Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992.
Utlönd
Þrír létu lífið í þyrluslysi sem
varð í norðurhluta Japans í
morgun. Að sögn lögregluyfir-
valda á svæðínu skall þyrian á
Öalli.
Þyrlan, sem leigð var afTohoku
Eiectric Power Co, hrapaði í Fuk-
ushima. Farþegar hennar voru
starfsmenn fyrirtækisins á eftir-
litsferð.
Þetta er í þriðja sinn á einni
viku sem þyria hrapar í Asíu. Á
þriðjudaginn létust 15 er þyriu-
slys varð skammt frá Kínamúm-
um, ekki langt frá Peking, og á
fimmtudaginn lést einn nálægt
strönd Suður-Kóreu.
Fáð9árafang-
sveltasonsinn
Foreldrar 13 ára drengs sem dó
úr hungri hafa verið dæmd í 99
ára fangelsi fyrir að haía svelt
drenginn og hiekkja hann við eld-
hússkáp.
Atburöurinn átti sér stað í Fort
Worht, nærri Dallas í Texas.
Yngri sonur hjónanna vitnaði
gegn {«im. Stephen Hill. en svo
hét hixm látni, var aðeins 25 kíló
er hann fannst í dái í hjólhýsi fjöl-
skyldu sinnar í nóvember síðast-
liðnum.
Að sögn eins af kviödómendun-
um munu hjónin hafa séð til þess
að heimiliskötturinn fengi nóg að
óta en létu drenginn verða hung-
urmoröa. Mun drengurinn hafa
verið bundinn við skápinn meira
og minna í eitt og hálft ár ogbar-
inn tii reglulega.
Kennari drepinn
fyrirframan
Grunnskólakennari í Hamborg
í Þýskalandi var skotinn til bana
í gær af fyrrum eiginmanni sín-
um á meðan á kennslu stóð. Var
bekkurinn fullskipaður. Lögregl-
an leitar nú eiginraannsins.
Reuter
Barbara Bush er nú komin í eldlínu stjórnmálanna og gerir allt til að bera klæði á vopnin efir að maður hennar
var sakaður um framhjáhald. Hún gagnrýnir stuðningsmenn forsetans fyrir að ætla að ófrægja Bill Clinton og
konu hans. Símamynd Reuter
Barbara Bush kemur Hillary Clinton til hjálpar:
Látið ástarlíf
hennar ífriði
voru skilaboðin sem forsetafrúin sendi liðsmönnum forsetans
Öliiun aö óvörum tók Barbara
Bush upp hanskann fyrir Hillary
Clinton, eiginkonu BiUs Clinton for-
setaframbjóðanda, eftir að áróðurs-
meistarar Georges Bush hófu her-
ferö á hendur henni til að beina at-
hygli fjölmiðla frá sögusögnum um
framhjáhald forsetans.
Rich Bond, formaður Repúblikana-
flokksins, kvatti fjölmiðlamenn í gær
til að rannsaka einkalíf Hfilary Clin-
ton því þar væri af nógu að taka.
Barbara sagði í útvarpsviðtali að
þessi orö formannsins væru heyksl-
anleg og að honum væri nær að segja
eitthvað forsetanum til framdráttar
en að ganga í hð með slúðurberum
og draga forsetaframbjóðendurna
niður í svaðið.
Barbara hefur ekki áður komið
fram í kosningabaráttunni með svo
afgerandi hætti. Hún hefur jafnan
staðið við hlið manns síns en látið
hann um að tala. Vinsældir Barböru
eu þó sýnu meiri en forsetans og hún
er komin í eldlínuna eftir aö farið
var að segja sögur af meintri ástkonu
forsetans.
Barbara sagði að hún hefði fundið
til með Bill Clinton þegar hann var
sakaður um framhjáhald í vetur og
sagði aö fráleitt væri að trúa konu
sem hefði fengið borgað fyrir að
ófrægja Clinton.
Barbara kvaðst ekki mundu taka
nærri sér þótt Bush félh fyrir Clinton
í kosningunum í haust. Þau hefðu
nóg að gera utan Hvíta hússins. „Þeg-
ar við fórum úr Hvíta húsinu ætlum
við að njóta lífsins með vinum okk-
ar, bömunum og bamabörnunum,"
sagði Barbara. Reuter
LJÓSMYNDASAMKEPPNI DV OG HANS PETERSEN
SKEMMTILEGASTA SUMARMYNDIN
Sumar í
öllum veðrum
Það sem af er sumri hefur það ver-
ið misgjöfult á veðurblíðu. En sum-
arið er líka í rigningunni, slyddunni
og hvassviðrinu, innantands og
utan. Þeir sem vilja taka þátt í þess-
um létta leik setja sínar myndir í
umslag, merkt „Skemmtilegasta
sumarmyndin", fyrir 30. septemb-
er. Þeir sem eru tilbúnir mega
senda sínar myndir strax í dag.
I hverju umslagi á að vera annað
vel merkt og frímerkt umslag sem
notað verður til að koma myndun-
um til baka. Skrifið nafn og heimil-
isfang sendanda líka á bakhlið
myndanna.
Annað sem koma má fram fyrir
utan nafn Ijósmyndara er hvar
mynd er tekin, af hvaða tilefni og
hver er á henni. Myndirnar mega
hafa heiti og ekki er verra að lítil
saga fylgi.
Væntum við þess að fá margar
skemmtilegar og sumarlegar
myndir. Utanáskriftin er:
Skemmtilegasta sumarmyndin
DV, Þverholti 11,
105 Reykjavik.
1. VERÐLAUN:
Canon EOS 1000 Kit FN að
verðmæti 38.900 kr.
Canon Prima Twin AD að
verðmæti 15.300 kr.
3. VERÐLAUN:
Canon 5 AD að verömæti
10.990 kr.
Þrír Viewlux sjónaukar aö
verðmæti 5.800 kr.
Maríamey
mánaðamótin
Spámaður frá Ohio í Bandaríkj-
unum hefur sagl séra teoy
Smith í Cold Spring í Kentucy að
María mey muni koma til borgar
hans á miðnætti þann 31. ágúst,
Að sögn spámaimsins mun María
vilja að borgarbúar fasti og biðjist
fjulr dagínn eftir.
■ Kirkjunnar menn eru ekki allir
jafhhrifnir af spádómi þessum og
hefur biskup staðarins bannaö
presti að segja frá vitruninni viö
messur. Prestur telur hins vegar
rétt að láta sóknarbörn sín vita
að von sé á svo tignum gesti sem
Maríu mey.
fyriraðvera
drukknarvið
Borgarstjórinn í Bethel í Alaska
hefur fallist á að greiða tveimur
mæðrum skaöabætur vegna þess
aö þær voru ranglega handteknar
og kærðar fyrir aö vera drukknar
þegar þær gáfu börnum sínum
brjóst.
Lögreglan á staðnum taldi þetta
athæfi ólöglegt enda væri heilsu
bamanna stofnað í voða með því
að ala þau á alkóhólblandaðri
mjólk. Við athugun kom í Ijós að
i lögum er ekkert sem bannar að
drekka vínanda með móður-
mjólkinni.
ClintEastwood
slæröll metmeð
36. kvikmynd-
inni
Nýjasta mynd stórleikarans
Clint Eastwood, Unforgiven, sem
frumsýnd var um síðustu helgi,
hefur slegiö öll fyrri met í aö-
sókn. Þetta er að sjálfsögðu kú-
rekamynd og að sögn gagnrýn-
enda vestra sú besta sem Clint
hefur komíð nærri.
Clint leikur sjálfúr aðalhlut-
verkið, leikstýrir og framleiðir.
Um 15 milljónir Ðandarikajdala
reyndust vera komnar í sjóðinn
þegar aðgangeyrir fyrstu sýning-
arhelgarinnar var geröur upp.
Kófdrukkin
gylta réðst á
Lögreglan í Mt Coolum í Ástral-
íu sá sig tilneydda, nú á dögun-
um, að fangelsa gyltuna Penny
eftir að hún hafði ráðíst á gamla
könu. Gyltan var kófdrukkin og
var eigandinn beðinn að sjá til
þess að hún kæmist ekki í áfenga
drykki eftirieíðis en farga henni
að öðram kosti.
: Bóndinn aftók með öllu að íara
að ósk lögreglunnar því að Penny
væri þunglynd aö eölisfari og yröi
því að fá vænan skammt af bjór
á degi hveijum til að létta hmd-
ina. Penny fær þvi enn sinn bjór
og bæjarbúar mega eiga von á að
raæta henni ölóöri á förnum vegl.
kennarana
Þrir japanskir gagnfræöaskóla-
strákar fóru með feðrum sínum
á fund fjögurra kennara og börðu
þá til óbóta og brenndu með síg-
arettum. Aðförin var hefnd fyrir
það að strákarnir voru reknir úr
skóla fyrir reykingar,