Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992. Vöggudauði rakinn til reykinga mæðra Útlönd___________ „Þjónustupíu- ákvæðinu“ beitt ífyrstasinn Dómstóll í Hillerröd í Dan- mörku hefur beitt svokölluöu „þjónustupíuákvæði" hegningar- laganna í fyrsta sinn. Yfirmaöur opinberrar stoftmnar var dæmd- ur í sex mánaöa fangelsi fyrir að áreita aðstoöarstúlku sína kyn- feröislega. Maðurinn viður- kenndi að hafa notað hvert tæki- færi til að þukla á henni og einu sinni neytt hana til samræðis við sig. Þetta varðar við gamalt lagaákvæöi sem ætlað er að vernda þjónustustúlkur fyrir húsbændumsínum. Ritzau Gizur Helgason, DV, Kaupmarmahöfn; Tímaritið Nodisk Medicin hefur nú birt niðurstöður vísindamanna á sambandinu milli stórreykinga og vöggudauða ungbarna. Benda niður- stööur vísindamannanna til þess aö börn kvenna sem reykja allt aö tíu sígarettur á dag séu í sex sinnum meiri hættu á að bíða vöggudauða en börn kvenna sem reykja ekki. Reyki konurnar meira en 10 sígarett- ur á dag eykst áhættan um helming. Höfundar skýrslunnar álita þess vegna að það sé full ástæða til að fuilyrða að stórreykingar á með- göngutímanum geti aukið á hættuna á vöggudauða ungbamsins síðar meir. En, bæta þeir við, þá er það og sennilegt að reykingar í nánasta umhverfi bamsins á fyrstu mánuð- um þess hafi einnig mikil áhrif. Höfundar rannsóknarinnar, sem báðir eru yfirlæknar við Central- sjúkrahúsið í Stafangri, segja það afar mikilvægt að konur sem reykja geri sér ljósa grein fyrir hvaða áhrif reykingar geti haft á fóstur eöa kornabörn, án þess þó að hér sé ver- ið aö auka á sektarkennd mæðra þeirra sem orðið hafa fyrir því að missa börn sín við vöggudauða. HÓTEL ÍSLAND -^Ssa OGSTEINARHF. KYNNA NÝJA STÓFtSÝNlNGU Á HÓTEL ÍSLANDI TIL FOR77£ ÍSLENSKIR TÓNAR * Í30ÁR 1950 -1980 Tugir laga frá gullöld íslenskrar dægurtónlistar fluttir af nokkrum bestu dægurlagasöngvurum landsins ásamt Dægurlagacombói Jóns Ólafssonar. Daníel Ágúst Haraldsson Páll Óslcar Hjálmtýsson Sigrún Eva Armannsdóttir MóeiðurJúníusdóttir NÆSTU SYNINGAR 25. JANLIAR OG l.FEBRÚAR. Pétur Kristjánsson Berglind Björk Jónasdóttir Rúnar Júlíusson Sigurður Pétur Harðarson Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansiað skemmtun lokinni ásamt söngkonunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og Berglindi BjörkJónasdóttur. Stjómandi: Björn Emilsson * HandritrÓmar Valdimarsson * Kóreógrafía: Ástrós Gunnarsdóttir * Hljóðmeistari: Sveinn Kjartansson * Ljósameistari: Kristjin Magnússon * S viðsstjóri: Ágúst Ágústsson. Kynnir: Útvarpsmaðurinn vinsæli, Sigurður Pétur Harðar- son, stjórnandi þáttarins „Landið ogmiðin “. Húsiö opnað kl. 19.00. Borðhald hefst kl. 20.00. Sýning hefst kl. 22.00. Dægurlagacombó Jóns Ólafssonar: Ásgeir Óskarsson, Einar Bragi Bragason, Haraldur Þorsteinsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Jón Ólafsson, Ólafur Hólm Einarsson, Stefán Hjörleifsson. Munið glæsilegustu gistiherbergi landsins Herbergjabókanir s. 688999 FÖSTUDAGINN 7. FEBRÚAR OG LAUGARDAGINN 8. FEBRÚAR Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra í hinum stórkostlegu „The Platters44 Hver man ekki eftir lögum eins og The Great Pretender, Only You, Smoke Gets in Your Eyes, The Magic Touch, Harbor Lights, Enchanted, My Prayer, Twilight Time, You’Il never Know, RedSailsin theSunset, Remember When... o.fl. ISLAND Staður með stíl DV Báðar hendur ingeftirslys John Thompson, unglingur í Robbinsdale í Minnesota, varð fyrir því slysi um helgina að missa báðar hendur þar sem hann var einn viö vinnu á búi foreldra sinna. Þrátt fyrir slysið náði John að hringja á sjúkrahús með því að bíta í blýant og snúa skífimni á símanum með honum. Hann komst því vonum fyrr undir læknishendur og tókst að græöa báðar hendurnar á aftur. Læknar segja þó að nokkur tími líðí áður en séð verður hvort aö- gerðin hefur heppnast. Ákveðið er að gera aðra aðgerð á höndun- um áður en á það reynir hvort í þeim er nokkur máttur. Meðan John beið eftir sjúkra- bilnum settist hann í baökariö til að ata ekki allt út í blóði. Hann sagðist helst hafa óttast að heim- ilishundurinn rændi höndunum áður en hjálp bærist. Sektuðfyrirað gangaum með brjóstinber Kanadíska kvenréttindakonan Gwen Jacob hefur verið sektuð um fiögur þúsund krónur vegna þess að hún gekk um á almanna- færi með brjóstin ber á heitum sólskinsdegi í sumar. Gwen vildi með þessu leggja áherslu á rétt kvenna til að fækka fótum til jaftis við karla. Hiti var yfir þrjátíu stig þegar Gwen framdi afbrot sitt og fjöldi karla á ferli utan dyra ber aö of- an. Dómarinn sagöi aö ef Gwen héldi að brjóst karla og kvenna væru það sama þá lifði hún aug- ljóslega ekkií sama heimi og aðr- ir menn. Gwen hefur heitið því að láta dóminn sem vind um eyru þjóta og afklæðast að ofan hve- nær sem veöur leyfir. Lækna gæludýr meðkrabba- mein á almenn- ingssjúkrahúsi Læknar við konunglega sjúkra- húsið í Bath á Englandi ætla að opna krabbameinsdeildina fyrir aögerðir á gæludýrum. Ákvörð- un þessi hefur vakið mikla reiði og tejja andmælendur hugmynd- arinnar að um sé að ræða vita- veröa sóun á almannafé. Sjúkrahússtjómin er á ööru máli og heldur því fram aö með þessu móti sé haegt að afla rekstr- arfiár fyrir sjúkrahúsið því að sjálfsögðu verði eigendur gælu- dýranna látnir greiða allan kostnað. Þá verði mannlegir sjúklingar látnir ganp fyrir. Sjúkrahússtjórnin heitir þvi aö fyllsta hreinlætis verði gætt. Þræiuðuúf53 unglingum Sjö fylgismenn sértrúarhóps í Oregon í Bandaríkjunum hafa veriö dæmdir fyrir brot á mann- réttindum vegna illrar meðferðar á unglingum. Fólkið hafði uppi á ungmennunum í fátækrahverf- um Los Angeles og flutti þá til Oregon undir þvi yfirskyni að þjálfa þau til afreka í íþróttum. Ein stúlka úr hópnum lést en öll sættu börnin haröræði og voru nær dauða en lífi þegar íþróttaæfingamar voru stöðvað- ar. Upphaflega vom sjömenning- arnir ákærðir fyrir þrælahald en fallið var frá ákærunni. Hins veg- ar þótti mannréttindabrotið aug- fióst. Fólkið fékk tveggja til fiög- urra ára fangelsisdóma. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.