Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Síða 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM ' Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SÍMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning. umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Víti til að varast Sú þróun hefur átt sér staö í ríkjum Evrópubanda- lagsins og þó einkum í Bandaríkjunum að tekjubil milli þeirra lægst launuöu og best efnuðu hefur breikkaö. Hinir ríku veröa ríkari, hinir fátæku fátækari. Fólk meö menntun, aðstööu og fjármagn hefur getað notfært sér kosti neyslusamfélagsins og hins frjálsa markaðar til að koma ár sinni fyrir borð á meðan lágstéttin hefur setið eftir. Að vísu hefur Evrópubandalagið gert veru- legt átak til að bæta hlut hinna verst settu að því er varðar húsnæði og opinbera þjónustu en vaxandi hópur atvinnuleysingja og undirmálsfólks hefur engu að síður ekki nema lágmarkslaun meðan hæstu laun fara hækk- andi. Bilið eykst. Þessi gjá, sem þannig myndast í krafti stéttaskipting- ar og tekjumunar, hefur leitt til aðskilnaðar og skiln- ingsleysis á högum undirmálsfólksins. Efnaða fólkið býr um sig í vemduðu umhverfi og einangrar sig frá fátækt- argettóunum og þeim þjóðfélagshópum sem lifa í allt öðrum heimi en sem snýr að umheiminum. Lágstéttirn- ar sjá hins vegar glansmyndirnar í sjónvarpinu og hafa þær fyrir augunum í veruleikanum í bifreiðum, hús- eignum, veitingahúsum og leikvöllum fína fólksins. Þeg- ar þessi veruleiki kemur einnig fram í misrétti réttar- fars eins og gerðist á dögunum vestur í Los Angeles brjótast út óeirðir sem eru afleiðingar af bældri heift og beiskju yfir misskiptum lífsgæðum. Það sama gerist í Evrópu þar sem innflytjendur og atvinnuleysingjar og ómenntaður fjöldinn horfir upp á vellystingar forrétt- indastéttanna. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur komið fram með tölur um tekju- og eignaskiptingu hér á landi sem benda til vaxandi mismunar á kjörum fólks. Jóhanna fullyrðir að rannsóknir hennar leiði í ljós fjórt- ánfaldan mun á bestu tekjum og lægstu tekjum þegar skattframtöl fimmtungs tekjuminnsta launafólksins annars vegar og fimmtungs hinna tekjuhæstu eru skoð- uð. Þessum tölulegu upplýsingum Jóhönnu verður að taka með fyrirvara. Athugun DV bendir til dæmis til þess að sams konar tekjumunur hafi verið til staðar í allmörg ár. Erfitt er sömuleiðis að átta sig á þeim for- sendum sem Jóhanna leggur til grundvallar, svo sem vinnuframlagi, og forsætisráðherra hefur réttilega bent á að útreikningar Jóhönnu séu gerðir áður en til tekju- jöfnunaraðgerða kemur. Engu að síður er vert og tímabært að taka aðvaranir félagsmálaráðherra alvarlega. Þær segja okkur að sams konar þróun í tekju- og eignaskiptingu geti auðveldlega átt sér stað hér á landi og áberandi er bæði austan hafs og vestan. Stéttaskipting er að skjóta hér rótum þótt með öðrum formerkjum sé en hingað til hefur þekkst. íslendingar hafa löngum getað hrósað sér af stétt- lausu þjóðfélagi. Hér hefur ríkt töluverður jöfnuður og jafnræði og enda þótt vissulega hafi fólk ávallt borið misjafnlega mikið úr býtum hefur stéttaskipting og eignaskipting verið meira í orði en á borði. Böm verka- manna hafa átt jafna möguleika á við börn forstjóra til að komast áfram í lífinu. Hér hafa iðnaðarmaðurinn og háskólaprófessorinn búið hhð við hlið. Hér hafa pening- ar sjaldnast skilið þjóðfélagshópana að. Ekki nema þá í undantekningartilvikum. Upplýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur eru takmörk- unum háðar. En þær vekja upp tímabæra spurningu og aðvömn.- Hér er víti sem þarf að varast. Ellert B. Schram FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992. „Yíir hálf milljón er komin á vergang og daglega bætast um 20 til 30 þúsund við.“ - Hlaupið með matarbirgðir í miðborg Sarajevo. Símamynd Reuter Saddam Milosevic Miðað við þá fjöldamóðursýki sem mögnuð var upp á Vesturlönd- um í kjölfar innrásar íraks í Kú- veit í ágúst 1990 mætti ætla að allur heimurinn stæði nú á öndinni út af útþenslustríði Serba í fyrrum Júgóslavíu. En nú kveður við allt annan tón. Nú er ekki talað um grímulausan yfirgang, sem allar þjóðir heims verði að standa saman gegn, nú er ekki talað um að hern- aðarlegt ofbeldi verði ekki þolað af aðildarríkjum Sameinuðu þjóð- anna. Þvert á móti. Allt fram á það síð- asta hefur verið talað um innbyrðis ágreining sem utanaðkomandi eigi ekki að skipta sér af. Betur heíði sama röksemd verið látin gilda í Kúveit. Arabaríkin hefðu leyst þá deilu sjálf ef ekki hefði komið til stríðsyfirlýsing Bush forseta strax í upphafi. En í Júgóslavíu hafa Bandaríkin reynt með öllu móti að forðast að taka afstöðu og haft uppi máttlaust hjal um að ekki eigi að skipta sér af innanríkismálum. Á þeirri forsendu komu Bandaríkja- menn sér undan því flestum öðrum lengur að viðurkenna Króatíu og Slóveníu sem sjálfstæð ríki, heldur hafa reynt allt til hins síðasta að halda í óbreytt ástand, það er að segja Júgóslavíu sem sambands- ríki, enda þótt sú hugmynd sé löngu dauð. Að lokum hafa þau nú viður- kennt ásamt Evrópuríkjunum að staðreyndir verði ekki umflúnar en engu að síður forðast Bandaríkja- menn að taka þá forystu sem þeir töldu sér tilheyra við Persaflóa, nú í sjálfri Evrópu, þegar grímulausu ofbeldi er beitt á ófyrirleitnari hátt en sést hefur síðan Þjóðveijar inn- limuðu Tékkóslóvakíu áriö 1939, í kjölfar Munchenarsamninganna um Súdetahéruðin. Bosnía Stríðið í Bosníu er landvinninga- stríð Serba, ódulbúið með öllu, þaö er tilraun til að inniima ríki sem lýst hefur yfir sjálfstæði sínu, með yfirburðahervaldi. Slíkt hefur ekki sést í Evrópu í meira en hálfa öld en engu að síður er ekki svo að sjá sem stórveldi heims láti sig málið miklu skipta. Sú réttláta reiði, hræðsluáróður og falsanir sem einkennt hafa af- stöðuna til íraks strax frá upphafi í þeim tilgangi að spana upp al- menningsálitið hefur látið á sér standa í hemaði Serba gegn ná- grönnum sínum. Samt hafa verið framin ekki minni grimmdarverk í þeim hemaði en nokkm sinni vora framin í Kúveit, eyðileggingin er miklu meiri, fjöldamorð tíðari, flóttamannastraumurinn ekki minni. Fullkomnum vopnum er beitt gegn vamarlausu fólki í vís- KjaUarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður vitandi útrýmingarstríði Serba gegn öðrum þjóðum í Bosníu- Herzegovinu. Yfir hálf milljón er komin á ver- gang og daglega bætast um 20 til 30 þúsund við. Serbar ráða þegar tveimur þriðju hlutum landsins og ætla sér að innlima þann hluta sem þeim sýnist, rétt eins og Þjóðverjar innhmuðu tékkneska hlutann, Bæheim og Mæri, í Tékkóslóvakíu, en gerðu Slóvakíu að leppríki sínu. Þetta lætur umheimurinn allt að því afskiptalaust. En vitaskuld er ekki olíu að finna í Bosníu. Kommúnistar og múslímar Stjóm Milosevics í Belgrad er kommúnistastjórn undir dulnefni og það er stjómkerfi kommúnism- ans sem gerir þessa útþenslu mögulega. En orsakimar em alda- gamalt hatur og þjóðremba sem tókst að halda í skefjum á dögum Títós en Milosevics hefur æst upp að nýju á vísvitandi hátt síðustu fimm ár. Það var útþenslustefna Serba sem gerði öðmm ríkjum sambandsríkisins Júgóslavíu ómögulegt að halda áfram í ríkja- sambandinu. Yflrgangur Milosevics flæmdi fyrst Slóvena og þá Króata úr sam- bandinu, síðan Makedóníu. Bosnía vildi aftur á móti í lengstu lög halda áfram í ríkjasambandinu, því að þar eru hlutfóll þjóðarbrotanna önnur og þar hefur í áranna rás ríkt miklu meiri samstaða þeirra á milli en til dæmis í Króatíu, þar sem ríkir opið hatur. Nærri helm- ingur íbúa Bosníu er slavneskir múslímar, sem tóku þá trú á yfir- ráðatíma Tyrkja, og sambúð mú- slíma bæði við Serba og Króata hefur lengst af verið góð. Serbar era um 28 prósent, Króat- ar um 16 prósent af alls 4,5 milljón- um sem búa í Bosníu. Mikill hluti Króata býr í Herzegóvínu, sem Ugg- ur að Króatíu, og hin nýja króa- tíska stjóm hefur fullan hug á að innlima þann hluta ef Serbar fara sínu fram með hinn hlutann. Ætl- un Serba er að innlima allar serb- neskar byggðir Bosníu í Stór-Serb- íu, rétt eins og í þeim þriðjungi Króatíu sem þeir ráða þegar eftir landvinningastríð sitt þar. Þetta geta þeir í krafti þess að sambandsherinn er undir þeirra stjóm, þetta er stríð Serba við ná- grannaríkin. Þetta er engin innan- landsdeila, hér eigast viö sjálfstæð ríki sem umheimurinn hefur við- urkennt. Hvar er nú allt talið um grímulaust ofbeldi og hvar er hin réttláta reiöi? Refsiaðgerðir Serbía hefur ásamt leppríki sínu, Montenegro eða Svartfjallalandi, krafist þess að verða viðurkennt sem arftaki gömlu Júgóslavíu. Nú fyrst hafa EB, RÖSE og Bandaríkin hafnað þeirri kröfu. Sameinuðu þjóðimar eiga enn eftir að taka af- stöðu. En sú krafa sem verður að gera til þjóða heims vegna þessa ástands er að Serbía fái að minnsta kosti sömu meðferð og írak. Algert viðskiptabann, algert bann við flugsamgöngum, alger frysting á öllum innstæðum í bönk- um erlendis er aðeins fyrsta skref. Ríki heims verða að vera undir það búin að beita valdi, til dæmis við að framfylgja samgöngubanni ef ekjd á fleiri sviðum. Án róttækra ráðstafana munu Serbar hafa sitt fram, hernám þeirra mun ekki ganga til baka fyr- ir vinsamleg tilmæli. Með aðgerð- unum gegn írak hefur fordæmið verið geflð. Hér í Evrópu blasir við annað og nærtækara dæmi um grímulausan yfirgang. Til þess verður að ætlast að honum verði mætt með ráðum sem duga. Gunnar Eyþórsson „Án róttækra ráðstafana munu Serbar hafa sitt fram, hernám þeirra mun ekki ganga til baka fyrir vinsamleg tilmæli. Með aðgerðunum gegn írak hefur for- dæmið verið gefið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.