Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1992, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1992.
5
Fréttir
Virkjun vart réttlætanleg
„Mér sýnist vart réttlætanlegt aö
fara í svona stóra virkjunarfram-
kvæmd eins og Fljótsdalsvirkjun
meöan óvissan er enn fyrir hendi
í jafh ríkum mæli og raun her vitni
hvað snertir álveriö og orkukaupin
írá því, “ sagði Halldór Jónatans-
son, forstjóri Landsvirkjunar, við
DV.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráöherra hefur viðrað hug-
mynd um að hefja framkvæmdir
viö Fljótsdalsvirkjun tii að mæta
þvi kreppuástandi sem við blasir í
þjóðfélaginu.
Þess má geta að í Blönduvirkjun
hefur veriö varið 12,3 milljörðum
króna. í áætlun Landsvirkjunar er
gert ráö fyrir um 400 milljónum á
þessu ári í vaxtakostnað vegna
þeirra framkvæmda. Undirbún-
ingskostnaður við Fljótsdalsvirkj-
un nemur nú mn 700 miiljónum
króna.: Vaxtakostnaður af þeirri
upphæð er áætlaður 30 milljónir á
ári.
Halldór sagði að undirbúningur
við Fijótsdalsvirkjun hefði farið
fram i trausti þess aö til álvers-
framkvæmdanna kæmi áður en
langt um liði. Á síðasta ári hefði
verið stefnt að þvi að hefja fram-
kvæmdir í vor eða sumar með það
fyrir augum að ljúka þeim haustið
1995 þannig að álverið gæti þá tekið
fulla orku. í nóvember sl. hefði
verið ákveðið aö fresta öllum tíma-
semingum unr að mitmsta kosti ár
hvað snerti verklok og upphaf
rekstrar álversins fyrirhugaöa á
Keilisnesi.
„Með hliðsjón af þessu hefur
Landsvirkjun gert ráð fyrir því að
hefja framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun í fyrsta lagi á næsta ári,"
sagði Halldór. „Það er ennþá stefna
sljómar Landsvirkjunar að hefjast
ekki handa fyrr en á næsta vori eða
sumri, enda engin þörf á því miðaö
við stööu málai dag. Það gerir eng-
inn ráð fyrir þvi að álver verði
komið í rekstur á Keilisnesi fyrr
en í fyrsta lagi í árslok 1996. Til
þess að ná því markmiði þarf
Landsvirkjun fyrir sitt leyti ekki
að heíjast handa fyrr en á næsta
ári eða síðar ef um frekari drátt
verður að ræða á væntanlegri
samningsgerð.
Eigi að fara i einhverjar fram-
kvæmdir í ár, í atvinnubótaskyni,
er þaö sérstök ákvörðun sem ríkís-
stjórn og stjóm Landsvirkjunar
yrðu að taka í sameiningu. Þaö
hafa ekki komíð nein formleg til-
mæli frá ríkisstjóminni, enn sem
komið er, um slíkar aðgerðir.
Ég tel hins vegar að það sé á bratt-
ann að sækja gagnvart stjóm
Landsvirkjunar hvað þetta varðar
því enn er alls ekki á vísan að róa
hvaö álverið snertir. Ég tel fyrir
mitt leyti að við þyrftum að hafa
mikið fastara undir fótum í því til-
liti heldur en við höfum í dag tíl
þess aö geta hafist handa með
virkjanaframkvæmdir núna i sum-
ar í trausti þess að dæmið gangi
upp þegar allt kemur til alls.“
-JSS
í gærmorgun. Ráðherrann sýndi þolinmæði við Efri-Háfholu og svo fór að hann setti þar að lokum í 12 punda
hrygnu sem hann landaði skömmu síðar með glæsibrag. Með honum á myndinni er Vigfús Jónsson, bóndi á
Laxamýri, og ungur aðstoðarmaður þeirra. Á hádegi í gær voru komnir þrír laxar á land neðan Æðarfossa, 12,14
og 16 punda nýrunnir silfurgljáandi fiskar. DV-símamynd gk
Þyrlueftirlit með há-
lendinu heldur áfram
Ákveðið hefur verið að halda
áfram eftirliti með hálendi og þjóð-
vegum íslands úr þyrlum. Landhelg-
isgæslan kom slíku eftirliti á síðasta
sumar og gaf það mjög góða raun.
Þyrlueftirlitið hófst að þessu sinni
um hvítasunnuhelgina.
Nýverið var haldinn samstarfs-
fundur þar sem yfirmenn frá Land-
helgisgæslu, Náttúruvemdarráði,
Vegagerðinni og lögreglu lögðu á ráð-
in um eftirlit með vélknúnum öku-
tækjum í sumar, einkum meðan viss-
ir vegir væm þar lokaðir.
Auk þyrlna Gæslunnar, TF-SIF og
TF-GRÓ, mun Fokker-vélin, TF-SÝN,
fylgjast með hálendisvegum þegar sú
vél á erindi yfir hálendið. Eftirlits-
menn í þyrlunum verða annað slagið
frá Vegagerðinni og/eða lögreglunni.
Brot á gildandi reglum verða kærð
til viðkomandi sýslumannsembættis
og munu framangreindir samstarfs-
aðilar fylgjast náið með því að kæru-
mál fái rétta málsmeðferð.
-bjb
AMERÍSKIR
EFTIRÁRSBÍLAR
’90 JEEP CHEROKEE LAREDO DISIL
4 dyra, 5 gíra, beinskiptur, raf
magn, álfelgur, toppgrind.
’91 DODGE SHADOW AMERICA
2,2 lítra, sjálfskiptur, vökvastýri,
útvarp.
’91 CHRYSLER GRAND VOYAGER, 7 MANNA
3,3 lítra, sjálfskiptur, rafmagn,
veltistýri, cruise-control, þakgrind.
KR. 1.875.000,-
’91 JEEP CHEROKEE LAREDO
4,0 lítra, sjálfskiptur, rafmagn,
álfelgur, þakgrind.
KR. 2.550.000,-
’91 JEEP CHEROKEE LIMITED
Allur fáanlegur búnaður.
KR. 2.975.000,-
2JA DYRA KR. 1.248.000,-
4RA DYRA KR. 1.284.000,-
JÖFUR HF
- ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
NÝBÝLAVEGI 2, KÓPAVOGI, SÍMI 42600
KR. 2.250.000,-
’91 DODGE VAN B250
V8, 318, sjálfskiptur, gluggar.
KR. 1.767.000,- M/VSK.
KR. 1.419.000,- ÁN/VSK.