Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Side 32
44
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992.
Menning
Ameríska martröðin
Sam Shepard lýsir iöulega í leikritum sínum tilfmn-
ingum og tilveru fólks sem er fangað í sinni eigin eymd
og ratar ekki út. Tilraunir þess til aö brjóta upp mynst-
ur niðurlægingar og kúgunar eru ómarkvissar og
minna á máttvana vængjablak.
Sjálfur kynntist hann af eigin raun rótlausri æsku,
þar sem íjölskyldan fluttist stööugt á milli herstööva
því faðir hans var atvinnuhermaöur. Endurhljóm frá
þeirri reynslu má finna víða í verkum hans.
Stundum rætist ameríski draumurinn bókstaflega.
Sam Shepard hefur hlotiö frægð hans og frama og
nafn hans er þekkt um víöa veröld.
Fyrir utan leikrit hefur hann skrifað nokkur kvik-
myndahandrit og þar aö auki bæði leikstýrir hann og
leikur sjálfur í kvikmyndum og á sviði. Og þessu fylg-
ir svo það að sjálfsögðu að hann veit ekki lengur aura
sinna tal.
En í hrópandi mótsögn við ameríska drauminn, er
hin hliðin á silfurdollaranum: Ameríska martröðin.
Það er hún, sem Shepard lýsir svo oft í verkum sín-
um og í Blóði hinnar sveltandi stéttar er dregin upp
kaidranaleg mynd af tilveru fjölskyldu einnar þar sem
eymd og vonleysi ræður ríkjum og allt er á hraðri leið
norður og niður.
Heimilisfaðirinn er dæmigeröur drykkjurútur,
sjálfselskur og ofbeldisgjam. Hann er orðinn hálf-
sturlaður og kúgar fjölskylduna. Það er helst að dóttir-
in á heimilinu þori eitthvað í hann. Hún er „gáfnaljós-
ið“ í fjölskyldunni og ekki laust við að hin beri fyrir
henni óttablandna virðingu. Enda er hún grimmilega
kjaftfor og hvöss þegar henni þykir ástæða til.
Sonurinn læðist meira með veggjum, þver og fúll og
tekur á sig hlutverk þrælsins. Hann gengur í öll verk
og reynir eitthvað að halda í horfinu á búinu þó að
lítið gangi. Karhnn er þrælfastur í klóm óprúttinna
lánardrottna og reyndar búinn að drekka út jörðina
en það veit frúin ekki og ætlar sér að selja allt drasUð
á bak við hann.
En allt þetta brambolt kemur fyrir Utið. Örlög þeirra
em fyrirfram gefm. Ameríska martröðin í hnotskurn.
Það þarf satt að segja ekkert smáræðis hugrekki til
þess að ráðast í það að setja upp verk eins og Blóð
hinnar sveltandi stéttar hjá hópi ungs áhugafolks með
Utla sviðsreynslu. Átökin era á stómm skala, tilfmn-
ingasveiflumar yfirþyrmandi og vonleysið botnlaust.
En stökkið út í óvissuna tekst vonum framar hjá
Atriði úr „Blóð hinnar sveltandi stéttar", sem Leikfé-
lag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir.
leikhópnum og í heild er þetta óvenjulega „fagmann-
lega“ unnin sýning áhugaíeikara.
Þar vegur þyngst framlag leikstjórans, Viðars Egg-
ertssonar, sem hefur mótað óreynda áhugaleikara og
tekist að ná fram merkilega sannferðugum persónum.
Þau Erlendur Pálsson og Huld Óskarsdóttir leika af-
sprengin, Wesley og Emmu, en Halldór Magnússon
og Fríður Hannesdóttir hjónin Weston og EUu. Radd-
beitingin var reyndar stundum fuUyfirdrifin í þessu
Utla rými og ofviða svo lítt þjálfuðu fólki en fyrir utan
þann skavanka var lögö áhersla á heiUega pérsónu-
sköpun og samhengi í þróun þessara hlutverka.
Þegar upp var staðið mátti vel sætta sig við frammi-
stöðuna og sýningin í heild hafði í sér dálítinn neista,
sem sjcddgæft er að finna hjá sambærilegum hópum,
enda greinilega gengið til verks af fullri alvöra.
Nokkrir aðrir leikarar komu fram í minni hlutverk-
um, sem gáfu ekki tUefni til stórra átaka utan hlut-
verk lögfræðingsins Taylors, sem ætlar að hlunnfara
fiölskylduna. Erlendur Pálsson fór þokkalega með það.
Þýðing verksins hefur tekist með ágætum, orðfærið
er nútímalegt, kaldhamrað og sterkt og þeir Ólafur
G. Haraldsson og Jón Karl Helgason hafa þama unnið
vandasamt verk mjög vel.
Þaö er Uka afbragðs hugmynd, að nýta hol Bæjar-
bíós fyrir „lítið svið“, þar sem mikfi nánd skapast og
hrá sviðsmynd nýtur sín tU fulls. Bæði búningar og
sviðsmunir eru vel valdir og setja verkinu stað og tíma.
Leiklist
Auður Eydal
Umhverfið skapar ágæta stemningu og þrátt fyrir
lágmarks tækniaðstöðu tókst mæta vel að lýsa „svið-
ið“ (það er leikið eftir endilöngu svæðinu) og ná fram
nöturlegri umgjörð.
ísskápurinn, sem stendur fyrir enda eldhússins þar
sem leikurinn fer fram, verður eins konar tákn um
aðstæður fiölskyldunnar. í staö þess að vera forðabúr
og allsnægtaskápur er hann oftast tómur, eða þá fyllt-
ur af iUþefiandi kálhausum sem varla teljast manna-
matur.
Sífellt er verið að opna skápinn og gá að mat þó að
sú leit sé oftast til lítUs og stundum virðast fiölskyldu-
meðlimimir hafa betra og persónulegra samband við
skápgarminn en hver við annan. Út úr skápnum berst
draugaleg birta, sem boöar vá og þann dag sem eitt-
hvað ætilegt er þar að finna, er aUt um seinan.
í heUd er sýning L.H. metnaðarfuU sýning áhuga-
fólks, sem greinilega hefur sett markið hátt í þetta
sinn. Með samstUltum kröftum og mikiUi vinnu hefur
líka náðst óvenjulega góður árangur.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir í Holinu (Bæjarbiói):
BLÓÐ HINNAR SVELTANDI STÉTTAR
Höfundur: Sam Shepard.
Þýðing: Ólafur G. Haraldsson, Jón Kari Helgason.
Leikstjóri: Viðar Eggertsson.
Leikmynd: Kristín Reynisdóttir, Viðar Eggertsson, Egill Ingi-
bergsson.
Búningar: Sigurbjörg Magnúsdóttir.
Lýsing: Egill Ingibergsson.
Andlát
Sigriður Hallgrimsdóttir Bogahlíð 15,
er látin.
Bárður Olgeirsson, Vallarbraut 2
Njarðvík, lést á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík 17. janúar.
Leiðrétting
í frétt um Böm náttúrunnar, sem
birtist á laugardaginn, var haft eftir
Friðriki Þór Friðrikssyni, leikstjóra
myndarinnar, að myndin hefði feng-
ið hæstu einkunn hjá öUum þeim
dómnefndarmönnum sem um hana
fiöUuðu. Þama er ekki rétt farið
með. Friðrik Þór sagðist hafa heyrt
að fimm dómnefndarmenn af þrjátíu,
sem hana sáu, hefðu gefið myndinni
tíu í einkunn. DV biðst velviröingar
á þessum mistökum.
Jarðarfarir
Axel HalIgrímsson,Skúlagötu 7,
Borgamesi, verður jarðsunginn frá
Borgameskirkju þriðjudaginn 21.
janúar kl. 14.
Ragnhildur Jórunn Þórðardóttir
hjúkmnarkona, Laugarásvegi 69,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
þriðjudaginn 21. janúar kl. 15.
Kristín Þórðardóttir, Ægisíðu 86,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 21. jan-
úar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á heimahlynn-
ingu Krabbameinsfélagsins.
Margrét Rebekka Híramsdóttir, sem
andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði,
laugardaginn 11. janúar verður
jarðsungin þriðjudaginn 21. janúar
kl. 13.30 frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði.
Páll Kristinsson, Áslandi 12, Mos-
felssbæ, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. jan-
úar kl. 15.
Ásbjörg Þorkelsdóttir húsfreyja,
Sauðhaga, Vallahreppi, verður jarð-
sungin frá Egilsstaðakirkju mánu-
daginn 20. janúar kl. 14. Jarðsett
verður í Vallanesi. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélagið. Ásbjörg fæddist 28.
apríl 1929. Á ámnum 1948-1949
kynntist hún Birni Sigurðssyni frá
Sauðhaga á Völlum og gengu þau í
hjónaband 3. ágúst 1950 og eignuðust
þrjár dætur.
á næsta sölustað • Askriftarsimi 62-60-10
ER K0MINN TÍMI Á SVALIRNAR ÞÍNAR?
Erum byrjaöir aftur meðhöndlun með hinum frábæru
efnum frá PACE, litaval.
Pantið tímanlega.
Visa / Euro raðgreiöslur
TÝRHF.
S. 641923 - 11715
Myndgáta
\*AUTTtíóS^MUTTyÓSl}
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ERLJÓN
eftir Vigdisi Grímsdóttur
Tónlist: Lárus Grimsson.
Lýsing: Björn B. Guömundsson.
Leikmynd og búningar: Elin Edda
Arnadóttir.
Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson.
Leikarar: Guörún Gisladóttir, Bryn-
dis Petra Bragadóttir, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Þórarinn Eyfjörð, Pálml Gests-
son, Hjálmar Hjálmarsson og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir.
Frumsýning föstud. 24. jan.
kf. 20.30.
Uppselt.
2. sýn. sunnud. 26. jan. kl. 20.30.
3. sýn. föstud. 31. jan. kl. 20.30.
4. sýn. laugard. 1. feb. kl. 20.30.
RÓMEÓ OGJÚLÍA
eftir William Shakespeare
Fimmtud. 23. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 26. jan. kl. 20.00.
Laugard. 1. febr. kl. 20.00.
Laugard. 8. febr. kl. 20.00.
eftir Paul Osborn
Laugard. 25. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 2. febr. kl. 20.00.
Föstud. 7. febr. kl. 20.00.
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
M.BUTTERFLY
eftir David Henry Hwang
Föstud. 24. jan. kl. 20.00.
Föstud. 31. jan. kl. 20.00.
Fimmtud. 6. febr. kl. 20.00.
LITLA SVIÐIÐ
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Miðvikud. 22. jan. ki. 20.30.
Uppselt.
Föstud. 24. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
Laugard. 25. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
UPPSELT ER Á ALLAR SÝNINGAR
Á KÆRU JELENU TIL 9. FEBR.
MIÐAR Á KÆRU JELENU SÆKIST
VIKU FYRIR SÝNINGU ELLA SELDIR
ÖÐRUM.
ATHUGIÐ AÐ EKKIER UNNT AD
HLEYPA GESTUMINN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18
alla daga nema mánudaga og
fram að sýningum sýningar-
dagana. Auk þess er tekið á
móti pöntunum i sima frá kl. 10
alla virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla: Leikhúsmiði og
þríréttuð máltið öll sýningar-
kvöld á stóra sviðinu.
Borðpantanir i
miðasölu.
Leikhúskjallarinn.