Einar lenti þá í útistöðum við annan
dómara leiksins og mátti teljast
heppinn að fá ekki lengra bann. Aga-
nefndin dæmir í vetur í málum á
þriðjudögum og taka dómar nefndar-
innar gildi frá hádegi á fimmtudegin-
um þar á eftir.
Víkingar verða heldur ekki með
fullskipað lið gegn Selfyssingum á
föstudagskvöldið en Sovétmaðurinn
í liði þeirra, Alexej Trúfan, er meidd-
ur.
Selfyssingar búast við miklu fjöl-
menni á leikinn gegn Víkingum og
hafa þeir ákveðið að vera með for-
sölu aðgöngumiða í anddyri kaupfé-
lagsins á fimmtudag og föstudag kl.
16-18, báðadagana. -SK
Heima og heiman
- hjá Valsmönnum og Hapoel Rshion
Valsmenn hafa komist að sam-
komulagi við ísraelska liðið Hapoel
Rshion að leika fyrri leik hðanna í
Reykjavík 3. nóvember og þann síð-
ari í ísrael 9. nóvember. Um tíma
voru þær hugmyndir viðraðar að
Valsmenn lékju báða leikina ytra en
þegar á reyndi tókst ekki að ná sam-
komulagi um þann möguleika.
„Þessi niöurstaða er okkur dýr en
að senda lið til ísrael er afar kostnað-
arsamt. í ísrael er reglugerð í gildi
um að ef félagslið komast áfram í 2.
umferð fái þau ekki leyfi að leika
báða leikina í heimalandi mótheij-
ans. Fyrst þetta var niöurstaðan eig-
um við með eðlilegum leik að komast
áfram í 3. umferð Evrópukeppninn-
ar. Svissneska liðið Grasshoppers er
óskaliðið í 3. umferð," sagði Bjarni
Ákason, formaður handknattleiks-
deildar Vals, í samtali við DV í gær.
Danskir dómarar munu dæma
leikinn í Reykjavík en í leikinn í ísra-
el koma dómarar frá Tyrklandi.
Ákveðið hefur verið að Víkingar
leiki fyrri leik sinn gegn Avidesa i
Evrópukeppni félagsliða í Valencia
3. nóvember. Síðari leikurinn verður
í Reykjavík 10. nóvember. -JKS
Avidesa á toppnum
- Júlíus skoraöi 5 og Geir 3
Geir Sveinsson og félagar í Alzira
Avidesa tóku í gærkvöldi forystuna
í sínum riðli í spænsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik með því að sigra
Valladolid, 27-20. Geir skoraði 3
mörk í leiknum. Avidesa er greini-
lega í góðu formi en liðið mætir Vík-
ingum í IHF-keppninni í næsta mán-
uði eins og kunnugt er.
Júlíus Jónasson skoraði 5 mörk
fyrir Bidasoa sem vann Puleva Mar-
ist Malaga, 27-22, eftir 14-12 í hálf-
leik. Bogdan Wenta og Fernando
Bolea gerðu 7 mörk hvor fyrir Bida-
soa. Þá gerðu Granollers og Barce-
lona jafntefli, 26-26.
Eftir 5 umferðir er Avidesa með 9
stig, Bidasoa 8, Granollers 8 og
Barcelona er nú í 4. sætinu með 7 stig.
-VS
Glæsimark
Þorvalds
- Kýpur og ísland skildu jöfn, 1-1
Kýpur og ísland skildu jöfn, 1-1,
í vináttulandsleik í knattspymu
sem Iram fór í Lamaca á Kýpur í
gær. Kýpurbúar náöu forystunni
með fahegu marki eftir auka-
spyrnu frá vítateig um miðjan fyrri
hálfleik en á 55. mínútu jafnaöi
Þorvaldur Örlygsson með glæsi-
legu skoti af 20 metra færi eftir að
Sigurður Jónsson haföi rennt bolt-
anum tíl hans úr aukaspymu,
„Fyrri hálfleikurinn var slakur
en sá síðari mun betri. Það var þó
htið um færí, en markvörður Kýp-
ur varöi vel frá Atla Einarssyni
sem var kominn í ágætt færi.
Seinni hálfleikurinn einkenndist
af því að dómarinn, sem var heima-
maður, dæmdi mjög mikið og Kýp-
urbúarair gengu á lagið og lágu
eins og ketthngar um allan völl eft-
ir hvert návígi," sagði Guðmundur
Pétursson, formaöur landshðs-
nefndar KSÍ, í samtah við DV í
gærkvöldi.
Guðmundur sagði að Sigurður
Jónsson heföi átt góðan leik á miðj-
unni og Valur Valsson sem aftasti
maður í vöm. Þá hefói Baldur
Bjarnason leikið vel í siðari hálf-
leiknum og Friðrik Friðriksson
markvörður gripið vel inn í leik-
inn.
„Dómgæslan var orðin hlægheg
I seinni hálfleiknum. Atli Einars-
son var kýldur og fékk síðan takka
í andlitið. Þaö var hiti í mönnum
og lá við slagsmálum undir lokin,"
sagöi Andri Marteinsson, lands-
hðsmaður úr FH.
Leikurinn fór fram í logni og 20
stiga hita og aö sögn Guðmundar
vom aðstæður mjög góðar.
Allir 16 leikmennirnir tóku þátt
í leiknum en hðið var þannig skip-
að: Birkir Kristinsson (Friðrik
Friðriksson) - Valur Valsson, Sæv-
ar Jónsson, Ath Helgason (Kristinn
R. Jónsson) - Andri Marteinsson
(Ólafur Kristjánsson), Sigurður
Jónsson, Þorvaldur Örlygsson,
Arnór Guðjohnsen, Baldur Bjama-
son - Eyjólfur Sverrisson (Hlynur
Stefánsson), Hörður Magnússon
(Atli Einarsson).
Atli Helgason lék sinn fyrsta
landsleik í gærkvöldi og Ath Ein-
arsson annán.
Þorvaldur Öriygsson lék sinn 20.
landsleik og skoraði í öðmm leikn-
um í röö.
Amór Guðjohnsen var fyrirliði
landsliðsins í fyrsta skipti.
ísland hefur nú leikið flóra lands-
leiki röö án taps, unnið 2 leiki og
gert 2 jafnteflL Það gerðist síöast
árið 1984, en mest hefur ísland leik-
ið fimm leiki í röð án þess að tapa,
1974-1975 og 1981-1982.
-VS