Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Síða 15
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992. 15 SKialasöfnin íMoskvu Þegar sovésk skjalasöfn eru opn- uð mega flestar þjóðir búast við að eitthvað komi þar fram sem þær varðar. Svo er einnig um íslend- inga og því ekki óeðlilegt að ffétta- ritari íslenska sjónvarpsins leggi leið sína í eitthvert þessara nýopn- uðu skjalasafna. Þarf ekki að koma á óvart í fréttum og kastljósi sjónvarps- ins 1. maí var greint frá þessum söfnum og viðkomu fréttaritarans í einu þeirra. Sú umfjöllun var nokkuð umhugsunarverð. Það kom ekki fram að fréttaritarinn heföi rýnt að ráði í nein skjöl, bara að þama væri að firrna ýmis skjöl sem varöa ísland og íslendinga, og hann hefði séð einhver þeirra. Það þarf ekki að koma neinum á óvart. En svo fylgdu spekfilasjónir og látið í veðri vaka að þessi skjöl myndu varpa nýju ljósi á ýmislegt, og þá fýrst og fremst tengsl ís- lenskra sósíalista og/eða kommún- ista við Sovétstjómina, ekki bara meðan Kommúnistaflokkur ís- lands var og hét, heldur líka eftir að hann var lagður niður, og Sós- íahstaflokkurinn stofnaður. íslendingum, sem komnir em til vits og ára, ætti ekki að koma neitt á óvart í þeim efnum, svo lengi hefur Morgunhlaðið fullyrt um náin tengsl íslenskra kommúnista í teygjanlegri merkingu þess orðs sem eitthvað þekkja til sögu sósíal- iskrar hreyfingar á íslandi ætti ekki að koma á óvart þótt skjöl finnist í Moskvu sem sýna einhver slík tengsl. Shkt er í mínum augum varla fréttnæmt. Hluti heimshreyfingar Kommúnistaflokkur Islands, sem starfaði á áranum 1930-1938, var defld í Alþjóðasambandi kommún- ista, Komintem. Brynjólfur Bjarnason, formaður kommúnista- flokksins, greindi frá því í við- tölum, sem ég átti við hann, og komu á bók haustið 1989 (bls. 88), aö félagar KFÍ hefðu sótt þing Ko- mintem, virt samþykktir þess og stundum rætt við fulltrúa þess um sérstök vandamál flokksins. Hins vegar sagði hann KFÍ hafa verið „ ... þeim sem eitthvað þekkja til sögu sósíaÍiskrar hreyfingar á íslandi ætti ekki að koma á óvart þótt skjöl finnist í Moskvu sem sýna einhver slík tengsl. Slíkt er í mínum augum varla frétt- næmt.“ við Moskvu. Og reyndar þarf ekki sjálfstæðari gagnvart Komintem öfgakennda umfjöliun Morgun- en flestaUir aðUdarflokkar þess. blaðsins um þessi efni til að þeim ÉgspurðiBrynjólfekkiútítengsl Kjállariiin Einar Ólafsson bókavörður Var íslenskum kommúnistum stjórnað frá Moskvu? hans og félaga hans við sovéska kommúnista eftir að flokkurinn var lagður niður. Mér fannst það ekki sérlega áhugvert. Annars komst ég svo að orði í inngangi mínum að framangreindri bók (bls. 51): „Þótt Brynjólfur legði áherslu á að hver þjóð yrði að finna sína leið tfl sósíalismans, var honum, og upp til hópa hans kynslóð sósíal- ista, eiginlegt að líta á sig sem hluta heimshreyflngar sem Sovétríkin og alþýðulýðveldin, sem stofnuð vora í stríðslok, voru einnig hluti af. Þeir litu þess vegna á forystu- menn þessara ríkja sem samherja. Brynjólfur hafði auk þess haft per- sónuleg kynni af mörgum þeirra á alþjóðlegum þingum og ráðstefn- um og ferðalögum um þessi lönd.“ Það hefur heldur ekíd verið neitt launungarmál að meðal annarra hafði Einar Olgeirsson lengi góð sambönd austur fyrir járntjald, þ. á m. við Moskvu, og var oft milh- göngumaður þegar íslenskir stúd- entar fóru til náms við austurevr- ópska og sovéska háskóla á sjötta og sjöunda áratugnum. Það var heldur ekki nein launung á, að Fylkingin hafði sambönd í Moskvu framundir 1970, og á vegum hennar fór fjöldi íslendinga á skóla ung- kommúnista í Moskvu. Þekkingarleysi í sjónvarpinu var komist ein- hvern veginn þannig aö orði, að þessi skjöl, sem nú era orðin aö- gengileg, sýndu að íslenskum kommúnistum hefði verið stjórnaö frá Moskvu. Samt kom ekkert fram um það í þættinum, aðeins að um bréfaskipti hafi verið að ræða milli Reykjavikur og Moskvu. - Þetta er nokkuð fljótfærnisleg ályktun um það sem allt eins getur hafa verið skoðanaskipti, ráðleggingar eða til- mæli. Eflaust kemur eitthvað forvitni- legt fram í þessum skjölum. En hvað sem þau leiða í ljós, hvort sem það veröur eitthvað nýtt eða ekki, má búast við að þau verði notuð til að ófrægja íslenska kommúnista og vinstri sósíalista. Og þá munu ýmsir spila með, án ásetnings, vegna þekkingarleysis og ýkju- áhrifa æsifréttamennskunnar. Einar Ólafsson Höf um við ef ni á menntun? Flestir hagfræðingar era þeirrar skoðunar að menntun skili sér í auknum þjóðartekjum í framtíð- inni og auknum hagvexti. T.d. hafa ýmsir af fremstu hagfræðingum heims haldið því fram að mikilvæg- asta þróunaraðstoðin, sem hinar velstæðu þjóðir heimsins geti veitt þriðjaheims þjóðum, sé upp- fræðsla. Þeir hafa fært fyrir því góð rök að menntun sé eina þróunarað- stoðin sem skilar einhverjum var- anlegum árangri. Frcunlög íslendinga til mennta- mála hafa verið u.þ.b. 4% af vergri landsframleiðslu síðastliðinn ára- tug sem setur okkur í hóp með vanþróuðustu ríkjum O.E.C.D. Þær þjóðir, sem við höfum viljað bera okkur saman viö, verja mun meira fjármagni til menntamála en við. Þar er hagvöxtur líka mun meiri en hér á landi. Það skýtur því óneit- anlega skökku við að ríkisstjórnin skuh lækka þetta framlag enn meira. Fyrst var skorið niður í framlögum til skólanna og nú er verið að breyta lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna í þá átt að færri muni eiga þess kost að mennta sig í framtíðinni. Ríkisstjórnin ætlar að breyta lög- um um Lánasjóð íslenskra náms- manna í óþökk námsmanna og stjómarandstöðu þegar hægt hefði verið aö gera breytingar á lögum og reglum sjóðsins, sem hefðu styrkt hann til framtíðar, meö sam- stöðu við námsmenn. Ég ætla hér að gera grein fyrir áhrifum svokall- aðra eftirágreiddra námslána á námsmenn og Lánasjóð íslenskra námsmanna. Námslán í bankana Samkvæmt 6. grein fumvarps menntamálaráðherra fá náms- menn ekki námslán fyrr en eftir KjaUarinn Þorsteinn Þorsteinsson hagfræðinemi í H.í. að vottorði um námsárangur hefur veriö skilað. Þetta þýðir að ekki er lengur um framfærslulán að ræða þar sem námsmenn fá aldrei lánið í hendur fyrr en löngu eftir að framfærslan „átti sér stað“. Námsmönnum framtíðar er ætl- að að leita á náðir bankakerfisins eftir framfærsluiánum meðan á námi stendur. Þau lán, ef þau þá fást, verða að sjálfsögðu á markaðs- vöxtum. Þær afleiðingar, sem þetta ákvæði í lögunum hefur á náms- menn og ungt fólk í framtíðinni, eru hræðilegar. Færri einstakhng- ar munu eiga þess kost að mennta sig í framtíðinni og stéttaskiptingin í landinu mun aukast. Ef ég tek sem dæmi hvaða áhrif þetta hefði haft á námslán bróður míns, sem nú vinnur við að afla íslensku þjóðinni gjaldeyristekna á erlendri grund, hefði þetta ákvæði verið komið í lög árið 1988. Hann var í 18 mánaða samfeUdu námi í útflutningsfræðum í Danmörku og gat ekki skflað námsvottorði fyrstu 12 mánuðina og í raun ekki sýnt neinn „árangur" fyrr en að námi loknu. Þessi námstilhögun gerði það að verkum að ég var í stööug- um deUum við Lánasjóðinn um námsjjramvindu hans. Miðað við frumvarpið og orð ráð- herra hefði hann því þurft á banka- lánum að halda aUan námstímann og ekki fengið námslán fyrr en að námi loknu. Miðað við 6% mark- aðsvexti hefði hann því þurft aö greiða um 70.000 krónur í vaxta- kostnaö, ef hann hefði þá nokkum tíma fengið bankalán. En burt séð frá þeirri staöreynd að þetta ákvæði mun gera út af við námsmenn þá er það líka óhag- kvæmt fyrir Lánasjóðinn. Eftir því sem menntamálaráðherra hefur sagt þá verður lánað fyrir vaxta- kostnaðinum og það á vöxtiun, þ.e. námsmenn gefa frestað greiðslu vaxtakostnaðar með því að taka lán á vöxtum fyrir vaxtakostnaði. Þetta mun hafa það í för með sér að lánasjóðurinn mun lána sem vöxtunum nemur, meira en annars hefði orðið. Námsmenn í fjárlagagatið! Menntamálaráðherra, stjórnar- formaður Lánasjóðsins og aðstoð- armaður fjármálaráðherra hafa aUir sagt að þetta ákvæði muni spara Lánasjóðnum mikla peninga. Þetta get ég ekki með nokkra móti faUist á. Ef áramótastaða Lána- sjóðsins yrði skoöuö eftir næstu áramót kemur í ljós töluverður sparnaður en er rétt aö skoða stöðu sjóðsins á miðju námsári? Ef staða sjóðsins yrði aftur á móti skoðuð að skólaárinu loknu, þ.e. í byijun júni, kemur annað í ljós. Lánasjóð- urinn hefur þá nefnUega lánað, sem vaxtakostnaði námsmanna nemur, meira út en annars hefði orðið. Þessir herramenn vilja kannski halda því fram að námsmenn eigi kost á hagstæðari lánakjörum en ríkissjóður. Raunveraleg ástæða þessa ákvæðis finnst mér augljós. Davíð vUl ekki sjá haUa á ríkissjóði á þessu fyrsta fjárlagaári ríkis- stjórnarinnar og sér þarna mögu- leika á að flytja rúman milljarð yfir áramótin. Sparnaðurinn er enginn! Svona á ekki að ná niöur ríkisútgjöldum. Að stjórnarmenn í Lánasjóðnum skuh vinna gegn hágsmunum hans og reyna að sverta mannorð náms- manna í riti og ræðu er þessum mönnum til vansæmdar. Ég spurði í upphafi hvort við hefðum efni á menntun. Að mínu mati er svarið einfalt. Á tímum tækniþróunar og vísinda hefur ís- lenska þjóðin ekki efni á því að dragast aftur úr öðrum þjóöum á sviöi menntunar. Þess vegna er rík- isstjómin á rangri leið. Þorsteinn Þorsteinsson „Færri einstaklingar munu eiga þess kost að mennta sig í tramtíðinni og stéttaskiptingin í landinu mun aukast.“ „Samkvæmt 6. grein fumvarps menntamálaráðherra fá námsmenn ekki námslán fyrr en eftir að vottorði um námsárangur hefur verið skilað. Þetta þýðir að ekki er lengur um fram- færslulán að ræða..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.