Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Síða 5
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992. 5 Fréttir Frá höfninni á Þórshöfn. Þar fjölgaði íbúum á landinu hlutfallslega mest á siðasta ári. Þórshöfn: Mesta fólks- fjölgun á öllu landinu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Það kann ýmsum aö þykja það at- hyglisvert að sá staður á landinu þar sem mest fólksfjölgun varð á síðasta ári var Þórshöfn á Langanesi. Lengi vel undanfarin ár hafa Þórshafn- arbúar átt í ýmsum erfiðleikum varðandi atvinnulíf en á því hefur orðið mikil breyting til batnaðar og atvinnuleysi hefur einungis verið tímabundið þar í vetur en ekki stöð- ugt. Reinhard Reynisson, sveitarstjóri á Þórshöfn, segir að fólksfjölgunin á Þórshöfn hafi verið 4,3% á síöasta ári sem mun vera talsvert yfir fjölg- un á höfuðborgarsvæðinu. Fjölgunin nam 17 manns og kemur fyrst og fremst til vegna þess að aðfluttir eru fleiri en brottfluttir. Reinhard segir að fiöldi fæðinga hafi ekki verið neitt umfram það sem eðlilegt má teljast. „Við höfum náð árangri í því að styrkja atvinnulífið, aðallega útgerð- arþáttinn, og það skilar sér á þennan hátt. Þegar tekst að ná þessum markmiðum kemur fleira á eftir eins og þjónustan sem lifir á undirstöð- unni eins og við vitum. Þó lentum við í loðnubresti í október og nóv- ember og fengum htla síld. Þá var svolítið atvinnuleysi en svo kom loðnan til okkar í desember og þá lifnaði yfir öllu aftur,“ sagði Rein- hard. Öxarfj arðarhreppur: Mikill uppgangur í atvinnulíf inu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: „Ástandið í atyinnumálunum hér á Kópaskeri og í Öxarfjarðarhreppi á síðasta ári var mjög gott, það hefur verið uppsveifla, mikil vinna og ekk- ert atvinnúleysi sem orð er á ger- andi,“ segir Ingunn St. Svavarsdótt- ir, sveitarstjóri í Öxarfjarðarhreppi. Ingunn segir að rekstur rækju- verksmiðjunnar Geflu hf. hafi gengið mjög vel og fyrirtækið hafi skilað hagnaði. í Fjallalambi, sem er slátur- hús og kjötvinnsla á Kópaskeri, hef- ur gengið mjög vel og í Silfurstjörn- unni gengur vel en þar er nú verið að koma á fót fóðurframleiðslu. Það hefur verið að flytja hingað fólk, það hafa komið tvær fjölskyldur eftir áramótin og nú vantar okkur bara íbúðarhúsnæði. Við sóttum um tvær félagslegar íbúðir til Húsnæðis- málastofnunar sem við gætum leigt út til fólks á meðan það er að koma sér fyrir hér og átta sig á hlutun- um,“ sagöi Ingunn. Húsavík: Hafnarframkvæmdir fyrir 80 milUónir - „bandormurinn“ kostar Húsvíkinga um 9 mílljónir Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Við erum að vinna að gerð fiár- hagsáætlunar fyrir bæjarsjóð og það mál er á því stigi aö ég get ekki veitt ýtarlegar upplýsingar um þá áætl- un,“ segir Einar Njálsson, bæjar- stjóri á Húsavík. Einar sagði þó að stærsta fram- kvæmd bæjarsjóðs á árinu yrði við- bygging við grunnskólann og í það færu 40 milljónir á árinu. Þá er áætl- að að vinna töluvert við gatnagerðar- framkvæmdir. Umfangsmesta fram- kvæmdin á Húsavík á árinu verður hins vegar við höfnina en þar á að vinna fyrir 80 milljónir króna. Af þeirri framkvæmd greiðir bærinn 20 milljónir en 60 milljónir eru á fiárlög- um Alþingis til þess verkefnis „Það eru því ýmsir þættir sem hta ágætlega út en það eru bhkur á lofti í byggingariðnaði. Það eru htíl verk- efni í augnablikinu en það getur von- andi breyst. Þá höfum við áætlað aö „bandormur" ríkisstjórnarinnar kosti okkur níu mihjónir og þar veg- ur lögregluskatturinn þyngst en einnig þátttaka í félagslega íbúða- kerfinu, ábyrgðasjóður launa og ýmislegt fleira." Fækka þarf um sextíu rúm „Það hefur verið talað um að ef við þyrftum að fækka sjúkrarúmum, ef til vhl um sextíu, sem mönnum sýn- ist nálægt því sem við erum að tala um, yrði reynt að dreifa þeirri fækk- un þannig að hún bitnaði sem jafnast á ahri okkar starfsemi og þeir þættir fundnir sem snerta almenning sem minnst,“segir Davíö Gunnarsson, forsfióri Ríkisspítalanna, um boðað- an niðurskurö. Davíð segir að miöað viö fiárlaga- tölumar þurfi Ríkisspítalamir að spara um 500 mihjónir. „Síðan fáum við eitthvað til baka af sérstökum safnlið sem ráðherra hefur úr að spila en vitum ekki enn hvað það verður mikið. Það verður að gerast með þrennum hætti. Draga úr starf- semi, minnka þjónustu, sem þá hugs- anlega minnkar gæðin, og með innri hagræðingu sem er býsna flókið mál miðað við hvaö búið er að hagræða miklu." -IBS Yfir 2000 m2 af flísum. Hreinlætis- oq blöndunartæki með 40% afslætti. Útsalan stendur yfir dagana 20. janúar -1. febrúar. Raðgreiðslur 10% af öðrum vörum ALFABORG ? BYGGINGAMARKAÐUR Knarrarvogi 4 104 Reykjavík - Sími 686755 Áður l\IÚ Afsl. *Hitakanna 1.143 914 20% *Straubord 1.940 1.455 25% *Gufustraujárn ( 4.995 3.996 20% Ljósahundur 680 544 20% Álsnjóskófla 1.699 1.359 20% Samfestingurjoðfóðraður 9.898 8.413 15% Stingsög í tösku 9.991 8.992 10% Sturtusett 2.204 1.653 25% Sturtuhurð 16.814 12.611 25% Spegill 45x60 4 í pk. 3.378 2.703 20% *Fæst einnig í Heimasmiðjunni í Kringlunni HÚSASMIÐJAN Skútiwogi 16, Reykjavík Helluhrauni 16, Hafnarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.