Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER T992.
5
Fréttir
TIMARIT UM TÆKI OG TÓMSTUNDIR
b1 IC. Bh I I
Islandsmót í Jósepsdal
18 - 20 september
Landskeppni ísland - Svíþjóð
■H - - • ■' ^
Lokaslagur um meistaratitlanpa og bfrátta
við þá bestu frá Svíþjóð. Nú verða Syíarnir
lagðir! Nýtt keppnissvæði, nýjar þraufir og
eldheitir ökufþe'nfife^gastuði. Nú verður
öllu fórnað í lokaslagntífltí Fod^ypwirá
laugardag kl. 14.00 og aöalkeþppt á
sunnudag kl. 14.00. Aðgangur er fbo
krónur fyrir fullorðna, 200 fyrir börn. ,
Strætóferð úr Mjóddinni kl. 13.00. |_l
Láttu þig ekki vantal m
litrof
r^i
RUSSELL
ATHLETIC
SONAX
I S —
Bílasýning Tímaritsins
3T í dag milli
16.00-18.30 hjá Bílabúö
Benna á Vagnhöfða.
Öflugustu keppnistæki
landsins á sama stað og
nýjir breyttir jeppar frá
Ford, Nissan og Toyota.
Tilnefning á sjö
ökumönnum til
akstursíþróttamanns
ársins 1992.
Svíarnir eru sveittir yfir
kappi íslensku
ökumannanna, ekki
missa af átökunum.
Góða skemmtun og
misstu ekki af ítarlegri
umfjöllun um
torfærumótið í næsta 3T
á blaðsölustöðum 30.
september
sSSjlÉisS
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Vatnspökkunarfyrirtækiö AKVA á
Akureyri hefur þaö sem af er árinu
flutt út á þriöja hundrað tonn af vatni
í neytendaumbúðum til Bandaríkj-
anna og segir Þórarinn E. Sveinsson
að sífellt sé unnið að frekari mark-
aðssetningu á vatni á vegum fyrir-
tækisins í Bandaríkjunum.
Að sögn Þórarins einbeitir fyrir-
tækið sér að austurströnd Bandaríkj-
anna og hefur að undanfómu aðal-
lega selt á New York-svæðinu og í
Boston. Þórarinn segir að markaðs-
starfið sé erfitt, það sé mikil sam-
keppni á þessum markaði þar sem
mörg hundruð fyrirtæki séu að
keppa. Mörg þeirra eru bandarísk en
þeirra vatn sé ekki í sama gæða-
flokki og það íslenska. Markaðurinn
sé hins vegar geysilega stór og fari
sífellt stækkandi. Hann sé því bjart-
sýnn á framhaldið þótt hlutimir ger-
ist hægt.
Bjórhátíð haldin
í næsta mánuði
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Fyrirtækið Viking Brugg á Akur-
eyri ætlar að efna til mikillar „bjór-
hátíðar" í næsta mánuði og er áform-
að að hátíðin, sem mun standa yfir
í nokkra daga, verði á Akureyri og á
stærstu þéttbýlisstöðunum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Magnús Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Viking Bmgg, varðist
frekari fregna af málinu þegar DV
ræddi við hann. Samkvæmt öðrum
heimildum mun hátíðin eiga að vera
í anda slíkra hátíða sem fram fara
erlendis og frægar eru, en á þeim
keppast menn við dögum saman að
þamba bjór hver í kapp við annan.
Borgarráð:
Ráðhús og Perla f ara
enn fram úr áætlunum
Rekstur og viðhald Perlunnar hef-
ur reynst meira en 100 prósent
hærra, þaö sem af er þessu ári, en
gert var ráð fyrir kostnaðurinn yrði
á öllu þessu ári. Þá hefur varið um
66 prósentum meira fé í Ráðhús
Reykjavíkur það sem af er ári - þaö
er meira en gert var ráð fyrir að
færi til hússins á þessu ári.
í áætlunum ársins var gert ráð fyr-
ir að 24 milljónum krónum yrði var-
ið í rekstur og viðhald Perlunnar.
Um síðustu mánaðamót var kostnað-
urinn hins vegar orðinn 60 mfiljónir
króna. Hluti þessa mikla munar er
skýrður með því að gatnagerðargjöld
hafi reynst 8 milljónum króna hærri
en gert var ráð fyrir. Að þeim frá-
dregnum stendur eftir að umfram-
keyrslan er vel yfir 100 prósentum.
Ráðhús Reykjavíkur var tekið í
notkun í apríl á þessu ári. Gert var
ráð fyrir að 300 milljónir króna færu
í húsið á árinu en um síðustu mán-
aðamót var búið að verja 500 milljón-
um króna í húsið - eða 200 milljónum
umfram áæfianir.
Borgarfulltrúar minnihlutans létu
bóka eftirfarandi. Fyrst er bókun frá
Ólínu Þorvaröardóttir: „í fundargerð
stjómar veitustofnana 9. sept. s.l.
kemur fram að rekstur og viðhald
Perlunnar í Öskjuhlíð er í ágúst orð-
inn 60 milljónir króna en í áætlun
VatnsútfLutningur:
Áþriðjahundrað
tonntil Bandaríkj-
anna á árinu
- Perlan er rúmlega 100 prósentum yfir áætlun þessa árs
24 milljónir króna. Hvað veldur þess- segir: „Nú er ljóst að kostnaður við frágang. Síðast fengum við tölur í lok um 13 milljónir á þessum sex vik-
ari gríðarlegu áætlunarskekkju?" Ráðhúsið í ár er 500 milljónir en júlí s.l. en frá þeim upplýsingum hef- um.“
í bókun Sigrúnar Magnúsdóttur áætlunvar300milljónirkrónaíloka- ur lokafrágangur hússins hækkað -sme