Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992.
Spumingin
Hvað finnst þér um vík-
ingasveit lögreglunnar?
Ásrún Björgvinsdóttir: Mér finnst
allt í lagi með hana. Hún kemur að
góðum notum.
Gunnar Steinsson: Víkingasveitin er
bara ágæt, allavega miðað við þaö
sem maður hefur séð af henni.
Anna María Gunnarsdóttir: Víkinga-
sveit lögreglunnar á alveg rétt á sér.
Steinunn Gunnarsdóttir: Mér finnst
hún bara vera mjög góð.
Ómar Valdimarsson: Víkingasveit-
armenn eru mjög ábúðarmiklir og
margir.
Sigurður örn Arnarson: Víkinga-
sveitin er ansi sniðug.
Lesendur
Gipsy Kings
- stórtónleikar með sex?
Páll Ólafsson skrifar:
Listahátíð 1992 hefst nú í lok mán-
aðarins. Reynt verður að tjalda ýmsu
til sem mætti vera áhugavert. Oft
hefur líka vel tekist til á þessu sviði
hér. Nú í ár er auglýst að sú heims-
fræga hljómsveit „Gipsy Kings“
komi hingað og leiki í Laugardals-
höll þann 27. maí - tveimur dögum
fyrir hina raunverulegu opnun
Listahátíðar. Þetta er svo sem gott
og blessaö en það vakna upp ýmsar
efasemdir hjá mér og áreiðanlega
mörgum öðrum sem þekkja til þess-
arar stórgóðu hljómsveitar sem er
einstæð að því leyti að hljóðfæraleik-
arar nota aUir gítara (utan tromu-
og hljómborðsleikari).
í fréttatilkynningu um hljómsveit-
ina, t.d. í Mbl. sl. laugardag, segir
m.a. „Listapopp á Listahátíð 1992 er
að þessu sinni fólgið í stórtónleikum
hljómsveitarinnar Gipsy Kings í
Laugardalshöll miðvikudaginn 27.
maí.“ - Og ennfremur: „Gipsy Kings
er skipuð sex herramönnum að
spænskum uppruna..." Þetta er
nokkuð losaraleg kynning svo ekki
sé meira sagt. - Eg veit t.d. ekki bet-
ur en hljómsveitina skipi 11 manns
samtals. - Hljómsveitin Gipsy Kings
heldur a.m.k. aldrei hljómleika með
5 eða 6 hljóðfæraleikurum. Það væri
þá líka engin hljómsveit, heldur ein-
hver „grúppa á fátæktarmörkunum"
eins og einhver hefur komist að oröi
um allar þessar litlu fátækragrúppur
innlendar og erlendar. - Eða hvemig
er hægt að auglýsa „stórtónleika"
hljómsveitar með sex manns?
Mér þykir líka að heldur lítið sé
gert út komu þessarar heimsfrægu
hljómsveitar með þvi að mionast
hvergi á hana í bæklingi Listahátíð-
ar, hönnuðum af íslensku auglýs-
ingastofunni hf. Reyndar er ekki
hægt að lesa fyrirsagnir þær sem í
bæklingnum eru settar með hvítu
letri í svartan ramma, svo mikil
hörmung er letrið og uppsetningin. -
Að því frátöldu virðist mér talsvert
brogað við heimsókn Gipsy Kings -
eða hluta hljómsveitarinnar, eins og
ég vil meina - ef ekki koma nema 6
hljóðfæraleikarar og ekki eðlilegt að
verðleggia miða á slíka hljómleika á
rúmar 4 þúsund krónur.
,Veit ekki betur en hljómsveitina skipi 11 manns,“ segir bréfritari.
Knattspyrnuleikir - Áskorun til fjölmiðla
Ronald Kristjánsson skrifar;
Laugardaginn 23. maí nk. hefst 81.
íslandsmótið í knattspymu. Ég er
orðinn nokkuö óhress með þá þróun
eða öllu heldur öfugþróun sem hefur
einkennt knattspymuna hér sl. ár. -
Ég skora því á fjölmiðlana að dæma
af meiri hörku línuverði og dómara
fyrir hlutdræga og lélega dómgæslu
- og ekki slá af í þeim efnum.
Það er til skammar hvemig dómar-
ar t.d. hafa komist upp með fáránlega
dómgæslu undanfarin ár. Því miður
hafa erlendir dómarar ekki verið til
fyrirmyndar í þeim efnum og á ég
þá við erlenda dómara sem hingað
hafa komið til að dæma leiki. - Ég
tel að við íslendingar ættum aö reyna
að vera fyrirmynd fremur en að apa
eftir erlendan ósið.
KSÍ og Dómarasambandið ættu að
fylgjast betur með hvernig dómgæslu
er háttað og ef dómarar verða upp-
vísir um ofannefnd brot á að sekta
þá og banna þeim að dæma um hríð
(eins konar leikbann). Oft vill brenna
við að dómarar dæma eftir líkum eða
þykjast ekki sjá alvarleg brot. - Dóm-
arar ættu einnig að hætta að bera
svona mikla virðingu fyrir „gömlu
kempunum" svokölluðu og frekar,
vegna leikreynslu þeirra, aö dæma
þá harðar en aðra. Það er of áber-
andi að reyndir, frægir leikmenn
sleppa með tiltal en hinir -reynslu-
minni fá e.t.v. gult spjald. Ég nefni
engin nöfn en þessu þarf að breyta.
Knattspyman á að vera friðsamleg
barátta innan þeirra marka sem við
nefnum íþróttir en ekki blóðugur
hildarleikur. Einkunnarorð VALS
lýsa því best hvemig drengileg knatt-
spyrna á að vera og íþróttir al-
mennt: „Látið kappið aldrei bera feg-
urðina ofurliði". Og sem túlka mætti
svo að fagna beri sigurvegara og
þakka mótheija því án hans væri
sigurinn ekki mögulegur.
Áhorfendur og stuðningsmenn lið-
anna verða einnig að leggja sitt af
mörkum og ganga þrifalegar um
íþróttasvæðin. Bréfamsl og gosdósir
er alltof algeng og ófögur sjón eftir
leiki hér. Hér þarf betri umgengni
og bætt hugarfar. Reynum einu sinni
aö vera fyrirmynd í góðum siðum en
ekki apa eftir ósiði annarra. - Óska
ég öllum knattspymufélögum 1.
deildar velgengni í sumar og áhorf-
endum og stuðningsmönnum góðrar
skemmtunar.
Björgunarþyrlu sem ódýrast
Sigurður Gíslason skrifar:
Nú hefur ríkisstjómin samþykkt
að fela dómsmálaráðherra og fjár-
málaráðherra aö leita eftir samning-
um um kaup á björgunarþyrlu. Áður
hafði ráðgjafahópur skilað áliti sínu
um val á björgunarþyrlu og þeir
kostir nefndir sem til greina kæmu
að áliti þessa hóps. - Einn af þessum
kostum er sá að taka upp viðræöur
við bandarísk stjómvöld um að fá
þyrlu keypta í gegnum sölukerfi
bandaríska hersins.
Hefur nú verið skipuð þriggja
manna viðræðunefnd frá dóms- og
fjármálaráðuneytinu auk fufitrúa frá
Landhelgisgæslunni til að ræða frek-
ar við bandaríska aðila um framhald
málsins. - Ég tel þetta vera eitt besta
innleggið í umræðuna í björgunar-
þyrlumálinu sem fram hefur komið
hingað til. Það er alveg sjálfsagt að
mínu áliti að reyna t.d. að kaupa
DV áskiíur sér rétt
til að stytta aðsend
lesendabréf.
„Einhvers konar samnýting á björgunarþyrlu með varnarliðinu er besta
lausnin," segir m.a. i bréfinu. DV-mynd S
sams konar þyrlu og vamarliðið hér
á landi notar, ekki síst með tilliti til
varahluta og viðhalds þyrlunnar.
Ný þyrla er mjög dýr kostur og
þótt einhverjir leggi áherslu á að
þyrluna verði að kaupa nýja er það
ekki spuming að ný þyrla er mun
dýrari og getur bmgðið til beggja
vona um notagildi hennar, í þeim til-
vikum ef varahluti vantar í lengri
eða skemmri tíma. - Einhvers konar
samnýting á björgunarþyrlu með
vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli
ætti að vera besta lausnin. Og þó
umfram aUt að fá aðra björgunar-
þyrlu sem ódýrast.
Hunduriiini
bflnumbeið
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Ég fór í Laugarásbíó 24. apríl
sl. og lagði bílnum minum við
hliöina á Subaru station biireið.
Númer og útlit bílsins lagði ég
sérstaklega á minnið þar sem í
bifreiðinni var innilokaður stór
golden retriever hundur. Úti var
kalsaveður og hávaðarok og bíll-
inn minn var fljótur að kólna eft-
ir að ég slökkti á véiinni.
Klukkan var 18.45. Þegar ég
kom út var kl. 20.48. Ég gekk aö
bíinum rnínum en ætlaði ég ekki
aö trúa mínum eigin augum þvi
hundurinn var enn innilokaöur i
bilnum. - Ég get ekki að því gert
en þetta finnst mér forkastanleg
vanræksla eigandans. Atvik
þetta kærði ég til lögreglu og hvet
fólk til að gera slíkt hið sama þvi
það er borgaraleg skyida okkar
er við sjáum brotið á saklausum
málleysingjum.
Tóbakiðfrjálst
-sporíréttaátt
F.Ó.P. hringdi:
Ég fagna þeirri ákvörðun að
leysa tóbaksvörur undan einok-
unarverslun í landinu. Þetta er
spor i rétta átt. Nú er bara að sigr-
ast á síðasta hjallanum - áfengið
undan einokunarþjónustunni og
þá lýkur einum leíðinlegasta
kafla í cinokunverslunar hér á
landi.
Nubetjenes...
Sigfús hringdi:
I sjónvarpsfréttum í gærkvöidi
(þriðjud. 12. maí) var enn rætt
um Lánasjóð námsmanna og
umræður um hann á Alþingi. A
einum stað í yfirreið sjónvarps-
myndavélarinnar birtist skilti
með rauðum stöfum þar sem
stóð: Nu betjenes 39. - Mér sýnd-
ist þetta vera frá afgreiðslu í
Lánasjóði islenskra námsmanna.
Ef svona skilti er við lýði hér á
opinberri stofnun er hræsnin hjá
Iúnu opinbera mikil þegar krafist
er þýöingar á sérhverri „hungur-
lús“ sem fram kemur í sjónvarpi
af erlendum vettvangi. Skiltiö
„Nu betjenes...“ er dæmi um
flísina og bjálkann.
Einar skrifar:
Ég vil bynja á að þakka DV fyr-
ir ágæta nýlega umfjöllun um
tónlist á veitingastöðum og í
símakerfi fyrirtækja. - í mörgum
tilvikum gengur þetta út i öfgar.
í kvikroyndahúsum borgarimiar
er tónlíst líka alltof hátt stillt og
það svo að hún spilhr oft beinlín-
is eftii myndarinnar.
Tvö kvikmyndahús eru hvað
verst aö þessu ieyti, að mínu
mati, Regnboginn og Stjömubíó.
Á kvikmyndinni Hook er Ld. tón-
listLn svo hátt stillt að manni ligg-
ur við að ganga út vegna hávað-
ans. Það er raál aö linni þessari
yfirþyrmandi uppáþrengingu,
sem hávaðatónlist er orðin, og
það á óliklegustu stöðum. - Eins
og t.d. í símtækjum fyrirtækja,
sem viðskiptavinir veröa að
sætta sig við að hlýöa á hvort sem
þeim líkar betur eða verr.
Fjölskylda án
þvottavélar
G.G. skrifar:
Fjölskyldu eina sem komin er
hingaö til lands frá Austur-Evr-
ópu til dvalar um óákveðinn
tíma, og býr í næsta nágrenni,
vantar sárlega þvottavél. Ef ein-
hver vill vera svo góður að gefa
- eða selja við vægu verði -
þvottavél sem er í lagi en ekki er
lengur not fyrir, þá vinsamlegast
hringi sá í síma 12209 eftir kl. 20,
tíl aö gefa frekari upplýsingar.