Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Karlmaður og stúlka skiptu á rússneskri helgimynd og fíkniefnum:
19 ára stúlka í fangelsi
fyrir amf etamínsmygl
meintur vitorðsmaður ekki ákærður vegna sönnunarskorts
Sakadómur í ávana- og flkniefna-
málum hefur dæmt 19 ára stúlku í
10 mánaða fangelsi, þar af 7 mánuði
skilorðsbundið, fyrir aö hafa flutt 137
grömm af amfetamini í líkama sínum
til landsins seint á síðasta ári. 33 ára
karlmaður, semtengdist málinu, bar
af sér alla aðild að innflutningi fíkni-
efnanna og var ekki ákærður. Stúlk-
an bar meðal annars hjá lögreglu að
ákveðið hefði verið að hún flytti
amfetamíniö inn til landsins - lík-
legra hefði veriö að maðurinn yrði
handtekinn vegna aðildar hans að
öörum flkniefnamálum. Umræddur
maður hefur mikið dvalist erlendis.
Stúlkan var handtekin í Leifsstöð
við komu sína frá Kaupmannahöfn
30. nóvember 1990. Við likamsleit og
leit í farangri hennar fannst ekkert
athugavert. Lögregla ákvað þá að
senda hana í röntgenmyndatöku. Þar
kom aðskotahlutur í ljós í leggöngum
stúlkunnar. Stúlkan sagði þá að
þarna hefði veriö um að ræða 160
grömm af amfetamíni. Við vigtun
reyndist efnið vega 137 grömm.
Stúlkan var úrskurðuð í gæslu-
varöhald þar sem hún var í 11 daga.
Við eina yfirheyrsluna þar kom fram
að hún hafði fariö til Danmerkur 8
mánuðum áður og ferðast með áður-
nefndum manni um nokkur lönd.
Hún bar að í Rússlandi hefðu þau
„komist yfir“ nokkra íkona, rúss-
neskar helgimyndir, og smyglað
þeim til Amsterdam. Stúlkan sagði
sig og manninn síðan hafa skipt á
einum íkoni og 160 grömmum af
amfetamíni í Hollandi.
Síðan lá leiðin til íslands og stúlkan
kom efnunum fyrir í líkama sínum.
Ákveðið var að hún færi á undan en
maðurinn kæmi síðar því líklegt
væri að hann yrði handtekinn viþ
komuna til íslands vegna fíkniefna-
mála er hann hafði lent í hérlendis.
Stúlkan sagði þau hafa ætlaö aö nota
efnin til eigin nota.
Daginn eftir að stúlkan kom til ís-
lands kom maðuiinn og var hann
handtekinn. Þegar lögreglan hafði
manninn undir höndum sýndi hann
af sér ógnandi framkomu og ein-
kenni fíkniefnaneytanda. Lítiishátt-
ar magn af fíkniefnum fannst á hon-
um við komuna. Maðurinn bar af sér
hvers konar aðild aö fíkninefnainn-
flutningi stúlkunnar og sagðist ekk-
ert um hann vita. Hann var ekki
ákærður vegna þess máls. Mannin-
um veröur hins vegar gert að greiða
sekt vegna fíkniefnanna sem fundust
á honum við komuna til íslands.
Viö dómsyfirheyrslur þann 7. okt-
óber síðastliðinn gekkst stúlkan við
sakarefnum en breytti þá fyrri fram-
burði um manninn - hann hefði ekki
verið viðriðinn innflutning amfetam-
ínsins. Stúlkan kvaðst hafa verið í
mikilli fíkniefnaneyslu á framan-
greindu tímabili og flutt efnin til
landsins „í einhverju rugli“.
Við refsiákvörðun tók dómurinn
mið af ungum aldri stúlkunnar og
því að hún hefur ekki orðið uppvís
að öðru fíkniefnamisferli á þeim tíma
sem liöinn er frá innflutningnum.
Auk fangelsisrefsingar var stúlkan
dæmd til aö greiða 104 þúsund krón-
ur í málskostnað. Bjarni Stefánsson
dómarafulltrúi kvaö upp dóminn.
-ÓTT
Opinberir starfsmenn:
Fjölgaði um rúm-
lega 600 á einu ári
Opinberum starfsmönnum fjölgaði
um 628 frá 31. júlí 1990-31. júlí 1991,
samkvæmt töium frá starfsmanna-
skrifstofu fjármálaráöuneytisins.
Um mánaðamót júlí-ágúst 1990 voru
stöðugildi opinberra starfsmanna
16.245 talsins en hafði fjölgað upp í
16.874 á sama tíma í sumar.
Að sögn Birgis Guðjónssonar hjá
starfsmannaskrifstofunni eru tals-
verðar sveiflur í tölum um fjölda
opinberra starfsmanna. Einkum eru
þessar sveiflur áberandi yfir sumar-
leyfismánuðina og áramót þegar ráð-
ið er viðbótarfólk til afleysinga.
„Ákvörðun um fjölda ríkisstarfs-
manna er mál sem er vandmeðfar-
ið,“ sagði Birgir. „Það sést best á því
að oftar en ekki hafa fjármálaráðu-
neidið og Ríkisendurskoðun deilt um
hvaða tala sé rétt. Málið er það að
meðferðin á launategundum hefur
ekki verið nægjanlega samræmd
þegar menn hafa lesið út fjölda ríkis-
starfsmanna. En þessir aðilar munu
væntanlega tala sama tungutak frá
áramótum, þegar gengið er til að
mynda út frá forsendum til fjárlaga-
geröar, því þeir hafa sest niður og
farið mjög vandlega saman yfir þess-
ar launategundir og deilitölur sem
notaðar eru í því efni. Það er því von
til þess að allir noti sömu aðferð við
útreikningana og fái sömu útkomu
eftir áramót." -JSS
Byggðastofnun:
Engin ákvörðun
varðandi Foldu
- um hlutafjárfranilag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Byggðastofnun hefur ekki tekiö
afstöðu til beiöni ullarvinnslufyrir-
tækisins Foldu hf. á Akureyri um
12 milijóna króna hlutafjárframlag
og reyndar ekki tekið málið fyrir á
tveimur stjórnarfundum sem
haldnir hafa veriö síðan beiönin
barst stofnuninni.
Áætlanir forsvarsmanna Foldu
hf., sem stofnað var til á rústum
Alafoss, gerðu ráð fyrir að hlutafé
yrði 60 milljónir króna og Byggða-
stofnun kæmi þar inn með 20%
eins og stofnuninni er heimilt. Einn
viðmælandi DV, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sagðí það óneitan-
lega vekja undrun að Byggðastofn-
un ræddi ekki erindi Foldu um 12
milljóna króna framlag en gæfi sér
samt tima til að afgreiða styrki til
„vonlausra fiskeldisfyrirtækja upp
á 140 milljónir króna“, eins og hann
orðaöi það.
Akureyringar fengu fyrsta „þefinn" af vetrinum i gær en þá snjóaði þar og geysileg háika var á götum baejarins.
Margir bíleigendur ruku i að skeila vetrarhjólbörðunum undir bíla sína og í Dekkjahöllinni, þar sem þessi mynd
var tekin, var örtröð út úr dyrum og um 20 starfsmenn á þönum við að umfeiga og þess háttar. DV-mynd gk, Akureyri
Tveir flugmenn í allar farþegaflugvélar:
Þetta oryggi er
dýru verði keypt
- segir framkvæmdastjóri Flugfélags Norðurlands
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum óánægðir með þessa
ákvörðun enda börðumst við gegn
henni á sínum tíma. Þetta er hins
vegar gert í nafni öryggis og það er
ekki hægt að neita því að a.m.k.
fræðilega séð eykur þetta öryggið, en
það er dýru verði keypt," segir Sig-
urður Aðcústeinsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Norðurlands, um þá
ákvörðun að frá og með áramótum
verði tveir flugmenn í öllum vélum
í farþegaflugi hérlendis. Lög um
þetta voru sett fyrir tveimur árum
en eru nú að koma til framkvæmda
að loknum aðlögunartíma flugfélag-
anna. „Ég er ekki viss um að Stein-
grímur Sigfússon, þáverandi sam-
gönguráðherra, sem stóð að þessari
lagasetningu, hafi séð fyrir hvað
þetta þýðir fyrir litlu flugfélögin.
Fyrir okkur þýðir þetta aukinn
kostnað á hvem flugtíma og trúlega
ekki jafnmiklá þjónustu við minni
staðina sem við höfum flogið á með
minni vélunum og með einn flug-
mann um borð,“ sagði Sigurður.
Hartn sagði að meirihluti áætlunar-
flugs FN hefði fariö fram með minni
vélum og einum flugmanni, ýmist á
ákveðnum flugleiöum til minni stað-
anna eða í einhverjum tilfellum á
öðrum leiðum. „Við ætlum að kom-
ast hjá því að velta þessum auka-
kostnaöi yfir á farþega okkar. Við
höfum bent samgönguráðuneytinu á
að ef við eigum aö veita minni stöð-
unum sömu þjónustu áfram verið að
borga okkur fyrir það. Við ætlum
ekki að rukka fólkið um þetta," sagði
Sigurður Aðalsteinsson.