Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1992, Page 25
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1992.
33
Menning
Leikhús
Danir, Finnar og Islendingar
Miövikudagskvöldiö 13. maí léku í Súlnasal Hótel
Sögu tvær hIjómsveitir.'*Sú fyrri, Flosason/Houmark
kvintettinn, flutti einvörðungu verk eftir danska gítar-
leikarann Karsten Houmark en meö þeim Sigurði skip-
uðu kvintettinn Torben Westergaard rafbassaleikari,
Sören Frost trommari og Kjartan Valdimarsson á
píanó. Andrea Gylfadóttir söng í tveimur lögum „Snow
Queen“ og „Lost in thougth" með textum eftir bresku
djasssöngkonuna Normu Winston og virtust bæði lög
og textar eiga sérlega vel viö Andreu ef marka má
útkomuna. „Faceless" var skemmtilegt fónkað lag með
fínu bassasólói og frumlegu gítarsólói.
Danirnir spiluðu þétt saman og íslendingarnir virk-
uðu meira eins og gestir þeirra. Tónlist Houmarks er
kunnáttusamlega samin, vel uppbyggð og útfærð og
flokkast vissulega sem nútímadjass, án þess að vera
neitt sérlega nýstárleg eða frumleg umfram það sem
gengur og gerist í músík af þessu tagi. Það má fremur
segja að þetta hafi verið falleg tónhst fyrst og fremst.
Eftir hlé kom á sviðið fmnsk/íslenski kvartettinn.
Jukka Perko á alto-sax og sópran, Egill B. Hreinsson
á píanó, Pekka Sarmanto á kontrabassa og Einar Val-
ur Scheving á trommur. Þeir hófu leikinn með „Whisp-
er not“ og fluttu því næst þijú íslensk lög. Fyrst var
það Maístjarnan síðan Vögguvísa Emils Thoroddsens
(sem virðist vera vinsæl á þessari djasshátíð) spiluð í
hröðu tempói, og að síðustu lagið um htlu Gunnu og
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
htla Jón sem hér var leikið mjög hægt, öfugt við það
sem venja er, þegar djassarar skeyta skapi sínu á því.
- Perko er alveg snilldarblásari og bjargaði þessari
hljómsveit frá því að vera næstum leiðinleg.
Þrátt fyrir marga góða takta, góðan trommuleik og
fyrirtaks bassaleik Sarmantos og góðar hljómahug-
myndir Egils var eins og erfiðlega gengi að ná lífi í
lögin. Maístjarnan fölnaði á himni og úr varð hálfgert
stjörnuhrap. „Parting at the pier“, sem er ágætt lag
eftir bróður Pekka, var líka fremur þreytulegt en lag
Páls ísólfssonar um litlu hjónin var yndislega vel flutt
og sama má segja um „Dam that dream", sérstaklega
í tvileik Finnanna. Egih hefur góða tilfmningu fyrir
harmoníu en er ekki í sömu deild og þeir Perko og
Sarmanto sem sólóisti og vantaði dáhtið upp á að því
leyti. - Hvorug hljómsveitin náði reyndar upp góðri
stemningu hjá áheyrendum. Það náðust engin tengsl
mhh áheyrenda og flytjenda. Hvort um er að kenna
salnum eða músíkinni skal ekki fuhyrt hér en það sem
helst vantaði var meira fjör.
Bridge
50 ára afmælishátíð BR
Bridgefélag Reykjavíkur á 50 ára
afmæh á þessu ári. Félagið mun
minnast þessara tímamóta með veg-
legri afmælishátíð dagana 28.-31.
maí. Fyrri tvo dagana verður haldin
sveitakeppni mhh fjögurra sterkustu
landshða heims. Búið er að bjóða
hingað til lands bresku Evrópumeist-
urunum, Pólveijum, sem sphuðu til
úrshta við íslendinga um heims-
meistaratithinn og Svíum sem hlutu
bronsverðlaun á síðasta heimsmeist-
aramóti og eru auk þess núverandi
Norðurlandameistarar.
Þessar þjóðir munu keppa við ís-
lensku heimsmeistarana sem eru all-
ir félagsmenn í Bridgefélagi Reykja-
víkur. Bretamir sem koma hingað
eru Tony Sowter, Roman Smolski,
Tony Forrester og Andy Robson.
Sænska landshðið verður skipað
þeim Anders Morath, Sven Áke Bjer-
regárd, P.O. Sundehn og Björn Fahe-
nius. Pólsku landshðsmennirnir
verða þeir Cezary Bahcki, Adam
Smudzinski, Krysztof Jassem og
Darius Kowalski.
Afmælishátíðin hefst miðvikudag-
inn 27. maí kl. 19.30 með firmasveita-
keppni. Spilaðar verða 10 umferðir,
þrjár á miðvikudeginum og sjö á
fimmtudeginum. Byrjað verður að
spha kl. 10 fimmtudaginn 28. maí og
áætluð mótslok um miðnætti. Spilað
verður eftir Monrad-kerfi og öllum
heimil þátttaka. Keppnisgjald á sveit
er 12.000 krónur. Verðlaun í þeirri
keppni eru 150, 100 og 50 þúsund
krónur. Föstudaginn 29. maí hefst
képpni landshðanna og verða spilað-
ar 3 umferðir, 20 spha leikir.
Laugardaginn 30. maí kl. 10 hefst
fjögurra umferða tvímenningur með
Mitchell-fyrirkomulagi sem er öllum
opin. Allir erlendu spilararnir veröa
meðal þátttakenda í þeirri keppni.
Sphað verður í Perlunni og sphaðar
2 umferðir á laugardag og sunnudag.
Þátttökugjald er 10 þúsund fyrir al-
mennan spilara en 7 þúsund kr. fyrir
félagsmenn í BR og er hádegisverður
innifalinn á laugardag. Glæsheg
verðlaun eru í boði, 120 þús. fyrir
fyrsta, 90 fyrir annaö, 75 fyrir þriðja,
50, 30, 20, 15 og 10 þúsund krónur
fyrir 4.-8. sæti.
Skráning í bæði þessi mót er hafin
hjá Bridgesambandinu og eru félagar
BR og aðrir sem áhuga hafa beðnir
að tilkynna þátttöku hið fyrsta th að
auðvelda skipulag mótsins. Lokahóf
afmæhshátíðar BR verður í ráðhús-
inu á sunnudagskvöld, en þar verða
afhent verðlaun fyrir keppnir hátíð-
arinnar.
Tilkyiiningar
Hjólreiðadagur
Foreldrafélag Austurbæjarskóla, náms-
stjóri í umferðarfræðslu, í samvinnu við
Borgarskipulag Reykjavíkur og Umferð-
arráð standa að hjólreiðadegi 16. maí.
Markmið hjólreiðadags er að stuðla að
aukinni notkun hjáima og í leiðinni að
njóta útivistar og fræðslu í Öskjuhlíð.
Dagskráin í Austurbæjarskóla hefst með
fræðslu um notkun hjáima. Síöan verður
hjólað í lögreglufylgd upp í Öskjuhlíð og
að lokiun farið í Perluna þar sem hópnum
verður boðið upp á veitingar með 50%
afslætti.
Dagmæður í Reykjavík
Hinn árlegi vorfagnaður verður haidinn
í Laufaborg 23. maí. Upplýsingar í símum
73359 og 76193.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun.
Kristniboðskynning
i Laugarneskirkju
Sunnudaginn 17. maí verður messa í
Laugameskirkju kl. 11 árdegis. Að þessu
sinni mun Ragnar Gimnarsson kristni-
boði predika og sóknarprestur þjóna fyr-
ir altari. Laufey Geirlaugsdóttir syngur
einsöng. í tengslum við messuna í Laug-
ameskirkju mun verða sýning á munum
og myndum frá Keníu. Eftir messuna
verður boðið upp á kaffisopa.
Leiðrétting
í frétt um samkeppni um hönnun
nýrrar kirkjubyggingar á ísafirði í
DV á þriðjudag var sagt að einróma
niöurstaða dómnefndar heföi verið
að velja thlögu Hróbjarts Hróbjarts-
sonar og samstarfsfólks hans th út-
færslu. Hefði átt að vera velja tihögu
Vinnustofu arkitekta í Reykjavík,
þeirra Hróbjarts Hróbjartssonar,
Richards Ó. Briem, Sigríöar Sigþórs-
dóttur og Sigurðar Björgúlfssonar.
Dómkirkjan
Samkirkjuleg guðsþjónusta í kvöld kl.
20.30. Gestir frá Afríku taka þátt í guðs-
þjónustunni. Altarisganga.
Vordagar í Húsasmiðjunni
Vordagar Húsasmiðjunnar standa fram
á laugardag 23. maí. Vordagamir höfða
til allra sem ætla út í enhverjar fram-
kvæmdir í sumar. Kynning er bæði utan
dyra og innan í verslun Húsasmiöj unnar
að Skútuvogi 16, Reykjavik, og Hellu-
hrauni 16 í Hafnarfirði. Hámark kynn-
ingarinnar er Húsasmiðjuhlaupið í sam-
vinnu við FH. Það fer fram laugardaginn
16. maí og hefst kl. 10 við Húsasmiðjuna
í Hafnarfirði. Allir sem koma í mark fá
verðlaunapening frá Húsasmiðjunni.
Þátttökugjald er 500 kr. fyrir 15 ára og
eldri en 300 fyrir 14 ára og yngri og renn-
ur það til Fijálsíþróttadeildar FH.
Fuglaskoðun á Seltjarnarnesi
Náttúmgripasafnið á Seltjamamesi
gengst fyrir fuglaskoðun laugardaginn
16. maí kl. 13.30 við Bakkatjöm, Bakka-
vik, Daltjöm og Seltjöm vestast á Nes-
inu. Kynnt verður nýtt veggspjald - fugl-
amir á Seltjamamesi - sem safnið hefur
nýlega gefið út. Öllum er heimil þátttaka.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
í samvinnu við Reykjavíkurhöfn setur
Náttúravemdarfélag Suðvesturlands
upp sælífsker á Miðbakka fyrir framan
Hafnarhúsið. Á morgun, laugardag,
verða tvær af mest áberandi lífverum
Gömlu hafnarinnar, beltisþarinn og
trjónukrabbinn, kynntar frá kl. 13.30-16.
Hver á fiskinn í sjónum?
Málþing Birtingar um fiskveiðistefnu og
veiðileyfagjald verður haldið í Skálanum,
Hótel Sögu, laugardagsmorguninn 16.
maí kl. 10-14. Sex framsögumenn flytja
um 15 minútna erindi hver. Aliir áhuga-
menn um sjávarútveg og stjómmál em
velkomnir. I hádeginu verður framreidd
súpa sem ásamt kaffi er inninfalin í 1.000
aðgangseyri.
Flugdagur í Kolaportinu
Kolaportið efnir til sérstaks flugdags í
Kolaportinu á sunnudaginn í samvinnu
við Flugmódeiklúbbinn Þyt sem mun
kynna starfsemi sína og sýna mikinn
fjölda flugmódela. Auk sýningar
Flugmódelklúbbsins munu flestir flug-
rekstraraðilar í Reykjavík vera með
kynningu á starfsemi sinni. Ef veður leyf-
ir er einnig ætlunin að hafa flugsýningu
fyrir utan (og ofan) Kolaportið.
Vordagar á Eiðistorgi
Verslanir á Eiðistorgi fagna sumri og
standa fyrir vordögum á Eiðistorg 11,
dagana 14.-24. mai. Boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá og alltaf eitthvað nýtt
á hverjum degi.
Sýningar
Vorsýning Myndlistar-
skóla Kópavogs
Sýning á verkum nemenda verður laug-
ardag og sunnudag 16. og 17. maí í hús-
næði skólans í íþróttahúsinu Digranesi
v/Skálaheiði frá kl. 14-20 og í Gallerí
fspan, Smiðjuvegi 7, kl. 15-20 báða dag-
ana. Kársneskórinn syngur i Digranesi á
laugardag kl. 14.30 og í Gallerí Ispan kl.
15.
Tónmyndaljóð í Perlunni
Mánudaginn 18. maí lýkur sýningunni
Tónmyndaljóð í Perlunni en þar er um
að raeða samstarf þriggja listamanna:
Myndir Gríms Marinós Steindórssonar
úr málmi, steini og klippimyndir, ljóð
Hrafhs Harðarsonar og tónlist Gunnars
Reynis Sveinssonar.
ÞJÓÐLEIKHÚSH)
Sími 11200
ELIIM HELGA' GUÐRIÐUR
eftir Þórunnl Slgurðardóttur
í kvöld, 15.5, kl. 20, lau. 16.5 kl. 20, örfá
sæti laus, fös. 22.5. kl. 20.
EMIL
í KATTHOLTI
eftir Astrid Lindgren
Sun. 17.5. kl. 14, örfásætl laus, ogkl. 17,
örfá sæti laus, lau. 23.5. kl. 14 og kl. 17,
sun. 24.5. kl. 14 og kl. 17, fim. 28.5. kl. 14,
sun.31.5. kl. 14 og kl. 17.
SÍÐUSTU SÝNINGAR.
MIÐAR ÁEMILÍ KATTHOLTISÆKIST
VIKU FYRIR SÝNINGU, ELLA SELDIR
ÖÐRUM.
LITLA SVIÐIÐ
í HÚSIJÓNS ÞORSTEINSSONAR,
LINDARGÖTU 7
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju.
í kvöld 14.5. kl. 20.30, uppselt.
Sun. 17.5. kl. 20.30, uppselt.
Uppselt er á allar sýningar
tll og meó sun. 31.5.
EKKIER UNNT AÐ HLEYPA GESTUM Í
SALINN EFTIR AÐ SÝNING HEFST. MIÐAR
ÁKÆRU JELENU
SÆKIST VIKU FYRIR SÝNINGU
ELLA SELDIR ÖÐRUM.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
Gengið inn frá Lindargötu
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ER LJÓN
eftir Vigdlsi Grimsdóttir.
í kvöld 14.5. kl. 20.30, sun. 17.5. kl. 20.30,
mlð. 20.5. kl. 20.30, lau. 23.5. kl. 20.30, sun.
24.5. kl. 20.30.
SÝNINGUM FER FÆKK-
ANDIOG LÝKURÍVOR.
EKKIER UNNT AÐ HLEYPA
GESTUM INN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
MIÐAR Á ÍSBJÖRGU SÆKIST VIKU
FYRIR SÝNINGU ELLA SELDIR ÖÐR-
UM.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla
daga nema mánudaga og fram að
sýningum sýningardagana. Auk þess
er tekið á móti pöntunum i síma frá
kl. 10 alla virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
HÓPAR 30 MANNS EÐA FLEIRIHAFI
SAMBANDÍSÍMA11204.
LEIKHÚSGESTIR, ATHUGIÐ:
ÓSÓTTAR PANTANIR
SELJAST DAGLEGA.
AND
LEIKHÚSÐ
í Tunglinu (nýja bíói)
DANNI
OG DJÚPSÆVIÐ BLÁA
eftir John Patrick Shanley
i leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar
5. sýning sunnud. 17. maí kl. 21.
6. sýning laugard. 23. mai kl. 21.
Miðaverökr. 1200.
Miðapantanir í sima 27333.
Mlöasala opin sýningardagana frá kl. 19.
Miðasala er einnig í veltingahúsinu, Lauga-
vegl 22.
LEIKHÚSTILBOÐ Á PÍSA
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
ðjð
Sími680680
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggt á sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.
í kvöld, 15. mai. Uppselt.
Laugard. 16. maí. Uppselt.
Sunnud. 17. maí. Uppselt.
Þriðjud. 19 maí. Uppselt.
Fimmtud. 21. maí. Uppselt.
Föstud. 22. maí. Uppselt.
Laugard. 23. mai. Uppselt.
Sunnud. 24. mai.
Þriöjud. 26 mai. Fáein sæti laus.
Miðvikud. 27. maí.
Flmmtud. 28. maí. Uppselt.
Föstud. 29. mai. Uppselt.
Laugard. 30. mai. Uppselt.
Sunnud. 31. mai.
Þriðjud. 2. juni.
Miðvikud. 3. júni.
Föstud. 5. júni. Úppselt.
Laugard. 6. júní. Úppselt.
Miðvikud. 10. júní.
Fimmtud. 11. júní.
ATH. SÝNINGUM LÝKUR 20. JÚNÍ NK.
MIÐAR ÓSKAST SÓTTIR 4 DÖGUM FYRIR
SÝNINGU - ANNARS SELDIR ÖÐRUM.
OPERUSMIÐJAN
sýnlr i samvinnu
við Leikfélag Reykjavikur:
LA BOHEME
eftir Giacomo Puccini.
Miðvikud. 20. mai. Uppselt.
Allra siðasta sýning.
SIGRÚN ÁSTRÓS
eftir Willy Russell.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.
I kvöld, 15. mai. Uppselt.
Laugard. 16. mai.
Föstud. 22. mai.
Laugard. 23. mai.
ATH. AÐEINS 10 SÝNINGAR.
Miðasala opin alla daga frá kl. 14-20
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir í sima alla virka daga
frákl. 10-12.
Simi 680680.
Faxnúmer: 680383.
Leikhúslinan 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur.
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
Islandsklukkan
eftir Halldór Laxness
I kvöld, 15. mai, kl. 20.30.
Laugard. 16. mai kl. 20.30.
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR.
Miðasala er i Samkomuhúslnu, Hafnar-
stræti 57. Mlðasalan er opin alla virka daga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Símsvarl allan sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta.
Siml i mlðasölu: (96) 24073.
Saga leiklistar á Akureyri
1860-1992
er komin út!
Bókln er til sölu i miðasölu lelkfélagsins.
Þar geta áskrifendur vitjað bókarlnnar við
hentuglelka.
BUND
hæða
mIumferðar