Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1992, Page 29
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1992.
England-Dan-
mörk í Evrópu-
keppninni
Englendingar og Danir leika í
kvöld annan leikinn i Evrópu-
kepgninni í knattspyrnu í Málm-
ey. I gærkvöldi kepptu gestgjaf-
arnir viö Frakka í fyrsta leik
keppninnar eins og sjónvarps-
áhorfendur gátu séö.
Danir komu óvænt inn í keppn-
ina þegar Júgóslaviu var meinuö
þátttaka. Liö Danmerkur er
sterkt en það sem helst gæti háð
ieikmönnum er að þeir hafa ekki
haft langan tíma til undirbún-
ings. Englendingar veröa því að
teljast sigurstranglegri þrátt fyrir
að þrír iykilmenn þeirra séu
flarri góðu gamni.
iprott ir i jKvoicl
England-Dan 18.05. mörk, RÚV kl
Mesti nirf-
ill heims
Ef hægt er að mæla nísku eftir
hlutfallinu milh eigna og eyðslu
þá er Henrietta Howland Green
(1835-1916) óskoraður methaíi
fyrr og síðar. Taka varð annan
fótinn af syni hennar vegna þess
að móðirin eyddi dýrmætum
tíma í að leita að sjúkrahúsi sem
veitti ókeypis þjónustu. Eftir lát
hennar kom í Ijós að eignir henn-
ar námu um 95 milljónum dala.
Blessuð veröldin
Mesta verðbólga
Hinn 6. nóvember 1923 voru
400.338.326.350.700.000.000 þýsk
ríkisbankamörk í umferð og
verðbólga var 755.700 milljónfóld
miðað við árið 1913. 5 milljón
marka seðlar voru eins og hvert
annað bréfarusl.
Gísli Magnússon.
Samleikur á
selló og píanó
Gunnar Kvaran og Gísli Magn-
ússon halda tónleika á hstahátíð
í íslensku óperunni í kvöld kl.
20.30. Á tónleikunum munu þeir
frumflytja nýtt verk eftir Jón
Nordal, Myndir á þili, og einnig
sónötu nr. 1 í G-dúr eftir J.S. Bach
og sónötu eftir Sergei Prokofiev
sem ekki hefur verið flutt áður
hér á landi.
Gunnar Kvaran sellóleikara og
Gísla Magnússon píanóleikara
þarf vart að kynna fyrir íslensk-
um tónlistarunnendum. Þeir hafa
báðir verið í fremstu röð ís-
lenskra tónlistarmanna um ára-
bil og eru viðurkenndir sem
framúrskarandi einleikarar á
hljóðfæri sín.
Listahátíð í dag
Samstarf Gísla og Gunnars
nær allt aftur til ársins 1973 og
árið eftir fóru þeir í tónleika-
ferðalag um Norðurlönd. Síðan
hafa þeir haldið fjölda tónleika
og komið fram í útvarpi og sjón-
varpi. Árið 1990 gáfu þeir út
hljómplötu með klassískum smá-
verkum fyrir selló og píanó.
Færð á vegum
Allir helstu þjóðvegir landsins eru
nú færir utan einstaka vegarkafla
sem eru lokaðir vegna aurbleytu svo
sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörð-
um.
Nýr vegur og brú yfir Markarfljót
verður opnuð í dag. Brúin yfir Gilsá
á Jökuldal á Austurlandsvegi verður
hins vegar lokuð vegna steypuvið-
gerða frá kl. 22 í kvöld til kl. 8 á
morgun.
Klæðingarflokkar eru nú að störf-
um víða um landið og að gefnu til-
efni eru ökumenn beðnir um að virða
sérstakar hraðatakmarkanir til þess
að afstýra tjóni af völdum steinkasts.
Umferðinídag
Allir hálendisvegir eru lokaðir
vegna aurbleytu og snjóa.
Vegirinnan svörtu
línanna eru lokaöirallri
umferð þar til annaö verður
auglýst.
0 Lokaö
® Tafir
D3 lllfært
@ Hálka
Höfn
Pinetop Perkins og Vinir Dóra:
„Hinir ágætu blúskallar, Pinetop
Perkins og Chicago Beau, verða
með Vinum Dóra á Púlsinum í
kvöld en þeir eru nýkomnir til
iandsins og ætla að leika á alls niu
tónleikum meðan á dvölinni stend-
ur.
Pinetop og Beau komu hingað í
nóvember sL og léku á Púlsinum
viö frábærar undirtektir. Þeir
hljóðrituðu geisladisk með Vinum
Dóra sem út er kominn víöa í Evr-
ópu og væntaniegur á markaö í
öðrum heimsáifum. Á diskinum er
hinn háaidraöi en síungi píanóleik-
ari, Pinetop Perkins, í aðalhlut-
verid en hann varð nýlega 79 ára
gamall og er liíandi goðsogn og
einn merkasti píanóleikari blus-
Pinetop Perkins.
sögunnar. Hann lék til að mynda
með Muddy Waters siðustu tólf ár
meistarans.
Chicago Beau hefur tekiö ást-
fóstri við ísland og íslendinga, eins
og svo oft vUl verða þegar menn
villast upp á skeriö, og nú er svo
komiö aö hann getur með sanni
kallast íslandsvinur. Hann er
þekktur kennimaður á sviði afró-
amerískrar menningar og virtur
og vinsæll fyrirlesari á þvf sviði.
Hann mun halda fyrirlestur um
blús á veitingastaðnum Jazz 15.
júní.
37
James Fox og Fanny Ardant.
Myrk-
fælni
Háskólabíó sýnir nú myndina
Myrkfælni eða Afraid of the
Dark. Með aðalhlutveridð fer
breski leikarinn James Fox en
hann er aö koma fram í sviðsljós-
ið á nýjan leik eftir tæplega 20
ára hvíld.
James Fox var frægur leikari
hér áður fyrr. Hann fæddist í
London árið sem seinna heims-
stríðið braust út en foreldrar
hans voru leikhúsfólk. Bróðir
James er Edward Fox sem einnig
er kunnur leikari. James hóf að
leika í kvikmyndum aðeins bam
að aldri og varð síðan ipjög vin-
sæll leikari á fullorðinsárum.
Hann hætti svo skyndilega að
leika árið 1973 og sneri sér að trú-
málum. Nú tæpum tuttugu árum
síðar er hann orðinn mjög vin-
sæll leikari að nýju en hann lék
m.a í myndinni The Russia House
á móti Sean Connery og Michelle
Pfeiffer.
Bíóíkvöld
Nýjar kvikmyndir
Ógnareðli, Regnboginn.
Ósýnilegi maöurinn, Bíóhöllin.
Mambo-kóngamir, Saga-Bíó.
Óður til hafsins, Stjömubíó.
Myrkfælni, Háskólabíó.
Spotswood. Laugarásbíó.
Grand Canvon, Bióborgin.
Andakílsá í Borgaríirði
Áin er lygn og rennur vestur Anda-
kílinn. Neðra veiðisvæðið, silunga-
veiðisvæðið, er u.m.þ.b 7 km langt.
Það byijar neðan við brú sem er yfir
ána á þjóðvegi nr. 53 og nær niður
að ósi. Ain er í um það bil 1 km fjar-
lægð frá bænum Ausu en þar er
hægt að fá veiðileyfi og hægt er að
aka alveg að niður að veiðisvæðinu
frá Hvanneyrarafleggjara. Hámarks-
fjöldi leyfðra stanga á dag er fjórar.
Veiðivon getur verið mikil og er
það nokkuð algengt að menn veiði
tugi fiska á dag. Sjávarfalla gætir
Umhverfi
töluvert í ánni en best er að veiða á
háfjörunni og þegar falla tekur að.
Urriöi og sjóbleikja veiðast helst í
ánni og einstaka sinnum lax. Algeng
veiði á dag er 10 til 15 fiskar. Á urrið-
ann er best að beita spón en á sjó-
bleikjuna má nota flugu, spón og
maðk. Bleikjan tekur helst spóna
sem snúast og glitra.
Sólarlag í Reykjavik: 23.55
Sólarupprás á morgun: 3.00
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.45 Lágfjara er 6-6 /i stundu eftir háflóð.
Árdegisflóð á morgun: 4.06
Þessi stúlka fæddist á Landspít-
alanum þann 4. júní sl. Hún var
16 merkur og mældist 52 cm. Fot-
eldrar hennar eru þau Ólafur
Sveinsson og Guðrún Guömunds-
dóttir. Stúlkan er annað bam
þeirra en fjölskyldan litía býr í
Hafnarfirði.
Gengið
Gengisskráning nr. 108.-11. júnl 1992 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 57,390 57,550 57,950
Pund 105.196 105,489 105,709
Kan.dollar 48,055 48,189 48,181
Dönsk kr. 9.3465 9,3726 9,3456
Norsk kr. 9,2200 9,2467 9,2295
Sænsk kr. 9,9831 10,0110 9,9921
Fi. mark 13,2205 13,2573 13,2578
Fra.franki 10,7071 10,7369 10,7136
Belg. franki 1,7510 1,7559 1,7494
Sviss. franki 39,5534 39,6637 39,7231
Holl. gyllini 31,9962 32,0854 31,9469
Vþ. mark 36,0377 36,1381 35,9793
it. líra 0,04765 0,04778 0,04778
Aust. sch. 5,1216 5.1359 5,1181
Port. escudo 0,4338 0,4350 0,4344
Spá. peseti 0,5723 0,5739 0,5775
Jap. yen 0,44948 0,45074 0,45205
Irskt pund 96,200 96,468 96,226
SDR 80,5532 80,7778 80,9753
ECU 73,8753 74,0812 73,9442
Simsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgáta
Lárétt: 1 kjöt, 5 nafar, 8 vafa, 9 ekki, 10
lina, 11 hreyfing, 12 skákin, 15 málmur,
16 götin, 18 slóg, 20 þrengsli, 21 manna.
Lóðrétt: 1 fák, 2 tíðum, 3 tötra, 4 rifrildi,
5, (jargi, 6 einnig, 7 hrygningarsvæði, 11
Ásypja, 13 samtals, 14 ilma, 15 kærleik-
ur, 17 op, 19 klafi.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 jörfi, 6 lá, 7 álar, 8 lek, 10 rek,
12 EmU, 13 nistið, 15 skaut, 17 ið, 18 eir,
19 rænu, 20 KN, 21 Alpar.
Lóðrétt: 1 jám, 2 öl, 3 rak, 4 fretur, 5 Umi,
6 leiöina, 9 klúöur, 11 eikin, 14 Sara, 15
sek, 16 tæp.