Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991.
Útlönd
Nóbelsþeginn
fannstíAfríku
Prófessor Ronald Coase, nó-
belsverðlaunaþegi í hagfræði, er
aftur kominn í leitirnar. Hann
fannst í rústum Karþagóborgar
hinnar fornu fyrir utan Túnis í
gær og hafði ekki hugmynd um
að hann hefði fengið verðlaun-
in.
„Þetta kemur mér mjög á
óvart,“ sagöi prófessorinn við
fréttamann Reuters-íréttastof-
unnar sem fann hann. „En mig
iangar Hka til að vita hvers vegna
ég fékk verðlaunin. Ég er hér til
að rannsaka rústir Karþagó.“
Sænska nóbelsnefndin veitti
honum verðlaunin á þriðjudag
fyrir kenningar hans þar sem
m.a. er fjallað um þýðingu við-
skiptakostnaðar fyrir efnahags-
lífiö.
Glæpaaldaí
Bretlandi
Lögregluþjónar á Breúandi
skýrðu frá því í gær aö míkil
glæpaalda ógnaði nú landsmönn-
um.
„Lögleysa hefur sífeUt aukist á
undanfömum árum," sagði Alan
Eastwood, formaður lögreglu-
samtakanna sem í eru 147 þúsund
félagsmenn.
Eastwood sagði að á tuttugu
árum heíði glæpum íjölgað úr
einni milljón í tvær. „Á aðeins tíu
árum hefur sú tala hækkað í
fimm milljónir."
Nóbelinníefna-
fræðitilSviss
Prófessor Richard Ernst við
Eidgenössische tækniháskólann í
Zurich í Sviss voru veitt nóbels-
verðlaunin í efnafræði í gær.
í tilkynningu sænsku akadem-
íunnar kom fram að prófessor
Emst hefði fengið verðlaunin fyr-
ir framlag sitt til þróunar kjarna-
segulómunar, NMR, en mæh-
tækni þessi er notuð til að greina
sameindabyggingu efna í upp-
lausn. Þetta er talin einhver mik-
ilvægasta mælitæknin i efna-
fræði.
Ernst, sem er 58 ára, hefur ver-
ið prófessor viö skólann í Zurich
frá 1976. Þegar nóbelsverðlaunin
voru tilkynnt var hann um borð
í flugvél á leið frá Moskvu til
Bandaríkjanna þar sem hann á
að veita viðtöku öðrum verðlaun-
um.
Risastórborgar-
isjakiáreki
Risastór borgarísjaki ílýtur um
í Suður-Atlantshafi og gæti skap-
aö hættu á siglingaleiðum innan
skamms, að sögn sérfræðinga á
Falklandseyjum.
Borgarísjakinn þekur um átta
þúsund ferkílómetra svæði og er
þar af leiðandi aðeins litlu minni
en Kýpur.
Ofan á isjakanum eru leifar vís-
indastöðvar frá Suðurskauts-
landinu og sjást byggingarnar
greinilega á gervitunglamyndum.
Borgarisjakinn brotnaði frá Suð-
urskautslandinu í ágúst og rekur
íimmtán sjómílur í norðvestur á
degi hverjum. Hann er núna
rúma sjö hundruð kílómetra fyrir
suðvestan Falklandseyjar. Sér-
fræðingar spá því að hann brotni
í þúsundir minni jaka þegar hann
kemur í heitari sjó og geti oröi
skaðlegur skipum.
Ekki 'er vitað hvaðan bygging-
arnar ofan á borgarísjakanum
eru. Sumir heimildarmenn telja
að þær séu frá rannsóknarferð
sem farin var áríð 1958 undir
stjórn breska landkönnuðarins
Sir Vivian Fuchs. Aörir segja að
þetta séu leifar af gamalli argen-
tískri bækistöð sem heitir Bel-
grano I.
Reuter og TT
Tuttugu og þrír menn létu Mð í mesta fjöldamorði 1 sögu Bandaríkjanna:
James Baker í ísrael:
Nú liggur fyrir að 23 menn létu líf-
ið í morðárás vörubílstjóra á veit-
ingastað í bænum Killeen i Texas í
hádeginu í gær. Maðurinn skaut á
allt sem hreyfðist áður en hann
beindi byssu sinni að eigin höföi og
svipti sig lífi. Þetta er mesta fjölda-
morð í sögu Bandaríkjanna.
Maðurinn koma aðvífandi á vöru-
bíl og ók honum á glugga veitinga-
hússins. Vitni heyrðu hann hrópa
um leið og hann snaraðist út úr bíln-
um: „Texas, ég vona að þetta sé þess
virði.“
Þeir sem eftir lifðu í veitingahúsinu
sögðu að morðinginn hefði augljós-
lega verið vitskertur. Eitt vitni sagði
að svipur mannsins hefði virst tryll-
ingslegur. Hann fékk nokkurn tíma
til að athafna sig áður en lögreglan
kom á staðinn. Lögreglan segir að
morðinginn hafi náð aö skjóta um
100 skotum áður en hann særðist af
skotum lögreglunnar. Þegar svo var
komið svipti hann sig lífi.
Ekki er vitað hvað morðinginn hét.
Hann var hvítur og um þrítugt, vopn-
aður tveimur skammbyssum. Önnur
er 17 skota og hálfsjálfvirk. Vitni
sögðu að hann heföi hlaðið þá byssu
margoft meðan skothríðin stóð yfir.
Einn maður festist undir vörubíln-
um þegar honum var ekið á veitinga-
húsið. Þennan mann skaut morðing-
inn fyrstan og hóf svo að skjóta í
gríð og erg á aðra gesti. Ekkert er
vitað hvað honum gekk til og lögregl-
an hefur ekki getað ráðið í hvað hann
átti við með orðunum sem vitni
höfðu eftir honum. Reuter
Þegar fjöldamorðinginn loks svipti sig lífi lágu 23 gestir veitingahússins í valnum. Lögreglan hafði áður náð að
særa manninn skotsárum. Hér má sjá sjúkraliða hlúa að særðu fólki fyrir utan veitingahúsið að morðæði manns-
ins loknu. Simamynd Reuter
Lokatilraun við
friðarráðstefnuna
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á fyrir höndum erf-
iðar viðræður við ísraelsmenn í dag
í lokatilraun sinni til að koma á fót
friðarráðstefnu um Mið-Austurlönd
fyrir mánaðamót.
Baker hefur miðað vel áleiðis að fá
ísraelsmenn, arabaríkin og Palest-
ínumenn til að fallast á að mæta til
ráðstefnunnar en lítið má út af
bregða til að tilraunir hans renni út
í sandinn.
„Það getur allt gerst,“ sagði Yitz-
hak Shamir, forsætisráðherra ísra-
els, þegar hann var spurður hvort
ísraelsmenn gætu dregiö til baka
skilyrt samþykki sitt fyrir ráðstefn-
unni.
Baker og Shamir hittast í dag til
að ræða helsta ágreiningsefnið, full-
trúa Palestínumanna á samkomuna.
ísraelsmenn neita að sitja andspænis
Frelsissamtökum Palestínu, PLO, og
þeir neita einnig að ræða við fulltrúa
araba í Austur-Jerúsalem.
Palestínumenn hófu fundahöld í
Túnis í gær þar sem þeir ræða hvort
þeir eigi aö taka þátt í friðarráðstefn-
unni. Þó er talið ólíklegt að ákvörðun
verði tekin fyrr en eftir fund Bakers
með fulltrúum Palestínumanna á
herteknu svæðunum síðar í dag.
Embættismaður PLO sagði í gær
að samtökin hefðu komist að sam-
komulagi við Jórdani um sameigin-
lega sendinefnd ef fundur PLO í Tún-
is ákveður að mæta til ráðstefnunn-
Israelskir unglingar motmæla komu James Bakers, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, tii ísraels þar sem hann ætlar að gera lokatilraun til að
koma á friðarráðstefnu landanna fyrir botni Miðjarðarhafs.
ar. Jórdanir voru þó ekki lengi að
draga úr þætti PLO og sögöu að þeir
hefðu verið að ræða viö fulltrúa íbúa
herteknu svæðanna.
Baker var í Damaskus á Sýrlandi
í gær þar sem honum tókst að fá
Símamynd Reuter
stjórnvöld til að fallast að sitja friðar-
ráöstefnuna. Utanríkisráðherra Sýr-
lands sagði þó að hann mundi neita
að taka í höndina á ísraelskum
starfsbróður sínum.
Reuter
Armenía:
Hófsamur
forseti örugg-
ur um sigur
Allt bendir til aö Levon Ter-
Petrosjan, forseti þingsins í
Armeníu, fari með sigur af hólmi
í forsetakosningunum í Armeníu.
Eftir því sem nýjustu tölur benda
til verður sigur Petrosjans með
nokkrum yfirburðum.
Petrosjan sagði í kosningabar-
áttunni að hann stefndi að sjálf-
stæði Armeníu. Hann þykir þó
hófsamur í skoðunum og er and-
vígur sterkri þjóðernishyggju
eins og þeirri sem einkennt hefur
skoðanir margra landa hans.
Fimm aðrir menn voru í kjöri
og mæltu þeir allir fyrir að Arfn-
enar sýndu meiri hörku í sam-
skiptunum við nágrannana í Az-
erbajdzhan. Ter-Petrosjan stóð
fyrr í haust fyrir samningum við
Azera þar sem samkomulag náð-
ist um hið umdeilda hérað Nag-
orno-Karabak. Þjóðernissinnar
hafa gagnrýnt þann samning og
sagt að Armenar hafi þar látið
af hendi mikilvæg réttindi.
Kosningaþátttaka nú var um
70% en það þykir fremur lítið.
Þegar efnt var til þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæöi landsins
kusu yflr 95% atkvæðisbærra
manna. Ter-Petrosjan er af and-
stæðingum sínum gagnrýndur
fyrir að vera of hallur undir
stjórnina í Moskvu, enda stefnir
hann að náinni samvinnu í fram-
tíðinni við önnur lýðveldi Sovét-
ríkjanna.
Reuter
Skaut í tryllingsæði
á allt sem hreyfðist
- „Texas, ég vona að þetta sé þess virði,“ sagði morðinginn og hóf að skjóta