Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992.
Uflönd
Stjómarflokk-
ana í Færeyjum
greiniráum
spamaðarieiðir
JensDatogaard, DV, Eæreyjum:
Stjómarflokkamir í Færeyjum,
Jafnaðarflokkurinn og Fólka-
flokkurinn, hafa enn ekki komið
sér saman um leiðir til að draga
úr ríkisútgjöldum.
Jafiiaðarmenn vilja að settur
verði hærri skattur á vaxtatekjur
en það vflja Fólkaflokksmenn
ekki nema laun í landinu verði
lækkuð um sex prósent.
Flokkamir em þó sammála um
þaö að halda stjómarsamstarfinu
áftam.
Jafnaðarflokkurinn hélt lands-
fund sinn um síöustu helgi og var
Atli Dam lögmaður endurkjörinn
í formannssætiö.
Salman Rushdie
áframifelumog
skrifarnýjabók
Breski rithöfundurinn Salman
Rushdie skýrði frá því á niiöviku-
dag að hann ætlaði að skrifa nýja
skáidsögu. Rushdie hefur verið í
felum í rúm þtjú ár vegna dauða-
dóms sem íranir kváðu yfir hon-
um íyrir skáldsöguna Söngva sat-
ans sem þeir segja guðlast.
Nýja skáldsagan á aö heita Síð-
asta andvarp márans og stefniI•
höfundurinn aö því að Ijúka við
hana í árslok 1993. Þetta er sam-
tímasaga um það hvemig við öll
verðum að hugsa okkar gang upp
ánýtt "®uter
Bardagamlr í Bosníu:
Vopnahlé hugsan
Tiltölulega rólegt var í Sargjevo,
höfuðborg Bosníu, í gærkvöldi en
skriðdrekaárásir héldu áfram á
íslömsk þorp rétt fyrir utan borgina.
Sýndi sjónvarpið í Sarajevo myndir
af miðborginni þar sem lík lágu út
um allt, en vopnahlé milh íslama og
Serba, sem eru á móti sjálfstæði Bos-
níu, var rofið innan sólarhrings eftir
að því var komið á.
Síðdegis í gær tókst Sameinuðu
þjóðunum að koma á öðru vopnahléi
en það var rofið aðeins nokkrum
mínútum síðar er íslamar gerðu árás
á vígi Serba nálægt flugvellinum.
Gert var ráð fyrir að reynt yrði enn
að stilla til friðar síöar í dag.
Bardagamir síðasta sólarhring
hafa verið þeir verstu í hálfan mán-
uð. Að sögn útvarpsins í Belgrad þá
vora 50 íslamstrúarmenn handtekn-
ir þegar þeir réðust á borgina Ihdza,
sem er á valdi Serba. Þegar hafði
verið sagt að 40 íslamar hefðu verið
drepnir eða særðir. Serbar hafa haft
aðgang að vopnabirgðum júgóslav-
neska hersins og það hefur gefið
þeim hernaðarlega yfirburði.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
reynir nú sitt ýtrasta til að finna
Óhugnanlegur friður ríkir nú í Sarajevo, höfuðborg Bosníu, eftir bardagana þar siðustu daga. lausn á þessu máli og hefur lagt til
símamynd Reuter að um 40.000 bosnískir Serbar verði
afvopnaðir. Reuter
legt síðar í dag
£404 UM LAfiDIÐ
Bifreiðar og landbúnaðarvéBar
verða með sýnfingu á Suður- og Austurlandi:
Laugardagfinn 16. maí:
Neskaupstaður, við SHELL-skálann kl. 10.00-13.00
Eskifjörður, við SHELL-skálann kl. 14.00-15.30
Reyðarfjörður, við SHELL-skálann kl. 16.00-17.30
Sunnudaginn 17. maí:
Seyðisfjörður, við Herðubreið kl. 11,00-13.30
Egiisstaðir, við söiuskála Kaupfélagsins kl. 14.30-17.00
"£*BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
s.tí“íí\ Ármúla 13108 Reykjavik Simar 68 12 00 & 312 36
Belgíukonungur
hálshöggvinn
Jan Buquoy, belgískur framúr-
stefnuhstamaöur, hefur boðið
ekki ómerkara fólki en sjálfum
páfanum í Róm, belgíska forsæt-
isráðherranum og forseta Zaire,
svo að dæmi séu tekin, til að
verða vitni að aftöku Belgíukon-
ungs á aðaltorgi Brassels síðar í
dag.
Reyndar kæmist listamaðurinn
aldrei upp með aö taka konung-
inn af lífi svo aö hann hefur þess
í stað keypt brjóstmyndastyttu
úr plasti af konunginum og eftir-
líkingu af böðulsöxi frá 16. öld.
„Ef ég væri hann, þá myndi ég
koma. Líf hans er hvort sem er
svo leiðinlegt og dauði hans yrði
samkvæmt gamalii siðvenju.
Hann er þegar lifandi lík,“ sagöi
listamaðurinn um Baudouin kon-
ung.
Bandaríkin
áeftirígasða-
samkeppni
Bandarísk fyrirtæki reyna nú
sitt besta til að auka gæði vara
sinna en samkvæmt nýlegri
könnun eiga þau enn langt í land
með að hafa tærnar þar sem sam-
keppnisaöilar þeirra hafa hæl-
ana.
í rannsókninni kom fram að 60
prósent japanskra og þýskra
tölvuframleiðenda taka mikið til-
ht til kvartana notenda en aðeins
30 prósent bandarískra fyrir-
tækja telja þetta mikilvægt atriöi.
í bandarískum bílaiönaði era það
aðeins 40 prósent starfsmanna
sem sækja reglulega fundi þar
sem rætt era um gæði vörunnar,
en í Japan er þessi tala 60 prósent.
Er talið nauösynlegt fyrir
bandarísk fyrirtæki að bæta úr
þessum atriðum ef þau ætla sér
að ná sterkri stöðu á heimsmark-
aðnum. Reuter