Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Page 30
42
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992.
Fólk í fréttum
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Faxamjöls,
Fáfnisnesi 5, Reykjavík, var í DV-
fréttum sl. laugardag vegna vænt:
anlegrar flskimjölsverksmiöju í Ör-
firisey.
Starfsferill
Gunniaugur fæddist í Reykjavík
29.12.1958 og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann lauk stúdentsprófi frá
VÍ1978 og embættisprófi í lögfræði
við HÍ1986.
Á námsárunum var Gunnlaugur
blaðamaður við DV. Hann var fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1984-88
og hefur verið framkvæmdastjóri
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunn-
ar, síðar Faxamjöls, frá ársbyrjun
1988.
Gunnlaugur var fulltrúi í stúd-
entaráði HI1982-84, var formaður
Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta 1983-84, sat í stjórn SUS
1985-87, siturí stjómfulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík frá
1988, situr í stjórn Samtaka um vest-
ræna samvinnu frá 1987, er einn af
stofnendum Frjálshyggjufélagsins
og hefur setið í stjórn þess um ára-
bil, situr í stjóm Félags fiskimjöls-
verksmiðja frá 1988 og formaður
þess frá 1990, sat í varastjórn
Granda 1985-87 og í aðalstjórn
Granda 1987-88 og situr í stjórn ís-
hússfélags Vestmannaeyja.
Fjölskylda
Kona Gunnlaugs er Anna, f. 12.3.
1960, húsmóðir. Hún er dóttir Júl-
íusar Halldórssonar, forstjóra Bú-
véla í Reykjavík, og Þórunnar
Gröndal húsmóður.
Gunnlaugur og Anna eiga fjórar
dætur. Þær em Þómnn, f. 18.9.1981;
Eila, f. 5.3.1984; Anna Lára, f. 16.12.
1985,ogEdda,f. 15.1.1991.
Gunnlaugur á þrjú systkini. Þau
eru Garðar, f. 11.12.1956, forstjóri
heildverslunarinnar Ritrúnar í
Reykjavík; Hildur, f. 25.6.1965,
verslunarstjóri í Reykjavík; Áslaug,
f. 23.10.1973,nemiviðVÍ.
Foreldrar Gunnlaugs eru Gunn-
laugur Guðmundsson, f. 8.2.1931,
kaupmaður í Reykjavík, og kona
hans, Svanhildur Erla J. Levy, f.
4.9.1937, húsmóðir og verslunar-
maður.
Ætt
Gunnlaugur kaupmaður er sonur
Guðmundar, b. á Vesturhópshólum
í Þverárhreppi, Jónssonar, b. á
Grund og Vesturhópshólum, Jóns-
sonar, b. í Laxárdal í Bæjarhreppi,
Jónssonar. Móðir Jóns á Grund var
Oddhildur, systir Sæmundar, lang-
afa Þórðar, símstöðvarstóra á
Hvammstanga, fóður Sveins, skatt-
stjóra Reykjanesumdæmis, en Þórð-
ur var einnig afi Þórs Magnússonar
þjóðmynjavarðar og Lýðs Björns-
sonar sagnfræðings. Oddhildur var
dóttir Lýðs, hreppstjóra í Hvítuhlíð
í Hrafnadal, Jónssonar, b. í Skál-
holtsvík, bróður Bjöms, prests í
Tröllatungu, langafa Margrétar,
langafa Sighvats Björgvinssonar
heilbrigðisráðherra. Jón var sonur
Hjálmars, prests í Tröllatungu, og
ættföður Tröllatunguættarinnar,
Þorsteinssonar.
Móðir Gunnlaugs var Lára Guð-
mannsdóttir, b. á Krossanesi á
Vatnsnesi, Árnasonar, og Agnar
Eyjólfsdóttur.
Svanhildur Erla er dóttir Jóhann-
esar Levy, oddvita í Hrísakoti, Egg-
ertssonar Levy, hreppstjóra á Ós-
um, Jónssonar, prests á Tjörn á
Vatnsnesi, bróður Þorláks í Vestur-
hópshólum, íöður Jóns, forsætis-
ráðherra og fyrsta formanns Sjálf-
stæðisflokksins. Jón á Tjöm var
sonur Þorláks, prests á Undirfelli,
Stefánssonar, og Sigurbjargar Jóns-
dóttur, prófasts í Steinnesi, Péturs-
sonar. Móðir Eggerts Levy var Ólöf
Eggertsdóttir, hreppstjóra og skálds
á Kolþernumýri í Vesturhópi, Jóns-
sonar. Móðir Jóhannesar Levy var
Ögn Guðmannsdóttir, hálfsystir
Lám í Vesturhópshólum. Móðir
Agnar var Ósk Guðmundsdóttir.
Móðir Svanhildar Erlu er Marzibil
Sigurrós Jenný, systir dr. Jóns Jó-
hannessonar prófessors. Jenný er
dóttir Jóhannesar Péturs, b. í Hrísa-
koti, Jónssonar, Jónssonar, b. í
Syðsta-Hvammi á Vatnsnesi Arn-
bjarnarsonar, stúdents frá Stóra-Ósi
Ámasonar, prests að Bægisá, Tóm-
assonar. Móðir Jennýjar var Guð-
ríður Guðrún Gísladóttir, b. á
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson.
Varmá í Mosfellssveit, Gunnarsson-
ar, b. á Lágafelli, Gíslasonar. Móðir
Gunnars var Ástríður Gunnarsdótt-
ir, hreppstjóra í Hvammi, Einars-
sonar. Móðir Ástríðar var Kristín
Jónsdóttir, yngra, hreppstjóraí
Neðraseli, Bjamasonar, hreppstjóra
og ættfóður Víkingslækjarættarinn-
ar, Halldórssonar. Móðir Guðríðar
Guðrúnar var Guðrún Bjarnadóttir,
b. á Hraðastöðum í Mosfellssveit,
Eiríkssonar.
Afmæli
Iris Jónína Hall
íris Jónína Hall, húsmóðir og starfs-
maður hjá Pósti og síma, Sörlaskjóli
50, Reykjavík, er fimmtug í dag.
Starfsferill
íris Jónína fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp og á Snæfellsnesinu.
Hún lauk gagnfræðaprófi og hefur
stundað margvísleg námskeið við
ýmsa skóla. Auk húsmqðurstarf-
anna hefur íris Jónína lengst af
stundað verslunarstörf og sauma-
skap. Þá er hún frístundamálari og
hefur fengist nokkuð við ljóðagerð.
Fjölskylda
íris Jónína giftist 20.1.1963 Heið-
ari Steinþóri Valdimarssyni, f. 18.8.
1939, trésmíðameistara í Reykjavik.
Hann er sonur Valdimars Friðriks
Sæmundar Óskars Hafliðasonar frá
Bergsholtskoti í Staðarsveit, f. 11.10.
1911, d. 21.9.1970, húsasmíðameist-
ara í Reykjavík, og Ljósunnar Jón-
asdóttur frá Norðfirði, f. 19.4.1915,
d. 28.2.1980, húsmóður.
Foreldrar Valdimars voru Hailiði
Þorsteinsson, b. í Bergsholtskoti í
Staðarsveit, og Steinunn Kristjáns-
dóttir frá Ytra-Lágafelli á Snæfells-
nesi.
Foreldrar Ljósunnar vom Jónas
Þorteinsson, skáld frá Norðfirði, og
Jóhanna María Jóhannsdóttir frá
Breiðdal.
Böm írisar Jónínu og Heiðars
Steinþórs em íris Hlín Heiðarsdótt-
ir, f. 11.9.1962, húsmóðir í Reykja-
vík, gift Sævari Líndal Haukssyni,
f. 21.1.1960, sendibílstjóra í Reykja-
vík og eru synir þeirra Freyr Lín-
dal, f. 19.6.1982, Hlynur Daði, f. 23.1.
1988 og Arnar Heiðar, f. 27.11.1990;
Agnes Lind Heiðarsdóttir, f. 29.12.
1967, nemi við Garöyrkjuskóla ríkis:
ins, í sambýli með Ólafi Hjalta Erl-
ingssyni, f. 10.8.1965, nema við
Bændaskólann á Hvanneyri; Valdi-
mar Fjölnir Heiðarsson, f. 19.3.1969,
nemi í matreiðslu við Hótel- og veit-
ingaskólaíslands.
Systkini írisar Jónínu eru Örnólf-
ur Hall, f. 2.12.1936, arkitekt í
Reykjavík, kvæntur Ásthildi Kjart-
ansdóttur, f. 14.3.1940, kennara;
Ragna Jóna, f. 3.2.1945, húsmóðir í
Reykjavík, gift Eggert Óskarssyni,
f. 1.8.1943, borgardómara í Reykja-
vík; Þórður Hall, f. 8.10.1949, mynd-
listarmaður og kennari í Reykjavík,
kvæntur Þorbjörgu Þórðardóttur, f.
1.7.1949veflistakonu.
Foreldrar írisar Jónínu: Ragnar
Hall frá Þingeyri við Dýrafjörð, f.
1.9.1905, d. 20.10.1989, málari og Ust-
málari, og Berta Hansína Guðjóns-
dóttir frá Hofsstöðum í Helgafells-
sveit, f. 15.4.1914, húsmóðir og
hannyrðakona.
Ætt
Ragnar var sonur Jónasar Thor-
steinssonar Hall, faktors á Flateyri
og ísafirði og síðar verslunarstjóra
á Þingeyri, og Jónu Ingibjargar Örn-
ólfsdóttur frá ísafirði.
Iris Jónína Hall.
Berta Hansína er dóttir Guðjóns
Jóhannssonar, skipstjóra og bónda,
lengst af á Hofsstöðum í Helgafells-
sveit á Snæfellsnesi, og Jónínu Þor-
bjargar Árnadóttur frá Miklaholti í
Miklaholtshreppi en langafi hennar
var Þorleifur, læknir í Bjamarhöfn,
Þorleifsson.
Meiming
Tónleikar Hljóm-
leikafélagsins
Tónleikar vom í gærkvöldi í Hraunbergi 2, húsi
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Þar stóð
Hljómleikafélagið fyrir flutningi verka eftir Jóhann
Sebastian Bach og Franz Schubert. Ekki fylgdu í efnis-
skrá neinar upplýsingar um Hljómleikafélagið utan
að hljóðfæraleikarar vora Robyn Koh, semball, Guöný
Guðmundsdóttir, fiðla, Zbigniew Dubik, fiðla, Júlíana
Kjartansdóttir, fiðla, Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla,
Richard Talkowsky, selló, Dean Ferrell, kontrabassi,
Einar Jóhannesson, klarínett, Jósef Ognibene, hom,
og Hafsteinn Guðmundsson, fagott.
Sembalkonsert í D dúr er þekktari sem fiðlukonsert
í E dúr. Raunar em flestir sembalkonsertar Bach
umritanir á fiðlukonsertum og þótti það sjálfsagt á
átjándu öld að nýta góðar tónhugmyndir með því að
skrifa þær út fyrir fleiri en eina hljóöfæraskipan. Kon-
sertinn í D dúr ber þess engin merki að vera upphaf-
lega hugsaður fyrir annað sólóhljóðfæri og hljómar
með ágætum á sembalinn. Einfaldur strengjakvintett
sá um undirleikinn í stað strengjahljómsveitar og var
það skemmtileg tilbreyting að heyra verkið þannig.
Flutningurinn á þessu verki var í heild góður. Einleik-
ari var Robin Koh og gerði hún margt mjög fallega
þótt ekki væri leikur hennar snurðulaus. Það var eink-
um hljóðfallið sem var stundum losaralegt og fyrir
kom að undirleikarar áttu í erfiðleikum með að fylgja
einleikara í gegnum hrynræna rykki og skrikki.
Adagio kaflinn var sá sem best kom út og fékk heild-
stæðasta túlkun.
Oktett Schuberts er fjörlegt verk og minnir töluvert
á svítu eða langa kvöldlokku. Hann er langur og efnis-
ríkur og reynir töluvert á hljóðfæraleikarana, bæði
hvem fyrir sig en einkum þó í samleik. Ýmsar fallegar
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
laglínur koma fyrir í verkinu, eins og við mátti búast
fijá Schubert, en áhrif frá Beethoven em einnig áber-
andi á köflurn. Verkið er í lengsta lagi fyrir hlustendur
á þotuöld en stendur samt vel fyrir sínu.
Flutningur Hljómleikafélagsins var með ágætum.
Spilagleði var upp á það besta og ýmis tilþrif sýnd hér
og þar. Verður ekki annað sagt en Hljómleikafélagið
byrji feril sinn vel og boða. þessir tónleikar gott um
framhaldið.
SigríðúrGuðjónsdóttir, Birgir J. Dagfinnsson,
Hringbraut 58, Reykjavík. Víkurströnd 10, Seltjarnamesi.
Þórarinn Guðjónsson, Selma Samúelsdóttir,
Ásavegi 30, Vestmannaeyjum. Steinstúni, Árneshreppi.
Ingólfur Baldvinsson, Vilborg Vilhjálmsdóttir,
Naustum 3, Akureyri. Þrándarstöðum, Eiöahreppi.
Danheiður Daníelsdóttir, Jón J. Hjartarson,
Bjarmalandi, Grindavík. Skerplugötu 9, Reykjavík.
Edda S. Ágústsdöttir,
________________________________ Látraströnd42,Seltjamarnesi.
7A ára KjellArneJonnyHaren,
f U qi cl______________________ Sundstræti22, ísafirði.
Elin Margrét Kaaber, PéturNjörðurÓhtóon,
Snekkjuvogi 13, Reykjavík. Stjomugrof 18, Reykjavik.
Svava Efíasdóttir Stemgnmur Dagbjartsson,
VíöigerðkMosMlsbæ. Hagaseli5,Reykjavík.
Sigurbjörg Stefánsdóttir,
Strandaseli7, Reykjavík.
40 ára
HörðurSigurðsson,
Kár8nesbraut53, Kópavogi.
Páíl Cecilsson,
Hrannarstíg 12, Grundarfirði.
Halldór Ólafsson,
Kópnesbraut 11, Hólmavík.
Jenný AnnaBaldursdóttir,
Kaplaskjólsvegi 9, Reykjavík.
Agnes Adolfsdóttir,
Norðurvöllum 56, Keflavik.
Jón Magnússon,
Fannafold 27, Reykjavik.
Snœbjörn Geir Viggósson,
Móatúni 8, Tálknafirði.
Svavar Pétursson,
Bræðraborg, HólmavíkurhreppL